Morgunblaðið - 09.06.1995, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 09.06.1995, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ1995 25 AÐSEIMDAR GREINAR Heift í Hveragerði JAFNVEL þótt ekki sé dvalið fjarri nema í fáa daga, er ævinlega forvitnilegt að fletta blaðabunkanum við heimkomu. Ekki breytti ég út af þessari ljúfiingsiðju minni í gær, þriðjudag, þegar ég kom frá Nor- egi. Var bunkinn í þynnra lagi og réð þar helgi hvítasunnu með færri útgáfudögum. Tvennt vakti athygli mína við lesturinn. Hið fyrra er viturleg kveðja Guðna rektors Guð- mundssonar til nýstúd- enta, þegar hann útskrifaði síðasta hópinn sinn. En þar segir hann hóg- værð vera aðalsmerki hins menntaða manns. Það fer ekki milli mála, að þarna mælir rektor bæði af þekkingu sinni og reynslu af mannlegum sam- skiptum. Væri gott ef sem flestir temdu sér eftirfylgd við góða hug- sjón, sem í áminningunni felst. Hið síðara er því miður af allt öðrum toga og verður bréf Knuts Bruun ennþá leiðara þegar lesið er Ólafur Skúlason við ljósið af kenningu rektorsins. Þar er heift- in mikil og virðist boð- skapur hvítasunnu ekki hafa náð að hafa áhrif á sjálfan forseta bæj- arstjórnar í Hveragerði og það ekki að heldur, þótt hann vilji ráða í kirkjumálum heima- manna. En eins og við vitum, þá eru ávextir andans, heilags anda, sem kristnir menn virða vel og ber að meta, ekki síst fólgnir í gjöf- um friðar og kærleika. Og skortir víða hvoru- tveggja og þarf ekki að fara í langferð til Bosníu eða landa þar til að sjá sannanir þess. Þótt nefnd grein í Morgunblaði sé bréf forseta Hvergerðinga til ráð- herra dóms- og kirkjumála, þá er ég engu að síður aðaluppistaðan. Þykir mér það sannarlega miður. Ekki aðeins af því bréfið skortir þau áhrif, sem Guðni telur góða menntun eiga að hafa til mótunar manna, heldur eru gjafir andans enn síður sjáanlegar. Og því miður er engin Hugleiðing um sumarið EKKI er veðurfræðin orðin svo þroskuð að hægt sé að spá um veð- ur sumarsins, til dæmis hvort sunnan- eða norð- anátt verði ríkjandi, eða hvort veður verði sólríkt eða vætusamt. En að svo miklu leyti sem und- anfarandi veðurlag og ástand lands og sjávar hefur áhrif er þó hægt að gefa nokkrar bend- ingar um ástand gróð- urs og gróðurhorfur. Sjávarhiti hlýja tímabilinu öldinni. fyrr á Þetta vor má sjá skóladæmi um áhrif sjávarhita á lofthita. Yfirborðssjór er mjög kaldur við Norðurland, og jafnvel inni á Akureyri var maímán- uður mjög svalur, 2,6 stigum kaldari en í meðalári 1931-60. Hér syðra Vor- og sumarhitinn ræður miklu um hvað gróður er fljótur að taka við sér og hvenær slátt- ur getur hafist, segir Páll Bergþórsson. er sjórinn aðeins litlu kaldari en í meðalvori, og lofthitinn í maí í Reykjavík var ágætlega viðunandi, heldur hærri en á hlýskeiðinu 1931- 1960. En hvað boðar þessi kaldi sjór fyrir Norðurlandi? Auðvitað heldur hann áfram að kæla norðlenska loft- ið um sinn, en það gæti tekið enda fyrr en margur hyggur. Samkvæmt straumakortum endurnýjast sjór við Norðurland aðallega af sjó norðan frá Jan Mayen, og þar hefur hver . einasti mánuður síðan í nóvember verið hlýrri en á hlýskeiðinu 1931- 1960, en það er til marks um hlýjan sjó. Og annað er heldur gott við þenn- an sjó. Hann mun vera sæmilega saltur, en seltan dregur mjög úr hafíslíkum, og að því leyti hefur líka staðist ágætlega spá sem var gerð um miðjan vetur um lítinn hafís með vorinu. Og þrátt fyrir sjávarkuldann mun átan vera í bærilegu meðallagi, og ekki ætti það að spilla ef kvísl úr Golfstraumnum fer að leggja leið sína frá Horni austur með Norður- landi eins