Morgunblaðið - 19.08.1995, Side 4

Morgunblaðið - 19.08.1995, Side 4
4 LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Úthlutun landbúnaðarráðuneytisins á tollkvótum á ostum Hagkaup fékk ekkert AÐALMAGNIÐ af þeim ostum sem landbúnaðarráðuneytið hefur úthlutað tollkvótum á eru parmesanostur sem hefur verið fluttur inn áður og cheddarostur til matvælaframleiðslu. Hagkaup sótti um 17,9 tonn, en fékk ekkert. Guðmundur Sigþórsson, skrif- stofustjóri í landbúnaðarráðu- neytinu, segir að ef þessi úthlutun gangi eftir þá valdi hún því að ástand hvað varðar ostainnflutn- ing verði sem líkast því sem það var áður en GATT samningurinn tók gildi 1. júlí sl., og þannig komi ekki til með að vanta þá vöru sem var á markaðnum áður. „Tilgangurinn með þessu er sá að hafa sem líkast ástand meðan Ráðuneytið vill að ostainnflutningur verði sem líkastur því sem áður var þetta er að ganga yfír og raska ekki því sem er hvorki til hækkun- ar eða lækkunar á verði eða þá að útiloka vörur sem hafa verið í innflutningi," sagði Guðmundur. 11 fyrirtæld sóttu um 78,5 tonn Alls bárust umsóknir frá 11 fyrirtækjum um rúmlega 78,5 tonn, en úthlutað var 19 tonna tollkvóta í osti sem ekki er fram- leiddur hér á landi. Umrædd fyrirtæki eru: List hf., sem sótti um og fékk 3 tonn, Kís- ill hf. sem sótti um og fékk 2,6 tonn, Pastahúsið, sem sótti um 3,4 tonn en fékk 1,6 tonn, S. Ingi- mundarson, sem sótti um 13,5 tonn en fékk ekkert, Bergdal hf., sem sótti um 3 tonn en fékk ekk- ert, Hagkaup, sem sótti um 17,9 tonn en fékk ekkert, Iðnmark, sem sótti um og fékk 1,2 tonn, Osta- og smjörsalan, sem sótti um 18 tonn og fékk 6,7 tonn, Kostur, sem sótti um 10 tonn og fékk 2 tonn, Karl K. Karlsson sem sótti um 4,5 tonn en fékk 0,5 tonn og Ark hf. sem sótti um og fékk 1,4 tonn. Áskilnaður um notkun Guðmundur sagði að þar sem séð hafí verið fram á að hugsan- lega hafi verið sótt um sama magn af fleiri aðilum hafi verið gerður áskilnaður um að ef þeir sem fengu úthlutun nota ekki kvótann fyrir 15. október næst- komandi þá verði þeir að skila honum inn til úthlutunar. „Ef þeir skila kvótanum ekki inn og liggja með hann án þess að nota hann þá gerum við ráð fyrir að þeir geti staðið frammi fyrir því að fá ekki úthlutun framar þar sem ekki væri hægt að líta á þá sem alvöru umsækj- endur.“ Óskar Magnússon forstjóri Hagkaups Leitum skýrínga ÓSKAR Magnússon, forstjóri Hagkaups, segir að engin ákvörðun hafi verið tekin um hvemig fyrirtækið muni bregðast við úthlutun land- búnaðarráðuneytisins á toll- kvótum á osta, eða hvort reynt yrði að fá málsmeðferð ráðu- neytisins vegna úthlutunar á tollkvótanna ógilta, en Hag- kaup telur að þær reglur sem úthlutað er eftir eigi sér enga lagastoð. Hagkaup sótti um úthlutun vegna 17,9 tonna af ostum, en fékk ekkert. Óskar sagði í samtali við Morgunblaðið að leitað yrði skýringa ráðuneytisins á því hverjir hafi fengið úthlutun tollkvóta og fyrir hvers konar osta. Hann sagði Hagkaup hafa sótt um tollkvóta vegna ýmissa ostategunda sem skyldar séu tegundum sem framleiddar