Morgunblaðið - 08.07.1995, Page 18
18 LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Oeirðir í Luton
UNGLINGAR lögðu eld í skóla,
létu greipar sópa um verslanir
og köstuðu bensínsprengjum á
lögreglumenn í óeirðum í Luton
í fyrrinótt. Um 500 unglingar
tóku þátt í óeirðunum, en ekki
er vitað hvers vegna þær hóf-
ust. Á myndinni hleypur eitt
ungmennanna framhjá brenn-
andi bU.
Juppe borgar hærri leigu en nágranninn
Glæsiíbúð leigð
á 1400 krónur
París. Reuter,
ALAIN Juppe, forsætisráðherra
Frakklands, kom fram í sjónvarpi
á fimmtudag og varði hendur sínar
vegna meintrar
aðildar hans að
húsnæðismála-
hneyksli í París.
Tíndi forsætis-
ráðherrann fram
hvert skjalið á
fætur öðru til
þess að sýna að
hann hefði ekki
aðhafst neitt
rangt.
Frönsk dagblöð hafa upplýst,
að fjöldi stjómmálamanna, frétta-
manna og annarra félaga Juppes
og Jacques Chiracs, forseta, búi í
glæsiíbúðum í eigu Parísarborgar
og greiði lága leigu fýrir. Meðal
þeirra sem njóti á þennan hátt
óeðlilegrar fyrirgreiðslu séu sonur
Juppes og dóttir. Fyrir tilstuðlan
Juppes hafi sonur hans greitt 1000
frönkum lægri mánaðarleigu en
húsnæðismálastofnun innheimtir
af skjólstæðingum sínum.
Langur listi
Blaðið Le Figaro birti í gær lista
yfir alla þá sem hafa notið þessar-
ar fyrirgreiðslu. Listinn er langur,
og fyllir rúma síðu í blaðinu (í stóru
broti).
Upplýst hefur verið að ein glæsi-
íbúð sé leigð út á 108 franka (rúm-
ar 1400 krónur) á mánuði, önnur
smærri, í grennd við Sacre Coeur
kirkjuna, er leigð á 300 franka
(3900 krónur).
Juppe neitaði því að hann hefði
sjálfur greitt lægri leigu en gengur
og gerist fyrir glæsiíbúð á vinstri
bakka Signu, og las upp bréf sem
nágranni hans hafði sent honum
til stuðnings, og kveðst nágranninn
borga mun lægra verð fyrir hvem
fermetra en forsætisráðherrann.
Juppe bætti því við að leigan á sex
herbergja íbúð hans hefði þrefald-
ast þegar hann tók hana á leigu.
Engin lyfta
Forsætisráðherrann réttlætti þá
ákvörðun sína að lækka leiguna
hjá syni sínum, sem býr í sama
hverfi, á þeim forsendum að íbúðin
væri í lélegu ásigkomulagi og eng-
in lyfta væri í húsinu.
Hann útskýrði hins vegar ekki
hvers vegna svo mörgum opinber-
um embættismönnum og þekktum
einstaklingum hefur verið úthlutað
íbúðum.
Enn sem komið er hefur ekki
verið gefíð í skyn að lög hafi verið
brotin í þessu máli, sem kennt
hefur verið við forsetann og kallað
„Chirac-hverfið“. Samtök dómara
hafa þó sagt, að möguleikum á
óháðri dómsrannsókn hafi verið
teflt í tvísýnu þegar dómsmálaráð-
herrann, Jacques Toubon, lýsti því
yfir að Juppe hefði ekki aðhafst
neitt ólöglegt. Segja dómararnir
að lækkun leigunnar hjá syni hans
gæti kallað á dómsrannsókn.
Bann verði lagt
við jarðsprengjum
Genf. Reuter.
BOUTROS Boutros-Ghali, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna (SÞ) hefur skorað á ríki
heims að standa straum af kostn-
aðinum við að fjarlægja allar jarð-
sprengjur og leggja bann við að
þær verði framleiddar og notaðar.
SÞ stendur nú að ráðstefnu um
jarðsprengjur og þann vanda sem
þær hafa skapað víða um heim.
Talið er að allt að 110 milljónir
jarðsprengja liggi grafnar í 64
löndum. Árlega bíði um 10 þúsund
óbreyttir borgarar bana af völdum
þessa. ,
Boutros-Ghali sagði í ávarpi á
ráðstefnunni að útrýma yrði jarð-
sprengjum í eitt skipti fyrir öll.
Tilgangurinn með ráðstefnunni,
sem lauk í gær, er að safna pen-
ingum til hreinsunarstarfs, og
vekja fólk til umhugsunar um
vandann sem stafar af jarð-
sprengjum.
ERLEIMT
Auknar líkur á að friðargæsluliðið í Bosníu fari
AÆTLUN NATO UM BROTTFLUTNING FRA BOSNIU
Atlantshafsbandalagiö hefur samþykkt áætlun um brottflutning friöargæsluliöa frá Bosníu. Aögerö Einbeitt átak yröi,
ef til kæmi, mesta hernaöaraögerö í Evrópu frá því í síöari heimsstyrjöld.
Rúmlega 60 þúsund
manna herlið mun fyrst
safnast saman á italíu,
þar á meðal liö frá
Bandaríkjunum, Bret-
landi og Frakklandi.
Fariö yrði til Bosníu
gegnum hafnarborgirnar
Split og Ploce.
