Morgunblaðið - 22.06.1995, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ1995 5
FRETTIR
Framhlaup Tungnaárjökuls
síðastliðna átta mánuði
20 ferkílómetrar
hafa horfið
imdir jökulinn
TUNGNAÁRJÖKULL hefur nú
hlaupið fram um 1.100 m á átta
mánuðum frá því hann tók á rás sl.
haust og hafa nú um 20 ferkílómetr-
ar lands horfið undir jökul.
Talsvert hægði á framrás jökulsins
eftir áramót en titringur á skjálfta-
mæli í Bláfjöllum, sem er um 8 km
frá jökli, síðustu vikur bendir til þess
að með aukinni leysingu hafi hreyf-
ing Tungnaárjökuls hafíst á ný. Helgi
Björnsson jarðskjálftafræðingur við
Raunvísindastofnun Háskóla Islands
sagði í samtali við Morgunblaðið að
leysingavatnið virkaði eins og smurn-
ing á hreyfinguna, þ.a. hún yxi við
það.
Miklar breytingar á sporðinum
Helgi skrifar um framrás jökulsins
í nýjasta fréttabréf Jöklarannsóknafé-
lags íslands. Það segir hann að 1986
hafi orðið ljóst að jökullinn hreyfðist
helmingi hægar en þurfti til þess að
bera fram það sem á hann bættist
og Jjví Ijóst að stefndi í framhlaup.
Arið 1992 hafi síðan komið í Ijós
að á Tungnaárjökli hefði hreyfing
aukist verulega frá því sem hún var
árið 1986 og síðan hafi hún aukist
ár frá ári. Sumarið 1994 varð vart
við miklar breytingar á sporðinum
og framskrið hans hófst um mánaða-
mótin október/nóvember. Skriðhrað-
inn var að jafnaði um 10 metrar á
dag undir lok síðasta árs en var orð-
inn 6 metrar á dag í janúar og um
5 metrar á dag í byrjun febrúar en
svo dró jafnt úr honum.
Nokkuð var misjafnt hvenær hinir
ýmsu hlutar sporðsins fóru af stað.
Ofan við Langasjó er jökullinn enn
kyrr en sunnan við hann hefur Skaft-
árjökull hins vegar ruðst fram.
Helgi segir athyglisvert að
Tungnaárjökull hafi farið mun hægar
fram en Síðujökull sem náði há-
markshraða við sporð um 100 metr-
um á dag. Vatn hefur seytlað-frá
Tungnaárjökli allt frá því framskrið
hófst, mjög gruggugt.
Jöklarannsóknafélagið efnir til
skoðunarferðar að jöklinum um
. næstu helgi undir fararstjórn Helga.
Hann segir að jökullinn sé nú óþekkj-
anlegur frá því sem áður var ogjökla-
menn fari með mikilli eftirvæntingu
á slóðir hans um næstu helgi.
Tungnaárjökull er í vestanverðum
Vatnajökli. Hann er fyrir norðan
Síðujökul, en á milli þeirra liggur
Skaftárjökull.
Morgunblaðið/Golli
Björgunarsveitarmenn drógu Vin HF inn til Hafnarfjarðar.
Trilla strand-
aði við Alftanes
MANNI var bjargað þegar trillan
Vinur HF 468 strandaði á grynn-
ingum undan Hliðsnesi á Álfta-
nesi um klukkan sjö í gærmorgun.
Trillan var á útleið frá Hafnar-
firði í góðu veðri og ágætis
skyggni og var einn maður á, að
sögn Páls Ægis Péturssonar hjá
Slysavarnafélagi íslands.
Þegar trillan tók niðri kom að
henni leki og setti maðurinn út
björgunarbát. Hann skaut einnig
upp neyðarflugeld sem sást úr
landi og var Tilkynningarskyld-
unni gert viðvart.
Nærstaddir bátar komust ekki
að trillunni vegna grynninga og
var björgunarsveit slysavarnafé-
lagsins í Hafnarfirði kvödd út.
