Morgunblaðið - 02.07.1995, Síða 24

Morgunblaðið - 02.07.1995, Síða 24
24 SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ1995 SKOÐUN MORGUNBLAÐIÐ UM AÐFLUTNINGSGJOLD AF BIFREIÐUM OG HLUT- DRÆG AFSKIPTIRÍKISYALDS m Á UNDANFÖRNUM mánuðum hefur átt sér stað nokkur opinber umræða um afskipti ríkisvaldsins af bifreiðainnflutningi og meintri neyslustýringu ríkisins á þeim markaði. Tilefni eftirfarandi skrifa eru í fyrsta lagi grein sem Hall- grímur Gunnarsson formaður Bil- greinasambandsins og forstjóri Ræsis hf. ritar í Morgunblaðið hinn 11. febrúar sl. um tollamál og að- flutningsgjöld á bifreiðar. í öðru lagi er rétt að minnast svargreinar fjármálaráðherra við skrifum Hall- gríms. Fjármálaráðherra tók ekki á efnisatriðum þessarar úmræðu svo fullnægjandi sé. - í tilefni af grein Hallgríms Gunn- arssonar og vegna nýlegra breyt- inga á lögum um vörugjald á öku- tæki, er rétt að vekja nokkra at- hygli á framkvæmd tollareglna að því er varðar bifreiðar og tengdar vörur. Þá er einnig upplagt fyrir nýbakaða ráðamenn að snúa sér að málefnum sem varða almanna- hag þar sem kosningatilboðunum er nú lokið. Ennfremur verður hér rætt um lög nr. 29 frá 1993 og nýlega yfirstaðnar breytingar á jþeim. Þær breytingar ganga hvergi nærri nógu langt. Enn þybbast rík- isvaldið við að hætta óeðlilegum afskiptum, mismunun og neyslu- stjóm á markaði sem með réttu á að vera án ríkisafskipta. Um viðskipta- hagsmuni Islands Svo kann að vera að einhveijir af forystumönnum í íslenskum þjóðmálum telji okkur betur komna í röðum Evrópuþjóða í pólitísku og viðskiptalegu tilliti heldur en í við- skiptum við Bandaríkin eða Asíu- þjóðir. í því sambandi er óhjá- kvæmilegt að spyija hina sömu að því hvað þeir hyggist fyrir með -Viðskiptahagsmuni íslands í Vesturheimi eða í Asíu. Þetta er alveg sérstaklega mikilvægt að at- huga á meðan við erum tvístígandi í afstöðu okkar til inngöngu í Evr- ópusambandið. Á að afsetja hags- muni okkar utan Evrópu með skipulegum hætti? Eru til markaðir fyrir okkar vörur sem hægt er að virkja með skjótum hætti ef mark- aðir vestra lokast eða verða okkur óaðgengilegir? Sá möguleiki er vissulega fyrir hendi eins og eftir- farandi dæmi sýnir. Um mitt ár 1986 var þáverandi forsætisráðherra íslands, Þorsteini Pálssyni, boðið í opinbera heim- sókn til Bandaríkjanna. Eitt af þeim erindum sem fulltrúar okkar í þeirri heimsókn báru upp við ráðamenn í Washington var beiðni um fríverslunarsamning. Skömmu eftir heimsókn Þorsteins komu qpinber viðbrögð við þessu erindi. í gegnum sendiráð Bandaríkjanna var íslenskum stjórnvöldum bent á að við hefðum stundað einhliða fríverslun („unilateral free-trade“) við Bandaríkin í áratugi. Með fylgdu einnig þau skilaboð að áður en við færum að tala um fríverslun ^ið Bandaríkin skyldum við fella "TÍiður eða lækka verulega tolla- múra okkar gegn iðnaðarvörum sem þeir vildu helst af öllu selja okkur. Þarna var átt við iðnaðar- vörur af ýmsu tagi, en sérstaklega bifreiðar. Á þeim tíma var inn- heimtur 90% tollur af öllum nýjum bílum. Bandaríkjamenn skilja ekki af hverju við beitum tollamúrum Ríkissjóður tapar stór- um fjárhæðum á for- sjárhyggju í bifreiðainn- flutningi, segir Guð- mundur Kjartansson, sem mælir fyrir breyt- ingum á sköttum at- vinnubifreiða, vinnuvéla og fólksbíla. eða refsitollum gegn þeim á vörur sem ekki eru framleiddar á íslandi. Nánar um framkvæmd tollareglna I nýlegri athugun greinarhöf- undar kemur í ljós að framkvæmd tollareglna bitnar harðast á sam- keppnisaðstöðu amerískra bifreiða og vara almennt af tveimur ástæð- um. Sama á við um stærri