Morgunblaðið - 09.06.1995, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 09.06.1995, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 1995 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Prestur settur inn í embætti á Ólafsfirði PRÓFASTUR Eyjafjarðar- prófastsdæmis,séra Birgir Snæbjömsson.setur séra Sig- ríði Guðmarsdóttur inn í emb- ætti sóknarprests í Ólafsfjarð- arprestakalli við sjómanna- dagsguðsþjónustu í Ólafsíjarð- arkirkju,sem hefst kl. 10.30 næstkomandi sunnudag, 11. júní. Séra Sigríður hóf störf hinn 1. júní síðastliðinn og er flutt í prestakallið ásamt fjölskyldu sinni. Séra Svavar A. Jóns- son,sem áður gengdi störfum sóknarprests í Ölafsfirði, hefur tekið við starfi á Akureyri. Aætlunarflug Mýflugs hafið Mývatnssveit. Morgunblaðið. MYFLUG hefur hafið daglegt áætlunarflug milli Reylq'avíkur og Mývatns. Brottför frá Reykajvík er kl. 7.40 að morgni en frá Reykja- hlíðarflugvelli kl. 19. Af- greiðsla í Reykjavík er hjá ís- landsflugi hf. Mýflug hefur undanfarin sumur haldið uppi ferðum milli þessara staða og hafa fjölmargir notfært sér þessa þjónustu. Einnig annast félagið útsýnisflug til margra staða og má þar meðal annars nefna Oskju, Kverkfjöll, Jök- ulsárgljúfur og Grímsey. Gáfu fé til sálmabóka- kaupa HÓPUR fólks víðsvegar að af landinu minntist fermingar sinnar fyrir 50 ámm um liðna helgi og tók m.a. þátt í guðs- þjónustu í Akureyrarkirkju og heimsótti Bamaskóla Akur- eyrar. Færðu fulltrúar hópsins kirkjunni að gjöf 60 þúsund krónur til kaupa á sálmabók- um. ÚA býður í siglingu ÚTGERÐARFÉLAG Akur- eyringa býður bæjarbúum og nærsveitafólki í skemmtisigl- ingu á morgun, laugardaginn 10. júní, í tilefni af 50 ára afmæli sínu. Lagt verður upp í siglinguna frá athafnasvæði félagsins kl. 15. og siglt um Eyjaú'örð í rúma klukkustund. Þeir sem ætla að nýta sér boðið em beðnir að koma á togara- bryggjuna hálftíma áður en lagt verður af stað. Börn verða að vera í fylgd fullorðinna. Dansleikur Stórsveitin Salsa Picante ásamt Berglindi Björns i suðrœnni sveiflu laugardagskvöld. HÓTEL KEA. Verðkönnun Neytendafélags Akureyrar í verslunum Bónus og Nettó Verðstríð enn í gangi VERÐ á 86 vörutegundum var 1% hærra í KEA-Nettó en verslun Bónuss í Skútuvogi í verðkönnun sem Neytendafélag Akureyrar og nágrennis gerði í þessum verslun- um á miðvikudag. Vilhjálmur Ingi Ámason for- maður félagsins sagði að greini- legt væri að verðstríð það sem þessar verslanir háðu þegar Bónus opnaði verslun á Akureyri á sínum tíma stæði enn, þó lengra væri orðið á milli þeirra en var. „Það er augljóst að þeir hjá Nettó ætla að standa við þau orð sín þegar Bónus versluninni á Akureyri var lokað að fylgja verðlagi í Bónus og það er mjög jákvætt fyrir Akur- eyringa,“ sagði hann. Enn gera forráðamenn verslananna tveggja verðkannanir hvor hjá öðram og til að mynda var verslunarstjóri Nettó að gera könnun í Bónus á sama tíma og formaður Neytenda- félags Akureyrar. „Ég held að þessi 1% munur sem reyndist vera milli verslananna á miðvikudag sé tilfallandi og gildi bara fyrir þenn- an tiltekna dag sem könnunin var gerð, þeir fara á milli og lækka verðið hjá sér eftir að hafa skoðað hvað keppinauturinn býður,“ sagði Vilhjálmur Ingi. 225 kr. verðmunur Verðkönnunin tók til 100 vöru- tegunda en 86 þeirra fengust í báðum verslunum. Karfa með þessum 86 tegundum kostaði 13.129 krónur í Bónus og 13.354 krónur í Nettó þannig að munurinn var 225 krónur. Neytendafélag Akureyrar og nágrennis gerði samskonar verðkönnun í septem- ber á liðnu ári og kom í ljós að frá þeim tíma hafði verðlag lækk- að um 2% í báðum verslunum. Morgunblaðið/Rúnar Þór Loksins sólarmegin VIÐ lá að Norðlendingar gleymdu hinum harða vetri í „skrifstofuóveðri“ gærdagsins þegar hitinn mældist 25 gráður á hitamæli í miðbæ Akureyrar, enda engin þörf að kvarta þegar blessuð sólin skín eins og það var einhvern tíma orðað. Þeir sem tækifæri höfðu á nutu úti- vistarinnar í ríkum mæli eins og þeir sem flatmöguðu í sund- lauginni á Þelamörk í blíðskap- arveðri þegar Ijósmyndari átti leið þar um. Hlutabréf bæjarins í Skinnaiðn- aðiseld BÆJARRÁÐ Akureyrar heimilaði á fundi sínum í gær bæjarstjóra að selja hlutabréf bæjarins í Skinnaiðnaði hf. fyrir allt að 5 milljónir króna á nafn- virði. Jafnframt lýsti