Morgunblaðið - 09.06.1995, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 1995
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
íMfffflllí//
- 'ítetí fttftfi<-■ — " \
---/ :
■ ■ ■ , ■' ' - -
11« Wja '&kffý
■ - t /
NV 'Mídi- t&A&tfM
hRv /f *í,< (tU' ■‘■ý/
Wm 'SU(i ■ 8.nt.fi i/tff R4.(iw
Wl
» •
||P 'frmarymmtefwttm
máÉ iítfVCft&l fUftWQ#
W e&m&M&lffi.f? ' ^
■ <$fM( - rf^pQBfl í
r 'mf'mtméhmm*’ j
/WW-P tf0 JgitiflSf
mtm
'fftðt -'ftiefmt pHfifte ifaf
msf'
•■ ■
#■+£**#>■
Jt.n
■ ■
Ævintýraleg björgun bandarísks flugmanns í Bosníu
Sýndi mikla var-
kámi og þrautseigju
Bildt verð-
ur sátta-
semjari
Kaupmannahöfn. MorgunbJaðið.
CARL Bildt, formaður sænska
Hægriflokksins og fyrrum for-
sætisráðherra, fundaði á miðviku-
dag með Jacques Chirac Frakk-
landsforseta. Fundurinn er liður í
undirbúningi þess að Bildt verði
útnefndur sáttasemjari Evrópu-
sambandsins, ESB, í Bosníudeil-
unni í stað Owens lávarðar, sem
lætur af störfum í sumar.
Bildt hefur ekki viljað ræða við
fréttamenn um útnefninguna, en
hefur í tilkynningu sagt að hann
muni halda áfram sem flokksfor-
maður.
Styrkur Bildts er álitinn vera
að hann hefur gott samband við
leiðtoga stórveldanna, ekki síst
Rússlands. Hins vegar þykir lík-
legt að breytingar verði gerðar á
starfssviði sáttasemjarans til að
hlutverkið verði virkara en verið
hefur.
Aviano á ítallu. Reuter.
SÉRSVEITARMENN
úr liði landgönguliða
bandaríska flotans
björguðu í gærmorgun
flugmanni F-16C her-
þotu sem Bosníu-Ser-
bar skutu niður með
flugskeyti sl. föstudag.
Maðurinn, Scott F.
O’Grady höfuðsmaður,
mun hafa nýtt sér vel
þjálfun sína til að kom-
ast af við erfíðar að-
stæður en var illa hald-
inn af kulda er hann
fannst. Fögnuður ríkti
í Bandaríkjunum yfír
leikslokum og Bill
Clinton forseti hyilti
O’Grady og björgunar-
menn hans ákaft í
gær, sagði þá alla vera
„bandarískar hetjur".
„Hann stóð í fætuma þegar við
náðum honum, hljóp í átt að þyrl-
unni,“ sagði Jim Mitchell, talsmaður
herstjómar Atlantshafsbandalagsins,
NATO, í Suður-Evrópu sem hefur
aðsetur í Napólí. Læknir sem skoðaði
O’Grady sagði að hann hefði lifað á
skordýrum, sennilega maurum og
krybbum [eins konar engisprettum],
auk regnvatns þegar vistir sem hann
bar á sér vöru uppumar.
O’Grady er 29 ára gamall, frá
Washington-ríki og er liðsmaður flug-
sveitar sem hefur bækistöð f Aviano-
Scott F. O’Grady
sem skotinn var
niður fyrir viku
yfir Bosníu.
herflugvellinum f norð-
austurhluta Ítalíu. Hann
var illa haldinn af kulda
og þreytu er hann fannst
og var auk þess með
bmnasár aftan á hálsi
sem hann hefur líklega
fengið er hann skaut sér
út úr flugvélinni.
Björgun O’Gradys,
sem tók þátt í halda uppi
banni Sameinuðu þjóð-
anna við flugi herflug-
véla yfir Bosníu, þykir
ævintýraleg. Félagi
hans, sem flaug annarri
sams konar þotu sá er
skeytið hæfði en vissi
ekki hvort flugmannin-
um tókst að varpa sér út.
Vonir um að O’Grady
hefði komist lífs af voru
famar að dofna og mis-
vísandi yfirlýsingar frá yfírmönnum
vamarmála um það hvort fjarskipta-
boð hefðu borist frá flugmanninum
urðu ekki til að glæða þær. Fyrst í
stað var talið að Serbar hefðu náð
honum á sitt vald og kröfðust Banda-
ríkjamenn að honum yrði þegar
sleppt. Jafnframt reyndu þeir að
þreifa fyrir sér bak við tjöldin hjá
fulltrúum Serba um örlög hans.
