Morgunblaðið - 22.06.1995, Blaðsíða 31
MORGÚNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ1995 31—
AÐSENDAR GREINAR
Síðasti neysludagnr eða best
fyrir — hver er munurinn?
Hvað varð um síðasta söludag?
Sigríður Klara
Arnadóttir
MERKING sem
gefur til kynna
geymsluþol er mikil-
vægur þáttur í öryggi
matvæla og þar með
neytenda. Fyrir fram-
leiðendur er rétt merk-
ing hluti af innra eftir-
liti (gæðaeftirliti) mat-
vælafyrirtækja. Hér
verður leitast við að
leiðrétta misskilning
sem virðist gæta
nokkuð víða um merk-
ingu geymsluþols
matvæla, en nú hafa
átt sér stað breytingar
á geymsluþolsmerk-
ingum vegna reglna á
Evrópsku efnahagssvæði (EES).
Pökkunardagur er sá dagur þeg-
ar vörunni er pakkað í þær umbúð-
ir sem henni er dreift í. Skylt er
að merkja allar kælivörur sem
geymast í 3 mánuði eða skemur
með pökkunardegi ásamt dagsetn-
ingu sem tilgreinir mánaðardag og
mánuð. Dæmi: „Pökkunardagur
17. ágúst“ eða „Pökkunardagur
17.8.“. Algengt er að tilgreina
einnig árið (17.8.95).
Ýmis orð hafa verið í notkun
s.s. framleitt, framleiðsludagur eða
pakkað, sem valdið hafa ruglingi
hjá neytendum, samkvæmt reglum
er rétt merking pökkunardagur og
hana ber að nota.
Síðasti neysludagur er merking
sem notuð er fyrir mjög viðkvæm
matvæli og merkir lok þess tíma-
bils sem varan heldur gæðum sín-
um. Oheimilt er að bjóða vöru til
sölu eftir dagsetningu síðasta
neysludags, þar sem ekki er ráð-
legt að neyta vörunnar eftir þann
dag sem tilgreindur er. Þetta er
lykilatriði í notkun merkingarinn-
ar. Merkingin er aðeins notuð fyr-
ir kælivörur sem geymast 5 daga
eða skemur. Á eftir merkingunni
er tilgreindur mánaðardagur og
mánuður.
Viðkvæmar kælivörur eins og
fars, hakk og ýmis hrásalöt sem
framleiðendur gefa 2ja til 3ja daga
geymsluþol eiga að vera merktar
með pökkunardegi og síðasti
neysludegi, ásamt dagsetningum.
Dæmi: „Pökkunardagur 27. júní“
og „Síðasti neysludagur 29. júní“.
Merkingin síðasti söludagur á
ekki að vera í notkun þégar þetta
ár er liðið. Síðasti neysludagur og
best fyrir koma í staðinn og má
nú þegar sjá þær merkingar á
mörgum umbúðum matvæla.
Best fyrir og best fyrir lok gefa
til kynna lágmarksgeymsluþol vör-
unnar við þau geymsluskilyrði sem
við eiga. Varan getur
haldið sínum eiginleik-
um og verið örugg til
neyslu í ákveðinn 'tíma
á eftir þó svo gæðin
geti rýrnað. Merkingin
kemur á allar matvör-
ur sem skylt er að
geymsluþolsmerkja að
undanskildum þeim
kælivörum sem ber að
merkja með. síðasta
neysludegi. Matvara
sem geymist í 3 mán-
uði eða skemur skal
fylgja dagsetning sem
tilgreinir að minnsta
kosti dag og mánuð.
Dæmi um merkingu
fyrir nýmjólk með 6 daga geymslu-
þol er „Pökkunardagur 22. júlí“
og „Best fyrir 28. júlí“. Jógúrt
Síðasti söludagur á
ekki að vera í notkun
þegar þetta ár er liðið,
segir Sigríður Klara
Arnadóttir; merking-
arnar síðasti neyslu-
dagur og best fyrir
koma í staðinn.
með 21 daga geymsluþoli á sömu-
leiðis að merkja með pökkunardegi
og best fyrir. Á umbúðir fyrir
matvörur með geymsluþol frá 3 til
og með 18 mánuðum nægir að til-
greina mánuð og ár, t.d. „Best
fyrir lok júlí ’96“. Fyrir þær mat-
vörur sem geymast lengur en 18
mánuði nægir hins vegar að til-
greina ár, svo sem „Best fyrir lok
1997“.
