Morgunblaðið - 31.05.1995, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1995 11
FRÉTTIR
Alþingi breytti lögum um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds
Lögin endurskoðuð
næstahaust
Veiðimenn
víða í stór-
silungi
Prýðisgóð silungsveiði hefur verið
víða þar sem hægt hefur verið að
stunda hana á annað borð, sem er
einkum á sunnan- og vestanverðu
landinu. í Köldukvísl, sem rennur
í Tungná, hefur til að mynda veiðst
afar vel þá fáu daga sem einhverjir
hafa staðið þar með stangir. Og
fiskur verið geysivænn.
Stórbleikja...
Það eru rúmar tvær vikur síðan að
fyrstu veiðimennirnir héldu til veiða
í Köldukvísl og að sögn Ingólfs
Kolbeinssonar í versluninni Vestur-
röst, sem, fylgist með aflabrögðum
þar efra, hafa menn síðan verið að
skreppa og fá þetta 5 til 12 bleikjur
yfir daginn. Stöku urriða. „Það
besta við þetta er hve stór fiskurinn
er, varla fiskur undir 3 pundum og
þeir stærstu enn sem komið er 7
punda. Ingólfur bætti við að ljóst
væri að Kaldakvísl yrði tær í allt
sumar, en oft er hún gruggug vegna
þess að miðlunarvatni úr Þórisvatni
er hleypt í hana. Nú væri vatns-
staða Þórisvatns hins vegar svo lág
að ekki kæmi til þess að hleypt
yrði af því á veiðitíma.
Veiðisvæðið í Köldukvísl sem um
ræðir er neðst í ánni, frá ármótum
við Tungná og upp að fossi nokkru
ofar, en hann er ógengur fiski. Að
sögn Ingólfs hefur best veiðst á
spón til þessa.
Að byija í Lóninu...
Véiði hefur verið að skríða af stað
í Lóninu svokallaða þar sem Hvolsá
og Staðarhólsá í Döium falla til
sjávar. Veiði hófst í bytjun maí, en
fáir sóttu vegna slæmra aðstæðna,
kulda og snjóalaga. Að undanförnu
hafa menn þó verið að koma þang-
að til veiða og einn hópur sem var
fyrir um viku fékk 20 bleikjur, 2-3
punda. Að öllu jöfnu er góð sjó-
bleikjuveiði á þessum stað framan
af sumri og því von á góðu.
Risaurriðar
Veiði hófst fyrir nokkru í Minnivall-
arlæk, smáá í Landssveit sem renn-
ur í Þjórsá. Veitt er á tvær stangir
og aðeins á flugu. Lítið hefur verið
farið og fáir fiskar veiðast, en á
móti kemur, að þeir sem veiðast
eru mjög vænir. Það sést varla
smærri urriði í ánni en 3-4 pund og
í vor hafa veiðst allt að 12 punda
fiskar. „Fiskurinn veiðist víða um
ána, það eru margir fallegir veiði-
staðir, en þetta er afar viðkvæm á
og í björtu veðri sést t.d. lítið af
fiski,“ segir Þröstur Elliðason leigu-
taki Ytri Rangár, sem selur einnig
leyfi í Minnivallalæk.
Laxveiðin að hefjast...
Laxveiði á stöng hefst á fimmtudag
er veiðimenn bieyta færi í Norðurá
í Borgarfirði. Fyrstu laxarnir sáust
í ánni fyrir helgina, við Skerin, á
Brotinu og á Stokkhylsbroti. Sam-
kvæmt því má heita öruggt að lax
sé einnig genginn í Þverá, en þar
hefst veiðin nokkrum dögum síðar.
Fyrstu laxarnir hafa þó veiðst, þeir
hafa komið í sjávarlagnir, m.a. við
Rauðanes fyrir vestan Borgarnes.
