Morgunblaðið - 19.08.1995, Side 20
20 LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR: EVRÓPA
ERLENT
Reuter
Trollið verður
ekki sýnt
KANADÍSK stjómvöld hafa, að
beiðni Evrópusambandsins,
ákveðið að falla frá þeirri
ákvörðun að sýna þéttriðið troll
spænska togarans Estai á sýn-
ingu í Ottawa, sem opnuð var í
gær. Trollið var veitt af hafs-
botni eftir að áhöfn togarans
skar það frá er kanadíska strand-
gæslan réðst til atlögu er deila
ríkjanna stóð sem hæst í mars-
mánuði. Vakti það mikla reiði i
Kanada er í ljós kom hve litlir
möskvar trollsins voru. Brian
Tobin sjávarútvegsráðherra
Kanada sagði í gær að nú væri
stefna stjórnvalda sú að vemda
fiskistofna með samstarfi við
ESB í stað átaka en fulltrúar
Evrópusambandsins hefðu bent á
að hægt hefði verið að mistúlka
sýningu á trollinu. A myndinni
má sjá Tobin fyrir framan troll
Estai veifandi smárri grálúðu á
blaðamannafundi, sem hann hélt
í New York vegna úthafsveiðir-
áðstefnu SÞ í aprfl. Vakti það
mikla reiði innan Evrópusam-
bandsins að Kanadamenn skyldu
sýna netið í New York.
Hæstiréttur Spánar rannsakar dráp lögreglusveitar á Böskum
íhugar hvort sækja
eigi Gonzalez til saka
Madrid. Reuter.
HÆSTIRÉTTUR Spánar tilkynnti
í gær að hann tæki við rannsókn á
ólöglegri starfsemi lögreglusveitar,
sem barðist gegn hermdarverka-
mönnum á síðasta áratug. Felipe
Gonzalez forsætisráðherra og fleiri
forystumenn Sósíalistaflokksins
hafa verið sakaðir um að vera við-
riðnir starfsemi lögreglusveitarinn-
ar og búist er við að rétturinn ákveði
í næsta mánuði hvort ákæra beri
forsætisráðherrann.
Baltasar Garzon, dómari í undir-
rétti, hefur annast rannsóknina til
þessa og á að afhenda hæstarétti
öll gögn málsins. Forsætisráðherr-
ann hefur margsinnis neitað því að
hafa samþykkt eða vitað af starf-
semi lögreglusveitarinnar, sem
nefnist Frelsishópur gegn hermdar-
verkum, GAL. Lögreglusveitin var
óvönd að meðulum og drap 27
meinta félaga í aðskilnaðarhreyf-
ingu Baska, ETA (Baskneskt
heimaland og frelsi), á árunum
1983-87. Mörg fómarlambanna
reyndust ekki tengjast ETA á nokk-
um hátt.
Femando Cotta, deildarforseti
hæstaréttar, sagði í gær að réttur-
inn myndi skipa eigin
rannsóknardómara og
gaf öllum málsaðilum
tíu daga frest til að
leggja fram gögn eða
yfirlýsingar. Talið er
að rétturinn þurfi síð-
an tvær vikur til að
meta gögnin og úr-
skurða hvort þau rétt-
læti ákæru á hendur
Gonzalez og þrem öðr-
um sósíalistum -
Narci Serra, fyrrver-
andi aðstoðarforsætis-
ráðherra, Jose Barri-
onuevo, fyrrverandi
innanríkisráðherra, og þingmannin-
um Jose Maria Benegas.
Ricardo Garcia Damborenea, sem
var áður leiðtogi Sósíalistaflokksins
í Baskahéruðunum, hafði sakað alla
þessa menn um að hafa samþykkt
starfsemi lögreglusveitarinnar.
Rjúfa þarf þinghelgi
Úrskurði hæstiréttur að rétt sé
að ákæra Gonzalez og félaga þarf
hann að biðja neðri deild þingsins
um að rjúfa þinghelgi þeirra. Þing-
deildin þarf að sam-
þykkja það með meiri-
hluta atkvæða.
Telji rétturinn hins
vegar að gögnin rétt-
læti ekki ákæru getur
hann vísað málinu aft-
ur til Garzons dómara.
Þá yrði ekki hægt að
ákæra fjórmenningana
þar sem þeir njóta al-
gjörrar þinghelgi
gagnvart öðrum dóm-
stólum en hæstarétti.
14 fyrrverandi emb-
ættismenn og lög-
reglumenn hafa verið
ákærðir vegna málsins. Gonzalez
hefur verið hlynntur því að hæsti-
réttur taki við málinu í von um að
lát verði á nær stöðugum ásökunum
og vangaveltum í spænskum blöð-
um um að stjómin hafí samþykkt
dráp lögreglusveitarinnar. Stjómin
stendur mjög höllum fæti vegna
GAL-málsins og fleiri hneykslis-
mála og stjómarandstaðan hefur
ítrekað krafist þess að Gonzalez
segi af sér og boði til þingkosninga.