Höfuöstöövar mann-
afla NATO eru I Zagreb
í Króatíu.
Yfirmaöur iiösaflans er
bandaríski aðmírállinn
Leighton Smith.
Brottflutningur friöargæsluliða SP
í lofti: Þyrlur yröu notaöar til þess að sækja einangraðar sveitir SÞ-manna á
„öruggum svæöum". t.d. Bihac, Srebrenica eöa Gorazde.
Á landi: Sökum skorts á liðsafla til aö gæta vega veröa gæsluliöar fluttir
burt í bílalestum sem kallast „Brynvaröir brekkusniglar", og
njóta aöstoöar skriödreka og verkfræöinga sem
endurbyggja brýr.
Ratsjárviövörun
Loftinntök nema ratsjár- Loftvarnir
geisla sem beinast aö vélinni. NAT0 mun hefja loftárásir ef
Bosniu-Serbar nota ratsjárstýröar
eldflaugar gegn flugvélum bandalagsins. Meöal þeirra
vopna sem NATO hefur yfir að ráöa eru HARM rat-
sjárskeyti sem hægt er aö skjóta frá Tornado-þotum.
Reiöubúiö
varaliö
Þar á meöal
landgönguliðar
bándaríska flotans,
meö aðsetur á her-
skipum á Adríahafi,
yröu viöbúnir aö veröa
fluttir meö þyrlum til
Bosníu.
HARM- skeyti
(High-Speed-Anti-Radiation skeyti).
Leitar uppi ratsjárgeisla á rúmlega
þreföldum hljóöhraöa. í 65 kilóa
sprengihleðslunni eru þúsundir málm-
búta til að eyðileggja ratsjárloftnet.
SÞ íhugi brott-
flutning frið-
argæslubðsins
Heimild hraðliðs-
ins til hernaðar-
íhlutunar þrengd
Sarajevo. Reuter.
MUHAMED Sacireby, utanríkis-
ráðherra Bosníu, skoraði í gær á
Sameinuðu þjóðimar að efla frið-
argæsluna og hjálparstarfið í land-
inu, að öðrum kosti ættu þær að
íhuga að flytja friðargæsluliða
sína og hjálparsveitir í burtu.
Æ meiri líkur eru taldar á að
flytja verði 22.000 starfsmenn
Sameinuðu þjóðanna í Bosníu á
brott þar sem Serbar halda áfram
að hindra birgðaflutninga til músl-
ima og stjórnarherinn reynir að
binda enda á umsátrið um
Sarajevo.
Bildt svartsýnn
Carl Biidt, milligöngumaður
Evrópusambandsins, sagði eftir
viðræður við Alija Izetbegovic,
forseta Bosníu, að litlar líkur væru
á friði. Embættismenn Sameinuðu
þjóðanna sögðu að Bildt kynni að
fara til Belgrad um helgina til að
ræða við Slobodan Milosevic, for-
seta Serbíu, í- von um að hann
gæti fengið Bosníu-Serba til að
fallast á friðaráætlun Sameinuðu
þjóðanna.
Óvissa um hraðliðið
Mikil óvissa ríkir um hlutverk
10.000 manna hraðliðs sem nokk-
ur Evrópuríki stofnuðu í júní til
stuðnings friðargæsluliðinu. Emb-
ættismenn Sameinuðu þjóðanna
sögðu í gær að ljóst værí að hraðl-
iðið yrði ekki eins atkvæðamikið
í Bosníu og stjórnmálamennirnir
gerðu ráð fyrir í fyrstu.
Embættismennirnir sögðu ólík-
legt að hraðliðinu yrði beitt til að
stöðva sprengjuárásir Serba á
óbreytta borgara eða til greiða
fyrir birgðaflutningum yfir serb-
nesk yfirráðasvæði tii múslima í
norðausturhluta landsins. Því yrði
beitt til að veija friðargæsluliðið
en ekki óbreytta borgara sem það
er að reyna að hjálpa.
Stjórnarerindrekar segja að
heimild hraðliðsins til hernaðar-
íhlutunar hafi verið takmörkuð
vegna hættu á að það drægist inn
í stríð við Bosníu-Serba.
Ítalía
Tísku-
hönnuðir
fyrir rétt
Mílanó. Reuter.
RANN SÓKNARDÓM ARI á
Ítalíu hefur komist að þeirri
niðurstöðu að ýmsir frammá-
menn í ítalska tískuheiminum,
þar á meðal Giorgio Armani
og Gianfranco Ferre, skuli
ákærðir fyrir spillingu.
Ákvörðunin fylgir í kjölfar
rannsókna ítalskra dómara á
meintum mútugreiðslum
tískuhúsa til skattalögreglu-
manna. Alls verða 18 manns
ákærðir og munu réttarhöld
hefjast 20. september.
Viðurkenna
mútugreiðslur
Meðal hinna ákærðu eru
Santo Versace - bróðir Giann-
is - og Gerolamo Etro, eigandi
Etro-tískuhússins, og nokkrir
háttsettir embættismenn í ít-
ölsku skattalögreglunni.
Margir tískuhönnuðir hafa
viðurkennt að hafa mútað lög-
reglunni, en segjast hafa
neyðst til þess vegna hótana
frá lögreglumönnunum, sem
hafi viljað drýgja tekjur sínar,
um að illa kynni að fara ef
greiðslur kæmu ekki til. x