gerðir bifreiða frá öðrum löndum. Hall- grímur Gunnarsson kallar það neyslustýringu. Hún birtist í fyrsta lagi í því að sá sem viil kaupa sér stærri bíl en neyslustjórar ríkisins telja hæfilegan, verður að borga 60% álag á aðflutningsgjöld á bif- reið með vél stærri en 2.000 rúm- sentimetra, og 75% á bifreið sem er með stærri vél en 2.500 rúm- sentimetra. í öðru lagi kemur í ljós við athugun að EES-samningurinn leiddi til allt að 10% hækkunar á bandarískum iðnaðarvörum. Var það tilgangurinn með þáttöku okk- ar í EES að nota tækifærið og hækka tolla á vörum utan EES, og Iáta þar með líta svo út að vör- ur innan EES hefðu lækkað? Sem þær gerðu ekki í þeim tilvikum sem hér um ræðir. Aðeins var skipt um nöfn á innheimtustofnum. Einn kollegi Hallgríms, sem jafn- framt er framkvæmdastjóri eins stærsta fyrirtækisins í þessum geira hér á landi, rekur upphaf þessarar tollastefnu til orkukrepp- unnar. Hann segir að þá hafi verið tekin upp sú stefna að tolla „lúxus- bifreiðar“ hátt. Það var 1978. Allt aðrar aðstæður réðu þá en ríkja í dag. Þá trúðu menn því að olíu- birgðir heims myndu þverra um næstu aldamót. Því var talið nauð- synlegt að beina notkuninni í eyðslugrennri bifreiðar. Orku- spárnar voru rangar. Því til árétt- ingar skal það nefnt að snemma á árinu 1994 var það staðfest af bandarískum fyrirtækjum í olíuiðn- aði að búið væri að finna gífurleg- ar olíulindir undir botni Mexíkóflóa. Magnið sem þar er vinnanlegt á næstu 30-40 árum er talið nema billjónum olíufata. Þessi olía liggur á meira dýpi en hægt hefur verið að vinna á hingað til. Tæknin til að vinna hana er á þróunarstigi. Á enn meira dýpi en þessi olía liggur er talið að Iiggi olía sem verði vinn- anleg í gífurlegu magni á næstu 60 til 100 árum. Enginn olíuskortur er fyrirsjáan- legur jafnvel þó OPEC ríkin drægju sína framleiðslu verulega saman. Þannig var orkukreppan einmitt til komin. Hún leiddi aðeins til þess að farið var að vinna olíu á svæðum þar sem enginn hafði áður trúað að hana væri að fínna. Þverrandi olíubirgðir geta varla talist ástæða til opin- berra afskipta af neysluvenjum fólks. Markaðurinn leysir það vandamál þegar þar að kemur. Nýting olíubirgða jarðar er um flest hagfræðilegt vandamál, ekki félags- legt. Afleiðingar af notkun hennar eru auðvitað að stórum hluta félagslegar, en það hefur ekki enn komið fram í verðlagn- ingu hennar. Eftir því sem þessi framkvæmdastjóri segir er það hins vegar stefna ríkis- ins í þessum málum í dag að nota tollastefnuna til að framkvæma - og skilgreina um leið - félagslegt réttlæti. Hann orðaði það svo að maður sem er með 50.000 krónur á mánuði í ráðstöfunartekjur, eigi ekki að þurfa að horfa upp á aðra keyra um bæinn í lúxuskerrum. Úrskurður um þetta atriði er naum- ast á verksviði ríkisins. Óþarft er að tíunda að það er auðvitað ólíðandi að opinberir aðil- ar hafí með þessum hætti bein af- skipti af neysluvenjum fólks. Ýmsir starfsmenn ríkisins eru greinilega á öðru máli. Viku áður en grein Hallgríms birtist á síðum Mbl. hafði undirritaður samband við ijármála- ráðuneytið til að kanna hugsanleg- ar breytingar á aðflutningsgjöldum á iðnaðarvörum m.a. vegna GATT- samkomulagsins. í sama samtali var ónefndur starfsmaður ráðu- neytisins spurður beint að því hveiju þessi óheyrilega gjaldtaka af stærri eða dýrari bifreiðum sætti og hvort hún tengdist með einhveij- um hætti tollastefnu t.d. Frakka eða Svía gagnvart Bandaríkjunum eða Japan. Þeirri tilgátu var alfarið hafnað en því svarað að „þetta er bara einhver lúxus" og „svo menga þessir bílar svo agalega mikið“. Þetta er