Morgunblaðið - 31.05.1995, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1995 29
KRISTJÁN
GUNNÓLFSSON
+ Krislján Gunnólfsson fædd-
ist á Þórshöfn á Langanesi
19. júní 1939. Hann andaðist á
heimili sínu í Reykjavík, 22.
maí siðastliðinn. Kristján var
jarðsunginn frá Bústaðakirkju
30. maí sl.
KRISTJÁN ólst upp á Þórshöfn,
næstyngstur sex systkina, hjá góð-
um foreldum sem gáfu börnum sín-
um gott veganesti út í lífið.
Hjá börnum Gunnólfs og Guð-
laugar eru systkinaböndin sterk, og
kom það best fram í veikindum
hans, sem stóðu yfir um eins árs
skeið. Megnið af þessum erfiða tíma
var Kristján á heimili sínu, síðustu
þrjá mánuðina alveg samfleytt.
Eiginkona hans, hún Inga, hugs-
aði um hann af miklum kærleik og
fórnfýsi og stóðu systkinin og mak-
ar þeirra þétt við hlið hennar við
að létta honum biðina eftir því, sem
hann og aðrir vissu að var óumflýj-
anlegt. Margar ferðirnar áttu syst-
kinin að sjúkrabeði hans, sum langt
að komin. Kristján var þakklátur
fyrir allar heimsóknirnar, en aldrei
heyrðist hann kvarta. Þannig var
hann í eðli sínu. Hann ýtti þessu
frá sér, eins og hann orðaði sjálfur.
Kristján átti stóran hóp systkina-
barna. Hann var þeim öllum hlýr í
umgengni og hafði gaman af að
tala við þau á léttu nótunum. Veit
ég að Einar Pálsson, bróðursonur
hans á eftir að geyma æðruleysi
frænda síns í minningasjóði sínum,
og um leið þakklæti fyrir stundirnar
sem þeir áttu saman.
Dugleg var hún Harpa Gísladótt-
ir, systurdóttir Kristjáns, sem býr
í Vestmannaeyjum, að koma með
son sinn 3ja ára, Kristján Tómas-
son, nafna frænda sína. Þetta
gladdi Kristján og Ingu.
Er ég riíja upp mín fyrstu kynni
af Kristjáni mági mínum, þá reikar
hugur minn 44 ár aftur í tímann.
Það var að vorlagi árið 1951 að ég
kom til Þórshafnar á Langanesi til
að hitta tilvonandi tengdafólk mitt.
Ég fór með strandferðaskipinu
Esju. Ekki var lagst að bryggju á
Þórshöfn, heldur úti á höfninni og
síðan kom uppskipunarbátur og
sótti farþega og vörur. Auðvitað
óaði piér við að fara niður í bátinn,
en með þeim fyrstu sem ég kom
auga á í vaggandi bátnum var
dugnaðariegur strákur með snjó-
hvítt hár og í blárri peysu. Þegar
ég var kominn heim til tengdafólks-
ins kom þessi sami strákur þangað,
og komst ég þá að því að þetta
væri hann mágur minn, Kristján.
Þessi mynd af 12 ára drengnum
greyptist í huga minn.
í litlum sjávarplássum snýst að
mestu allt um báta og fiskveiðar.
Kristján byijaði snemma að koma
nálægt snjó, fara í förur, dorga á
bryggjunni, og koma heim með út-
troðna vasa af snærum og önglum.
Síðar var hann á bátum á Þórshöfn.
Sjóndeildarhringurinn stækkaði
og Kristján fetaði í fótspor bræðra
sinna og fór á vertíð til Vestmanna-
éyja. Einnig var hann í mörg ár í
millilandasiglingum hjá Hafskip og
Sambandinu. Meðan Kristján var í
Vestmannaeyjum slasaðist hann á
handlegg og hætti uppfrá því að
stunda sjóinn. Eftir gosið í Eyjum
árið 1973 flutti hann til Reykjavík-
ur og bjó þar síðan og vann hin
síðari ár sem vörubílstjóri hjá Þrótti.
