Morgunblaðið - 22.06.1995, Blaðsíða 40
40 FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
£W<J£/NN
ve/ÞÞ/ É<3
B9FI.U60/
ú
fHK/EfiNie \
ftȣ"'*":
WngánI/née. \Mié
BÓi-G/N t'M'ANUE>
E
PIB ccpennagen kL/pp KLIPP
N ! >^?>3 k^"t^T'¦-'¦'¦"''
£5 l|pv_
^S-^sh 1 1^"*^
-"""—-
Tommi og Jenni
• -SIWí^.c_
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Birkí og víðir
eru okkar tré
NEI, kennari... ég get ekki svarað eða ár, eða ártöl, eða lönd eða Hefurðu einhverja spurningu um
neinni spurningu um kónga... ríki... mat?
Frá Vigdísi Agústsdóttur:
ÍSLAND í sinni upprunalegu mynd.
Það er það sem ég vil sjá og njóta.
Góðu landar, reynið að skilja að yið
eigum ekki að skemma ásjónu ís-
lands með erlendum gróðri, sem
engan veginn hæfir þessu sérkenni-
lega fagra landi - barrtré eiga ekki
heima hér - hugsið ykkur hraun
„skreytt" með barrtrjám og túlípön-
um. Nei, ef þið endilega viljið vera
að þessu „gróðurfikti" veljið þá ís-
lenska víðirunna og birki sem hafa
aðlagast íslenskri veðráttu og eru
falleg hér. Aðalatriðið er að girða
landið, þá kemur gróður af sjálfu
sér, a.m.k. þar sem land er frjósamt
fyrir. Barrtré eiga ekki heima hér;
heyrið þið það! Islendingar eiga að
rækta fisk í sjó og vötnum en ekki
ímynda sér að hér sé hægt að fram-
leiða timbur í stórum stíl. Alveg er
ég viss um að náttúrufræðingurinn
og skáldið Jónas Hallgrímsson væri
gráti næst, ef hann sæi hve víða er
búið að pota þessum barrtrjám í
ásjónu Islands - jafnvel á allra feg-
urstu og sérkennilegustu staði sem
hér fyrirfinnast eins og á Þingvelli
ogí Ásbyrgi.
Ég skora á landa mina að hafa
opin augun fyrir íslenskum sérkenn-
um og varðveita þau. Buft- með barr-
tré og öll erlend tré, sem fara ekki
þessu fagra landi! Við þurfum að
hreinsa til víða - taka burt útlendan
gróður, sem af heimsku og misskiln-
ingi var settur þar sem hann alls
ekki má vera. Ég veit að reynitrén
eru íslensk líka - þau eru líka falle'g
en þurfa meira skjól. Vaxa ekki villt
nema þar sem þau njóta þess í nátt-
úrunni að hafa skjól. Víða má sjá
þau falleg í görðum í Reykjavík sér-
staklega ef þau hafa haft nóg pláss
og hafa náð að mynda fallega breiða
krónu. Þessar þrjár tegundir á að
nota hér - víði, birki og reyni - en
láta náttúruna sem mest sjá um sig
- ekki taka fram fyrir hendurnar á
henni. Þá verður samræmi í hlutun-
um. „Skógræktarmenn" hafa lengi
verið á villigötum hér á landi. Skyldu
þeir ekkert vera að átta sig?
VIGDÍS ÁGÚSTSDÓTTTR,
Lækjarhvammi, Laugardal, Árn.
Tryggingar sem
snúast um fólk?
Frá Stefáni Þorleifssyni:
FYRIR tæpum átta árum lenti ung
stúlka í því að festast í drifskafti sem
tengt var dráttarvél. Hún slapp nokk-
uð vel. Hún hélt lífsviljanum og þeim
styrk sem þarf til að sætta sig við
lýti og missi. Þessi unga stúlka, þá
aðeins þrettán ára gömul, missti
vinstri handlegg, svo og höfuðleðrið
og svei mér þá ef eyrun fóru ekki
líka. Skítt með það. A tímum tækni
þá er hægt að fá fín plasteyru í
mörgum stærðum og gerðum. Þeim
er víst komið þannig fyrir að með
einu handtaki er hægt að kippa þeim
af. Mjög hentugt í baði. Gervihendur
eru líka til og búið er að prófa þær
ófáar, hverja annarri betri. Það er
hægt að hengja slíka hendi á stubb-
inn sem eftír er, reyndar þarf að
bregða ólum yfír hina öxlina en hver
hefur áhyggjur af því? Kannski er
það nú svo að í þessu tilfelli sem hér
er vitnað til að áhyggjurnar blunda
hjá fléiri aðilum en fórnarlambinu.
Næstkomandi föstudag (23. júni)
verður haldinn dansleikur að Flúðum.
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar
mun leika fyrir dansi. Það merkilega
við þennan dansleik er það að að-
gangseyrir mun renna til ungrar
stúlku, Málfríðar Þorleifsdóttur, og
hér er að finna merg málsins. Þeir
aðilar sem hrinda slíku í framkvæmd
eru í mínum augum mikilmenni.
Náungakærleikann er að finna hjá
þessum aðilum.
Fyrir u.þ.b. einu og hálfu ári var
kveðinn upp dómur í máli Málfríðar
við ónefnt tryggingafélag. Hún vann
málið. Tryggingafélagið áfrýjaði til
Hæstaréttar, síðan hefur ekkert
gerst.. . tryggingar sem snúast um
fólk.
STEFÁN ÞORLEIFSSON,
Selfossi.
Þakkir fyrir viðtökur
Frá Benedikt Sigurðarsyni:
Á SÍÐUSTU dögum skólastarfs í
maí fóru flestir bekkir skólans í ein-
hvers konar vorferðir með kennurum
sínum ásamt foreldrum í mörgum
tilvikum. Hvarvetna fékk okkar fólk
góðar viðtökur og naut aðstoðar og
fræðslu góðviljaðra manna við skipu-
lagningu og framkvæmd. Foreldrar
brugðust vel við og starfsmenn sýndu
Iofsvert framtak. Fyrir það ber að
þakka.
Hér með vil ég fyrir hönd Barna-
skóla Akureyrar þakka sérstaklega
þann myndarskap sem eigendur
Garðyrkjustöðvarinnar á Grísará,
Eiríkur og Sigrún, sýndu við móttöku
barnanna í 2. og 3. bekk og þá rausn
að leysa alla nemendur út með trjáp-
löntu að skilnaði. Einnig eiga heimil-
ismenn á Bakka í Öxnardal alúðar-
þakkir skildar fyrir móttökurnar sem
nemendur fyrsta bekkjar fengu.
Hjálparfólk á Dalvík, í Hrísey og
Hrafnagilsskóla fær einnig bestu
kveðjur okkar. Aðstoð ykkar er ómet-
anleg.
Kærar þakkir!
BENEDIKT SIGURÐARSON,
skólastjóri.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
Gagnasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan,
hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari þar að lútandi.