Morgunblaðið - 09.06.1995, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 09.06.1995, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 1995 35 MINNINGAR PETUR EIÐSSON + Pétur Eiðsson fæddist á Snotrunesi í Borg- arfirði eystra 18. september 1952. Hann lést á Egils- stöðum 29. maí síð- astliðinn. Foreldar Péturs eru Mar- grét Halldórsdóttir og Eiður Pétursson (d. 21.12. 1963). Systkini Péturs eru: Gróa, f. 1952, Halldór, f. 1953, Hulda, f. 1955, Ey- gló, f. 1956, Njáll, f. 1958, og Egill, f. 1962. Pétur kvæntist Oddnýju Vestmann og eignuðust þau soninn Guðmund Vestmann, og uppeldisdóttir Péturs er Ríkey Kristjánsdótt- ir. Pétur og Oddný slitu sam- vistir. Pétur var ráðsmaður hjá Margréti móður sinni til ársins 1980, bóndi á Snotrunesi 1980-88 og sundlaugarvörður á Egilsstöðum frá 1988 til dán- ardægurs. Útför hans fór fram frá Bakkagerðiskirkju 3. júní. ÁSTKÆR bróðir minn Rúnar Pétur Eiðsson hefur lagt upp í ferð til nýrra heimkynna. Megi sú ferð ganga honum greiðlega. Við sem heima sitjum fyllumst söknuði og finnst bróðir okkar hafa lagt alltof fljótt af stað í þessa löngu og erfíðu ferð. Hann var elstur af bræðrunum í hópi sjö systkina og hann var „stóri“ bróðir í þess orðs fyllstu merkingu. Foreldrar okkar eru hjónin Margrét Ágústa Halldórs- dóttir (f. 1922) frá Snotrunesi og Eiður Pétursson (f. 1922, d. 1963) frá Njarðvík. Á stundum sem þessari dvelur hugurinn títt hjá „stóra bróður" mínum og minningar og myndir líða fyrir hugskotssjónir. Þær verma og ylja sálina þegar sár treginn krem- ur hjarta. Nokkrar minningar rað- ast saman. Við skyndilegt andlát föður okk- ar stóð móðir okkar við stjórnvöl á arfleifð sinni Snotrunesi með húsið fullt af bömum og útihúsin af kind- um, kúm, hænum og því sem til- heyrir íslenskri sveit. Ekki var hún á því að leggja árar í bát og þar sem hún átti stálpuð börn sá hún að með sameiginlegu átaki mátti halda búinu gangandi. Pétur bróðir minn var því 11 ára gamall þegar hann varð bóndi. Hann var afar vel til þess fallinn, fjárglöggur með afbrigðum, þrekmikill og duglegur til vinnu. Á þessum tímamótum kom strax fram að hann var sá sem skyldi taka við búinu í fyllingu tímans. Hann var sá sem allir treystu á, stórir og smáir, og hann axlaði þá ábyrgð sem á hann var lögð. Manni finnst í raun ótrúlegt að hugsa til þess í dag, eftir að hafa sjálfur átt börn á þessum aldri hversu vel Pétur leysti þessa þraut. En þá er þess að geta að hann stóð ekki einn. Fjölskyldan átti hauk í horni á næsta bæ, Framnesi, Skúla Andrésson frænda okkar frá Snotrunesi. Hann var ávallt reiðu- búinn að hjálpa til, leggja á ráðin með ungum bóndanum og móður hans. Hafi hann ævinlega þökk fjöl- skyldunnar fyrir það. En bóndinn ungi þurfti að gegna skyldum sínum víðar. Hann átti til að mynda ólokið barnaskóla sem hann og gerði. Þá tók framhalds- skólinn við á Eiðum, en þar var Pétur við nám í þrjá vetur í Alþýðu- skólanum. Það var þá sem við systk- inin kynntumst fyrst almennilega, því sú sem hér rifjar upp er reynd- ar alin upp á Eiðum frá tveggja ára aldri hjá móðurbróður okkar Ármanni og Ingu konu hans. Þessa þrjá vetur nutum við þess að hafa Pétur í mat hjá okkur en hann bjó alla veturna á heimavistinni. Þessir tímar eru mér í fersku minni, það var svo gaman að fá að hafa stóra bróður hjá sér. Ég held líka að þessi ár hafí e.t.v. verið einhver bestu ár í lífi Péturs, því á Eiðum naut hann sín. Honum sóttist námið vel, hann var í miklum og góðum félagsskap jafnaldra, enda eignaðist hann marga góða vini á þessu tímaskeiði. Pétur var mjög virkur í