Morgunblaðið - 31.05.1995, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1995 13
Hreinsunar-
dagur í Ejjum
Vestmannaeyjum -
Hreinsunardagur var
haldinn í Eyjum síð-
asta laugardag. Heil-
brigðis-, umhverfis-,
og náttúruvemdar-
nefnd Vestmanna-
eyjabæjar ásamt
, ferðamálafulltrúa
bæjarins höfðu for-
göngu um daginn og
sáu um skipulagningu
hans. Níu félagasam-
tök í Eyjum tóku þátt
í hreinsunardeginum
og var Heimaey skipt
í níu svæði og tók ÞAÐ
hvert félag að sér eitt
svæði.
Auróra Friðriksdóttir, formaður
Hun-nefndarinnar, sagði í samtali
við Morgunblaðið að hreinsunardag-
urinn hefði gengið vel. Um 150
manns, frá níu félagasamtökum í
Eyjum hefðu tekið þátt í að hreinsa
Heimaey og hefði mikið af alskyns
rusli verið safnað saman enda væri
mikill munur að litast um á Heimaey
eftir að hreinsunin hefði farið fram.
Hreinsunin hófst klukkan tíu á laug-
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
voru háir sem iágir sem tóku
þátt í hreinsuninni.
ardagsmorgun og henni lauk um
klukkan tvö eftir hádegi.
Að hreinsun lokinni var öllum
boðið til grillveislu við Ráðhús bæj-
arins þar sem grillaðar voru 600
pylsur ofan í mannskapinn. Litla
lúðrasveitin, lúðrasveit barna úr
Eyjum, og barnalúðrasveit frá Ól-
afsvík léku við Ráðhúsið meðan
grillveislan fór fram og var góð
stemmning í fínu veðri.
Fjölskylduhátíð um hvítasunnuna
Sumarvaki á
Suðurnesjum
Keflavík - „Undirtektir hafa verið
ákaflega góðar og það er mál þeirra
sem að þessu koma að slík hátíð
sé fyrir löngu tímabær," sagði Þór-
arinn Þórarinsson framkvæmda-
stjóri fjölskylduhátíðarinnar „Sum-
arvaki á Suðurnesjum" sem verður
haldin í Keflavík, Njarðvík og Höfn-
um um hvítasunnuhelgina. Að sögn
Þórarins er hér um viðamikla hátíð
að ræða með fjölbreyttri dagskrá
þar sem allir ættu að fínna eitthvað
við_ sitt hæfi.
Í tengslum við fjölskylduhátiðina
verður opnuð kaupstefna í íþrótta-
húsinu þar sem fyrirtæki sem þess
óska geta verið með bása til að
kynna þjónustu sína. Þá mun Hita-
veita Suðumesja vera með opið hús
á fímm stöðum af þessu tilefni,
laugardaginn 3. júní þar sem starf-
semi fyrirtækisins verður kynnt og
gestum jafnframt boðið upp á gos-
drykk og léttmeti.
Meðal dagskrárliða sem í boði
verða af þessu tilefni má nefna tón-
leika í Keflavíkurkirkju, myndlista-
sýningar, sýningu á bátslíkönum,
björgunartækjasýningu, útsýnis-
ferðir um Keflavíkurflugvöll,
gönguferð á Keili og um Fitjar
undir leiðsögn. Þá verða poptónleik-
ar í Félagsbíói og unglingadansleik-
ur í Stapa.
LANDIÐ
Morgunblaðið/Silli
Nýifé-
lagsmála-
sljórinn
Húsavík - Nýr félagsmálastjóri
hefur tekið við á Húsavík eins og
skýrt var frá í blaðinu í gær, Soff-
ía Gísladóttir. Hér birtist mynd af
Soffíu.
Klippti
sundur
ljósastaur
ísafirði - Bifreið var ekið á
ljósastaur við Hnífsdalsveg,
rétt ofan við Hraðfrystihúsið
hf., um hádegisbilið á mánu-
dag.
Bifreiðin hafnaði á hvolfi
utan vegar. Ökumaðurinn, sem
var einn í bílnum og var ekki
í bílbelti, hlaut minniháttar
meiðsl í andliti og er talið að
hann hafi sloppið vel miðað við
aðstæður. Hann mun hafa litið
frá veginum um stund með
framangreindum afleiðingum.
Bifreiðin er mikið skemmd
eftir óhappið og ljósastaurinn
klipptist í sundur.
Morgunblaðið/Sigurjón J. Sigurðsson
Morgunblaðið/Ámi Helgason
GÖNGUMENN virða fyrir sér blótstein og högghellu. Þessir steinar gætu frá mörgu sagt
og ekki öllu fögru hefðu þeir málið.
A söguslóðum í Helgafellssveit
Stykkishólmi - Æskulýðs- og
íþróttanefnd Stykkishólms efndi til
göngu um söguslóðir í Helgafells-
sveit sunnudaginn 28. maí sl.
Gengið var frá Þingvöllum og
að Helgafelli meðfram strandlengj-
unni undir leiðsögn Hjartar Hinriks-
sonar, Hrafnhildar Hallvarðsdóttur
og Kristjáns Kristjánssonar. Þau
eru fædd og uppalin á Þingvöllum
og Helgafelli og því mjög kunnug
á þessum slóðum. Þau vissu deili á
hveijum hól sem allir áttu sín nöfn
og þá fylgdu sögur sem tengdust
stöðunum. Flest ömefnin em frá
landnáms- og söguöld. Á Þingvöll-
um var vorþing eftir að þingstaður-
inn flutti frá Hofsstöðum. Á Þing-
völlum sjást minjar um gamla dóm-
hringinn og innan í honum em tveir
steinar, blótsteinn og högghella.
Einnig var litið á gálgaklett sem
tengist landi á fjöru og enginn
göngumanna var tilbúinn að fara
út á hann. í lok göngu var kirkjan
að Helgafelli skoðuð.
Allgóð þátttaka var í göngunni
sem tók þijá tíma. Fæstir höfðu
farið um þessar slóðir áður. Á leið-
arenda vom allir ánægðir með ferð-
ina og var þetta fyrsta gangan hjá
mörgum, í landsgöngunni sem hófst
þennan dag og stendur yfír í sumar.
Ljósmyndasýning Morgunblaðsins
HM a Ísíandi
I anddyri Morgunblaðshússins í Kringlunni 1 hefur verið komið upp yfirlitssýningu á Ijósmynd
um sem Ijósmyndarar blaðsins tóku á heimsmeistaramótinu í handbolta sem stóð yfir 7.- 21.
maí. A sýningunni - sem ber yfirskriftina HM á Islandi eru 20 sérvaldar myndir sem
sýna meðal annars áhorfendur, leikmenn og afhendingu verðlauna.
Morgunblaðið hefur ávallt lagt ríka áherslu á myndbirtingar í blaðinu og hefur Myndasafn
Morgunblaðsins að geyma fjöldann allan af Ijósmyndum sem birst hafa í blaðinu. Myndir sem teknar
hafa verið af Ijósmyndurum blaðsins eru seldar til einstaklinga og fyrirtækja og hefur jiessi þjónusta farið
vaxandi með hverju árinu enda mikið af myndum sem birtast í Morgunblaðinu hvern útgáfudag.
Sýningin stendur til föstudagsins 16. júní
og er opin á opnunartíma blaðsins,
kl. 8.00 - 18.00 alla virka daga og
laugardaga kl. 8.00 - 12.00.
MYNDASAFN