em hér á landi, en þó ekki eins. Sagðist hann vilja fá skýr- ingar ráðuneytisins á því hvort það skipti ostategundun- um niður í einhvers konar yfirflokka og hvort það réði afstöðu þess til umsóknanna ef skyldir ostar þeim sem sótt væri um tollkvóta fyrir væru framleiddir hér, en samkvæmt reglugerð sem farið er eftir við úthlutun hafa ostar sem ekki em framleiddir hér á landi sérstakan forgang við úthlutun tollkvóta. Útlendingar velta bílum ÚTLENDIhÍGAR á bílaleigubíl veltu bifreið sinni á Möðrudalsöræfum austan við Grímsstaði í gær. Bíllinn fór útaf við blindhæð og er talið að ökumaðurinn hafi misst vald á honum í lausamöl. Tveir voru í bílnum og voru þeir fluttir til Húsa- víkur, en reyndust ómeiddir. Bíllinn er stórskemmdur. Þetta er þriðja bílveltan í umdæmi lögreglunnar á Húsavík i þessari viku þar sem útlendingar koma við sögu. Að sögn lögreglu vantar greinilega mikið upp á að erlendir ökumenn ráði við að aka á íslenskum malarvegum. • • Oruggnr sigur Margeirs MARGEIR Pétursson fór með sigur af hólmi, fyrir hönd Búnaðarbanka íslands, á Borgarskákmótinu sem haldið var í Ráðhúsi Reykjavíkur á afmælisdegi borgarinnar í gær. Hann hlaut sjö vinninga af sjö vinn- ingum mögulegum. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borg- arstjóri, lék fyrsta leik mótsins fyrir Þröst Þórhallsson sem nýlega náði þriðja og síðasta áfanga til stór- meistaratitils. í öðru til þriðja sæti urðu Jóhann Hjartarson, fyrir hönd Plastos, og Jón Garðar Viðarsson sem tefldi fyrir Iðnnemasamband íslands. Taflfélag Reykjavíkur og Taflfé- lagið Hellir stóðu að mótinu og var þetta í tíunda skipti sem það var haldið. Rannsóknir á kýlaveikiafbrigðinu sem greinst hefur í laxi úr Eiliðaánum að undanf örnu Á TILRAUNASTÖÐ Háskólans í meinafræði að Keldum er nú í undirbúningi tilraun í samvinnu við fleiri aðila, þar sem kannað verður hvort það bóluefni sem nú er notað í íslenskum fiskeldisstöðvum gegn þeirri und- irtegund kýlaveikibakteríunnar, sem hér hef- ur verið landlæg frá því 1980, veitir fiskinum líka vöm gegn sýkingu undirtegundarinnar sem vart hefur orðið í Elliðaánum, eða hvort nauðsynlegt verður að flytja inn nýtt bóluefni. Bóluefni gegn þeirri undirtegund kýla- veikibakteríu, sem nýverið var einangruð úr laxi úr Elliðaánum, hafa mikið verið notuð erlendis með góðum árangri, en að sögn Bjarnheiðar K. Guðmundsdóttur, líffræðings á Tilraunastöð Háskóla íslands í meinafræði að Keldum, hafa þau ekki verið flutt hingað til landsins ennþá þar sem þessarar undirteg- undar bakteríunnar hefur ekki orðið vart hér fyrr. Fjórar undirtegundir Að sögn Bjarnheiðar veldur kýlaveikibakt- erían Aeromonas salmonicida sjúkdómum í ýmsum fisktegundum bæði í fersku vatni og sjó. Tegundin skiptist í fjórar undirtegundir: salmonicida, achromogenes, masoucida og smithia. Undirtegundin salmonicida, sem nú hefur greinst í laxi úr Elliðaánum, veldur kýlaveiki í laxfiskum bæði í fersku vatni og sjó, og geta ýmsar fiskitegundir verið smit- berar sýkilsins. 