Morgunblaðið - 31.05.1995, Page 44

Morgunblaðið - 31.05.1995, Page 44
í K G LCTT# alltaf á Miðvikudögum MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 669 II00, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.1S / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85 MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1995 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Kúadansinn Morgunblaðið/Sigurður Jónsson KÝRNAR á Hreiðurborg í Sandvíkurhreppi voru settar út í fyrsta sinn í gærdag. Fyrstu skrefin út í náttúr- una eftir innilokun vetrarins stigu kýmar varlega en síðan hófst heilmikill kúadans. Sérsamningar liggja í loftinu náist samningar ekki í dag Ágreiningur milli sjómanna um lausn ÁGREININGUR er milli sjómanna- samtakanna um hvaða leið er best að fara varðandi breytingar á verð- myndun afla. Þrátt fyrir ágreining voru í gærkvöldi taldar líkur á að samningar tækjust en viðræður voru þá á mjög viðkvæmu stigi. Samn- ingamenn höfðu á orði að ef upp úr viðræðum slitnaði myndi það gerast með látum og menn myndu fara heim og semja f sérsamningum. Bæði LÍÚ og sjómannasamtökin hafa lagt fram skriflegar tillögur til lausnar ágreiningi um verðmyndun á afla. í gærkvöldi sátu forystumenn beggja deiluaðila á fundi og reyndu að ná samkomulagi um eina tillögu. Talsverður ágreiningur var um orða- lag. Ekkert hefur verið gefið upp um efni tillagnanna. Sjómannasambandið sýndi útgerð- armönnum í gær tillögu til lausnar deilunni sem LÍÚ lýsti sig tilbúið til að samþykkja, en Vélstjórafélag ís- lands og Farmanna- og fiskimanna- sambandið neituðu að skrifa undir tillöguna. LÍÚ sagðist þá ekki sam- þykkja tillöguna nema öll félögin þrjú samþykktu hana. Sérsamningar í undirbúningi Skipstjóra- og stýrimannafélag Norðlendinga hefur samþykkt að ef samningar komist ekki á skrið í Karphúsinu í dag dragi félagið samn- ingsumboðið til baka og samningar verði reyndir við útvegsmenn á Norð- urlandi. Þorbjöm Sigurðsson, for- maður félagsins, sagði um miðjan dag í gær að ef viðræður skiluðu ekki árangri næsta sólarhringinn myndi hann fara heim og hefja við- ræður um gerð sérsamnings við út- gerðarmenn á Norðurlandi. „Ég veit um vilja einstakra útgerðarmanna á Norðurlandi til að gera samninga. Ég get ímyndað mér að við gætum leyst þetta á skömmum tíma.“ Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ, sagði við Morgunblaðið í fyrra- dag að útgerðarmenn sem vildu gera sérsamninga við sjómenn yrðu að segja sig úr LÍÚ. Þorsteinn Vilhelms- son, einn eigenda Samherja hf., sagði þetta ekki rétt. _,,Það er ekkert sem stoppar okkur. Ég hef enga ástæðu til að ætla að LIÚ myndi beita sér gegn slíkum samningum." Þorsteinn sagðist telja að norð- lenskar útgerðir yrðu fljótar að ná samningum við sjómenn ef viðræður um gerð sérsamninga yrðu teknar upp. Þorsteinn sagði að útgerðar- menn á Norðurlandi hefðu rætt óformlega saman. M.a. hefðu for- svarsmenn Samheija rætt við stjórn- endur Útgerðarfélags Akureyringa. Hann sagðist gera ráð fyrir að út- gerðarmenn í Eyjafirði eða á öllu Norðurlandi myndu ganga sameigin- lega til viðræðna ef farið yrði út í sérsamninga við sjómenn. Stríðsástand á Reykjaneshrygg Rússi skemmdi flottroll Siglis RÚSSNESKUR togari skemmdi veiðarfæri frystitogarans Siglis fyrir skömmu á úthafskarfaveiðum á Reykjaneshrygg. 80-100 skip eru við veiðar á litlu svæði á hryggnum um 600 mílur suðvestur af Islandi talsvert utan íslensku lögsögunnar. „Ég held að þarna ríki hálfgert stríðsástand. Sum skipin virða ekki siglingareglur og beygja ekki. Þau eru að klippa aftan úr hvert öðru. Núna síðast klippti japanskur togari allt saman aftan úr rússnesku skipi. Þetta er ekkert einsdæmi. Þau hafa verið að klippa kaplana hjá íslensku skipunum líka,“ sagði Þorsteinn Vil- helmsson hjá Samhetja. Á Reykjaneshrygg eru m.a. rúss- nesk, þýsk, portúgölsk, færeysk, norsk og japönsk skip og íslensku skipin Haraldur Kristjánsson, Bald- vin Þorsteinsson, Júlíus Geirmunds- son og Akraberg. Ekki hægt að nota trollið Ragnar Ólafsson, skipstjóri á Sigli, sagði að rússneskur togari hefði siglt yfir flottroll skipsins og stórskemmt það, kapall hefði slitnað og trollið rifnað. Hann sagði að rússnesku og japönsku skipin væru mjög erfið í samskiptum og virtu mörg hver ekki siglingareglur. Hann sagði að hluta til væri þetta vegna þess að Rússarn- ir hefðu ekki sama tækjabúnað og aðrir og eins væru veiðarfæri ís- lensku skipanna stærri en þeirra eig- in og þess