Forsætísráðherra Tékklands
Hver verður eftirmaður Ingvars Carlssons?
Ekki í kapphlaupi
við Pólland um aðild
Kona félli vel að
jafnréttisstefnunni
Silherovice, Tékklandi.
VACLAV Klaus, forsætisráðherra
Tékklands, segir að ríkisstjóm sín
sé ekki í neinu kapphlaupi við Pól-
land um að fá inngöngu í Evrópu-
sambandið. Klaus átti daglangan
fund með -Jozef Oleksy, pólskum
starfsbróður sínum, í veiðikofa við
landamæri ríkjanna á fimmtudag.
„Við erum ekki að reyna að komast
hvor fram úr öðrum hvað varðar
aðild að Evrópusambandinu," sagði
Klaus eftir fundinn.
Pólveijar hafa gagnrýnt tékk-
nesku stjórnina fyrir að hugsa að-
eins um sjáifa sig, í stað þess að
leggja áherzlu á samstarf við
grannríkin, sem einnig vilja komast
Brussel. Reuter.
• SÉRFRÆÐINGAR Evrópusam-
bandsins í kjarnorkumálum munu
hitta fulltrúa frönsku stjórnarinn-
ar í næstu viku til að ræða áætlað-
ar kjarnorkuvopnatilraunir
Frakka í S-Kyrrahafi. Fundurinn
fer fram þann 24. ágúst nk. Fram-
kvæmdastjórn ESB hafði þrýst á
um að af þessum fundi yrði, en
hún bindur þær vonir við fundinn
að hann leiði til þess að sérfræð-
ingar ESB geti verið viðstaddir
tilraunirnar á Mururoa-rifi.
• VIÐRÆÐUR ESB og Marokkó
um nýjan fiskveiðisamning hafa
nú staðið yfir í viku án þess að
tekið hafi verið á megindeiluefn-
inu: ákvörðun kvóta fyrir skip
ESB-ríkja í lögsögu Marokkós.
Umræður um þetta efni hófust á
fimmtudag en lítið hefur miðað
enn í samkomulagsátt.
• EVRÓPUSAMBANDIÐ hefur
ákveðið að veita 15 miHjónum
ECU til sérstakrar neyðarhjálpar
fyrir flóttafólk í Bosíu og Serbíu.
A örfáum dögum hafa um 140.000
Serbar í Krajina-héraði í Króatíu
tekið sig upp og eru á flótta til
inn í Evrópusambandið. Klaus hefur
hins vegar haldið því fram að Tékk-
land sé einfaldlega lengst á veg
komið í umbreytingu efnahagslífs-
ins frá sósíalisma til kapítalisma,
og eigi að fá sjálfstætt mat sem
aðildarríki ESB, en ekki sem hluti
af stærri hópi ríkja.
Mikill halli á viðskiptum
Mikill halli er á viðskiptum Tékk-
lands og Póllands, Tékkum í vil.
Þeir seldu vörur fyrir um 26 millj-
arða króna norður yfir landamærin
á fyrri helmingi ársins, en keyptu
vörur fyrir um 19 milljarða í stað-
inn.
Serbíu og um 50.000 Króatar og
Bosníumenn hafa verið hraktir frá
heimilum sínum í Bosníu. Fjárveit-
ingin á að renna til að lina neyð
þessa fólks sérstaklega og mun
ECHO, hjálparstofnun ESB ásamt
Rauða krossinum og yfirstjórn
hjálparstarfs SÞ í fyrrv. Júgó-
slavíu, UNHCR, sjá um að koma
hjálpinni til réttra aðila.
• STEFNA ESB í heilbrigðismál-
um þarf á betri samræmingu að
halda að mati Evrópsku heilsugæz-
lusamtakanna. Framkvæmda-
stjómin verði að sjá til þess að
ekki sé staðið að svo ósamkvæmum
aðgerðum eins og að styðja við
ræktun tóbaks en reka jafnframt
krabbameinsvarnaráætlanir.
• AÐILDARRÍKI CEFrA, Frí-
verzlunarsamtaka Mið-Evrópu,
ákváðu á fundi I Varsjá í gær að
koma á fullri fríverzlun sín á milli
með flestar iðnaðarvörur arið
1997, ári á undan áætlun. í CEFTA
eru Pólland, Tékkland, Slóvakía
og Ungverjaland. Búizt er við að
Slóvenía fái aðild á CEFTA-fundi
í Slóvakíu í október.
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
NÆSTI formaður sænska Jafnað-
armannaflokksins verður sjötti for-
maðurinn síðan flokkurinn var
stofnaður 1889. Um hugsanlegan
eftirmann sinn vildi Carlsson ekki
segja neitt, því það væri flokksins
að ákveða hann. En ýmis nöfn
fljúga um í Svíaveldi.
Það hefur legið í loftinu að
næsti. formaðurinn verði kona til
að efía jafnréttisímynd flokksins.