Landgönguliðar af stað
O’Grady tókst að skjóta sér út úr
þotunni í fallhlíf og lenti í grennd
við borgina Banja Luka i norðvest-
urhluta Bosníu. Serbar ráða lögum
og lofum í þeim hluta landsins. Hann
lét sem minnst fyrir sér fara til að
lenda ekki f klóm þeirra og er talið
að hann hafí ekki byijað að nota
senditæki sitt fyrr en seint á miðviku-
dagskvöld. Klukkan hálfþrjú aðfara-
nótt fímmtudags að staðartíma tókst
að nema skeytin frá honum og stað-
setja þau.
Landgönguliðamir vom sendir af
stað þrem stundum síðar og nutu
þeir aðstoðar sérþjálfaðra björgunar-
manna úr áhöfn herskipsins USS
Kearsarge á Adríahafí. Hinir síðar-
nefndu notuðu tvær þyrlur af gerð-
inni CH-53 en fjöldi herflugvéla
NATO að auki tók þátt í aðgerðinni,
þ. á m. F-18 orrastuþotur og fjar-
skiptavélar af gerðunum EF-111 og
EA-6B.
O’Grady fannst klukkan 6.45 og
klukkan 7.20 yfirgaf leiðangurinn
lofthelgi Bosníu. Leighton Smith,
flotaforingi og yfirmaður herafla
NATO í Suður-Evrópu, hafði eftir
ofursta sem stjórnaði leiðangrinum,
Martin Berndt, að skothríð hefði
heyrst er þyrlumar hófu sig á loft í
dagrenningu eftir að hafa bjargað
O’Grady, hann hefði einnig séð eitt-
hvað sem líktist flugskeyti. Þyrlurnar
komust óskaddaðar á brott og lentu
á herskipinu þar sem hlynnt var að
O’Grady.
VARAFORSETI bandariska herráðsins, William Owens flotaforingi, bendir
á kort af Bosniu með lýsingu á björguninni.
Reuter
Samsteypa
Berlusconis
Stjórnar-
formaður
fyrir rétt
Mílanó. Reuter.
FEDELE Confalonieri, for-
maður stjómar fjölmiðlasam-
steypunnar Fininvest á Ítalíu,
skýrði frá því í gær að hann
yrði dreginn fyrir rétt, ákærð-
ur um að hafa með ólöglegum
hætti veitt stjómmálaflokkum
fjárstuðning. Fininvest er í
eigu Silvios Berlusconis, fyr-
verandi forsætisráðherra.
Á sunnudag verður þjóðar-
atkvæði á Ítalíu þar sem m.a.
verður spurt hvort banna eigi
einstökum fyrirtækjum að
eiga meira en eina sjónvarps-
stöð; Fininvest á nú þrjár. Gaf
Confalioneri í skyn að það
væri ekki tilvjun að hann
væri ákærður aðeins þrem
dögum fyrir þjóðaratkvæðið.
Berlusconi hefur verið sak-
aður um að misnota aðstöðu
sína í stöðvunum til að reka
pólitískan áróður. Saksóknar-
ar vilja ennfremur að hann
verði dreginn fyrir rétt vegna
meintra mútugreiðslna til
stjómmálamanna.
Efnahagslegar afleiðingar náttúruhamfaranna í Austur-Noregi
1500 manns
sendir í leyfi
vegna flóðanna
UM það bil 1500 launþegar standa
nú uppi atvinnulausir vegna flóðanna
í Noregi. Fjölda fyrirtækja hefur
verið lokað og langur tími líður þar
til þau geta hafíð starfsemi á ný.
Fjöldi lítilla og meðalstórra fyrir-
tækja á Heiðmörku og Oppland hafa
neyðst til að loka vegna flóðanna. í
Lillehammer hefur t.d. verslunarmið-
stöðin Strandtorget verið lokuð frá
því fyrir hvítasunnu en þar er 30
sentimetra djúpt vatn í öllum versl-
ununum 38 sem þar era. Hafa 250
starfsmenn verið sendir í leyfi.
{ Upplandi hafa um 700 manns
verið sendir í leyfi og í Heiðmörku
hefur 540 launþegum verið tilkynnt
að þeírra bíði sömu örlög. Það eru
einkum fyrirtæki í Hamar og Ringsa-
ker sem hafa stöðvast.
