Morgunblaðið - 02.07.1995, Page 16

Morgunblaðið - 02.07.1995, Page 16
16 SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ1995 MORGUNBLAÐIÐ Golfstraumur áköldumklaka ' V eðurfarsbreytingar hafa verið greinilegar á íslandi síðustu árin og áhrifín margvísleg. Þetta á sér sínar orsakir og Guðmundur Guð- jónsson tók hús á Bimi Erlingssyni hafeðlis- fræðingi fyrir skemmstu og ræddi þessi mál við hann. an. Samstarfsvettvangur þeirra aðila sem stunda rannsóknir er svo lítt þróaður, að aukið samstarf eykur aðeins álag á hverjum og einum. Þvi er ekki mikill áhugi. Ef maður skoð- ar vinnusvið þessara aðila þá virðist þessi hlið málsins helst vera í verka- hring Rannsóknarráðs ríkisins. Þar er hins vegar unnið samkvæmt öðr- um áherslum. Gott dæmi um þetta er, að íslend- ingar hefðu trúlega fengið til lands- ins framkvæmdastjóm „Arctic cli- mate system study - verkefnisins“, en við vomm ekki í stakk búnip að takast á við dæmið og verkefnið var síðan tekið upp í Noregi. Það er Ijóst að við eigum afskaplega litla mögu- leika á því að þróa verkefni að ís- lenskum þörfum þegar svona hagar til,“ segir Björn. Að skilja umhverfið Nú hafa alls konar afbrigði af veðurfari verið í gangi hér á landi síðustu árin. Alls konar uppákomur sem hafa komið mönnum á óvart. Það er ekki ein ástæða .fyrir þessu, öllu heldur spila saman ýmsir þættir og það er nauðsynlegt að „skilja umhverfið" eins og Björn kemst að orði. „Fyrsta spumingin sem vaknar er kannski sú, hvað er að gerast í hafínu. Hvernig virkar Norður Atl- „ antshafið gagnvart þeim ferlum sem í gangi em og hvemig skiljum við á milli þeirra sem em annars vegar frá náttúrunnar hendi og hins vegar af mannavöldum? Önnur spuming varð- ar búsetuna í landinu. Að hve miklu leyti tengist t.d. jarðvegseyðing veð- urfarsþáttum og að hve miklu Jeyti er hún af mannavöldum. Við getum í þessu samhengi velt fyrir okkur hvernig landnotkun annarra þjóða hefur áhrif á umhverfið. Nefnum sem dæmi, að notkun áburðar- og eitur- efna í íslenskum landbúnaði er hverf- andi miðað við mörg önnur lönd. Algengt er í Evrópu að notuð séu allt að 500 kg af slíkum efnum á hvem hektara. Hér á landi er það miklu nær því að vera um 20 kg á hvern hektara. Á sama hátt verða menn að geta skilið á milli mannlegu og náttúru- legu þáttanna, ef einhver fískistofn hrynur, stafar það þá af ofveiði eða umtumun á ástandi í hafinu? Eða eru samspilandi þættir? Það er mjög algengt," segir Björn. Og hann er ekki búinn: Hamskipti... „Til að reyna að skilja betur hvað er í gangi núna mætti rifja upp, að umtumun varð í hafinu á árunum 1967-69. Þá kom hafísinn í öllu sínu veldi. Menn töldu alger hamskipti vera gengin í garð og héldu ráðstefn- ur um ástandið og mikið var rætt og ritað. Svo jafnaði þetta sig. Það hafa verið fleiri svona kuldatímabil, styttri og lengri og þeim fylgir aftur- kippur í lífríki, nýliðun nytjafiska minnkar. Nú hefur komið í ljós að óvenjulega mikill svalsjór er úti fyrir öllu Norðurlandi og búast má við því að hann seinki því að þorskstofninn rétti úr kútnum. Reynslan virðist hins vegar vera sú, að kerfið virðist ná sér aftur. Nú vill svo til að það á einmitt að fara að vinna í þessum málum, m.a. með því að setja upp vöktunar- kerfi í alþjóðlegu samstarfí. Ekki veitti af því að íslendingar gætu verið með í