og tíðkaðist á sumrin á Páll Bergþórsson Ég hafði engin afskipti af ákvörðun kjörmanna í Hveragerði, segir Olafur Skúlason, ég fór að lögum eins og ráðu- neyti dóms- og kirkju- mála hefur staðfést. fylgd við aðra einkunn, sem andan- um fylgir, en hann er líka kallaður andi sannleikans. Mér þykir ekkert gaman að vera að fjalla um viðkvæmt mál varðandi eftirmann séra Tómasar Guðmunds- sonar í Hveragerði, og áttum við fjörutíu ára vígsluafmæli annan dag hvítasunnu og höfðum fyrr átt góða samfylgd í guðfræðideild. En ég kemst ekki hjá því að leiðrétta mis- sagnir Knúts Bruun í ofsafengnu bréfi hans til ráðherra. Ég kom hvergi nærri köllun prests í Hveragerði. Lagði ekki á ráð um þann gjörning og vissi ekki af hon- um, fyrr en ég fékk samtímis í hend- ur bréf séra Tómasar, þar sem hann biður um lausn frá embætti sínu frá fyrsta október nk., og bréf frá kjör- mönnum Hveragerðisprestakalls, þar sem þeir biðja um leyfi til að kalla prest. Og hafði slíkt gerst áður víða um land og ekki löngu fyrr með sama hætti í öðru prestakalli í Ár- nessýslu og hafði enginn neitt við slíkt að athuga. Ég veitti vitanlega leyfið eins og lög gera ráð fyrir, enda stendur í upphafi laga um veitingu prestakalla frá árinu 1987 mjög skýrt og ljóst, og þarf ekki einu sinni lögfræðing til að túlka: „Þegar prestakall losnar og prestur er eigi kallaður til emb- ættis sbr. 7. gr., auglýsir biskup kallið með hæfilegum umsóknar- fresti." Skýrar getur þetta varla verið. Biskup auglýsir laust presta- kall, nema kjörmenn ákveði að kalla, þá auglýsir hann það ekki fyrr en að ákveðnum tíma liðnum. Eins og Knútur Bruun veit, þá setur Alþingi lög og breytir lögum og ber öllum að fara eftir. Þar ráða ekki duttlungar manna eða ósk- hyggja, lög eru lög. Mér ber þá vitan- lega líka að fylgja þeim og fara eft- ir þeim og svo er um aðra. Ég hef þegar sagt Knúti Bruun frá afskiptum mínum af þessu máli og lögfræðingur hlýtur að geta gert greinarmun á hugtökum, þar sem er annars vegar köllun og hins veg- ar skipun eða setning í prestakall. Kjörmenn kalla en biskup ekki. Bisk- up skipar í stöður eða leggur slíkt til við ráðherra. Biskupar hafa líka lengi sett menn til þjónustu ákveðinn tíma. Köllun er alfarið í höndum kjörmanna eins og lög gera ráð fyr- ir en ekki biskups, og neyðist ég til endurtekninga af marggefnu tilefni. Ég endurtek því ummæli mín frá símtali við forseta bæjarstjórnar: Ég hafði engin afskipti af ákvörðun kjörmanna í Hveragerðisprestakalli um að kalla prest. Þeir leituðu hvorki til mín um ráðleggingar né fyrir- mæli, enda vel læsir á ekki flókinn texta. Nokkrum dögum síðar kom svo séra Jón Ragnarsson til mín og tjáði mér, að það væri hann, sem þeir ætluðu að kalla til að vera eftirmað- ur séra Tómasar Guðmundssonar. Enn endurtek ég það, sem Knútur á að vita eftir samtal okkar: Ég hafði heldur engin afskipti af því, hvaða prest kjörmenn kölluðu. Hvorki var ég spurður álits né var ég beðinn um að lýsa kostum séra Jóns Ragnarssonar. Mín afskipti af þessu máli eru þau ein, að ég fór að lögum og hefur ráðuneyti dóms- og kirkjumála stað- fest, að svo beri að gera sem ég taldi rétt. Heift er andstæða hógværðarinn- ar, sem Guðni rektor segir, að eigi að fylgja góðri menntun. Rangfærsl- ur ofsans eru ömurlegar, þegar hann er látinn slá sannleikann og því hald- ið fram, sem ekki styðst við stað- reyndir. Ég harma heift forseta bæjar- stjórnar í Hveragerði. En ég skil mætavel leiðindi presta, sem hefðu gjarnan viljað gefa kost á sér til þjónustu í prestakallinu, en höfðu ekki tök á því að minna á sig vegna köllunarinnar. En