félags- starfi í skólanum, þar fékk hann fyrst að spreyta sig fyrir alvöru í íþróttum sem upp frá því urðu eitt af hans aðaláhugamálum. Þar eignaðist hann líka einn af sínum traustu og góðu vinum, íþrótta- kennarann Hermann Níelsson, en þeir félgar áttu eftir að starfa mik- ið saman upp frá því. „Litla“ systir fylgdist vel með bróður sínum á þessum árum og var stolt af að eiga þennan fyrirmyndarbróðir, sem ekki var laust við að margar ungmeyjarnar renndu hýru auga til. Pétur varð gagnfræðingur vorið 1970 og hafði þá tekið út mikinn þroska, eins og títt er um fólk á þessum aldri, en öllum er nauðsyn- legt að komast einhvem tíma í aðr- ar sveitir en sína heimasveit. Næsta vetur hélt Pétur síðan vestur á land í hinn „stóra" Borgar- fjörð þar sem hann nam búfræði við Hvanneyrarskóla og varð bú- fræðingur vorið 1971. Þá var hann orðinn fullgildur bóndi, aðeins 19 ára gamall. Enda var haldið á vit borgfirskrar náttúru þar sem sveit- in togaði í ungan bóndann af öllu sínu afli og hann tókst á við lífs- starfíð. Mér er ljúft að minnast þess þeg- ar ég komst í kynni við sveitastörf- in nokkur vor á Nesi hjá bróður mínum. Eins og allir vita sem þekkja til í sveit, er einn aðalanna- tíminn í sveitinni á vorin. Þá má bóndin og hans lið kosta um að komast yfír skyldustörfin. Þá var gaman að fá að vera með. Þá var Pétur líka í essinu sínu og á sinn ljúfa hátt leiðbeindi hann stelpu- kjánanum hvernig ætti að bera sig að við féð, ekki þýddi fyrir hann að nefna ærnar með nöfnum við mig, þar vom allar eins, aðeins mismunandi svartar eða hvítar. Þetta voru góð vor og lærdómsrík, ekki síst fyrir þær dýrmætu stund- ir í vinnu með Pétri. Það frelsi, sem bústörfin gefa að vissu marki, átti vel við Pétur og ég minnist þess að þurfa að vinna frá 9-5. Náttúran átti líka svo sterkan þátt í Pétri og hvað er þá náttúrulegra en vera bóndi? Því veit ég að það var Pétri erfitt þeg- ar sú skæða sótt riðan hafði lagst svo á bústofninn að skera varð nið- ur og ekki útlit fyrir að áfram yrði haldið búskap á Snotrunesi, á jörð- inni sem okkar fólk hafði átt og nytjað frá árinu 1886. Þegar hér var komið sögu var Pétur kvæntur maður með tvö börn. Kona Péturs, Oddný Vestmann, kom frá Neskaupstað til að búa á Nesi. Hún átti fyrir unga dóttur er ólst upp hjá þeim og árið 1987 fæddist þeim sonur, Guðmundur, sem varð mikill sólargeisli í lífi föð- ur síns. Pétur og Oddný fluttu ásamt bömum sínum til Egilsstaða árið 1988. Þau slitu samvistir í byrjun þessa árs. Þá tók við nýr kafli í lífi Péturs, það voru árin sem hann annaðist sundlaug þeirra Egilsstaðabúa og fór að rækta mannfólkið en ekki sauðkindurnar. Mætti segja mér að Pétri hafi aldrei alveg líkað þau umskipti og sveitin hans, fjörðurinn okkar litli úti við Dumbshaf hafi aldrei látið hann alveg í friði. Það var alltaf gott að kgma við hjá Pétri í litlu sundlauginni á sumrin og bömin mín nutu þess að eiga hann þar að þegar við dvöldumst í sumarfríum á Egilsstöðum. Hér hefur örfáum minningabrot- um verið raðað saman og þá einkum staldrað við þau svið þar sem við tengdumst mest. Mörgu hefur verið sleppt en ég vil þó ekki láta hjá líða að geta þess að Pétur kom víða við sögu á ekki Iengri lífsleið. Hann starfaði mikið að ýmsum félagsmál- um, fyrir Ungmennafélagið á Borg- arfirði innan UÍA, ritaði pistla og greinar í austfirsku blöðin, varð ungur meðhjálpari í Bakkagerðis- kirkju, var áhugaleikari í Leikfélag- inu Vöku og síðast en ekki síst, mikill áhugamaður um ljósmyndun. Eftir hann liggja víða spor á því sviði og ég ætla hér að uppljóstra þeim draumi