Morgunblaðið - 22.06.1995, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 22.06.1995, Blaðsíða 36
36 FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/GSH JAKOB Kristinsson og Matthías Þorvaldsson hefja viðureignina við Belga á þriðjudag. Gekk ekki sem best í tvímenningi _______Brids__________ Evrópumótiö í svcitakcppni VILAMOURA, PORTÚGAL Evrópumótið í opnum flokki og kvennaflokki, 17. júní til l.júlí Vilamoura. Morgunbiaðið. ÍSLENSKU kvennapörunum gekk ekki sem best í Evróputvímenningi kvenna sem lauk í fyrradag. Ekk- ert par komst í úrslit mótsins en fimm pör spiluðu í aukamóti. Þar enduðu Olöf Þorsteinsdóttir og Jacqui McGreal í 5. sæti og Guð- laug Jónsdóttir og Dröfn Guð- mundsdóttir í 9. sæti af 28 pörum. Evrópumeistarar kvenna í tví- menningi urðu Sabina Zenkel og Daniele von Arnim frá Þýskalandi, en þær hafa þótt eitt besta kvennapar heims undanfarin ár. Danir lagðir ísland vann góðan sigur á Dan- mörku í 3. umferð, 21-9. ísland var aðeins yfir eftir fyrri hálfleik- inn, og staðan breyttist lítið þang- að til kom að síðustu spilunum. í næst síðasta spiiinu hjálpuðust ís- lensku pörin við að búa til geim- sveiflu: Suður gefur, allir á hættu Norður ♦ AIO ¥ KDG1096 ♦ 64 *K42 Austur ♦ KG75 ▼ Á ♦ ÁD1082 + G108 Suður ♦ D2 ¥8732 ♦ K5 ♦ Á9653 í opna salnum sátu Jón Baldurs- son og Sævar Þorbjörnsson í NS gegn Dorthe og Peter Schaltz en í þeim lokaða voru Guðmundur Páll Arnarson og Þorlákur Jónsson AV gegn Jens Auken og Denis Koch-Palmlund. Vestur Norður Austur Suður Peter Sævar Dorthe Jón - - pass pass 1 hjarta dobl 4 hjörtu// Denis Þorl. Jens Guðm. - - - pass pass 1 hjarta dobl 2 grönd 3 spaðar 4 hjörtu 4 spaðar pass pass dobl// Auken sýndi góða hækkun í 3 hjörtu með 2 gröndum en þá komst Guðmundur inn á sagnir. Þorlákur hækkaði í 4 spaða, sjálfsagt til vinnings en í þetta skiptið reyndist vera um fóm að ræða og þegar Guðmundur hitti í spaðann fór hann aðeins 1 niður, 200 til Dana. Við hitt borðið þaggaði Jón nið- ur í Peter með því að stökkva í 4 hjörtu. Dorthe hefði getað hnekkt samningnum með því að spila litl- um tígli út undan ásnum og síðar tígli á gosa Peters til að fá spaða í gegn. En slíka vöm er ekki hægt að finna nema sjá öll spilin og í raun spilaði Dorthe út hjartaási og síðan tígulási og meiri tígli og eftir það gat Jón fríað laufið og hent niður spaða heima. 620 til íslands og 10 impar. Guðm. Sv. Hermannsson Vestur ♦ 98643 ¥54 ♦ G973 *D7 EFNT verður til styrktardansleiks föstudagskvöldið 23. júní á Flúðum í Hmnamannahreppium fyrir Mál- fríði Þorleifsdóttur, sem slasaðist illa fyrir átta árum og hefur enn ekki fengið bætur frá tryggingun- um. Það er Steindór Stefánsson sem stendur fyrir dansleiknum og rennur ágóði miðasölunnar til Málfríðar, en Steindór fékk Geirmund Valtýsson til að troða upp á dansleiknum. Átta ára bið eftir bótum Málfríður Þorleifsdóttir missti handlegg og höfuðleður þegar hún fór í drifskaft dráttarvélar fyrir átta ámm. Héraðsdómur dæmdi Vá- tryggingafélag íslands til að greiða henni samtals um þrettán milljónir króna með vöxtum árið 1993. Tryggingafélagið áfrýjaði dómnum til Hæstarétts og hefur málið ekki enn verið tekið til afgreiðslu þar. „Málfríður hefur ekkert fengið út úr tryggingunum og mér fannst ég knúinn til að hjálpa henni á ein- hvem hátt,“ segir Steindór en hann er mágur Þorleifs Guðnasonar, föð- ur Málfríðar. Morgunblaðið/Sigurður H. Þorsteinsson. HÁMESSAN í Landakotskirkju. Erkibiskup fyrir miðju altari en djáknamir Atli G. Jónsson honum til hægri handar og John McKeon til vinstri. Prestar og messuþjónar ennfremur umhverfis altarið. Djáknavígsla í Landakotí SUNNUDAGINN 18. júní var Atli Gunnar Jónsson vígður til djákna í Dómkirkju Krists konungs í Landa- koti. Vígslan var framkvæmd af Gio- vanni Ceirano, erkibiskupi, sendi- herra páfa á Norðurlöndum, þar sem nýr birkup hefir ekki enn verið kall- aður til stólsins á íslandi. í ávarpi eftir vígsluna og í móttöku í Safnað- arheimili Landakotskirkju, gat erki- biskup þess að hann hefði, á þeim stutta tíma er hann hefir verið full- trúi páfastóls á Norðurlöndum, heim- sótt Reykjavík fjómm sinnum, en til dæmis Stokkhólm aðeins tvisvar. Atli