Morgunblaðið - 19.08.1995, Page 2
2 LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Formaður norskra verkalýðsfélaga í áliðnaði
Lítið um verktaka
í norskum áliðnaði
Laxar tald-
ir rotast
á laxastiga
FYRIR hefur komið að dauðir laxar
hafí fundist í og fyrir neðan Bárðar:
foss í Brynjudalsá í Hvalfírði. í
sumar hefur gæsla verið stórefld
til að komast hjá hugsanlegum
veiðiþjófnaði og því kom það mönn-
um á óvart er dauðir laxar fundust
enn á ný. Allir voru fískamir með
sams konar áverka, sár framan á
trýni.
Friðrik Brekkan, einn leigutaka
Brynjudalsár segist telja að laxinn
hafí skaddað sig í laxastiganum upp
úr Bárðarfossi.
„Mér varð ekki um sel þegar ég
fann nokkra dauða laxa um daginn
og alla eins útlítandi. Ég einsetti
mér því að fínna út hvað ylli þessu
og hafði ekki trú á því að menn
hefðu verið að laumast með
sprengiefni þó ég viti að slíkt hafí
borið við hér áður fyrr. Mig grun-
aði að orsakanna gæti verið að leita
í laxastiganum í Bárðarfossi og ég
tók því upp margra klukkustunda
myndband. Þá kom hið sanna í ljós.
Á bandinu sést svo ekki verður
um villst, að margir laxarnir stímdu
beint á hvasst horn í þriðja þrepi
stigans. Eftir að hafa skoðað þetta
nánar er ljóst að laxamir geta auð-
veldlega farið sér að voða þarna.
Þama er því galli í stiganum og
við munum ganga í að lagfæra
þetta fyrir næsta tímabil,“ sagði
Friðrik Brekkan. Hann lét annars
vel af aflabrögðum í sumar og
væm komnir vel á fímmta hundrað
lajcar á land.
------♦ ♦ »
Alsírmenn-
irnir sendir
til Noregs
MENNIRNIR tveir sem gerðu til-
raun til að komast ólöglega inn í
landið með Norrænu sl. miðvikudag
voru frá Alsír.
Þeir em nú á leið með ferjunni
til Færeyja. Ekki er búist við að
þeim verði hleypt frá borði í Færeyj-
um heldur að þeir verði sendir
áfram til Noregs, en þar komu þeir
um borð í Norrænu. Ekkert er vitað
um fyrirætlanir mannanna á ís-
landi.
------» ■»-»---
Hækkun
á selleríi
GRÆNMETISTEGUNDIN sellerí
hefur hækkað i verði eftir að GATT-
samningurinn tók gildi í byijun júlí-
mánaðar vegna þess að tollvernd
hefur verið nýtt, þrátt fyrir að inn-
lent sellerí sé enn ekki komið á
markað.
Samkvæmt upplýsingnm Morg-
unblaðsins hefur athygli fjármála-
ráðuneytisins verið vakin á þessu
og er málið þar til skoðunar.
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra hefur beitt sér fyrir því að
tollar á blaðlauk og jöklasalati verði
Iækkaðir, þar sem grænmetið er
ekki í samkeppni við innlenda fram-
leiðslu.
14 skip í
Síldar-
smugunni
LANDHELGISGÆSLAN fór í
könnunarflug yfir Síldarsmug-
una í gær. Þar voru að veiðum
14 togarar frá Austur-Evrópu.
Halldór Nellett, hjá Landhelgis-
gæslunni, sagði að skipin hefðu
verið að veiða í flottroll, en eng-
ar upplýsingar hefðu fengist frá
skipunum um hvað þau væru að
veiða.
Halldór sagðist telja líklegt að
skipin væru að veiða síld eða
makríl. Tveir togarar hefðu ver-
ið bundnir saman. Haft hefði
verið samband við annan og hefði
skipstjórinn sagt að um bilun
væri að ræða og að hitt skipið
væri að aðstoða hann. Halldór
sagði að þegar spurt hefði verið
um aflabrögð hefði skipstjórinn
borið við tungumálaerfíðleikum
ogengu svarað.
Önnur skip sem kallað hefði
verið í hefðu engu svarað.
SAMBAND ungra sjálfstæðismanna
er 65 ára á þessu ári og 33. þing
sambandsins var sett í húsnæði
Verkmenntaskólans á Akureyri í
gær. Davíð Oddsson forsætisráð-
herra og formaður Sjálfstæðis-
flokksins flutti ávarp við setninguna.
Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins sátu
síðan fyrir svörum í pallborðsum-
ræðum í gærkvöldi.