Kjötálegg sem geymist'í nokkrar
vikur á að merkja með pökkunar-
degi og best fyrir, en ekki með
síðasta neysludegi, því að varan
geymist lengur en 5 daga. í þeim
tilvikum sem brauðvara er
geymsluþolsmerkt skal merkingin
vera best fýrir. Á umbúðum utan
um brauð á ekki að merkja síðasta
neysludag þó svo geymsluþol sé
áætlað skemur en 5 dagar því
brauð og brauðvörur eru ekki við-
kvæmar kælivörur. Öðru máli
gegnir um tilbúnar brauðsamlokur
t.d. með rækjusalati, þær ber að
geyma í kæli og merkja með pökk-
unardegi og síðasta neysludegi.
Krydd þarf að geymsluþolsmerkja.
Krydd sem hefur árs geymsluþol
Rosenthal _ pvgnr pú sjof
• Brúðkaupsgjafir \CVx r\
• Tímamótagjafir
Hönnun oggæði í sérflokki Laugavegi 52, sími 562 4244.
t-
Skór fyrir kröfuharða krakka
Flottir og þægilegir
Brúnt oq evart leður
Svart lakk - Rósótt - Gull
stærðir 26-38 Verð kr 4.500,-
lENOABÖRNiN
Bonkostrœti 10 símí 652-2201
vsssssssssss
AUSTURLENSK TEPPI
OG SKRAUTMUNIR
emír!
Hringbraut 121, sími 552 3690
Raðgreiðslur tii 36 mán.
Blab allra landsmanna!
-kjarnimálsinsl
á til dæmis að vera merkt „Best
fyrir lok júlí 1996“, en það sem
geymist lengur en 18 mánuði er
nóg að merkja „Best fyrir lok
1997“.
Heimilt er að dreifa vörunni til
loka þess tímabils sem tilgreint er.
Þegar gefinn er' upp ákveðinn
mánaðardagur, t.d. „Best fýrir 5.
september" má dreifa vörunni og
selja til loka þess dags. Sama gild-
ir þar sem merkingin er „Best fyr-
ir lok 1996“ þá er heimilt að selja
vöruna út árið 1996. Eftir tilgreint
tímabil skal taka vöruna úr dreif-
ingu og sölu. Best fyrir merkingin
er notuð þar sem tiltekinn er mán-
aðardagur en best fyrir lok er not-
að í þeim tilvikum þar sem fram
kemur mánuður og/eða ártal, en
enginn mánaðardagur.
Ekki er til ákveðin regla um það
hversu lengi vara er neysluhæf
eftir best fyrir dagsetningu. Það
fer meðal annars eftir eðli vörunn-
ar og umbúðanna sem hún er í.
Lokaorð
Við merkingu matvæla ber að
hafa í huga að tilgangur reglna
um umbúðan\erkingu er að vernda
og upplýsa neytendur. Hagur
framleiðanda hlýtur einnig að fel-
ast í því áð neytendur kaupi vör-
una, neyti hennar á þeim tíma sem
gæðin eru mest og kaupi hana
aftur. Rétt og greinileg geymslu-
þolsmerking er mikilvægur hluti
af innra eftirliti matvælafyrirtækja
í þeim tilgangi að tryggja öryggi,
gæði og hollustu vörunnar sem þau
framleiða og dreifa til sölu.
Höfundur er
deildarmatvælafræðingvr hjá
Hollustuvernd rikisins.
Stendur mikið til?
15 ára lán til framkvœmda
íslandsbanki veitir langtímalán til allt aö 15 ára vegna viöamikilla
framkvœmda á fasteignum svo sem til viöhalds á húsnœöi, viöbyggingar
eöa annarra endurbóta. Þessi lán henta vel einstaklingum sem hyggja á
slíkar framkvæmdir.
• Lánin eru skuldabréfalán, tryggö meö veöi í fasteign
• Upphœö láns og vaxtakjör taka miö af greiöslugetu
umsœkjanda, tryggingum og fyrirhuguöum framkvœmdum
• Hámarkslánstími er 15 ár
• Afborganir eru mánaöarlega
Áöur en lán er tekiö aöstoöar starfsfólk bankans viöskiptavini viö aö
gera sér grein fyrir greiöslubyröi lánsins og þeim kostnaöi sem
lánsviöskiptum fylgja og bera saman viö greiöslugetuna. Á þann hátt er
metiö hvort lántakan er innan viöráöanlegra marka.
Láttu ekki skynsamlegar framkvœmdir stranda á fjármagninu.
Langtímalán Islandsbanka er kostur sem vert er aö athuga.
Kynntu þér möguleikana í nœsta útibúi bankans.
ISLANDSBANKI