Péturs sem ég veit hann dreymdi á síðastu skeiði þess- arar jarðvistar. Það var draumurinn um að læra ljósmyndun. Ég veit að það var hans aðaláhugamál nú síðasta árið. Það lýsir jafnframt Pétri á síðari hluta ævi hans. Það var eins og hann leitaði meira inn á við, eftir því sem árin liðu, hefði hann minni þörf fyrir vinina og fé- lagsskapinn með þeim, en hann vissi af þeim, þeir voru þarna, en hann ræktaði ekki sambandið við þá sem fyrr. Bestu stundirnar voru held ég heima, inni í litla myrkvunarher- berginu þar sem myndirnar hans urðu raunverulegar. Þar undi hann sér_ vel. Á kveðjustund bið ég öllum hans nánustu aðstandendum og vinum blessunar og styrktar á erfíðum tímum. Ég kveð kæran vin og bróð- ur með þessum orðum: En meðan árin þreyta hjörtu hinna, sem horfðu eftir þér í sárum trega, þá blómgast enn, og blómgast ævinlega, þitt bjarta vor í hugum vina þinna. (Tómas Guðmundsson) Eygló Eiðsdóttir. t Elskulegur eiginmaður minn, fósturfaðir, tengdafaðir og afi, HERMANN TORFASON, Höfðagrund 12, Akranesi, lést á heimili sínu 6. júní. Halldóra Ólafsdóttir og aðrir aðstandendur. t Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma, langamma og móðursystir, GUÐLAUG BJÖRG BJÖRGVINSDÓTTIR fyrrv. fulltrúi hjá Pósti og síma, til heimilis í Neðstaleiti 4, áður Skálholtsstíg 7, lést á Grensásdeild Borgarspítalans þriðjudaginn 6. júní. Þórarinn Einarsson, María Hauksdóttir, Kristján Þórarinsson, Guðlaug Björg Þórarinsdóttir, Theódór Gaukur Kristjánsson, Alexander Þór Þorsteinsson, Kristín Birna Sigurbjörnsdóttir. t Þann 26. maí síðastliðinn andaðist í Landspítalanum GUÐMUNDUR JÓNSSON frá Bakka, til heimilis i Lönguhlíð 23, Reykjavík. Útför hans hefur farið fram í kyrrþey að eigin ósk. Eftirlifandi systkini Sigrún og Björn. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓRUNN ÞORGEIRSDÓTTIR, Stöðlakoti, sem lést í Sjúkrahúsi Suðurlands 3. júní sl., verður jarðsungin frá Breiðabólsstaðarkirkju, Fljótshlíð, laugardaginn 10. júníkl. 14.00. Halla Sigurðardóttir, Ólafur Ó. Jónsson, Anna Sigurðardóttir, Einvarður G. Jósefsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, LILJA STEFÁNSDÓTTIR, Granaskjóli 3, Reykjavik, lést 7. júní. Útförin verður auglýst síðar. Guðmundur Gíslason, Steinunn Jónsdóttir, Guðmundur Kjalar Jónsson, Særún Sigurgeirsdóttir, Guðmundur ingvar Jónsson og barnabörn. t Eiginmaður minn, faðir okkar og tengda- faðir, JÓHANNES BJARNASON, verkfræðingur, Laugarásvegi 43, lést fimmtudaginn 8. júní. Margrét Ragnarsdóttir, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Einar Örn Stefánsson, Guðrún Jóhannesdóttir, Ævar Guðmundsson, Ragnar Jóhannesson, Bjarni Jóhannesson, Auður Þórarinsdóttir. i t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma. HELGA AXELSDÓTTIR, Grettisgötu 66, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 12. júní kl. 13.30. Jóhannes Sigurðsson, Rakel Sigurðardóttir, Sigurður Björnsson, Elís Heiðar Ragnarsson, Helga S. Gísladóttir, Pétur Hallgrímsson, Inga Björgvinsdóttir, Guðrún Hallgrímsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærr- ar eiginkonu, móður okkar, tengdamóð- ur, ömmu og langömmu, ÖNNUGUÐRÚNAR JÓHANNESDÓTTUR, Brúarlandi, Þistilfirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks gjör- gæslu og lyfjadeildar Fjórðungssjúkra- hússins á Akureyri. Jónas Aðalsteinsson, Arnþrúður M. Jónasdóttir, Sólveig Þórðardóttir, Eðvarð Jónasson, Kristjana Benediktsdóttir, Jóhannes Jónasson, Svanhvít Kristjánsdóttir, Sigrún Lilja Jónasdóttir, Rúnar Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.