Morgunblaðið - 31.05.1995, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1995 33
BRÉF TIL BLAÐSINS
Opið bréf til
Rafmagnseftirlits
ríkisins
Frá Sigurði Magnússyni:
HERRA Rafmagnseftirlitsstjóri
ríkisins,
Bergnr Jónsson.
Eins og ég hef áður skrifað yð-
ur, þá bárust mér í hendur Orðsend-
ingar frá Rafmagnseftirliti ríkisins,
sem þér hafið undirritað, þ.á m.
nr. 2/95 er varðar rafmagnstöflur
með „tvöfaldri einangrun“.
Og þar sem hún er óljós að
margra mati er nauðsyn að spyija
margra spurninga í opnu bréfi,
virðulegi Rafmagnseftirlitsstjóri.
Hvert er gildissvið Orðsendingar
nr.2/95, sem samin var hjá Raf-
magnseftirliti ríkisins og send var
út nú fyrir skömmu?
Er verið að íjalla um háspennu-
eða smáspennutöfiur með tvöfaldri
einangrun, eða eitthvað annað?
Þar sem „Núllað - 400 Volta kerfi“
er það algengasta í dreifikerfi raf-
veitna landsins má álykta að átt sé
við búnað fyrir það spennukerfí.
Það er óábyrgt að senda út orð-
sendingu sem er svo óskýr að hún
orkar tvímælis. Orðsending 2/95
skilst t.d. á þann veg, að Reglu-
gerð um raforkuvirki er brotin, sé
farið eftir uppskrift RER.
Brot á reglugerð
í orðsendingunni er bannað að
jarðbinda ákveðna leiðandi hluta
taflna ( raforku-virkis). Ef yður
og hjálparsveinum yðar finnst
þetta í lagi, er svo ekki. Sé þetta
gert, er spursmál hvenær slys
hlýst af og spurning hversu alvar-
legt.
Spurning um hver verði til að
lenda í mistakaferli, slíkum sem
fjallað er um í greinum sem birtust
í Morgunblaðinu 27.10. 1994 og
annari 1.11. sama ár. Greinarþess-
ar voru um slys, sem varð af mis-
tökum og þar sem spennujöfnun
og jarðbindingu vantaði.
Eftir að seinni greinin birtist
skrifaði ég öllum 63 þáverandi
þingmönnum landsins bréf til að
minna á að rafmagnseftirlit hefur
verið minnkað um 90% með nýjum
og vafasömum reglum.
Skynsemi flestra sem fást við
rafvirkjunarstörf leiðir til að farið
er eftir Reglugerð um raforku-
virki. í kafia 207-1, § 207 segir, í
fyrstu málsgrein:
„Núllun er fólgin í því að tengja
alla leiðandi virkjahluta utan
straumrása, sem vetja skal, við
sérstaka hlífðartaug, sem hefur
samband við núlltaugina „hina
jarðtengdu rekstrartaug.““
Svo segir í næstu málsgrein §
207: „Með núllun er leitast við að
koma í veg fyrir, að of há snerti-
spenna á hlutum utan straumrása
geti haldist svo lengi, að hætta
stafí af.“
Er það skoðun RER að þessi
einkennilega orðsending 2/95 sé
til að skerpa vitund fagfólks um
nauðsyn þess að fara eftir reglum?
Refsing
í Orðsendingu 2/95 segir að
ekki eigi að jarðbinda, við aðstæður
sem eru nefndar. Hvergi í kafla
207 er getið um frávik frá jarðbind-
ingu heldur margítrekað hvernig
skuli jarðbinda, á sem bestan hátt,
við ýmsar aðstæður.
Með þessari margnefndu Orð-
sendingu er hvatt til að reglugerðin
sé ekki notuð rétt. Ef rafverktaki
gerir mistök í starfi er honum refs-
að eftir reglum, sem hafa verið
settar af Rafmagnseftirliti ríkisins,
reglum sem þér hafið samþykkt.
Veikasti hlekkurinn getur verið
mælikvarði styrks,- hafið þér
kannað hvar bilaði hlekkurinn er
í RER?