Guðlaugur Þór Þórðarson formað-
ur SUS sagði í setningarræðu sinni
að tillögur í 20 málaflokkum lægju
fyrir þinginu og hefði undirbúning-
urinn kostað mikla vinnu. Hann
ræddi um unga fólkið og framtíðina
og komandi kynslóðareikninga, en
yfírskrift þingsins er einmitt „Okkar
framtíð".
Davíð Oddsson talaði í ávarpi sínu
um málefnafátækt og kreppu stjórn-
arandstöðunnar og vinstri stefnu
almennt. Um stjórnarsamstarfið
sagði hann að sjálfstæðismenn gætu
sæmilega vel við stjómarsáttmálann
unað.
Forsætisráðherra sagði að breyta
NORSKUM álfyrirtækjum er ekki
heimilt að ráða verktaka til starfa
nema í samráði við verkalýðsfélög
og starfsfólk í áliðnaði. Lítið er um
verktaka í áliðnaðinum í Noregi,
enda eru verktakar dýrari starfs-
kraftur en almennir launþegar.
Olav Stöylen, formaður verkalýðs-
félaga í norskum áliðnaði, sagði að
hugmyndir stjómenda álversins í
Straumsvík um að ráða fleiri verk-
taka til starfa í álverinu yrðu aldrei
heimilar í Noregi.
Norska vinnumarkaðslöggjöfín
setur vinnu verktaka vemleg tak-
mörk. Verkalýðsfélögin í norskum
áliðnaði hafa að auki gert samninga
sem takmarka mjög svigrúm álfyr-
irtækjanna til að ráða verktaka til
starfa. Vinnuveitendum er skilt að
hafa samráð við verkalýðsfélögin,
trúnaðarmenn á vinnustað og
starfsfólk ef þeir hafa uppi áform
um að ráða verktaka til starfa.
Vinnuveitendur eru skyldugir til
að kynna verkalýðsfélögum þau til-
boð sem þeir fá frá verktökum.
Trúnaðarmenn fylgjast með að
verktökum sé ekki greitt undir lág-
markslaunum. Verkalýðsfélögin
hafa rétt til að óska upplýsinga um
umfang vinnunnar og fjárhagsstöðu
verktakans. Þau geta ennfremur
þyrfti hugsunarhætti fólks sem teldi
sig eiga eitthvað inni hjá hinu opin-
bera. Hann vildi skilgreina hið opin-
bera sem öryggisnet, ekki síldamet
sem allir festast í.
Um þá ákvörðun Ingibjargar Sól-
rúnar Gísladóttur borgarstjóra að
fjarlægja málverk af Bjama Bene-
diktssyni í Höfða sagði Davíð Odds-
son: „Málið er ekki stórt í sniðum í
sjálfu sér en það segir mjög stóra
sögu um reisn annars vegar og lág-
kúm og pólitískt ofstæki hins veg-
ar. Ég hef verið húsbóndi í ráðherra-
bústaðnum í fjögur ár en ekki hefur
mér dottið í hug að fjarlægja styttu
af Hermanni Jónassyni."
Ekki að missa
af ESB-flugvél
í pallborðsumræðum ráðherra
Sjálfstæðisflokksins í gærkvöldi
svaraði Davíð Oddsson fyrirspum
um afstöðu þá til aðildar að Evrópu-
sambandinu, sem komið hefði fram
í þjóðhátíðarræðu hans 17. júní.
Davíð sagði að það skipti ekki máli
gert kröfu til þess að verktakinn
uppfylli kröfur um öryggisútbúnað
og þekki til öryggisreglna.
Olav sagði að lítið væri um verk-
taka í norskum áliðnaði. Ástæðan
væri m.a. sú að fyrirtækin sæju sér
ekki hag í því. Verktakar væru ef
eitthvað væri dýrari starfskraftar
en almennir launþegar. Hann sagði
að verktakar væru helst ráðnir til
starfa þegar kæmu vinnutamir.
Ekki kröfur um aukna
verktöku
Fram kom á fundinum að norsk-
ur áliðnaður framleiðir í dag um
700 þúsund tonn af áli á ári og
búist er við að innan fárra ára verði
framleiðslan ein milljón tonn. Olav
sagði að norsk fyrirtæki, sem væm
að undirbúa stækkun álvera, hefðu
ekki uppi kröfur um ráðningu fleiri
verktaka til starfa.