dæmigert svar fyrir embættismann í ráðstjómarríki fyrir utan að vera tæknilegt fleip- ur. Ekki verður undan vikist að vekja athygli allra hlutaðeigandi aðila þar á. Ríkisvaldinu kemur það alls ekk- ert við í hvemig bílum landsmenn aka. Svo að rökhugsuninni sem þama býr að baki sé þá snúið við, er óhjákvæmilegt að biðja menn að velta því fyrir sér hversu mörg- um tugum eða hundruðum millj- arða íslendingar hafa í beinhörðum gjaldeyri kastað á glæ með inn- flutningi á ónýtum iðnvarningi, þ. á m. bifreiðum frá Austur-Evrópu. Innlendir ráðamenn gerðu sér sjálf- sagt grein fyrir hversu óhagkvæm þessi viðskipti kynnu að vera en létu gott heita á tímum kalda stríðsins. Þetta þótti góð viðskipta- pólitík. Meðferð íslendinga á alþjóðasamningum Meðferðin á EES samningnum og Mannréttindasáttmála Evrópu ásamt nýgerðu GATT-samkomU- lagi sem við erum aðilar að, eru góð dæmi um það að íslenskir embættismenn eru sérfræðingar í að gera einhliða alþjóðasamninga. Vegna smæðar lands og þjóðar halda margir þeirra að við kom- umst upp með að ganga á svig við alþjóðlega samninga sem við erum jafnvel stofnaðilar að. Það er gjarnan gert með því að fela undanskotin í reglugerðum og flókn- um framkvæmdaferl- um sem eru torræð fyrir útlendinga. Þann- ig eru efndir okkar á a.m.k. hluta EES samningsins á meðan Evrópuþingið hrósar sér fyrir tollaívilnanir sem við fengum gagn- vart ESB með þáttöku okkar í samningnum. Dæmi um afleiðing- ar þessa hugsunar- háttar er það að við höfum með endurteknum og ítrekuðum hætti dregist inn í málarekstur fyrir al- þjóðadómstólum_ vegna þessarar áráttu okkar. Útvörður þessarar þjóðlegu forræðishyggju og sér- drægni er Hæstiréttur sem með ítrekuðum hætti hefur fært þjóð- inni sögulega niðurlægingu með sérréttargæslu fyrir makrátt fram- kvæmdavald og embættismanna- kerfí. íslenska ríkið hefur ítrekað orðið uppvíst að því að bijóta gegn grundvallaratriðum mannréttinda- ákvæða alþjóðasamninga sem byggja á stjórnarskrám siðmennt- aðra þjóða. Þar má nefna til fræg málaferli fyrir mannréttindadóm- stólnum í Strassborg vegna félaga- nauðungar og vegna aðskilnaðar dómsvalds og framkvæmdavalds. Þau atriði Islenskra tollamála og framkvæmd þeirra sem hér eru rædd eru náskyld þessu fyrirbrigði í réttarfarslegum skilningi. Sú stýr- ing sem hér á sér stað á neyslu fólks hlýtur að vera afar hæpin að því er varðar stjórnarskrárvernduð réttindi manna til sjálfsákvörðunar. Hveiju breytti EES samningurinn fyrir íslenska neytendur? Sá almenni skilningur var lagður í aðild íslands að samningnum um EES að hún myndi bæta kjör al- þýðu manna á íslandi af tveimur ástæðum. í fyrsta lagi myndi verð á vörum frá Evrópu lækka veru- lega. I öðru lagi var þess vænst að markaðir á meginlandinu myndu opnast okkur enn frekar. Túlkun viðsemjenda okkar hinum megin borðs var einnig á þann veg að þeirra hagur myndi hér vænkast við. í stað niðurfellingar hafa tollar í raun staðið í stað í mörgum tilvik- um, eða hækkað. Er það í anda samningsins að fella niður tolla en taka í stað þeirra upp vörugjöld? Vörugjald er aðeins annað orð yfír toll. Þetta gjald er sett í nýjan reit á tollskýrslum og heitir nú XI, X2, X3 o.s.frv., allt eftir hækkandi pró- sentustigum. Þetta virðist gert til að minnka líkumar á að eftirlit með framkvæmd EES samningsins leiði hugsanleg undan- skot í ljós. Tollheimta á sér takmörk Við umræður um tollamál og aðra skattheimtu ber að hafa það hugfast að sú gjaldtaka á sér nátt- úruleg takmörk. Þekktir hagfræð- ingar hafa sýnt fram á hvar mörk- in liggja. Það hugtak er í heimi hagfræðinnar kallað „Laffer