Menn hafa einnig séð nýgengna
laxa í Laxá í Kjós, en þar hefst
veiðin 10. júní. Sú nýbreytni verður
á opnun í Laxá í Kjós, að fyrstu
daganna verður einungis veitt á
flugu og vonast leigutakar árinnar
til þess að með því móti jafnist
veiðin út í upphafi veiðitímans, en
algengt hefur verið að mikil afla-
veisla væri fyrsta veiðidaginn og
veiðin síðan dofnað verulega næstu
daga á eftir, eða þar til að nýjar
göngur skiluðu sér. Eftir fyrsta
veiðihollið verður maðkur þó aftur
löglegt agn í ánni.
FRUMVARP til breytinga á lögum
um aðskilnað dómsvalds og umboðs-
valds urðu að lögum á Alþingi s.l.
mánudag. Allsheijarnefnd taldi ekki
víst að nægilegt væri eingöngu að
auka starfsöryggi dómarafulltrúa og
lagði til að starfssvið þeirra yrði
takmarkað frekar en verið hefði og
var það samþykkt eftir nokkrar
umræður. Lögin öðlast þegar gildi
en skulu endurskoðuð eigi síðar en
1. október 1996.
í breytingartillögu allsheijar-
nefndar er kveðið á um það að dóm-
stjóri eða héraðsdómari, þar sem
ekki sé skipaður dómstjóri geti falið
dómarafulltrúa að annast hvers kon-
ar dómsathafnir, en þó ekki að fara
með og leysa að efni til úr einkamál-
um þar sem vörnum sé haldið uppi
eða opinberum málum frá því þau
komi til aðalmeðferðar.
Starfi réttarfarsnefndar
verði hraðað
í nefndaráliti allsheijarnefndar
segir að hinn eiginlegi kjarni í störf-
um dómara sé að dæma í munnlega
fluttum einkamálum og alvarlegum
sakamálum og sú takmörkun sem
lögð sé til á störfum dómarafulltrúa
eigi að tryggja að reyndir héraðs-
dómarar fari með erfiðustu málin.
Fulitrúar muni áfram „geta sinnt
útivistarmálum, stýrt reglulegum
dómþingum í einkamálum og kveðið
upp réttarfarsúrskurði, afgreitt aðf-
ararbeiðnir, kveðið upp úrskurði um
gjaldþrotaskipti og opinber skipti á
dánarbúum sem og í skriflega flutt-
um einkamálum, enda sé ekki haldið
uppi vörnum, og rannsóknarúrskurði
í opinberum málum.“
Þá leggur Allsheijarnefnd áherslu
á að starfi réttarfarsnefndar að
frumvarpi til dómstóialaga verði
hraðað svo sem kostur er. Þar sé
lagður grunnur að framtíðarskipu-
lagi dómstólaskipunar í landinu og
hvort og með hvaða hætti eigi að
viðhalda fulltrúakerfinu. Þess vegna
geri nefndin þá breytingatillögu til
bráðabirgða að lögin þurfi að endur-
skoða eigi síðar en 1. október 1996.
Tilboðsverð til
Benidorm 22. júní
frákr. 39.930
Glæsilegt lilboð Heimsferða til Benidorm 22. júní í 3 vikur.
Nokkrar viðbótaríbúðir á E1 Trebol gististaðnum sem er
staðsettur í hjarta Benidorm, rétt ofan við ströndina. Allar
íbúðir eru með einu svefnherbergi, baði, stofu, eldhúsi og
svölum. Lítill garður, móttaka.
Huggulegur gististaður méð frábærri staðsetningu.
Benidorm - 3 vikur
Seldist upp
6 vj&bótarsœ1
39.932
Verð kr.
m.v. hjón með 2 böm, 2-14 ára, 22. júní.
Verð kr.
m.v. 2 í íbúð.
49.960
Innifalið í verði: Flug, gisting, ferðir til og frá
flugvelli, íslensk fararstjóm, flugvallarskattar.
Austurstræti 17,2. hæð. Sími 562 4600
ELTREBOL
Símaskráin 1995
er komin út
laugardaginn 3. Júní
l\lýja símaskráin tekur gildi
Mundu eftir afhendingarmiðanum
strax í da
og náðu í nýju símaskrána
p> lUýja símaskráin - nauðsynleg frá 3. júní. pósturogsími