því að nýta sér það. 1 Árið 1980 hófust mælingar á Græn- {g lands- og íslandshafi sem er í þann mund að ljúka. Gáfu mælingarnar " betri mynd af eðli svona þróunar og er gott að byggja á þeirri vitneskju," segir Björn. En hvað vita menn um þessar sviptingar? „Menn sjá straumana fyrir sér sem nokkurs konar belti. Straumar sem koma hlýir sunnan úr höfum sökkva fyrir norðan landið og mynda djúpsjó. ( Þó þeir nái aðeins að vera um 20 * prósent botnsjávarins þá ráða þeir samt ótrúlega miklu um veðurfarið f í Norður Atiantshafi og Norður Evr- ópu. Ef hlýir straumar sveigja af leið, eða af einhvetjum ástæðum , kólna um of, þá eru menn ja, á köld- um klaka getum við sagt og þá í bókstaflegum skilningi!" ísland og Golfstraumurinn Búseta á íslandi byggist á því að (I armur úr Golfstraumnum, svokallað- ur Irmingerstraumur kemur upp að 1 landinu og hitar sjóinn umhverfis ^ landið. Eðlilega gætir Irminger- BJÖRIU ERLINGSSON HAFEÐLISFRÆÐINGUR. Menn geta séð það í hendi sér, að verði breytingar á hafstraumum og veð- urkerfum geti aðrar breytingar í náttúrunni í beinu fram- haldi orðið gífurlegar. Hér á norður- slóðum er jafnvægi náttúrunnar ef til vill enn viðkvæmara heldur en annars staðar og þvl ástæða til að fylgjast vel með framvindu mála. Margs konar fjölþjóðlegum rann- sóknum hefur verið hleypt af stokk- unum, en til þessa hefur ekki reynst unnt fyrir íslendinga að taka þátt í þeim með beinum hætti. Vita menn þó vel að ekki minna mál heldur en búseta, í landinu getur hlaupið á ein- hveijum gráðum- í sjávar- og/eða lofthita. Og breytingar hafa verið síðustu árin. Irmingerstraumurinn, eða armurinn úr Golfstraumnum sem hefur haldið uppi búsetunni hér, hef- ur kólnað aðeins. Hvað er í vændum? Hvað er öruggt og hvað er líklegt? Eru íslendingar á ieið inn í litla ísöld? Engin stefna Bjöm Erlingsson er sjálfstætt starfandi hafeðlisfræðingur og segir hann mikil tíðindi á ferðinni þessi misserin þar sem verið er að móta stefnu í „hnattrænum umhverfísmál- um“. Gallinn sé bara sá að íslending- ar geti ekki gerst beinir aðilar að öllu saman eins og æskilegt væri. „Til þess að komast í alþjóðlegt sam- starf þarf að hafa þjóðarstefnu. Það þurfa að vera markmið, samstarf stofnanna og sjóðir. Þá þarf að liggja fyrir hvemig markmiðin samræmast alþjóðlegum áherslum, evrópskum áherslum, að ekki sé minnst á inn- lendar áherslur," segir Björn. En hvers vegna eru íslendingar ekki með í stefnumótun „hnattrænna umhverfismála"? „Við komumst einfaldlega ekki inn. Útlendingamir segja okkur ekki hafa unnið heimavinnuna og hér viti menn ekkert hver af öðmm. Það fara vitanlega fram margháttaðar og merkilegar rannsóknir í þessum efnum á Islandi, e_n það kmkkar hver í sínu homi og íslendingar hafa hvorki mannafla, fjármagn eða þá yfírsýn sem þarf til að stilla saman strengi hér á landi með þeim hætti að við séum liðtækir í alþjóðlegt sam- starf.“ Hefur ekki verið reynt að draga saman krafta iandsmanna? „Bandaríkjamaðurinn Cobb, sem var hér sendiherra fyrir nokkmm árum lagði drög að alþjóðlegri rann- sóknarmiðstöð í Reykjavík og var gefið í skyn að Bandaríkin myndu leggja fram eðlilega umsýsluþóknun og samstarf í verkefnum. Þetta strandaði síðan allt á íslendingum á þeim forsendum sem ég gat um áð-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.