Morgunblaðið - 02.07.1995, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 02.07.1995, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.JÚLÍ1995 31 BRÉF TIL BLAÐSINS Yegna ráðningar skólastjóra við Austurbæjarskóla Fréttir úr Jónshúsi Frá Ólaftu Einarsdóttur: ÞAÐ voraði seint hér í Kaup- mannahöfn, endalaus rigning og svo- lítil vosbúð á köflum. Það var kvart- að yfir veðrinu, fólk býsnaðist mikið og ekki laust við að depurð legðist yfir suma. En í húsi Jóns Sigurðsson- ar í Kaupmannahöfn voraði vel, ekki að sunnan heldur að norðan. Norðan frá kalda landinu íslandi. í byijun maímánaðar birtist fyrstur stór- skáldið og verðlaunahafinn Einar Már Guðmundsson. Einari Má var að vonum vel tekið. Hann las upp úr eigin verkum og var hér húsfylli, enda hafði hans verið beðið með eftir- væntingu. Allir skemmtu sér kon- unglega. Nú næstur til að sækja okkur heim, um miðjan maímánuð, var Bjöm Th. Björnsson og las hann einnig upp úr verkum sínum. Upp- iestur Bjöms var fróðlegur og lífleg- ur og höfðu gestir mikið gaman af. Og þegar líða tók að lokum vormán- aðarins maí kom hingað heill barna- kór og söng fyrir gesti hússins. Þetta var kór Melaskóla sem var á söng- ferðalagi á þessum slóðum. Ætluðu börnin einnig að styrkja og efla sam- vinnu barna á Norðurlöndum með söng sínum. Þessar þijár heimsóknir frá íslandi vöktu gleði og kátínu meðal íslendinga á þessum slóðum og hafi þau öll þökk fyrir. Júnímánuður rann upp, fremur venju blautsamur, en þó hélst hann þurr á þjóðhátíðardaginn, 17. júní. Islendingafélagið í Kaupmannahöfn stóð fyrir skemmtidagskrá á Ama- gerströnd og lék Grettir Björnsson á nikkuna sína fyrir gesti fram eftir kvöldi. Hingað í Jónshús leitar fólk eftir ýmsum upplýsingum og veitum við alla þá hjálp sem unnt er að veita. En mikið hefur borið á því undanfar- ið að ungt fólk hafi komið hingað út í atvinnu- og ævintýraleit. Og hefur þá jafnvel ekki verið búið að útvega sér húsnæði. Það er mjög erfitt að fá húsnæði á þessum slóðum, svo ég vil koma því hér á framfæri að óvitlaust er að vera búin að ganga frá húsnæðismálum áður en lagt er af stað! I nágrenni Jónshúss eru ótal stað- ir sem vert er að skoða, eins og Rosenborgarkastali, blómagarðar, listasöfn og söfn eins og Nyboder safnið og Jarðfræðisafnið. Og í sjálfu Jónshúsi er minningarsafn um ævi og störf Jóns Sigurðssonar, forseta, sem gaman er að skoða. Einnig er opin veitingasala í húsinu. Hvet ég þá sem eiga leið um Kaupmannahöfn að líta við hjá okkur í Jónshúsi. Það kemur á óvart. ÓLAFÍA EINARSDÓTTIR, rekstrarstjóri. VEGNA greinar menntamálaráð- herra, Björns Bjarnasonar, í Morg- unblaðinu sl. þriðjudag og um- mæla hans þar um stuðning for- eldra við nýskipaðan skólastjóra viljum við koma eftirfarandi á framfæri. Opinber stuðningur stjórnar foreldrafélags skólans hefur hvorki komið fram gagnvart ný- skipuðum skólastjóra né öðrum umsækjendum. Þegar umsóknir um stöðu skóla- stjóra Austurbæjarskóla lágu fyrir boðaði stjórn foreldraráðs skólans og stjórn foreldraráðs heilsdags- skólans tii sameiginlegs fundur 12. júní sl. Niðurstaða fundarins var sú, að þar sem að ekki lægju fyrir for- sendur til faglegs mats á hæfni allra umsækjenda, þá gæti foreldr- aráð ekki tekið afstöðu með einum umsækjanda öðrum fremur. Fund- urinn treysti yfirvöldum til þess að sá hæfasti yrði ráðinn á fagleg- um grundvelli og hagur nemenda og skólans hafður að leiðarljósi. Einnig taldi fundurinn mikilvægt vegna óróleikans sem verið hefur um skólastarfið undanfarin ár að við sem foreldrar kæmum til starfa að hausti með þeim einstaklingi sem ráðinn yrði í stöðuna, opin og óbundin nokkrum yfirlýsingum. Skiptar skoðanir voru meðal foreldra skólans vegna ráðningar nýs skólastjóra og þess vegna taldi stjórnin sig ekki hafa úmboð til neinna yfirlýsinga nema boðað væri til almenns foreldrafundar en það var ekki gerlegt vegna tímasetningar. Rétt er að taka fram, að sú afstaða er kom fram hjá formanni foreldrafélags skólans í fjölmiðlum sl. laugardag, var eingöngu hans persónulega skoðun og endur- speglaði ekki afstöðu foreldrafé- lagsins og samþykkti stjórnar þess um þetta mál. Með þessu bréfi erum við aðeins að leiðrétta þann misskilning að opinber stuðningur hafi komið frá foreldrum Austurbæjarskóla, þar sem stjórn foreldrafélagsins hafa borist fyrirspurnir frá misánægð- um foreldrum sem túlka ummæli ráðherra í fjölmiðlum á þann veg að slíkt hafi borist frá okkur. MARÍANNA TRAU STADÓTTIR, varaformaður foreldraráðs, DAGNÝ HELGADÓTTIR, meðstjómandi, JÖRUNDUR GUÐMUNDSSON, í foreldraráði. OPIÐ HÚS Grænamörk 1 - Hveragerði I c$b , ILAUFAS Fasteignasala Suðurlandsbraut 12 SiM„533-1111 ,«5331115 og gróinn 1200 fm önd. Skipti á 3ja Verð 7,9 millj. Ahv Ef þú leitar að húsi í Hveragerði komdu þá til Sigrúnar í Grænumörk 1 í dag. Hún vill selja 136 fm steypt einbýlishús á einni hæð m. 5 svefn- herb., stofu, eldhúsi, baðherb., gestasnyrtingu, þvhúsi og búri. Baðherb. er nýtt, með fallegri flísa- lögn. Nýjar hitalagnir og ofnar. Stór garður með sólríkri hellulagðri ver- herb. íb. á höfuðborgarsvæðinu. 1,2 millj. Sumarparadís Vorum að fá í sölu þennan einstaka sumarbústað ásamt 11,2 ha landi. Sumarbústaðurinn, sem er gamall bær, er í Austur-Skaftafellssýslu vestan við Höfn í Hornafirði (ca 20 mín. akstur). Mikil náttúrufegurð. Búið er að planta talsverðu í landið. Einstakt tækifæri fyrir einstakl- inga eða félög til að eignast þessa frábæru aðstöðu til útivistar og ræktunar. Teikningar og nánari upplýsingar á skrifstofu. 562-1200 582-1201 Kári Fanndal Guðbrandsson, Sigrún Sigurpálsd., lögg. fast., Axel Kristjánsson hrl. GARÐUR Skipholti 5 &

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.