lög eru lög og þetta eru lög um veitingu presta- kalla, þar til Alþingi breytir þeim. Kirkjuþing samþykkti þegar árið 1991 tillögur um breytingu á þessum lögum, eins og þau gera reyndar sjálf ráð fyrir og það innan fimm ára frá setningu þeirra. Þetta frum- varp hefur því miður ekki fengist lagt fram á Alþingi enn. Kirkjuráð hefur því samþykkt að það skuli skoðað á nýjan leik á kirkjuþingi í október í haust. Ég efa það ekki, að Þorsteinn Pálsson mun síðan skoða þær tillögur og Alþingi taka þær til meðferðar. Á Alþingi er lög- um breytt rétt svo sem þau eru sett af þingmönnum. Og það eru lög, að unnt sé að kalla prest. Eftir þeim lögum ber biskupi að fara. Þeim lög- um verður jafnvel Knútur Bruun að lúta. Vonandi er, að hógværð samfara þekkingu móti þetta mál meir en verið hefur, og ekki síst að góðar gjafir heilags anda, þar sem er kær- leikur og friður með lotningu fyrir sannleikanum einkenni umfjöllun og samskipti manna alls staðar. Höfundur er biskup. Vetrarhitinn Löng reynsla er fyrir því að vetrarhitinn á landinu, frá október til aprílloka, ræður tals- verðu um heyfeng sum- arsins. Um þetta bera hitamælingar í Stykkis- hólmi gott vitni. Og þessi vetur var kaldur, enda mun allvíða gæta nokkurs kals í túnum. Það sést jafnvel í Reykjavík, en meira er það víða sunnanlands og allt austur til Norð- fjarðar. Þennan vetrarhita má túlka svo að grasspretta verði um 15-20% minni en á hlýskeiðinu 1931-1960, og um 10% minni en hún hefur ver- ið að jafnaði síðustu 150 ár, miðað við óbreyttan áburð og meðferð túna og að sumarið verði ekki óvenjulegt. Þeir bændur sem eiga ekki sæmileg- ar heyfyrningar geta því þurft að nota meiri áburð en venjulega til þess að fá nægilega sprettu. Hitasumma vorsins Að miklu leyti óháð því hvort vet- urinn var kaldur eða hlýr ræður vor- og sumarhitinn miklu um hvað gróð- ur er fljótur að taka við sér og hve- nær sláttur getur hafist. Hitasumm- an í Reykjavík er til dæmis orðin mjög svipuð nú og hún hefur verið á þessum árstíma að jafnaði síðustu 150 ár. Túnasláttur ætti því að geta hafist þar um 27. júní. Á Akureyri er hitasumman svipuð í maílok og hún var að jafnaði um viku fyrr næstliðin 150 ár. Þar og yfirleitt um norðanvert landið eru snjóalög að vísu óvenju mikil, en frost er lítið í jörðu og þar grænkar óðum þar sem skaflarnir hverfa. Sláttur ætti að geta hafist í Eyjafírði viku af júlí, en varla fyrr en um 22. júlí í Hrútafirði og jafnvel sfðar sumstað- ar á annesjunum. I Hornafirði er hitasumma vorsins um 3 dögum á eftir tímanum miðað við þetta 150 ára tímabil, og víða sunnanlands mun frost hafa gengið nokkuð djúpt í jörðu og er ekki enn farið. Sunnanlands ætti þó víðast að vera mögulegt að byija slátt skömmu eftir mánaðamótin júní-júlí, og fyrir mánaðamót í Mýrdalnum. Höfundurerfv. veðurstofusljóri. Islárid Sækjum það heim! Ferðalög um landið okkar - fjölskylduskemmtun í Kringlunni 9. -10. júní Nokkur fyrirtæki og félög sem tengjast ferðamálum á íslandi kynna í Kringlunni ferðamöguleikana um landið í sumar. - ferðabúnaður - veiðivörur - útivistarbúnaður - ferðaföt - grillkynningar - Esso kynnir nýjungar á Safnkortinu og verður með Posaleik. Lína lan'gsokkur og fleiri gestir Leikarar frá Leikfélagi Reykjavíkur koma yfir á Kringlutorgið upp úr hádeginu á laugardaginn. Þar kemur Lína langsokkur og brallar ýmislegt og flutt verða atriði úr söngleiknum Jesús Kristur Súperstar. Isl Sækium góð heim að sækja 'þadheims Kringlan er opin mánudaga til fimmtudaga 10-18.30, föstudaga 10-19, laugardaga 10-16

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.