Morgunblaðið - 02.07.1995, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 02.07.1995, Blaðsíða 18
18 SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ Hægfara bati En hvað segir Matthías um undangengin ár, hvernig hefur verið að reka stórfyrirtæki í krepp- unni og hvað vildi hann helst sjá stjórnvöld gera til þess að liðka til fyrir fyrirtækin í landinu? „Það hefur verið þungt, en hef- ur verið að skána smávegis. Það má kalla það hægfara bata. Það er þó þannig, að það er mikið af tækjum í landinu, gífurlegur bíla- floti og hann þarf sitt. Hann stöðv- ast ekki þrátt fyrir einhveija óár- an. Ástandið í þjóðfélaginu hefur því trúlega komið verr við ýmsa aðra heldur en okkur. Hin spurningin, hvað ég vildi helst að stjórnvöld gerðu til að liðka fyrir. Það er stór spurning og spurning hvort að alltaf eigi að ætlast til þess að stjórnvöld geri þetta og hitt. Eitt sem mér dettur þó til hugar er, að þess verði gætt að menn sitji allir við sama borð og sumir fái ekki íviln- anir sem aðrir eiga ekki kost á vegna óljósra reglugerða. Það þarf að kemba reglugerðir og jafna út aðstöðumun fyrirtækja með tilliti til þess hver innflutningur þeirra er og til hvaða starfsemi. Því mið- ur eru allt of mikil brögð að ójöfn- uði á þessu sviði og stjórnvöld hafa það í hendi sér að lagfæra það. Það er ekkert annað en sann- girnismál.“ Þensla Bílanausts Matthías talar um að eitt stærsta stökkið sem fyrirtækið hafi tekið hafi verið er það byggði í Síðumúla í ársbyrjun 1975, að ekki sé talað um er það flutti síð- an í núverandi húsnæði í Borgar- túni fyrir fáum árum. Þrátt fyrir efnahagslægðina í landinu hefur fyrirtækið fært út kvíarnar. Háberg í Skeifunni var keypt. Einnig Smyrill í Bíldshöfð- anum. Þær verslanir eru reknar áfram og Bílanaust er þannig rek- ið á fjórum stöðum, í Borgartúni, í Bíldshöfða, Skeifunni og í Hafn- arfirði. Stendur til að bæta enn við? „Það eru engin áform um meiri stækkun í dag, en það er erfitt að spá í framtíðina. Það má eigin- lega segja að það fari eftir því hvað unga fólkið kýs varðandi framtíð fyrirtækisins,“ svarar Matthías. Unga fólkið sem hann er að tala um eru börn hans fimm sem hann á með eiginkonu sinni, Elínu Ragnarsdóttur. Elst er Lovísa sem er skrifstofu- og fjármálastjóri, Reynir er framkvæmdastjóri og hefur verið við nám í Danmörku „kannski hefur hann lært eitt- hvað!“ skýtur Matthías inn í, Lúð- vík er altmúlígmaður sem er mikið í innkaupum, Baldvin Smári er sölustjóri og framkvæmdastjóri í Hábergi og loks Ragnar sem er innkaupastjóri fyrirtækisins. Hér er því um sannkallað fjölskyldufyr- irtæki að ræða. Hallar undan fæti ... Heyrst hafa þær raddir að bíla- floti landsmanna sé á hraðri niður- leið. Þar sé endurnýjun ekki sem skyldi og spili þar inn í margumtal- að bágt efnahagsástand síðustu ára. Matthías hefur verið í góðri aðstöðu til að fylgjast með upp- gangi og hnignun bílaflotans. Hver er hans tilfinning í þeim efnum? „Jú, það er trúlega rétt. Það var ógurlega mikið keypt af bílum á árunum 1986 til 88 og þeir eru nú að taka til sín varahluti í vax- andi mæli. Kúplingar, stýrisbún- aður og fleira, sumir bíleigendur eru að fara í sínar fyrstu skipting- ar. Kannski eru bílar smíðaðir betur og betra vegakerfi eykur endinguna, það breytir því ekki að þetta er að skella á,“ segir Matthías. Hann heldur áfram: „Eitt af því sem maður tekur eftir í þessum bransa er að vissar tegundir bíla hreinlega hverfa allt í einu. Það eru gamlar árgerðir af áberandi bílum. Þegar komið er á það stig Morgunblaðið/Golli MORG TÆKI Þ UKFA SITT eftir Guðmund Guðjónsson MATTHÍAS segir að það hafi verið mannmargt heima við Djúp og sök- um þrengsla og nokk- urrar fátæktar hafi nokkur systk- inanna alist upp utan heimilisins. Sjálfur fór hann til móðurömmu sinnar að Strandsseli, en því næst fluttist hann sem unglingur á ísa- fjörð. Þar var hann í eitt ár hjá móðurbróður sínum sem þar bjó með syni sínum. Frændi hans festi þá kaup á íbúð í Reykjavík og fór Matthías suður með þeim feðgum. Fyrst um sinn fór Matthías í kaupavinnu í sveit á sumrin, aust- ur í Flóa og vestur í Borgarfjörð, en síðar, er hann fór að vaxa úr grasi, fór hann að vinna hér og þar. Vélsmiðjan Keilir var einn starfsvettvangurinn, síðan