Curve“. Eftir að tilraunir hins opin- bera til skattheimtu fara yfír þessi mörk, hrakar skilvirkni skatta og Guðmundur Kjartansson skattareglna þrátt fyrir hörð viður- lög. Aðalástæðan fyrir því að t.d. Bandaríkjamenn láta sér ekki koma til hugar að taka upp virðisauka- skattskerfi er sú að margir þarlend- ir hagfræðingar eru sammála um að það fyrirkomulag sé svo skil- virkt að það leggi hagkerfí þjóða í rúst. Neðanjarðarhagkerfið er þar talinn nauðsynlegur þáttur í efna- hagslífinu vegna þess að vitað er að þar fer nýsköpun í atvinnumál- um og verkkunnáttu fram. Á ís- landi er þessari starfsemi hamlað með opinberu eftirliti og hams- lausri skattagleði. Þörf fyrir nýja hugsun Hér á landi er löngu tímabært að menn tileinki sér nýjan hugsun- arhátt varðandi tollheimtu, hveiju nafni sem nefnist, og átti sig á því að almenn skattheimta í landinu er komin á það alvarlegt stig að hún kæfír hagvöxt og nýsköpun í atvinnulífí. Skattsvik upp á ellefu milljarða eru ekki vegna þess að Islendingar séu heimsins mestu skattsvikarar, heldur vegna þess að við erum skattpíndasta þjóð í heimi. Ríkissjóður innheimtir gjöld af bifreiðaeigendum upp á 20 millj- arða króna á ári. 6 milljarðar koma til baka í formi vegaframkvæmda og annarra endurbóta sem stöðugt er lofað við hveija nýja sköttun á bifreiðaútgerð landsmanna. Samanburður við aðrar þjóðir íslendingar eru sífellt að bera sig saman við aðrar þjóðir við ákvarðanatöku og um framkvæmd ýmissa mála. Hvernig væri að bera sig einstöku sinnum saman við þjóðir sem taka öfgalaust á svona málum? Belgíumenn eru með mjög mik- inn iðnað á því sviði sem hér er rætt. Aðflutningsgjöld af bifreiðum þar eru annarsvegar virðisauka- skattur, 20,5% á CIF verð, hins vegar 400.000 krónur í aukagjald af bifreiðum sem skila meira afli en 155 KW. Þjóðveijar eru meðal mestu bíla- framleiðenda heims. Þeir eiga gífurlega viðskiptahagsmuni að vetja. Þar eru innheimt aðflutn- ingsgjöld af bifreiðum 10% tollur og 15% vörugjald. Engin gjöld eru innheimt af bifreiðum frá ríkjum í Evrópusambandinu. Tollamálin varðandi bifreiðar Síendurtekið hringl með tolla- mál, sérstaklega með vörur sem jafn mikil neysla er á og bifreiðum og tengdum vörum, hefur oftsinnis verið gagnrýnd opinberlega. Páll Skúlason jirófessor í heimspeki við Háskóla Islands hefur tekið þetta „krukk í aðflutningsgjöld á bifreið- um“ eins og hann kallar það í blaða- viðtali, sem dæmi um veika réttar- stöðu almennings gagnvart frelsis- skerðandi stjórnvaldsaðgerðum. Hann telur lýðræðið standa höllum fæti í landi þar sem þetta er hægt að gera nánast eftir geðþótta ráð- andi manna hveiju sinni. Reglu- gerðalýðræðið sem við búum við er efni í meira en eina grein. Ekki er þó hægt að skilja við þetta atriði án þess að biðja menn að velta fyr- ir sér hinum réttarfarslega mun á opinberum tilskipunum eins og tíðk- ast í alræðisríkjum, og hömlulausri útgáfu reglugerða eins og hún tíðk- ast hér á landi. Ríkissjóður tapar stórum fjárhæðum á forsjárhyggjunni Því hefur verið haldið fram að eftirspum eftir vöru ráðist mikið af verðlagi. Hafí það verið ásetning- ur að stýra neyslu manna með þeim hætti sem að framan er lýst, þá hefur það heppnast fullkomlega. En ekki án óþæginda eða kostnað- arsamra afleiðinga. Stærsta afleiðingin er að verðlag á notuðum bifreiðum er t.d. óeðli- lega hátt miðað við þær árgerðir sem mest eru f boði. Megnið af því sem í boði er, eru 6-8 ára eintök og nánast fullnotuð. Markaðurinn er ekki í neinu jafnvægi. Þessu hafa seljendur og fjármálafyrirtæki

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.