Endurtekin áskorun
Rafmagnseftirlitsstjóri Bergur
Jónsson, ég skora á yður að inn-
kalla Orðsendingu Nr. 2/95 þar
sem hún er villandi.
Orðsendingin í heild boðar gjörð-
ir, sem geta valdið slysi, mun ég
því jafnframt senda kvörtun til
réttra yfírvalda og gera þeim við-
vart um þá hættu sem af henni
gæti stafað.
Ég kýs að fá þetta birt í ijöl-
miðli til að vekja athygli sem
flestra, sem hlut eiga að máli, á
þeirri duldu hættu sem stafar af
umræddri orðsendingu frá Raf-
magnseftirliti ríkisins.
SIGURÐUR MAGNÚSSON,
Hofteigi 14, Reykjavík.
Tilmæli til
hrepps-
nefndar
Bessastaða-
hrepps
Frá Helenu Hilmisdóttur:
TILMÆLI mín til hreppsnefndar
Bessastaðahrepps og íbúa hrepps-
ins eru að standa vörð um fuglalíf-
ið á Álftanesi og friða varpsvæðin
svo það gerist ekki aftur, sem
undirrituð varð vitni að 24. og 25.
maí sl., þegar eggjaræningjar létu
greipar sópa í kríuvarpinu á Hliði
og einhveijir ungir menn keyrðu
um á varpsvæðinu.
Við erum svo lánsöm að hafa
þessa fuglaparadís við bæjardyrn-
ar og þess vegna verðum við að
standa vörð um fuglalífið og
varna því að svona atburðir gerist
aftur.
HELENA HILMISDÓTTIR,
Lambhaga 13, Bessastaðhrepp.
R AÐ AUGL YSINGAR
Nýkomnar
ódýrar kommóður og borðstofuhúsgögn.
Verslunin Sumarhús,
Hjallahrauni 8, Hafnarfirði,
sími 555 3211.
Opið frá kl. 10.00 til 18.00 og laugardaga frá
kl. 10.00 til 14.00.
Kaupi gamla muni
s.s. skrautmuni, bækur, myndir, málverk,
silfur, silfurborðbúnað, jólaskeiðar,
Ijósakrónur, lampa, bollastell, platta,
gömui póstkort og smærri húsgögn.
Upplýsingar í síma 567-1989. ,
Geymið auglýsinguna.
EIMSKIP
Útboð
Hf. Eimskipafélag íslands óskar eftir tilboð-
um í girðingar og hlið á athafnasvæði sínu
í Sundahöfn í Reykjavík.
Helstu verkþættir:
Grindargirðing 500 m.
Netgirðing 150m.
Aksturshlið 31 m.
Gönguhlið 2 stk.
Útboðsgögn verða afhent á Verkfræðistofu
Stefáns Ólafssonar hf., Borgartúni 20, 105
Reykjavík, frá og með þriðjudeginum 30. maí
gegn 5.000 kr. skilatryggingu. Þar verða til-
boð opnuð fimmtudaginn 8. júní kl. 14.00.
VERKFIUEOISTOFA
8TCFANS ólafcsokah HF. FAV
Borgartúni 20, 105 Reykjavík, sími 621099
Námskeið íkvikmyndaleik
haldið 6.-13. júní í Leiklistaskóla íslands.
Leiðbeinpndur: Þorsteinn Bachmann, Reynir
Lyngdal og Arnar Jónsson.
Fyrirlesarar: Hilmar Oddsson, kvikmynda-
leikstjóri, og Helgi Skúlason, leikari.
Upplýsingar í síma 552-7035.
Garðbæingar
- Álftnesingar
Eggjataka í landi Garðabæjar er stranglega
bönnuð.
Umhverfismálanefnd Garðabæjar.
Husnæðisnefnd Kópavogs
Umsóknir
Húsnæðisnefnd Kópavogs vekur athygli á,
að umsóknarfrestur um félagslegar eigna-
og kaupleiguíbúðir rennur út þann 5. júní nk.