Gunnar Jónsson er Reykvík- ingur, sonur hjónanna Jóns G. K. Jónssonar og Halldóru Guðmunds- dóttur. Hann var að ljúka prests- námi við Gregoríanska háskólann í Róm á þessu vori og kom nú heim að því ioknu til að vígjast til djákna. Að öðru leyti er hann í framhalds- námi í trúfræðilegri, eða „dogma- tískri“ guðfræði, sem taka mun enn um það bil eitt og hálft ár. Að því loknu kemur hann til starfa hér á landi. Eins og stendur eru því starfandi tveir djáknar í kaþólska söfnuðinum á íslandi, þeir Atli Gunnar Jónsson og John McKeon, sem vígður verður til prests næsta sunnudag í Krists- kirkju af William Kenny, biskupi í Stokkhólmi. Við vígsluna þjónuðu auk erki- biskups, prestarnir séra Sæmundur Vigfússon, dr. Lambert Testroet, Patric Breen og ítalskur prestur sem kom til landsins með víglsuþega. Einnig þjónaði John McKeon djákni, en séra Hjalti Þorkelsson var siða- meistari. Landakotskirkja var troðfull við vígsluathöfnina. Meðal annars var nokkuð af ferðamönnum aftast í kirkjunni, sem tóku hressilega undir kirkjusönginn og sálmasönginn, en hver á sínu tungumáli. MARGT ungt fólk segir í dag: „Grautar eru svo fitandi og óholl- ir, ég borða þá ekki.“ En þetta sama fólk úðar í sig hamborgur- um og pítum með kokteilsósu og pizzum og drekkur gos með og oft ís á eftir og finnst það hvorki fítandi né óhollt. Blessuð börnin borða grauta með bestu lyst, ef þeir eru á borðum ömmu og afa og kalla þá ömmugrauta, sem er það besta í heimi. Grautar eru í fæstum tilfellum fítandi og mjög oft hollir og saðsamir og auk þess ódýrir og auðtilbúnir. Ég skal þó ekki halda á lofti ofurhollustu rabarbara, en hann er til umfjöllunar í þessum þætti. í hann þarf talvert af sykri, sem allir vita að ekki er hollur, en hafið það í huga að sykur er helmingi minna fitandi en öil fita, hvort sem hún er í formi rjóma, olíu, smjörs eða smjörlíkis, að ekki sé talað um mæjonsósu, sem er í flestum ídýfum og kokteils- ósum. I rabarbaragrautinn má bæta hundasúrum eða hvönn og er hann þá orðinn hinn hollasti matur. Við systkinin í Múla á Seyðisfirði sém vorum sjö, borð- uðum mikinn rabarbara og þrif- ust hið besta. Rabarbari er mikið nýnæmi snemmsumars og hann er afar Ijúffengur nýsprottinn. Rabarbaragrautur 500 g rabarbari 1 Vt - 2 dl sykur 8 dl vatn 3 msk. kartöflumjöl + 1 Vi dl vatn Matur og matgerð Rabarbara- grautar o.fl. Hér áður fyrr lauk hverrí máltíð með graut eða súpu. Krístínu Gestsdóttur finnst eftirsjá að þessu og vill hvetja landsmenn til að taka grautargerð upp að nýju. 1. Þvoið rabarbarann og sker- ið smátt. Setjið í pott ásamt sykri og vatni. Sjóðið við hægan hita í 15 - 20 mínútur. Gott er að stappa rabarbar- ann örlítið í pottinum með kartöflustappara. 2. Hristið vatn og kartöfíumjöl í hristiglasi. Takið pottinn af hellunni og hrærið kartöflu- mjölsvatnið út í. Grauturinn á að þykkna en ekki að sjóða hann eftir að kartöflumjölið er komið út í. Rabarbaragrautur með hundasúrum Sama uppskrift og hér að ofan, en bætið við við nokkr- um smátt skornum hundasú- rublöðum (25- 30 g) og sjóðið með. Rabarbaragrautur með hvönn Sama uppskrift of hér að ofan, en sjóðið í 15 mínútur 50 g af mjóum, ungum hvannaleggjum í vatninu áður er rabarbarinn er settur út í. Afhýðið hvannaleggina áður og skerið smátt. Rabarbara- bitar í púðursykri (kompot). 500 g rabarbari 1 Vi dl púðursykur rifinn börkur af 'A lítilli sítrónu 1 dl vatn 1. Þvoið rabarbarann og af- hýðið. Skerið síðan í 2 - 3 sm langa bita. Hellið köldu vatni yfir og látið standa í 4 klst. Þetta dregur örlítið úr sýrunni. Helið síð- an á sigti. 2. Setjið púðursykur, sítrónubörk og vatn í pott og sjóðið við meðalháan hita þartil lögurinn þykknar. 3. Setjið rabarbarabitana út í og sjóðið í 5 mínútur. Kælið. Meðlæti: Rjómi eða ís. Rabarbaratrifli 250 g möndlumakrónur helmingurinn af uppskriftinni hér að ofan, rabarbarabitar í púðursykri 1 bréf Otker Mandela búðingur 'A peli rjómi 1. Setjið möndlumakrónurnar á botninn á breiðbotna skál, hellið rarbarabitunum í legin- um yfir. 2. Búið til búðing, skv. leið- beiningum á pakkanum. Hell- ið yfir. Kælið. 3. Þeytið rjóma og setjið ofan á.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.