Morgunblaðið - 02.07.1995, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ 1995 7
ERLEIMT
Islendingar
í 5. sæti
Alþjóðleg víkingahátíð 6.-9. júlí
Hitað upp með fyrir-
lestrahaldi
NORÐURLANDAMÓTI yngri
bridsspilara í Bodö í Noregi er
lokið. íslendingar urðu í fimmta
sæti. íslendingar gerðu jafntefli
við Færeyinga 15-15 og töpuðu
síðan 25-4 fyrir Svíum í síðasta
leiknum á fimmtudag.
UPPHITUN fyrir alþjóðlega
víkingahátíð í Hafnarfirði dag-
ana 6.-9. júlí er hafin. A fimmtu-
daginn hófst röð fyrirlestra um
menningu og siði víkinga til
forna. Margir heimsþekktir fyr-
irlesarar koma til landsins og
flytja fyrirlestra samhliða
nokkrum íslenskum sérfræðing-
um í víkingaaldarfræðum.
Að mati aðstandenda hátíðar-
innar er vænst þátttöku um 600
erlendra gesta á hátíðinni. Flest-
ir munu hverfa aftur í tímann
og lifa sig inn í lifnaðarhætti
víkinga í dæmigerðu víkinga-
þorpi sem reist verður á Víði-
staðatúni. Munu þeir klæðast og
eta eins og víkingar, slá upp
handverksmarkaði og stunda
verslun líkt og víkingar voru
þekktir fyrir.
Sérfræðingar í
víkingamenningu
Á fimmtudaginn lýsti Geof-
frey Bibby, fv. deildarstjóri
fornminjasafnsins í Moesgárd í
Danmörku, í fyrirlestri frá
klæðnaði, vopnum og útbúnaði
karla á víkingaöld. Bodil Pouls-
en, sérfræðingur í fornum fatn-
aði, spilum og leikföngum, gerði
aftur á móti grein fyrir klæðn-
aði og útbúnaði kvenna á vík-
ingatíma. Þessir fyrirlestrar
verða endurteknir síðar á hátíð-
inni.
Meðal erlendra fyrirlesara á
hátíðinni má nefna Soren Thirs-
lund, sérfræðing í siglinga-
tækni, Mogens Friis og Knud
Albert Jepsen, sérfræðinga í
tónlist víkingaaldar, og Ragnar
Thorseth, sérfræðing í gerð vík-
ingaskipa. Lise G. Bertelsen
fornleifafræðingur rýnir í vík-
ingaaldarlist og Stig Jensen
fornleifafræðingur gerir grein
fyrir víkingum og verslun.
Auk ofangreindra flylja Jónas
Kristjánsson prófessor, Jón Við-
ar Sigurðsson sagnfræðingur,
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
fornleifafræðingur, Hrafn
Gunnlaugsson leikstjóri og
Magnús Magnússon víkingasér-
fræðingur fyrirlestra um valin
viðfangsefni.
Á fimmtudaginn heimsóttu
fyrstu erlendu gestir víkingahá-
tíðarinnar forseta íslands, frú
Vigdísi Finnbogadóttur. Sér-
fræðingar í klæðaburði vikinga
Bodil Poulsen, Geoffrey Bibby
og kona hans Vibeke Bibby
klæddu sig að vonum upp sem
víkingar. Lars Bæk-Sorensen
sem skipulagt hefur margar vík-
ingahátíðir stendur við hlið for-
seta á hægri hönd en Iengst til
vinstri á myndinni standa Rögn-
valdur Guðmundsson og Lilja
Hilmarsdóttir aðstandendur al-
þjóðlegu víkingahátíðarinnar
Landnáms.
Tilraunastarf í
fiskiðnaðarnámi
MENNTAMÁLARÁÐHERRA
hefur ákveðið að boðið verði nýtt
matvælanámskeið með sérstakri
áherslu á fiskiðnað sem er ætlað
að leysa af hólmi þá starfsemi sem
hingað til hefur farið fram í Fisk-
vinnsluskólanum í Hafnarfirði.
