Morgunblaðið - 09.06.1995, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 09.06.1995, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ1995 37 MINNINGAR Kristín Hjalta- dóttir fæddist á Markeyri við Skötufjörð 7. júní 1905. Hún lést á Hrafnistu í Reykja- vík 30. maí síðast- liðinn. Foreldrar Kristínar voru Hjalti Einarsson frá Hvítanesi í Ög- ursveit og Sigur- borg Þórðardóttir frá Hestfjarðar- koti í Hestfirði. Systkini Kristínar voru Guðrún Sig- ríður, f. 23.11. 1902, Þórður, f. 5.1. 1904, Karítas María f. 15.4. 1907, d. 4.6. 1908, Karít- as María, f. 15.4.1908, Hildur, f. 22.7. 1909, og Sigurbergur, f. 10.11. 1910. ÁRIÐ 1908 fluttust þau hjónin að Folakoti við Seyðisfjörð. Þar lést Sigurborg af bamsförum 27. des- ember 1910. Varð þá Hjalti að leysa upp heimilið og koma börn- um sínum fyrir. Kristín fór þá í fóstur í Ögur. Hún minntist þess oft þegar hún og Hjalti faðir henn- ar komu fótgangandi í Ögur. Það var erfið stund fyrir litla fimm ára stúlku að kveðja föður sinn og systkini eftir móðurmissinn. Mjög var þó kært með þeim systkinum, þó að þau sæjust lítið fyrr en þau voru komin á unglingsár. Þau eru nú öll látin. í Ögri kynntist Kristín manni sínum, Eyjólfi Jónssyni sjómanni. Hann fæddist 5. maí 1904. For- eldrar hans voru Jón Jared Hafl- iðason og Elísabet Hafliðadóttir, básði frá Bolungarvík. Eyjólfur lést 10. desember 1988. Börn þeirra eru Ragnheiður, Þuríður, Elísabet Áuður og Ásmundur. Einnig ólst upp hjá þeim dótt- urdóttir þeirra, Elísa- bet Ólafsdóttir. Þau voru búsett í Reykja- vík frá 1930. Eyjólfur stundaði sjómennsku og sigldi milli íslands og Englands í stríðinu þar til 9. mars 1941, en þá var hann háseti á Reykjaborginni, sem var skotin niður í einni af ferðum sínum til Englands. Eyjólfur komst af ásamt félaga sínum, en þeir voru á fleka á íjórða sólahring áður en þeim var bjarg- að. Ekkert var þó vitað um björg- un þeirra fyrr en nokkru síðar. Það er ekki erfitt að hugsa sér hve slík lífsreynsla hafði mikil áhrif á lif þeirra. Kristín unni fjölskyldu sinni og heimili. Hún var forkur duglegur, féll aldrei starf úr hendi, meistara- kokkur, ákaflega vandvirk. Falleg- ustu og bestu smákökur í bænum bakaði hún. Á heimili þeirra hjóna var oft margt um manninn. Dvöld- ust þar ættingjar oft um lengri eða skemmri tíma. Voru þau anná- luð fyrir gestrisni. Þegar Kristín var um sextugt gat hún sér til mikillar ánægju farið að ferðast og lá þá leið hennar fyrst til Sví- þjóðar en síðar til Noregs, en þar bjó dóttir hennar, Þuríður, ásamt manni sínum, Lars M. Haukeland, og börnum. Kristín naut þess að vera hjá þeim í góðu yfirlæti, hvíla lúin bein og njóta sólarinnar og hitans. Kristín reyndist mér sem besta móðir, var ávallt tilbúin að rétta hjálparhönd. Barnabörnin sóttu fast að fara til þeirra hjóna og eiga þau margar góðar minn- ingar um samverustundirnar með þeim. Hjá „ömmu og afa í Eski- hlíð“ var alltaf gott að vera. Með þessum fátæklegu orðum vil ég þakka henni fyrir vináttu sem aldrei bar skugga á. í hjarta mínu mun ég geyma minningu um hugprúða og yndislega konu, sem aldrei lét bugast. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Þuríður ísólfsdóttir. t Útför föður okkar, SÆMUNDAR SÆMUNDSSONAR, Skarði, áðurtil heimilis á Kleppsvegi 30, Reykjavík, fer fram frá Laugarneskirkju mánudaginn 12. júní kl. 10.30. Jarðsett verður frá Skarðskirkju kl. 15.00. Sigríður Theodóra Sæmundsdóttir, Margrét Sæmundsdóttir, Sæmundur Sæmundsson. KRISTIN HJALTADÓTTIR Fylgstu meb í Kaupmannahöfn Morgunblabib fæst á Kastrupflugvelli og Rábhústorginu Jttoronnblfltnfc -kjarni málsins! Innilegustu þakkir til allra þeirra, sem veittu okkur aðstoð og sýndu samúð og hlýhug við andlát og útför DÓRU SIGURJÓNSDÓTTUR. Þórður Einarsson, Ásgeir Þórðarson, Stella Maria Matthíasdóttir, Bjarni Þórðarson, Ágústa Karlsdóttir, Jakobína Þórðardóttir, Jörundur Guðmundsson, Ásmundur Þórðarson, Harpa Þórðardóttir og barnabörn. BRIPS Untsjón Arnór G. Ragnarsson Sumarbrids Þriðjudaginn 6. júní mættu 26 pör til spilamennsku í sumarbrids. Úrslit urðu þessi: N/S-riðill Júlíus Snorrason — Sigurður Siguijónsson 371 CecilHaraldsson-HaraldurÞórðarson 314 Ragnheiður Nielsen - Hjördís Siguijónsdóttir 300 Friðrik Egilsson - Sigurður Kristjánsson 295 A/V-riðill AlfreðKristjánsson-EggertBergsson 348 SævinBjamason-ÞórðurSigfússon 307 Guðný Guðjónsdóttir - Grethe Iversen 301 GuðrúnÓskarsdóttir-AgnarÖmArason 300 Meðalskor 270 Skor þeirra Júlíusar og Sigurðar er 68,7% Miðvikudaginn 7. júní mætti 31 par og úrslit urðu eftirfarandi: N/S-riðill Páll Þ. Bergsson - Kjartan Jóhannsson 486 Gylfi Baldursson - Sverrir Ármannsson 416 Gróa Guðnadóttir - Guðrún Jóhannesdóttir 414 Haukurlngason-SigurðurB.