bæjarráð því yfir að stefnt verði að því að selja allan eignarhluta bæjarins í félaginu fyrir iok kjörtímabilsins. Framkvæmdasjóður Akureyrar á hlutabréf í Skinnaiðnaði að nafnvirði 23,7 milljónir króna og er lang- stærsti hluthafí félagins með 39,1% hlutafjár. Söluverð hlutabréfa bæj- arins í Skinnaiðnaði era miðað við gengið 2,6-3,2 um 62 til 76 milljónir. Þetta er stefnan „Þetta er í raun það sem við höfum verið að undirbúa lengi, að létta skuld- um af FVamkvæmdasjóði Akureyrar með sölu eigna. Bærinn hefur lagt fram hlutafé í hin ýmsu félög en það er stefnan að þegar þau fara að ganga að losa um eignarhlutinn og nota andvirðið til uppbyggingar, ýmist í atvinnulífinu eða við annað eins og framkvæmdir af ýmsu tagi,“ sagði Sigfríður Þorsteinsdóttir forseti bæj- arstjómar. MorgunWaðið/Rúnar Þór STARFSFÓLK Bautans hefur verið önnum kafið við að undirbúa 1.200 manna veislu sem ÚA efnir til á 50 ára afmæli sínu en í gær var verið að undirbúa annan aðalrétt kvöldsins, innbakaðar nautalundir. UA fagnar hálfrar aldar afmæli sínu Um eitt tonn af matvælum í 1.200 manna veislu Hátíðahöld sjómanna- dagsins DAGSKRÁ sjómannadagsins á Ak- ureyri hefst á morgun, laugardaginn 10. maí, kl. 13 við Torfunesbryggju með kappróðri sveita skipshafna, kvenna og fyrirtækja. Samhliða róðrinum fer fram keppni í netabæt- ingu og að hnýta fyrir poka. Nýtt hús Sjóbjörgunarsveitar SVFÍ við höfnina verður til sýnis og þar verður kvennadeild með veit- ingasölu. Sjósport Akureyri býður upp á „River Rafting" á Pollinum á laugardag og sunnudag og þá verður flotkví Akureyrarhafnar til sýnis frá kl. 10 til 16 báða dagana. Knatt- spymuleikir skipshafna verða í íþróttahúsi KA við Lundartún. kl. 16. Á sjómannadaginn verða fánar dregnir að hún kl. 8 árdegis og kl. 11 verður sjómannamessa Akur- eyrar- og Glerárprestakalls í Akur- eyrarkirkju. Blómsveigur verður lagður að minnisvarða um týnda og drakknaða sjómenn við Glerárkirkju kl. 13. Dagskrá við Sundlaug Akureyrar hefst kl. 13.30. Flutt verða ávörp fuiltrúa útgerðar og sjómanna, sjó- menn verða heiðraðir, keppt verður í stakkasundi, bjögunarsundi og koddaslagi. Atlastöngin verður af- hent síðasta sinni á sjómannadans- leik í íþróttahöllinni um kvöldið en hann hefst kl. 19. Kvennadeild SVFÍ verður með kaffísölu á sjómannadaginn á Hótel KEA kl. 15. UM EITT tonn af matvælum mun verða á borðum í veglegri veislu sem Útgerðarfélag Akureyringa efnir til í kvöld, föstudagskvöld, í tilefni af 50 ára afmæli sínu nú fyrir skömmu. Búist er við að veislugestir verði tæplega 1.200 talsins, starfsfólk ÚA og makar auk gesta en m.a. mun Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráð- herra vera meðal veislugesta og flytja ávarp. Þá verða ráðherrarnir Halldór Blöndal og Guðmundur Bjarnason einnig meðal gesta auk alþingismanna kjördæmisins, bæjar- fulitrúa og fleiri. Undirbúningur hefur staðið yfir síðustu dag og sagði Stefán Gunn- laugsson, framkvæmdastjóri Baut- ans, sem hefur umsjón með veiting- um í veislunni að hátt í eitt hundrað manns hefðu komið nálægt undir- búningi á einn eða annan hátt. „Þetta er langstærsta veisla sem haldin hefur verið á Akureyri og sennilega á landinu öllu,“ sagði Stef- án. Óhemju mikil vinna Boðið verður upp á heita og kalda rétti, innbakaðar nautalundir og inn- bakaðan lax sem aðalrétti auk fjölda kaldra rétta á hlaðborði. „Við gerum ráð fyrir að fari um eitt tonn af matvælum í þessa veislu. Það hefur verið býsna mikið að gera hjá mínu fóiki síðustu daga við undirbúning- inn og þá er óhemju mikil vinna við að koma salnum í íþróttahöllinni í rétt horf, það hefur verið byggð ný sena austan megin í húsinu til að nýta allt plássið sem best vegna þessa fjölda," sagði Stefán. Auk þess sem sjávarútvegsráð- herra ávarpar veislugesti, flytja framkvæmdastjóri félagsins Gunnar Ragnars, forseti bæjarstjórnar Sig- fríður Þorsteinsdóttir og formaður starfsmannafélagsins Óskar Ægir Benediktsson einnig ávörp. Þá verða skemmtiatriði af ýmsu tagi, Borg- ardætur syngja, Jóhannes Kristjáns- son eftirherma verður á staðnum, Fílapenslar og Karlakórinn Akur- eyrar-Geysir syngur nokkur lög. Loks leika tvær hljómsveitir fyrir dansi, bæði í aðalsalnum og eins í veitingasal hallarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.