Námið verður í húsnæði Fisk-
vinnsluskólans en sá skóli hefur
verið lokaður frá áramótum.
Vinnuhópur á vegum mennta-
mála- og sjávarútvegsráðuneytis
skilaði tillögum um nýskipan í
fiskvinnslu til menntamálaráð-
herra þar sem megintillagan er sú
að efnt verði til tilraunastarfs í
fiskiðnaðarnámi á grundvelli 1.
greinar laga nk. 81/1993.
Hópurinn telur að námið eigi
að grundvallast á þeirri starfsemi
sem hingað til hefur farið fram í
Fiskvinnsluskólanum í Hafnar-
firði. Þó leggur hópurinn tii tölu-
verðar breytingar þar á. Aukin
áhersla verður lögð á nám í mat-
vælafræðum er veiti nemendum
sérþekkingu á framleiðsiuferli í
fiskvinnslufyrirtækjum. Námið
verður lengt um eina önn og verð-
ur viðbótarönnin einkum nýtt til
kennslu í matvælafræðum.
Inntökuskilyrði nú eru þau að
gert er ráð fyrir að nemandi hafi
lokið 52 eininga námi í framhalds-
skóla, sem jafngildir eins og hálfs
til tveggja ára framhaldsskóla-
námi. Við mat á umsóknum nem-
enda verður þó að þessu sinni
höfð hliðsjón af því hversu skamm-
ur tími er til upphafs skólaárs.
Til að koma til móts við fólk á
vinnumarkaði verður stefnt að því
að bjóða upp á stöðupróf í þeim
undirbúningsgreinum sem gerðar
eru kröfur um að nemandinn hafí
lokið við inngöngu. Nemendum
sem ljúka prófi af þessari náms-
braut mun standa til boða eins árs
viðbótarnám er leiðir til stúdents-
prófs.
Gert hefur verið samkomulag
við Flensborgarskóla í Hafnarfirði
um að hann hafi yfirumsjón með
þessu tilraunanámi næstu tvö ár.
Lokastaðan í mótinu varð sú
að Norðmenn voru efstir með 199
stig, Svíar í öðru sæti með 178
stig, Finnar í því þriðja með 144
stig, Danir í fjórða sæti með 136
stig, íslendingar í fimmta sæti
með 122,5 stig og Færeyingar
ráku lestina með 108 stig.
Innflutningur frá
Norður-Ameríku
Innflutningur frá Norður-Ameríku er í öruggum höndum hjá Eimskip. Goðafoss og
Skógafoss sigla nú á tveggja vikna fresti milli íslands og fimm hafna í Norður-
Ameríku. Innflutningshafnir okkar eru í Boston, New York og Norfolk í Bandaríkjunum,
Halifax í Kanada og St. John's á Nýfundnalandi.
í rúm áttatíu ár hafa Ameríkuskip Eimskips verið traustur hlekkur í viðskiptum fslands
og Vesturheims. Hér eftir sem hingað til höfum við að leiðarljósi víðtæka og
persónulega þjónustu í þína þágu.
„Hjá innflutningsdeild og skrifstofu
Eimskips í Norfolk og St. John's, býðst
þér fyrsta flokks þjónusta við innflutning
frá Norður-Ameriku.“
Garðar Þorsteinsson,
forstöðumaður í Norfolk
Eimskip býður viðskiptavinum upp á heildarlausnir í fiutninga-
þjónustu, inn- og útflutning, vöruhúsaþjónustu, innanlands-
flutninga, framhaldsflutninga og forflutninga erlendis.
EIMSKIP
Sími 525 7000 • Fax 525 7179
Netfang: mottaka@eimskip.is
NOKKRIR af fyrirlesurum víkingahátíðarinnar í Hafnarfirði
heimsóttu forseta íslands á Bessastöðum í síðustu viku uppá-
klæddir sem víkingar í fylgd með aðstandendum hátiðarinnar.
Morgunblaðið/Sverrir