Þorsteinsson 412 A/V-riðiU Sverrir G. Kristinsson - Sveinn R. Eiriksson 416 Hjördís Siguijónsdóttir - Ragnheiður Nielsen 414 Erlendur Jónsson - Sveinn R. Þorvaldsson 405 Anna Guðlaug Nielsen - Guðalugur Nielsen 397 Meðalskor 364 Skor Páls og Kjartans er 66,8%. Stefán G. og Magnús spila til úrslita fyrir norðan Báðum leikjunum í undanúrslitum bikarkeppni Norðurlanda í sveita- keppni er nú lokið. Sveit Magnúsar Magnússonar, Bridsfélagi Akur- eyrar, bar nokkuð örugglega sigur- orð af sveit Sveins Aðalgeirssonar, Bridsfélagi Húsavíkur, og sveit Stef- áns G. Stefánssonar, Bridsfélagi Akureyrar, heimsótti Formanna- sveitína á Siglufirði og sigraði eftir æsispennandi leik þar sem sveitirnar skiptust á um forystuna. Það liggur því ljóst fyrir að Akur- eyrarsveitirnar tvær leika til úrslita að þessu sinni. Úrslitaleikurin fer fram í Hamri, félagsheimili íþrótta- sambands Þórs, á laugardaginn kem- ur (10. júní) og hefst hann kl. 12. Bridsáhugamenn eru hvattir til að koma og fylgjast með spennandi leik. Bridsdeild Félags eldri borgara, Kópavogi Spilaður var tvímenningur föstu- daginn 2. júní sl. 14 pör mættu og urðu úrslit þessi: Asthildur Sigurgíslad. - Láras Amórsson 202 ValdimarLárusson-BragiSalómonsson 182 BergurÞorvaldsson-ÞórarinnÁmason 175 GarðarSigurðsson-ÞorleifurÞórarinsson 171 Meðalskor 156 Spilaður var tvímenningur þriðju- daginn 6. júní sl. 24 pör mættu, spil- að var í 2 riðlum. A-riðill: JónAndrésson-ÞórðurJörandsson 133 Jón Stefánsson - Þorsteinn Laufdal 128 Baldur Ásgeirsson - Magnús Halldórsson 127 Júlíus Ingibergsson — Jósef Sigurðsson 119 Meðalskor 108 B-riðill: Þórhildur Magnúsdóttir - Sigurður Pálsson 207 Eggert Einarsson - Karl Adolfsson 194 Eyjólfur Halldórsson - Þórólfur Meyvantsson 189 Þorsteinn Erlingsson - Þorsteinn Sveinsson 156 Meðalskor 156 t DAGBJÖRT ÁSGRlMSDÓTTIR, Skíðabraut 7, Dalvík, verður jarðsungin frá Dalvíkurkirkju laugardaginn 10. júní nk. Athöfnin hefst kl. 13.00. Börn, tengdabörn og barnabörn. t Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ÓSKARS KJARTANSSONAR, Karlagötu 18, Reykjavik. Aðalheiður Jónsdóttir, Svava Jónsdóttir. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvu- sett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveld- ust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslu- kerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld i úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar þar um má lesa á heimasiðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina og hálfa örk A-4 miðað við meðalllnubil og hæfilega línulengd — eða 3600-4000 slög. Höfundar eru beðnir að hafa sktrnarnöfn sin en ekki stuttnefni undir greinunum. GULLSMIÐJAN PYRIT-G 15 Handsmíðaðar MORGUNGJAFIR I URVALI ,‘í ' Byggingarsjóður verkamanna »•. Tilkynning til eigenda að félagslegum eignaríbúðum í Qölbýlishúsum, um nýjan lánaflokk vegna meiriháttar viðhalds utanhúss. 1 lúsnæðisstofnun ríkisins vekur athygli eigenda að félagslegum eignaríbúðum í fjölbýlishúsum á því að með samþykkt laga nr. 58/1995 um Húsnæðisstofnun ríkisins er heimilt að veita lán vegna meiriháttar viðhalds utanhúss. Skilyrði er að lánið sé nauðsynlegt til að afstýra því að hús verði fyrir stórfelldum skemmdum. Með endurbótum/viðhaldi er átt við endurbyggingu eða viðamikla viðgerð á þaki, gluggum og útveggjum. Gert er ráð fyrir því að hlutaðeigandi húsfélag sæki beint um ián til félagsíbúðadeildar Húsnæðisstofnunar ríkisins, en ekki einstakir íbúðaeigendur. Umsóknir skulu berast Húsnæðisstofnun áður en framkvæmdir hefjast. Lánið kemur til greiðslu þegar stofnunin hefur gengið úr skugga um að verkið hafi verið unnið á þann veg sem fram kemur í verklýsingu. Nánari upplýsingar eru veittar hjá félagsíbúðadeild Húsnæðisstofnunar og hjá húsnæðisnefnd hlutaðeigandi byggðarlags. EX] HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS SUÐURIANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SlMI 569 6900 • FAX 568 9422 Á 0PIÐ Kl. 8-16 VIRKA DAGA skólavörðustIg 15 - sími 551 1505

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.