Morgunblaðið - 22.06.1995, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 1995 í 7
FRETTIR
Arfleiddi Barnaspít-
ala Hringsins að íbúð
EIRÍKA Anna Friðriksdóttir, sem
lést 5. júní sl., arfleiddi Barnaspít-
ala Hringsins að íbúð sinni til af-
nota fyrir aðstandendur veikra
barna.
Eiríku voru málefna barna hug-
leikin. Hún rannsakaði m.a. slys
á börnum á íslandi og beitti sér
mjög fyrir umbótum. Þann 30.
maí sl. heimsótti Eiríka Barnaspít-
ala Hringsins þar sem hún skýrði
frá þeirri ákvörðun sem hún hafði
tekið nokkru áður að arfleiða
Barnaspítala Hringsins að íbúð
sinni. Á myndinni er Eirfka ásamt
forstöðulækni Barnaspítala
Hringsins, Ásgeiri Haraldssyni,
við það tækifæri.
Aðstandendur sjúkra og Barna-
spítali Hringsins eru Eiríku afar
þakklát fyrir hlýhug hennar.
ASGEIR Haralds-
son og Eirika Anna
Friðriksdóttir.
Oskað eftir sam-
þykkt nýrra veðlaga
VERSLUNARRAÐ- Islands hefur
sent Þorsteini Pálssyni, dómsmála-
ráðherra, bréf þar sem óskað er eft-
ir að næsta þing afgreiði frumvarp
að veðlögum fyrir áramót. í bréfinu
segir að í þrígang hafi verið lagt
fram frumvarp um samningsveð á
Alþingi, sem er heildarlöggjöf á
þessu sviði, en málið hafi ætíð dagað
uppi. í bréfínu er bent á að stofn
íslenskrar veðlöggjafar eigi sér stoð
í lögum frá 1887, þó svo að veðsetn-
ingarheimildir hafi verið settar í sér-
lög. Því sé löggjöf á þessu sviði ósam-
stæð. Þá er bent á að breyttir at-
vinnu- og viðskiptahættir hafi skap-
að nýjar þarfir í þessum efnum.
Frumvarpið hefur að geyma
ákvæði um breytingar á veðlöggjöf-
inni, t.d. rýmri reglur um veðsetn-
ingu rekstrartækja, vörubirgða, við-
skiptabréfa og annarra krafna.
Jafnframt bendir ráðið á að æski-
legt væri að frumvarpið heimilaði
einnig veðsetningu á réttindum, svo
sem vörumerkjum, einkaleyfí og
hönnun sem hafi fjárhagslegt gildi
og unnt sé að tilgreina nægilega.
Mondeo
:
Enginn
meðalbíll
áferð!
Verð frá:
-fyrir allal
Ford Mondeo var valinn bíll ársins
í Evrópu á síðasta ári. Það eru engir
meðalbílar sem hljóta þann heiður.
Þeir þurfa að skara framúr og það gerir
Mondeo sannarlega. Hann er þýsk
gæðaframleiðsla, framhjóladrifinn og
sérstaklega vel búinn.
Mondeo hefur ekki síst verið hælt fyrir
framúrskarandi aksturseiginleika, hvort
heldur er á langkeyrslu eða í innanbæjar-
akstri. Það er nokkuð sem þú getur
komist að af eigin raun með því að
reynsluaka þessum einstaka bíl.
BRIMBORG
Vökvastýri
Loftpúði í stýri
FAXAFENI 8 • SÍMI 515 7000
Samlæsing
Upphituð framrúða!
Útvarp og segulband
Rafstýrðir speglar
1800cceða
2000cc vél
!
í
Framhjóladrif!
r á mynd: Álfelgur og vindskeið