Menn þaðan fóru til aðstoðar á
björgunarbátnum Sigurjóni Ein-
arssyni. Þeir komust að trillunni
og fluttu dælur um borð og náðu
síðan að draga hana á flot án
þess að sk-ipbrotsmaðurinn yfir-
gæfi bátinn. Síðan var haldið inn
til Hafnarfjarðar og var komið
þangað á níunda tímanum í gær-
morgun.
Ný biblíuþýðing um
aldamótin
Miðar hægt
en örug'g-
lega
Á PRESTASTEFNUNNI sem lýkur
í dag var meðal annars fjallað um
nýja biblíuþýðingu sem Hið íslenska
biblíufélag og Guðfræðistofnun Há-
skóla íslands standa að. Sigurður
Pálsson, framkvæmdastjóri Hins ís-
lenska biblíufélags og um leið þýð-
ingarstarfsins, segir að verkefninu
miði hægt en örugglega.
Þegar hafi komið út tvö hefti með
sýnishorni af nýju þýðingunni, sem
innihaldi efni úr Gamla testament-
inu, og á næstu vikum sé þriðja heft-
ið væntanlegt úr prentun. '
„Biblían var síðast þýdd um síð-
ustu aldamót," segir Sigurður. „ís-
lenskt tungutak hefur breyst og bibl-
íuvísindum fleygt fram á þessari öld.
Það auðveldar þýðingar úr hebresku
og gerir torlæsa staði auðskiljan-
legri. Það má því segja að þýðingin
nú verði ljósari og skýrari en þá."
Þýðingarverkefnið er tengt
kristnitökuafmælinu árið 2000 og
segir Sigurður að stefnt sé að því
að nýja biblíuþýðingin komi út um
aldamótin. Þýðingarnefndin hefur
haldið vikulega fundi allan ársins
hring, ailt frá upphafi árs 1991,
undir forystu Dr. Guðrúnar Kvaran.
Að þýðingunni hafa unnið guðfræð-
ingarnir Dr. Sigurður Örn Stein-
grímsson og Dr. Þórir Kr. Þórðarson,
sem lést á þessu ári, og Jón R. Gunn-
arsson lektor í málvísindum.
-*•"
.Axýesta,
Nú er rétti tíminn
I ár er sérlega hagstætt að fjárfesta í atvinnu-
tækjum. Það er vegna sérstakra laga um
flýtifyrningar atvinnutækja sem keypt eru árin
1994 og 1995. Þau má fyrna allt að tvöfaldri
venjulegri fyrningu, næstu þrjú rekstrarár eftir að
þau eru keypt. Fjárfesting í ár er því heillaráð.
Við gefum þérgóð ráð
Við hjá Glitni sérhæfum okkur í fjármögnun
hvers kyns atvinnutækja. Við getum bent þér á
leiðir þar sem þú losnar við að binda rekstrarfé
í tækinu og þar sem fyrirgreiðsla þín í viðskipta-
bankanum helst óskert.
Þú kannt eflaust að meta að geta fengið 100%
fjármögnun en njóta samt staðgreiðsluafsláttar
hjá seljanda tækisins.
$hjót qfgreiðsla
Fjármögnun með Kjörleiðum
Glitnis er fljótleg. Þegar
nauðsynleg gögn liggja fyrir
af þinni hálfu, er umsókn
þíti afgreidd á skjótan hátt.
dltnlrhf
DÓTTURFYRIRTÆKI ÍSLANDSBANKA Ármúla 7, 1 55 Reykjavík Sími 560 88 00 og 560 88 20. Myndsími 560 88 10.
Ut er komið upplýsingarit um
Kjórleiðir Glitnis. Þar er á
einfaldan hátt fjallað um
ólíkar gerðir fjármögnunar.
Hringdu og fáðu eintak eða
líttu inn og spjallaðu við
ráðgjafa okkar.
<*>/(.
n„
"^is'
m
?,-;.
'""-,
"«¦«,: