Morgunblaðið - 19.08.1995, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 1995 29
AÐSENDAR GREIIMAR
Hvers vegna ekki
sænsk iðgjöld?
SÉRKENNILEG umræða hefur
átt sér stað í fjölmiðlum undanfarna
daga. Þeir sem þar ræða saman og
deila tala hvorir úr sínu horni en
sá sem umræðuna hóf skilur því
miður ekki merg málsins. Forráða-
menn FÍB boðuðu blaðamenn til
fundar og sögðu eitthvað á þessa
leið: „Iðgjöld bifreiðatrygginga eru
lægri í nokkrum grannlöndum en
hér. Þess vegna eru iðgjöld á ís-
landi of há og þau ber að lækka.“
í töflum sem fylgdu fréttatilkynn-
ingu voru tilgreind iðgjöld fyrir bif-
reið af gerðinni Toyota Corolla (sem
er í eigu fertugs manns o.s.frv.) á
Norðurlöndunum. Lægst er iðgjaldið
í Svíþjóð en hæst á Islandi. Næst-
hæst er iðgjaldið í Danmörku eða
tæplega tvöfalt iðgjaldið í Svíþjóð.
(Hvernig er það annars, hafa sam-
tök bifreiðaeigenda í Danmörku
krafizt lækkunar bifreiðatrygginga-
iðgjalds á þeim forsendum að það
væri nær helmingi lægra í Svíþjóð!?)
Það sæmir ekki forráðamönnum
FÍB að beita þeirri röksemdafærslu
sem þeir gera í þessu máli, þ.e. að
iðgjöld í Svíþjóð eigi að vera for-
senda iðgjalda á íslandi. Það kemur
málinu ekkert við á sama hátt og
það kemur launakjörum á íslandi
ekkert við hver launakjör eru í Sví-
þjóð eða Grikklandi. Samanburður
milli landa á verð- og kauplagi ger-
ir kröfur til vandaðri vinnubragða
en FÍB-menn beita í þessu máli og
þjónar í sjálfu sér ekki öðrum til-
gangi en að reyna að skýra ástæður
hugsanlegs mismunar.
Iðgjaldsákvörðun
Vátryggingariðgjöld í einstökum
greinum vátrygginga eru ákveðin
þannig að þau standi undir bóta-
greiðslum, rekstrarkostnaði og ein-
hverjum hagnaði að
teknu tilliti til fjár-
munatekna. Hvaða
ályktanir mætti draga
af því að iðgjöld séu
hæst á íslandi ef ekki
liggja fyrir frekari upp-
lýsingar? í fyrsta lagi
gæti rekstrarkostnaður
verið allt of hár en í
fréttatilkynningu FÍB
fá bifreiðatryggingafé-
lögin á íslandi sérstakt
hól fyrir litla yfirbygg-
ingu og lágan rekstrar-
kostnað. Það er því
vart ástæðan. í öðru
lagi gæti hagnaður fé-
laganna verið óeðlilega
hár af þessari starfsemi. Þrátt fyrir
verulegar búsifjar norrænna vá-
tryggingarfélaga vegna fjárfesting-
artapa á síðustu árum er eiginfjár-
hlutfall sænskra og danskra félaga
miklu hærra en þeirra íslenzku og
hagnaður er líka verulega meiri sem
hlutfall af iðgjöldum. (Vilji menn
tölur skulu þær fúslega veittar.)
Almennt gildir það bæði hér á landi
og á hinum Norðurlöndunum að bif-
reiðatryggingar vátryggingafélaga
eru óhagstæðari en önnur viðskipti
þeirra. Ég fullyrði: Félögin hafa
heldur tapað á þessum viðskiptum
þegar litið er til nokkurra undanfar-
inna ára. Þá stendur aðeins eftir
spurningin um það hvort bætur til
tjónþola hér á landi séu hærri en í
grannlöndunum eða ekki. Svarið er
einfalt: Bætur eru mun hærri fyrir
hveija vátryggða bifreið hér á landi
en á hinum Norðurlöndunum.
