Morgunblaðið - 02.07.1995, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ1995 21
FRÉTTIR
Ráðherrar félags- og fjölskyldumála funda
um stöðu feðra innan fjölskyldunnar
Jafnréttisumræða
á krossgötum
RÍKISSTJÓRNUM ber að sjá til
þess að körlum og konum verði
gert kleift að samræma á fullnægj-
andi hátt fjölskyldulíf og atvinnu
þannig að þau geti sinnt skyldum
sínum gagnvart fjölskyldunni. Þetta
kemur fram í yfirlýsingu ráðherra
félags- og fjölskyldumála eða full-
trúa þeirra í lok ráðstefnu sem hald-
inn var í Helsinki í Finnlandi 26.-28.
júní. Á ráðstefnunni sem bar yfir-
skriftina Staða og hlutverk föður -
atriði varðandi fjölskyldustefnu,
hittust ráðherrar 33 af 34 aðildar-
löndum Evrópuráðsins auk fulltrúa
frá Króatíu, Rússlandi, Páfagarði
og framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins.
Á ráðstefnunni var fundað um
stöðu feðra innan fjölskyldunnar og
var umræðunum skipt í þrjá undir-
flokka, feður og nýja fjölskyldu-
menningu, feður og at-
vinnu og fjarstadda feð-
ur. Fulltrúar íslands á
ráðstefnunni, Árni Gunn-
arsson, aðstoðarmaður
félagsmálaráðherra, og
Berglind Ásgeirsdóttir, ráðuneytis-
stjóri í félagsmálaráðuneytinu,
fluttu erindi undir síðast talda liðn-
um.
Sömu vandamálin
“Við íslendingar erum að kjást
við sömu vandamálin og þær ná-
grannaþjóðir okkar sem við miðum
okkur við svo sem launamisrétti,"
sagði Árni í samtali við Morgun-
blaðið. “Karlar eru hærra launaðir
en konur, þeir vinna þar af leiðandi
meira og hafa minni tíma fyrir fjöl-
skylduna. Körlum líður ekki vel
yfir þessu, nema síður sé. Við erum
hins vegar skemur á veg komin
með rannsóknir á sviði fjölskyldu-
mála en hinar norrænu þjóðirnar
en ættum að geta nýtt okkur niður-
stöður þeirra fyrst vandamálin eru
svona lík,“ segir Árni.
Árni segir að ein af niðurstöðum
ráðstefnunnar sé sú að það verði
að huga betur að því með hvaða
leiðum hægt sé að auðvelda körlum
að taka meiri þátt í fjölskyldustarf-
inu. Þar með væri konum einnig
gert auðveldara að fara út á vinnu-
markaðinn en nú er.
Jafnréttisumræðan
komin í þrot
Árni segir að nokkur umræða
hafi skapast um það á ráðstefnunni
að jafnréttisbaráttan eins og hún
er háð núna, þ.e.a.s. frá sjónarhóli
kvenna og að þeirra frumkvæði, sé
komin í nokkurt þrot. Til
þess að ná virkum ár-
angri í jafnréttisbarátt-
unni þurfi karlmenn að
taka virkan þátt í umræð-
unni af opnum huga. Þá
segir hann að spurning sé hvort
ekki verði að fara að ræða um jafn-
réttismál sem heilstæð fjölskyldu-
mál. Jafnrétti snýst ekki bara um
jafnrétti kvenna heldur einnig jafn-
rétti barna og karla.
Til Vínar eftir tvö ár
„Við íslendingar ætlum að halda
áfram að starfa að málefnum fjöl-
skyldunnar á þessum vettvangi
þ.e.a.s. meðal ráðherra félags- og
fjölskyldumála innan Evrópuráðs-
ins. Við höfum margt til málanna
að leggja og _ekki minna en aðrar
þjóðir, segir Árni.
Karlar eru
hærra launað-
ir en konur
Sumardagarí
borg lísta, menningar
og margbreytilegs mannlífs
Flogið með Flugleiðum
Brottför 21. águst, heimkoma 27. ágúst.
Dvalið á þriggja stjörnu hóteli,
Belloy St. Germain, í Latínuhverfinu
í hjarta Parísar, rétt hjá Lúxemborgargarðinum.
fyrir mann í tvíbýli
íslenskur fararstjóri okkar er
Guðrún F. Sigurðardóttir.
au=iaomS "BT Innifalið: Flug, flugvallagjöld, akstur milli
' flugvaliar og nótels í Pans. óisting í
5 nætur í tvibýli með morgunverði, skoð-
unarferð um París og íslensk fararstjóm.
FERÐAMIÐSTÖÐ AUSTURLANDS HF
Skógarlöndum 3 - Egilsstöðum - Sími 471-2000
- kjarni málsins!
mmm
SAMSKEYTALAUS
UTANHÚSSKLÆÐNING
á íslandi í átta ár
Eru eftirfarandi vandamál
að angra þig?
■ ALKALÍ-SKEMMDIR U SÍENDURTEKIN MÁLNINGARVINNA 1
■ FROSTSKEMMDIR ■ LÉLEG EINANGRUN 1
K LEKIR VEGGIR M EILIFAR SPRUNGUVIÐGERÐIR _
Ef svo er, skaltu kynna þér kosti sto-utanhússklæðningarinnar:
Yflr 1°° ;
þúsund”|
STO-KLÆÐNINGIN
...er samskeytalaus akríl-klæðning
...er veðurþolin
...leyfir öndun frá vegg
...gefur ótal mögulelka í þykkt, áferð og mynstri
...er iitekta og fæst í yfir 300 litum ___
...er teygjanleg og viönám gegn
sprungumyndun er mjög gott
STO-KLÆÐNINGUNA
...er unnt aö setja beint á vegg, plasteinangrun eða steinull
...er hægt aö setja á nær hvaða byggingu sem er,
án tillits til aldurs eöa lögunar
VEGGHRYÐIÍ
STO-KLÆÐNINGIN ER SAMSKEYTALAUS
OG BREYTIR EKKI ÚTLITI HÚSSINS
BÍLDSHÖFÐA 18
112 REYKJAVÍK
SÍMI 567 3320
FAX 567 4320
PHILIPS - algjört
í tilefni af því að sumarið er komið í
öllum sínum skrúða bjóðum við
PHILIPS PT 472 sjónvarpstæki
á sérstöku tilboði. Þetta eru hágæða
28" stereo tæki sem eru búin mynd-
gæðum sem finnast aðeins hjá PHILIPS.
PHILIPS
Rétt verð
; 109.900
• Biack Matrix myndlampi
• CTI litastýring
• Nicam stereo
• íslenskt textavarp
• Easy logic fjarstýring með
aðgerðastýringu á skjá
• 2 scarttengi
• Beintenging fyrir hljómt. (Surround)
• Spatial hljómbreytir
Tilboð:
Stgr.
ö
89.900
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SÍMI 569 15 OO
TIL ALLT AÐ 38 MANAÐA
RAÐCRttÐSLUR