Kristján hóf sambúð með Ingi-
björgu Gunnarsdóttur árið 1979,
og gengu þau í hjónaband 24. mars
sl. Brúðkaupsdagur þeirra verður
okkur öllum, sem vorum með þeim
þann dag, ógleymanlegur. Því þrátt
fyrir skuggann sem grúfði yfir tókst
okkur að eiga gleðistund. I erfiðum
veikindum Kristján brást Inga ekki.
Hún stóð sterk við hlið hans og
annaðist hann af slíkri alúð að eft-
ir var tekið.
Á kveðjustund vil ég þakka Krist-
jáni fyrir samfylgdina öll þessi ár,
og bið honum blessunar Guðs.
Innilegar samúðarkveðjur sendi
ég Ingu og syrgjendum öllum.
Ég vil kveðja mág minn með
broti úr ljóðinu „In Memoriam“ eft-
ir Grétar Fells.
Og kvöldið, er dauðinn kom til þín,
var kyrrð og þögn yfir bænum.
Og alheiminn dreymdi um undir sín,
og andvari leið frá sænum.
En dauðinn - hann gaf mér blíðan blund
þú blíðkaðir jafnvel hans grimmu lund.
Ásta Einarsdóttir.
INGIÞÓR GEIRSSON
+ Ingiþór Hafstein Geirsson
fæddist í Höfn, Hópnesi í
Grindavík 17.2.1930. Hann and-
aðist á Landspítalanum 23. maí
sl. og fór útför hans fram frá
Keflavíkurkirkju 23. maí.
INGIÞÓR Geirsson slökkviliðsstjóri
Brunavama Suðurnesja er látinn,
þvílík harmafregn. Okkur setur
hljóða og við spyijum af hveiju?
Ingiþór Geirsson og Brunavamir
Suðurnesja voru í okkar huga eitt
og hið sama. Mikinn hluta starfsævi
sinnar starfaði Ingiþór að brunamál-
um fyrir bæjarfélag sitt og þótti
takast afburðavel. Ingiþór tók þátt
í uppbyggingu Bmnavarna Suður-
nesja allt frá áhugamannaslökkviliði
til atvinnumannaslökkviliðs og þar,
sem ávallt áður, gegndi hann for-
ystuhlutverki. Við viljum þakka fyr-
ir þann tíma sem við höfum starfað
saman, þakka fyrir að fá að kynn-
ast slíkum manni sem Ingiþór var.
Minning hans lifi. Guð veri með eig-
inkonu hans og fjölskyldu.
Stjórn Brunavarna Suðurnesja.
Matur og matgerð
Islenskt
eggaldin
Varla líður svo vika að ekki komi ný tegund
af fersku íslensku grænmeti í búðir, segir
Kristín Gestsdóttir, sem kennir okkur að
grilla eggaldin og býður auk þess gómsætan
eggaldinrétt með pasta.
A
IGarðyrkjuskólanum í Hvera-
gerði fer fram mikil og fjöl-
breytileg ræktun bæði utan dyra
og í gróðurhúsum. Eggaldin hef-
ur t.d. verið ræktað^ þar síðan
1970, en þó hafa íslendingar
ekki almennilega komist upp á
lag með að borða það, þótt notk-
un þess hafi aukist hin síðari ár.
Þeir sem lagt hafa leið sína til
landa við Miðjarðarhafíð hafa
vafalaust borðað margvíslega
rétti með eggaldini. Ég legg til
að við íslendingar borðum eg-
galdin núna, þegar kartöflur eru
ekki mjög góðar og lærum að
meta hið milda bragð þess, sem
íbúar Miðjarðarhafssvæðisins
meta mikils. Núna eru komin á
markaðinn fersk og nýsprottin
eggaldin, fallega fjólublá, glans-
andi og lystileg. Nú þegar hálf
þjóðin er farin að grilla, ættum
við að setja íslenskt eggaldin á
grillið, það eykur fjölbreytnina.
Eggaldin á grillið er afar ljúf-
fengt, þótt ekkert sé sett á það
annað en salt og pipar, en með
olíu og ýmsu kryddi má bæta
bragðið og auka fjölbreytnina.
Grillað eggaldin hentar afar vel
með steiktu og grilluðu kjöti og
fiski.