Þeir einir koma til greina sem uppfylla eftir-
farandi skilyrði:
1. Eiga ekki íbúð eða samsvarandi eign.
2. Eru innan eigna- og tekjumarka sem Hús-
næðisstofnun ríkisins setur.
3. Sýna fram á greiðslugetu sem miðast við
að greiðslubirgði lána fari ekki yfir 30%.
Umsóknareyðublöð eru afhent á skrifstofu
Húsnæðisnefndar Kópavogs, Fannborg 4,
sem er opin frá kl. 9-15 alla virka daga.
Athygli er vakin á því, að endurnýja þarf
eldri umsóknir og ef fólk óskar eftir að
flytja sig til innan kerfisins, þarf að leggja
inn nýja umsókn.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Húsnæðis-
nefnd Kópavogs, Fannborg 4, eða í síma
45140 frá kl. 11-12 alla virka daga.
Húsnæðisnefnd Kópavogs.
Hörgshlíð 12
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Háaleitisbraut 58-60
Fjáröflunarsamkoma Kristni-
boðsfélags karla í kvöld kl. 20.30.
Ræðumaður verður sr. Sigurjón
Árni Eyjólfsson.
Þórður Búason syngur einsöng.
Á samkomunni verður happ-
drætti til styrktar kristniboðinu.
Allir eru velkomnir.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Þjóðfélagið og trúin
Opinn fundur um þjóðfélagsmál
í kvöld kl. 20:30.
Ragnar Garðarsson, stjórnmála-
fræðingur, mun fjalla um
Evrópusambandið og sögulega
þróun Evrópuríkja.
Einar Jakob Guðjónsson, læknir,
mun fjalla um nútíma heilbrigðis-
þjónustu í Ijósi kristinnar trúar.
Kaffiveitingar og frjálsar umræð-
ur. Aðgangur er ókeypis og allir
hjartanlega velkomnir.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 • SÍMI 682533
í kvöld kl. 20.00 verður göngu-
ferð frá Myllulækjartjörn (sunn-
an Eliiðavatns) að Þingnesi
(gengur út í Elliðavatn). Þægileg
gönguleið - margt að sjá.
Brottför frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin og Mörkinni 6.
Verð kr. 600.
Feröafélag (slands.
Fyrirlestur
verður haldinn af
Önnu Cörlu, miðli,
í kvöld kl. 20.30 í
húsi Pýramídans,
Dugguvogi 2.
Fyrirlestrarefni:
Flvað er miðill?
Flver er ábyrgð miðla? Geta allir
orðið miðlar? Flvað er tengdur
miðill?
Allir velkomnir á meðan húsrúm
leyfir. Húsið opnað kl 19.30.
Pýramidinn,
Dugguvogi 2,
símar 88 1415 og
88 2526.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 SÍMI 682533
Hvítasunnuferðir Ferða-
félagsins 2.-5. júnf:
Brottför ki. 20.00 föstudag!
1) Snæfellsnes - Snæfellsjökull.
Gengið á jökulinn (7-8 klst.) og
farnar skoðunarferðir, m.a. á
Djúpalónssand og í Dritvík, kom-
ið við á Hellnum. Gist í svefn-
pokaplássi á Görðum í Staðar-
sveit.
2) Öræfajökull - Skaftafell.
Gengið á Ö'ræfajökul (2119 m)
og tekur gangan um 14 klst.
fram og til baka. Fá sæti laus.
Gist í svefnpokaplássi á Hofi í
Öræfasveit.
Undirbúningsfundur fyrir þessa
ferð verður ( Mörkinni 6 (stóra
salnum) miðvikudaginn 31. maí
kl. 19.30.
Brottför kl. 08. laugardags-
morgun.
3) Þórsmörk/Langidalur. Þessi
ferð er sérstaklega sniðin fyrir
fjölskyldufólk með útiveru,
gönguferðum og leikjum.
4) Fimmvöröuháls - Þórsmörk.
Gengið yfir hálsinn á laugardeg-
inum (7-8 kist. ganga). Gist í
Skagfjörðsskála. Farmiðasala og
upplýsingar á skrifstofu F.í,
Feröafélag (slands.
- kjarni málsins!