Það sjónarmið getur verið útlend-
ingum torskilið, en jafnréttismál
vega afar þungt í Svíþjóð. Mona
Sahlin er sú sem allir nefna fyrst,
en fremur af því hún hefur verið
talin krónprinsessa Carlssons en
af sannfæringu, því stjarna hennar
hefur dalað. Hún er fædd 1957,
var farin að starfa af krafti í ung-
mennahreyfingunni 1973 og hefur
klifrað hratt upp flokkskerfið. Hún
var kosin á þing 1982 og var at-
vinnumálaráðherra 1990-1991.
Carlsson hefur haldið henni mjög
frammi, ekki síst með því að gera
hana að varaforsætisráðherra, auk
þess sem hún gengur formanninum
næst í flokknum. Hún er gift og
á þrjú böm.
Skortir festu
Frammistaða Monu Sahlin hefur
hins vegar verið umdeild. Margir
álíta hana skorta festu og vera
yfírborðskennda. Hins vegar hefur
hún verið vinsæl í kvennahreyfingu
flokksins og þótt tala þannig að
allir skildu. Hún hefur talað af
sannfæringu fyrir ESB, þó flokk-
urinn og ekki síst konur í flokknum
hafi verið á móti, auk þess sem
hún hefur talað fyrir niðurskurði
og uppstokkun velferðarkerfms.
Sahlin vildi ekki segja neitt um
hugsanlegt framboð. Hún væri
með kökk í hálsinum yfir tilkynn-
ingu Carlssons og það væri flokks-
ins að ræða eftirmann
hans.
Göran Persson fjár-
málaráðherra skortir
að hluta aðdráttarafl
Sahlins, þar sem hann
er karlkyns. Hann er
fæddur 1949 og þó
hann hafi starfað í
nefndum og ráðum
flokksins er það fyrst
nú sem ráðherra að
hann hefur orðið
þekktur meðal al-
mennings. Hann þykir
vera harður og seigur
fj ármálaráðherra,
bæði þéttur á velli og
þéttur í lund, óhræddur að tala
fyrir breytingum og uppstokkun
velferðarkerfisins og mælskur.
Veika hlið hans er hins vegar ein-
mitt að hann er styrkur fiármála-
ráðherra og því næstum ómissandi
í stjóminni. Hann sagði hins vegar
strax að hann hefði ekki áhuga á
starfinu, en að sjálfsögðu gæti
hann þurft að hugsa það mál upp
á nýtt. Bæði Sahlin og Persson eru
fulltrúar hins frjálslynda arms
flokksins, sem líkt og Tony Blair
í Bretlandi eru óhrædd við að
ákalla markaðsöflin sem hjálpar-
anda í stjórnmálunum. Persson er
fráskilinn og á tvær dætur.
Gæti sameinað
armana
Maðurinn, sem var oft nefndur
í sænskum fjölmiðlum í gær var
Jan Nygren samræmingarráð-
herra. Hann var sagður hinn
óþekkti, eljusami stjómmálamað-
ur, er gæti sameinað ólíka arma
flokksins. Hann er fæddur 1950,
fráskilinn og býr með syni sínum
og það færir honum samúð kynja-
jafnréttissinna í flokknum. Hann
gekk ungur til starfa
í flokknum og mátti
ekki vera að því að
ljúka verkfræðinám-
inu, sem hann hóf.
Utan flokksins er
hann alveg óþekktur
og eins meðal
óbreyttra flokks-
manna.
í innstu véum
flokksins er hann vel
þekktur og þá fyrir
að vera lúsiðinn og
gæddur ríkri skipu-
lagsgáfu. Styrkur
hans gæti verið hæfi-
leikar til að bræða
saman ólík sjónarmið, eins og hann
hefur gert í stjórninni. Veikleiki
hans er að hann hefur fremur á
sér yfirbragð embættismanns en
stjórnmálamanns og er alveg laus
við mælsku og fæmi í samskiptum
við fjölmiðla. Sænski Jafnaðar-
mannaflokkurinn þarf þó ekki ann-
að en að líta til bróðurfiokksins í
Danmörku til að sjá að þar hefur
einmitt slík manngerð valist til
forystu í stað mælsks hugsjóna-
manns. Hann hefur áður sagst til-
búinn að taka áskorun um for-
mannsembættið. Stefna hans er á
svipuðum nótum og hinna tveggja,
en hann gæti átt auðveldara með
að tala til vinstriarms flokksins,
vegna þess hve hann er óskrifað
blað út á við.
Margareta Winberg landbúnað-
arráðherra hefur einnig verið
nefnd sem frambærilegur kven-
maður og þótt vera skörulegur
ráðherra. Veikleiki hennar er að
hún var andstæðingur ESB-aðildar
og þó hún hafi starfað vel á vett-
vangi ESB hefur hún vart hæfí-
leika til að leiða ólíka arma flokks-
ins.
Frakkar fallast á fund
um kjamavopnatilraunir
MONA Sahlin.