1 nágrannalöndunum, t.d. Noregi, Skotlandi og írlandi, hefur þessi undirtegund valdið mestu tjóni allra fisksýkj- andi baktería. „Undirtegundimar achromogenes, maso- ucida og smithia valda afbrigði af kýlaveiki íslenskt bóluefni gæti varið laxinn í fjölmörgum fískteg- undum, en mikill munur er á því hve alvarlegum sjúkdómi hinar mismunandi undirtegundir kýla- veikibakteríunnar valda," segir Bjarn- heiður. Svipuð sjúkdómseinkenni Kýlaveiki af völd- um undirtegundar- innar achromogenes hefur verið landlæg í villtum laxfiskum og fiskeldi á íslandi frá því Sigurður Helga- son, fisksjúkdóma- fræðingur á Keldum, einangraði bakter- íuna fyrst úr eldis- fiski frá Suðurnesjum árið 1980, en hún veld- ur svipuðum sjúkdómseinkennum og sjást á kýlaveika laxinum úr Elliðaánum. Afföll af lUUigUMDiauiu/nttnuui SIGURÐUR Helgason, fisksjúkdóma- fræðingur, og Bjarnheiður K. Guð- mundsdóttir, líffræðingur. völdum sjúkdómsins voru allt að 30% af heildarmagni slátur- fisks í eldisstöð og lyfjakostnaður mikill. Aðrar undirtegundir kýlaveikibakteríunnar hafa ekki greinst hér fyrr en undirtegundin salmonicida greindist nú í laxi úr Elliðaán- um. íslenskir fiskeldis- menn, dýralæknar og líffræðingar hafa öðl- ast mikilvæga reynslu í áralangri baráttu við kýlaveikina, og urðu þáttaskil í þeirri bar- áttu árið 1992 þegar farið var að bólusetja eldisfisk gegn sýkingu / í stöðvum um land allt. Á Rannsóknardeild fisksjúkdóma að Keldum hafa verið stundaðar rannsóknir á meinvirkni kýlaveikibakteríunnar og þróun og prófun kýlaveikibóluefna frá 1987 undir stjóm Bjarnheiðar. Ymsir aðilar hafa stutt rannsóknirnar með fjármagni og samvinnu, en Rannsóknarráð íslands hefur verið stærsti styrktaraðilinn. Mikilvægt að fólk hræðist ekki Bjarnheiður segir að ástæður þess að það afbrigði kýlaveikibakteríunnar sem mestan vanda hefur skapað í fiskeldi hjá nágranna- þjóðum okkar hafi ekki einangrast hér fyrr en nú kunni að felast í sérstöðu íslenskra aðstæðna. Hér sé t.d. sjaldgæft að hiti í fersk- vatni og sjó nái því stigi sem sýkinga verður oftast vart við erlendis, það er um eða yfir 10 gráður á Celsíus. „Erlenda bóluefnið veitir ekki eins góða vörn gegn íslenska afbrigðinu og það bólu- efni sem við höfum, svo það sem við ætlum að gera er að gera rannsókn sem svarar þeirri spurningu hvort við getum notað áfram það bóluefni sem við höfum, eða hvort við verðum jafnvel að láta búa til nýtt bóluefni fyrir okkur. Það er mikilvægt að enginn örvænti vegna þess að það er mikil þekking hér til staðar og miklar framfarir í forvarnastarfi erlendis, og við höfum náð ágætum tökum á kýlaveik- inni hérna. Eg held að það sé einmitt mjög mikilvægt að það sé gripið til allra tiltækra aðgerða. Það er einnig mikilvægt að fólk sé ekki hrætt við kýlaveikan fisk, því bakterían veldur ekki sýkingu í spendýrum og hún er eingöngu bundin við fisk sem hýsil og af- markaðar tegundir fisks við sérstakar að- stæður. Fólki stafar því ekki hætta af þess- ari bakteríu," sagði Bjarnheiður. I > > > > i I i I I 1 I I s I s

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.