Stækkun álvera í Noregi þrátt
fyrir vinnuumhverfið
Sigurður Sigurðsson, formaður
Hlífar í Hafnarfírði, sagði að fund-
urinn hefði verið mjög gagnlegur
og starfsmenn ísal vissu nú betur
hvemig þeir ættu að svara kröfum
stjómenda álversins. Hann sagði
athyglisvert að heyra að í Noregi
hvort ísland myndi eftirláta yfirráðin
yfír auðlindum sjávar eftir þijú ár
innan ESB eða sex, því að ekkert
myndi gerast fyrr en eftir ríkjaráð-
stefnu ESB, sem gæti staðið til árs-
ins 1997 eðajafnvel 2000. íslending-
ar væru ekki að missa af flugvél,
sem færi ekki fyrr en eftir fimm ár
eða meira. Hann spurði: „Hvað rek-
ur okkur til að ganga inn í samband-
ið?“ og svaraði að bragði: „bara að
vera eins og hinir?"
Forsætisráðherra sagðist ekki sjá
neina aðra ástæðu fyrir inngöngu í
ESB, nema þá þau áhrif, sem allir
væm að tala um, en lítil ríki hefðu
lítil áhrif. Hann sagði að stefna Al-
þýðuflokksins í Evrópumálum væri
máttlaus og aumingjaleg og aðeins
ljósrit af stefnu annarra krataflokka.
Davíð sagðist þó ekki vilja loka
neinum möguleikum fyrir þeim, sem
kynnu að koma á eftir honum og
vildu vera eins og hinir. ísland gæti
hvenær sem er sótt um inngöngu í
ESB.
væm ekki uppi kröfur um aukna
verktöku í álverum. Það vinnuum-
hverfí sem norski áliðnaðurinn
byggi við virtist ekki fæla fyrirtæki
frá því að ráðast í stækkun álvera.
Hann sagði að verkalýðsfélögin
myndu halda áfram að leita sér
upplýsinga erlendis frá um þessi
mál.
Sigurður sagði óvíst hvenær
starfsmenn álversins myndu svara
hugmyndum vinnuveitenda um
aukna verktöku. Hann sagði að
mikið væri um að menn væm í
fríum þessa daganna. Sér hefði t.d.
ekki tekist að ná nema hálfri stjórn
Hlífar saman til fundar í fyrradag,
en þá átti að ræða þetta mál.
VSÍ hefur óskað eftir fundi með
starfsmönnum ísal í næstu viku til
að ræða þessi mál og ekki síst yfír-
lýsingar forystumanna verkalýðsfé-
laganna um tillögur VSÍ. Fram-
kvæmdastjóri VSí hefur gagnrýnt
það sem hann kallar „illmælgi í fjöl-
miðlum um hugmyndir okkar“. Sig-
urður sagði að það væri ekki nýtt
að annar hvor samningsaðila færi
hörðum orðum um tillögur gagn-
aðilans. Yfírlýsingar forstjóra Isal
um verkalýðsfélögin í gegnum árin
hefðu t.d. ekki verið fallnar til að
greiða fyrir samningum.
Nýr samningxtr
við sérfræðinga
Sami sparn-
aður og á
heilu ári
með til-
vísanakerfi
EKKI er gert ráð fyrir tilvísana-
kerfí í nýjum samningi Trygginga-
stofnunar og sérfræðilækna sem
nú hefur tekið gildi og nær til
áramóta. Samningurinn er talinn
munu spara ríkinu talsverð útgjöld
miðað við heilt ár.
Jón Sæmundur Siguijónsson
formaður Tryggingaráðs segir að
leiða megi líkum að því að ef
samningurinn hefði verið gerður
í upphafi ársins hefði hann sparað
ríkinu jafn háa upphæð og tilvís-
anakerfinu var ætlað að spara á
heilu ári. Sá sparnaður var áætl-
aður um eitt hundrað milljónir
króna.
Samið var um þak á greiðslum
Tryggingastofnunar til sérfræð-
inga og rannsóknarstofa sem þýð-
ir að Tryggingastofnun greiðir um
1,4 milljarða krória á árinu. Jón
Sæmundur segir að að hugsanlega
sé ríkið að spara milli 25-30 millj-
ónir á tímabilinu frá 1. ágúst til
áramóta.
Rannsóknagjaldskrá
lækkuð
Einnig var samið um að lækka
rannsóknagjaldskrá um 10%. Guð-
mundur Eyjólfsson formaður
samninganefndar Læknafélags
Reykjavíkur sagði að þessi afslátt-
ur gæti sparað ríkinu a.m.k. 30
milljónir á ársgrundvelli.
■ Tilvísanakerfi/10
Forsætisráðherra við setningn 33. þings SUS á Akureyri
Morgunblaðið/Hilmar T. Harðarson
SVANHILDUR Hólm Valsdóttir formaður Varðar, Guðlaugur Þór Þórðarson formaður SUS og
Davíð Oddsson forsætisráðherra við setningu SUS-þingsins á Akureyri í gær.
Breyta þarf viðhorfi
gagnvart hinu opinbera