Þegar eggaldin er grillað, er
leggurinn og laufið fyrst skorið
af en síðan er eggaldinið skorið
í 8 rif langsum eða 1 'h sm þykk-
ar sneiðar þversum. Salti er stráð
á skurðflötinn og aldinið látið
bíða í 10 mínútur. Þá er það
þerrað vel með eldhúspappír og
það penslað með olíu og kryddi.
Það er síðan lagt á grindina og
grillað í um 10 mínútur og oft
snúið við og penslað jafnóðum
með kryddolíunni. Kryddolían er
hituð með kryddinu, en kæld
áður en penslað er með henni.
Gott er að nota örbylgjuofn til
að hita olíuna í eða bara eldavél-
ina, en þetta má líka setja í ál-
form og hita á grillinu, en fylg-
ist með svo að ekki brenni.
Kryddolía með
ítölsku kryddi og
hvítlauk
% dl olíufolía
Ví tsk ítölsk kryddblanda (italian
___________seasoning)_____________
1 -2 hvítlauksrif (eða hvítlauksduft)
’/s tsk. pipar
Kryddolía með
sítrónu, kanil o.fl.
% dl olíufolía
I msk. sítrónusafi
% tsk. þurrkuð basilíka eða meira
fersk
14 tsk. kanill
Kryddolía með
sojasósu
% dl ólífuolía
2 msk. soyasósa
1 msk. sjerrí eða 2 msk eplasafi
14 tsk. engiferduft eða rifið ferskt
engifer
Athugið: Nota má brætt smjör
í stað ólífuolíu, en þá erfrekar
hætta á að eggaldinið brenni.
Eggaldin með pasta
250 g núðlur eða það pasta sem
ykkur hentar
______1 eggaldin um 250 g_____
salt til að stró ó eggaldinið
30 g smjör (2 smápgkkgr)
4 stórar sneiðar meðalfeitt
beikon
lOOgrauðlaukur
100 g sveppir
2 msk. sjerr! eða 3 msk eplasafi
1 dl mjólk eða rjómabland
Vx msk. hveiti
nýmalaður pipar
10 möndlur
1. Sjóðið pastað skv. leiðbein-
ingum á umbúðum.
2. Skerið eggaldinið í 1 sm
þykkarsneiðar. Skerið þvers og
kruss létt ofan í sneiðarnar. Strá-
ið salti á báðar hliðar og látið
standa í 10 mínútur. Þerrið þá
af með eldhúspappír.
3. Hitið 30 g smjörá pönnu,
hafið meðalhita, setjið sneiðarn-
ar á pönnuna og steikið á hvorri
hlið f 5 mínútur. Takið þá af pönn-
unni.
4. Skerið beikonið í bita, afhýð-
ið lauk og saxið og skerið svep-
pina í sneiðar. Setjið lauk og
sveppi með beikoninu á pönn-
una. Ef þetta er mjög þurrt má
bæta örlitiu smjöri eða matarolíu
á pönnuna. Sjóðið þetta saman
í 5 mínútur.
5. Hristið saman mjólk og
hveiti og hellið yfir. Setjið þá
eggaldinsneiðarnar ofan á. Malið
pipar yfir. Setjið lok á pönnuna
og hafið þannig í 5 mínútur.
6. Hellið soðnu pastánu á sigti,
setjið svo í skál og hellið því sem
erá pönnunni yfir.
7. Saxið möndlurnar gróft og
stráið yfir.
Athugið: Pasta á alltaf að
sjóða í miklu vatni við háan hita
svo að það sé alltaf á hreyfingu
í vatninu. Þá loðir það ekki sam-
an.
n
Allra síðustu dagar
HM95 stórútsölunnar
Stórútsölunni á HM minjagripum í HM
básnum í Kringlunni lýkur í dag, |
Eignist áþreifanlegar
Einnig minnum við á
símasölu á HM minja-
gripum, síminn
Hverjum minjagrip fylgir
minningar frá skemmti- er 568 4280.
HM plakat í kaupbæti á
legri keppni.
meðan birgðir endast.
KRINGLAN
H M 9 5 BÁS
w \r
o émmm
‘V*
//A , v