vegna gerðu þeir sér ekki grein fyrir fjarlægðinni sem þyrfti að vera milli skipanna. Fleiri íslensk skip hafa lent í vand- ræðum á Reykjaneshrygg. M.a. var farið yfír kapalinn hjá Harðbaki. Helgi Hallvarðsson skipherra sagði að Landhelgisgæslan hefði ekki fylgst með veiðum á hryggnum síðustu daga, enda væru skipin ekki að veiðum við landhelgislínuna. Farmenn sömdu Undirmenn á kaupskipum í Sjómannafélagi Reykjavík- ur og vinnuveitendur skrif- uðu undir kjarasamning í gærkvöldi og var jafnframt aflýst verkfalli sem félagið boðaði í gær frá og með 6. júní. Að sögn Þórðar Magnús- sonar framkvæmdastjóra hjá Eimskip hittust samninga- nefndir deiluaðila í gær fyrir tilstuðlan ríkissáttasemjara. Þórður sagði að samningurinn byggðist að mestu á miðlun- artillögu sáttasemjara, sem sjómenn höfðu áður hafnað í atkvæðagreiðslu. Hins vegar hefði tillögum um vinnutil- högun í heimahöfn, sem mætt höfðu andstöðu sjómanna, verið breytt lítillega. Sleipnismenn á fundi Bifreiðastjórafélagið Sleipnir óskaði óvænt eftir samningafundi með vinnu- veitendum hjá ríkissáttasemj- ara í gærkvöldi. Hjá embættinu fengust þær upplýsingar að vilji hefði verið fyrir því að kanna hvort fundinn væri nýr viðræðu- grundvöllur. Fundurinn stóð enn um miðnætti í nótt. Eimskipafélagið að taka við Grænlandssiglingum EIMSKIPAFELAG Islands og heimastjóm Grænlands hafa undir- ritað viljayfírlýsingu um náið sam- starf Eimskips yið skipafélagið Royal Arctic Line A/S um flutninga til og frá Grænlandi. Einnig eru viðræður í gangi um kaup Eimskips á þriðj- ungs eignarhlut í skipafélaginu. Grænlenska heimastjómin hefur tek- ið yfír allan eignarhlut danska skipa- félagsins J. Lauritzen A/S í félaginu. Gert er ráð fyrir að á næstu vikum verði gengið frá endanlegum samn- ingum vegna þessa samstarfs. Hörður Sigurgestsson, forstjóri Eimskips, segir að viljayfirlýsingin snúi einkum að samstarfi um flutn- inga til og frá Grænlandi þar sem siglingakerfi Eimskipafélagsins og Royal Arctic Line verða sameinuð og nýtt betur en annars væri. Royal Arctic Line var stofnað 1992 er grænlenska landsstjómin tók til- boði J. Lauritzen A/S í flutninga til og frá Grænlandi. Félagið var að tveimur þriðju í eigu J. Lauritzen A/S og einum þriðja í eigu heima- stjómarinnar á Grænlandi. Eimskip gerði þá einnig tilboð í flutningana en því var hafnað. Útboð grænlensku landsstjórnarinnar var liður í einka- væðingu ríkisfyrirtækja þar í landi. Breytingar á flotanum Hörður segir það ekki á dagskrá að Eimskip taki allan hlut J. Lauritz- en. „Það er gert ráð fyrir því að græn- lenska heimastjómin eigi eftir þessa breytingu meirihluta í félaginu." Auk sjóflutninganna hefur Royal Arctic Line rekið 10 vöruafgreiðslur á Grænlandi. Félagið er með fimm skip á sínum vegum til flutninganna og segir Hörður að þau verði notuð áfram að hluta til og auk þess skip Eimskips. „Skipunum myndi ekki §ölga en líklegt er að breytingar yrðu á samsetningu flotans. Við ger- um ráð fyrir því að það verði breyt- ingar á flota Éimskips á næstu mán- uðum eða missemm. Hugsanlega verður sú breyting fólgin í sölu á núverandi skipum að hluta til og kaup á skipum en um það liggur ekkert endanlegt fyrir ennþá. Það verður gengið í það þegar búið er að ganga endanlega frá samningun- um við Grænlendingana, þeir eru síð- asti þátturinn í því að hægt sé að ganga frá þessum breytingum á sigl- ingunum. Hluti af þeim breytingum er sá að siglt verður beint til útlanda frá Akureyri," sagði Hörður. Flutningarnir til og frá Grænlandi eru um 200 þúsund tonn á ári. Hörð- ur segir ekki ljóst hve stór hluti flutn- inganna fari í gegnum flutningakerfi Eimskips. Hann vildi ekki nefna hver áætluð veltuaukning félagsins yrði því ekki væri búið að ganga frá samningum. Hann sagði að ekki þyrfti að ijölga starfsmönnum. Morgunblaðið/Júlíus Sumarmalbikun hafin MALBIKUN sumarsins er hafin. Ástand gatna í borginni er slæmt að sögn Sigurðar Skarphéðins- sonar gatnamálastjóra og hafa götur víðast hvar komið illa und- an vetri miðað við undangengin ár. Að mati gatnamálasíjóra væri æskilegt að veija meira fé til málaflokksins en fjárveitingar til viðhalds á malbiki hafa verið svip- aðar undanfarin ár eða um 200 milljónir króna og svo er einnig í ár. Áætlun um framkvæmdir sumarsins tekur mið af fjárveit- ingum og er gert ráð fyrir að lögð verði út um 20 þúsund tonn af malbiki auk þess sem götur verða lagaðar með fræsara.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.