Morgunblaðið - 09.06.1995, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 09.06.1995, Blaðsíða 32
32 FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR • • 01(1 skattaliækkaiia MENN hafa löngum álitið Bandaríkin vera gósen- land fijálsra viðskipta, land takmark- aðra ríkis- afskipta og sælureit einstaklings- frelsisins. Þessi skoðun var eflaust ekki fjarri sanni í byijun þessarar aldar, en nú er svo komið, að skatt- byrðm í Bandaríkjunum er orðin veruleg, m.a. vegna undanlátssemi við þrýstihópa og síaukinna um- svifa ríkisvaldsins. Að vísu er skatthlutfallið þar ennþá lægra en í ríkj- um vestur Evrópu, þar sem miðstýringarvald- ið á sér dýpri rætur, en vissulega gætir sömu tilhneigingar til skattahækkana í Bandaríkjunum og á öðrum vesturlöndum. Skattadagurinn í Bandaríkjunum - það er að segja fyrsti dag- urinn sem launamenn hætta að vinna fyrir ríkið og fara að vinna Jónmundur Guðmarsson fyrir sjálfa sig - sýnir glöggt þessa þróun. Arið 1902 var Skatta- dagurinn þar 31. jan- úar. Síðan þá hefur stöðugt sigið á ógæfu- hliðina og í ár er Skattadagurinn þar í landi 6. maí! Á rúmum níutíu árum hefur hann því færst aftur um rúma þijá mán- uði. Þetta merkir að hver ný kynslóð Bandaríkjamanna á þessari öld hefur þurft Fyrsti dagur hvers árs sem menn hafa ekki verið að vinna fyrir hið opinbera í Bandarflqunum og á íslandi síðustu 15 árin. Eins og sjá má höfum við stungið Bandarflqamenn af í eyðslu hjá hinu opinbera frá því í byrjun síðasta áratugar HYunoni Tilboð Mjög takmarkaö magn af sjálfskiptum og óvenju ríkulega búnum Hyundai Accent til afhendingar á allra næstu dögum. Þeir sem fyrstir bregðast við, aka út á glænýjum bíl, hlöðnum aukabúnaði, en á verði sem ólíklegt er að sjáist í bráð. Tilboðið rennur út með síðasta bílnum sem rennur út. f. Sjálfskiptur Accent Útvarp með 4 hátölurum Rafmagn í rúðum Samlæsing í hurðum Vökva og veltistýri Bein innspýting Vindskeið með bremsuljósi Styrktarbitar í hurðum Litað gler Samlitir stuðarar 1500 cc vél 89 hestöfl Aukabúnaður á mynd, átfelgur. Fyrir aðeins 1.095.000 á götuna! HYunona ...til framtíðar ÁRMÚLA 13 • SÍMI: 568 1200 • BEINN SÍMI: 553 1236 að vinna mánuði lengur fyrir sköttunum sínum en kynslóðin á undan. Þróunin á íslandi Ekki hefur sagan verið hliðholl- ari íslenskum skattgreiðendum. Tilhneigingin til skattahækkana á öldinni virðist jafnvel enn sterkari hér en vestanhafs. Nú er svo kom- ið að við íslendingar vinnum langt fram á sumar, til 10. júní, fyrir hið opinbera - 43,8 prósent af árinu. Til þess að benda á þessa staðreynd hefur Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykja- vík, reiknað út Skattadaginn frá upphafi síðasta áratugar. Með- fylgjandi súlurit sýnir hvernig Skattadagurinn hefur færst aftur hér á landi í samanburði við Bandaríkin. Skattadagurinn hefur færst aftur um heilan mánuð, segir Jónmund- ur Guðmarsson, sem segir lækkun ríkisútgjalda forsendu kjarabóta. Samanburðurinn er sláandi. Á þessum rúma áratug hefur skatta- dagurinn færst fremur lítið til þar vestra og nú er hann aðeins einum degi seinna en hann var árið 1981. Á Islandi hefur hann hins vegar færst um heilan mánuð! Það þarf enga spekinga til að sjá að hér stefnir í hreinan voða. Ein megin- forsenda kjarabótar fyrir almenna launþega og efnahagslífið í heild er niðurskurður í ríkisútgjöldum og lækkun skatta. Höfundur hefur meistaragráðu í alþjóðastjórnmálum frá Oxford- háskóla og situr í stjóm Heimdallar, f.u.s. Ileimildir eru Tax Foundation, Special Report, 1995 og úr Búskap hins opinbera og Hagtölum mánaðarins. V* þú taka að þér fæða og klæða ðarlaust barn á Indlandi? að munai Fyriraðeins 1450krónurá mánuði getur þú gefið nauðstöddu götubarni fæði, klæði, menntun, læknishjálp og heimili. HJÁLPARSTARF Sigtúni 3 • 105 Rvk • Sínii 561 6117

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.