lá leiðin til Kristjáns Skagfjörð og Ólafs E. Einarssonar. Þá suður á Kefla- víkurflugvöll þar sem hann vann á næturvöktum við skráningar og viðhald á vélum og tækjum. Segja má að viss tímamót hafi orðið við að sækja vinnu til Kefla- víkur, því þar hitti Matthías aftur Hákon Kristinsson, en þeir höfðu áður kynnst í Samvinnuskólanum. Þeir reyndust eiga skap saman og sameiginleg áhugamál. Fór svo, að þeir festu saman kaup á Bygg- ingavöruverslun Suðurnesja. „Þetta var snemma árs 1955 og þessi verslun var eiginlega að leggja upp laupana þegar við Há- kon keyptum hana. Þarna hafði fengist eitt og annað til húsbygg- inga og einnig eitthvað af bíla- varahlutum. Við skírðum búðina upp, kölluðum hana Stapafell. Það má því segja að þarna hafi tónninn verið gefinn,“ segir Matthías. Hann heldur áfram: „Það var ekkert annað að gera en að hella sér í þetta, að byrja að drífa inn vörur, s.s. málningu og varahluti. Erfítt var það þó, því á þessum árum voru alls konar höft og gjald- eyristakmarkanir. En þetta bjarg- tveimur hæðum og jukum vöruúr- valið til mikilla muna. Þetta brölt í okkur byrjaði und- ir 1960 og þá var farið að liðkast til í gjaldeyrismálum. Við Hákon vorum farnir að auka svo mjög varahlutainnflutninginn að við fundum báðir að það stefndi í breytingu þó að það hafí kannski ekki verið rætt sérstaklega. Það leiddi til þess að við stofnuðum Bílanaust árið 1962. Fyrst leigðum við í Borgartúni þar sem trésmiðjan Sögin er núna. Þetta sama ár var bifreiðainnflutn- ingur gefínn fijáls og því ljóst að lag var að byggja enn frekar upp verslun af þessu tagi. Árið eftir flutti ég búferlum til Reykjavíkur til að geta sinnt nýja fyrirtækinu betur og í kjölfarið á því skiptum við Hákon hlutverkum. Hann sá um Stapafell en ég um Bílanaust.“ Var ekki nóg af varahlutabúð- um í Reykjavík? „Jú, jú, það var hellingur af búðum, Kristinn Guðnason, Egill Vilhjálmsson og Hrafn Jónsson voru allir með verslanir og svo var líka Bílabúðin og Fjöðrin á Hverf- isgötunni. Það má segja að það hafí verið nauðsynlegt að koma sér upp ein- hverri sérstöðu við þessar kring- umstæður. Það gerðum við með því að h'ta eftir landsbyggðinni. Við vorum dugleg að heimsækja landsbyggðina. Annars vorum við eins og aðrir að versla með al- genga varahluti í ameríska bíla, enda var varla annað hér á landi á þessum árum, nema eitthvað af Volkswagen og Ópel. Það var ein- mitt á sjöunda áratugnum sem það fór að breytast.“ Hvernig var efnahagsástandið á þessum tíma? „Það var vissulega erfitt að byggja upp fyrirtæki á þessum tíma, það var lítið um peninga, en ég reyni ekkert sérstaklega að muna eftir erfiðleikunum. Vil helst gleyma þeim!“, segir Matthías. vmsrapnAiviNNULíF ÁSUNNUDEGI ►Matthías Helgason, forstjóri Bílanausts, er fæddur í Unaðsdal við ísafjarðardjúp árið 1931. Hann „minnir“ að hann sé ellefti í röð 16 barna foreldra sinna Guðrúnar Olafsdóttur og Helga Guðmundsson- ar. Öll eru systkinin á lífi utan eitt. Matthías byrjaði smátt á sínu sviði fyrir 40 árum, en vegur hans hefur vaxið og má nú heita að hann sé fyrir löngu orðinn „langstærstur“ á varahlutamarkaðnum. FJÖLSKYLDUFYRIRTAÆKI, Matthías ásamt bömunum, f.v.: Lúðvík, Lovísa, Reynir, Matthías, Baldvin og Ragnar. aðist einhvern veginn með því að flytja vörur inn í smáskömmtum.“ Hlaðið utan á sig ... Matthías segir að starfsemin hafí skjótt farið að hlaða utan á sig, þeir hafi bætt við heimilistækj- um og ýmsum rafmagnsvörum, auk þess munaðar að ráða starfs- mann fyrir hádegið. Þá bættu þeir við geymsluplássi í „bíókjallaran- um“, eins og Matthías kallar það, „Það liggur enginn með lager í 40 fermetrum eins og búðin var,“ segir Matthías. „Um haustið fór- um víð að vinna meira saman í þessu og setja meiri kraft í starf: semina, djöflast meira í þessu. í framhaldi af því keyptum við gamlan skúr sem áður hafði hýst rakarastofu, opnuðum þar leik- fanga- og gjafavöruverslun undir Stapafellsnafninu. Hún er enn í fullum rekstri, að vísu ekki lengur undir okkar forsjá,“ segir Matthías og heldur áfram: „Kaupin á skúrn- um voru trúlega fremur en annað upphafíð að því að við fórum að færa út kvíamar. Við fengum lóð, byggðum 240 fermetra hús á

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.