Talsmenn atvinnumálastofnunar
Heiðmerkur segja, að versni ástandið
á flóðasvæðunum muni það hafa í
för með sér að miklu fleiri launþegar
missi vinnuna. Þótt flóðin sjatni á
næstu dögum mun langur tími líða
þar til hægt verður að hefja rekstur
margra þeirra fyrirtækja sem stöðv-
ast hafa. Þannig er reiknað með að
verslunarmiðstöðin við Strandtorget
í Lillehammer opni ekki fyrr en
tveimur mánuðum eftir að flóðum
lýkur vegna umfangsmikilla viðgerða
sem nauðsynlegar era á gólfum og
veggjum.
Mikið tj ón j árnbrautanna
Talið er að tjónið í Strandtorget-
miðstöðinni nemi ekki undir 60 millj-
ónum norskra króna, jafnvirði um
600 milljóna íslenskra. Þá er ekki
meðtalið rekstrartap en fjöldi fyrir-
tækja sem illa urðu úti voru ekki
tryggð fyrir rekstrarstöðvun.
Tjón norsku járnbrautanna af
völdum flóðanna er áætlað a.m.k.
300-400 milljónir norskra króna.
Tjón á járnbrautarteinum er metið á
allt að 200 milljónir og tekjutap og
kostnaður við að taka langferðabif-
reiðar í notkun á nokkram leiðum
er áætlað allt að 100 milljónir. Loks
er talið að tap vegna glataðra vöra-
flutninga nemi um 50 milljónum
norskra króna.
Talsmenn ferðamála í Guð-
brandsdal og Austurdal telja að flóð-
in eigi eftir að koma illa við atvinnu-
greinina. Mörg tjaldstæði séu undir
vatni og fjöldi sumarbústaða hafi
eyðilagst. Eigendur gistihúsa gera
ráð fyrir að þeir sem hugðu á frí á
þessum slóðum endurskipuleggi
sumarleyfi sín vegna flóðanna.
Kútsjma
semur
frið
LEONÍD Kútsjma, forseti
Úkraínu, undirritaði í gær frið-
arsamning við þingið og lauk
þar margra
mánaða
togstreitu
sem forset-
inn vildi fyr-
ir skömmu
binda enda
á með þjóð-
aratkvæði
um valdsvið
þings og
forseta. Hann hefur sakað
þingmenn um að koma í veg
fyrir nauðsynlegar umbætur í
efnahagsmálum. Varð sam-
komulag um að hætt yrði við
þjóðaratkvæðið gegn því að
Kútsjma fengi aukin völd.
Hann notaði þegar tækifærið
til að skipa nýjan forsætisráð-
herra, Jevhen Martsjúk.
Ríkisstjóri
Arkansas
ákærður
RÍKISSTJÓRINN í Arkansas,
Jim Guy Tucker, var í gær
ákærður um meint brot á
skattalögum og fyrir Ijársvik.
Málið tengist Whitawater-fjár-
svikamálinu sem Bill Clinton
Bandaríkjaforseti og eigin-
kona hans, Hillary, eru talin
viðriðin en Clinton var áður
ríkisstjóri Arkansas. Verði
Tucker sakfelldur gæti hann
átt yfir höfði sér 12 ára fang-
elsi.
Lögregla
finnur
brennsluofn
LÖGREGLA í Japan fann í gær
stóran örbylgju-brennsluofn í
húsakynnum sértrúarsafnaðar-
ins Æðsta sannleiks, Aum
Shinri Kyo. Söfnuðurinn er
sakaður um að hafa dreift eit-
urgasi á jámbrautarstöð í mars
og valdið dauða 11 manna en
lögregla telur að ofninn hafí
verið notaður til að brenna lík
andstæðinga er söfnuðurinn
kom fyrir kattarnef.
Lík ráðherra
afhent
BOSNÍU-Serbar afhentu í gær
ættingjum Irfans Ljubjankic,
fyrrverandi utanríkisráðherra
Bosníu, lík hans en þyrla hans
var skotin niður í grennd við
Bihac í lok maí. Dómsmálaráð-
herrann, Izet Muhamedagic og
fímm aðrir létu einnig lífið.
Oánægja með
afsökunar-
beiðni
IBÚAR í Asíulöndum, sem
urðu fyrir barðinu á útþenslu-
stefnu Japana fyrir og í seinni
heimsstyqöld, eru margir
óánægðir með yfirlýsingu sem
japanska þingið hyggst sam-
þykkja formlega í næstu viku.
Þar er beðist afsökunar á yfír-
ganginum en orðalagið þykir
svo loðið að það sannfæri ekki
marga um að hugur fylgi að
baki.