í rauninni skiptir það ekki nokkru
máli varðandi ákvörðun iðgjalds fyr-
ir bifreiðatryggingu á íslandi hvert
iðgjaldið er í Svíþjóð eða Grikk-
landi. V átry ggingafé-
lög í Svíþjóð eða Grikk-
landi mundu ekki nota
sömu iðgjaldaskrár og
þeir nota á heimamark-
aðnum, ef þeir hyggð-
ust selja bifreiðatrygg-
ingar á íslai\di. Vel á
minnzt; hér starfa tvö
vátryggingafélög sem
eru að meiríhluta í eigu
sænskra_ vátryggingar-
félaga. Ábyrgð hf. hef-
ur starfað hér um ára-
tugaskeið, fyrst sem
umboðsskrifstofa
sænska vátryggingar-
félagsins Ansvar og
síðan sem hlutafélag í
eigu þess, lengst af að langmestu
leyti. Forráðamönnum Ansvar virð-
ist ekki hafa dottið í hug að nota
sænsku skrána. Ef þeir hefðu notað
hana segir mér svo hugur um að
Ábyrgð hf. væri ekki lengur með
vátryggingastarfsemi því annað-
hvort hefði Vátryggingaeftirlitið
stöðvað reksturinn áður en til gjald-
þrots hefði komið eða félagið hefði
orðið gjaldþrota. Nú á öflugasta
vátryggingafélag Norðurlanda,
Skandia í Svíþjóð, dótturfélag á ís-
landi. í fréttatilkynningu FÍB kemur
fram að iðgjöld þess eru ívið lægri
fyrir almenna bíleigendur en hjá
öðrum félögum og nokkru lægri
fyrir félaga í FÍB. Þeim virðist held-
ur ekki hafa dottið snjallræði FIB
í hug og lái þeim hver sem vill.
Bótasjóðir
Nú skulum við snúa okkur að
bótasjóðum félaganna en þeir hafa
orðið æ veigameiri þáttur umræð-
unnar eftir því sem á hana hefur
liðið. Það er eflaust þýðingarlaust
Bjarni Þórðarson
Hér starf a tvö vátrygg-
ingafélög, segir Bjarni
Þórðarson, sem eru
að meirihluta í eigu
sænskra vátrygginga-
félaga.
að reyna að skýra fyrir FÍB-mönn-
um hvað bótasjóðurinn er í raun og
veru. Engum sem hugar að árs-
reikningi banka eða sparisjóðs
blandast hugur um að innstæður í
stofnuninni eru skuld hennar gagn-
vart innstæðueigandanum. Hver
innstæðueigandi á sína ákveðnu inn-
stæðu og um það er enginn ágrein-
ingur.
Það sem kallað hefur verið bóta-
sjóður hjá vátryggingarfélagi er
mjög hliðstætt heildarinnstæðum í
innlánsstofnun en þó er munur á. í
hvert skipti sem vátryggingafélagi
er tilkynnt um tjón, áætlar það
hvaða fjárhæð félagið muni þurfa
að greiða til þess að bæta tjónþolan-
um tjón _ hans þegar að uppgjöri
kemur. í sumum tilvikum líður
skammur tími þar til uppgjör fer
fram en í öðrum líða mörg ár og
jafnvel áratugir. Bótasjóður hjá einu
vátryggingafélagi er samtala þeirra
fjárhæða sem félagið hefur áætlað
að það muni þurfa að greiða einstök-
um tjónþolum. Einnig verður það
að áætla fjárhæðir vegna tjóna sem
hafa orðið en það hefur ekki fengið
tilkynningu um enn. í mörgum til-
vikum gera tjónþolar sér nefnilega
alls ekki grein fyrir því að þeir
muni þurfa að kreQa félag um bæt-
ur vegna tjóns sem þeir hafa orðið
fyrir, t.d. þegar um slys er að ræða
þar sem afleiðingar verða ekki ljós-
ar fyrr en löngu eftir slysatburðinn
sjálfan. Hér verður félagið að
byggja á reynslu úr fortíðinni um
síðbúnar tjónstilkynningar. Þegar
félagið gerir svo tjón upp við tjón-
þola er sjaldnast um sömu fjárhæð
að ræða og það hefur áætlað. í
sumum tilvikum er hún hærri en í
öðrum lægri en sú sem skráð er í
bótasjóði.
Það er skylda stjórnvalda að
fylgjast með því að vátryggingafé-
lög hafi nægjanlegt gjaldþol til þess
að reka vátryggingastarfsemi, en
einn veigamesti þátturinn í mati á
gjaldþoli er mat bótasjóðsins. Það
verkefni er falið sérstökum eftirlits-
stofnunum, sem hafa á að skipa
sérhæfðu starfsliði til þess að meta
gjaldþol félaga, en hér á landi ann-
ast Vátryggingaeftirlitið þetta starf.
Sú staða má helzt ekki koma upp
að vátryggingafélag verði gjald-
þrota með þeim afleiðingum sem
slíkt kynni að hafa fyrir tjónþola
og vátryggingataka. Fái t.a.m. sá
sem slasast hefur í bifreiðarslysi
ekki bætur úr hendi vátryggingafé-
lagsins sækir hann bæturnar beint
í hendur ökumanns og eiganda öku-
tækisins.
FÍB-mönnum vex í augum þróun
bótasjóðsins síðustu ár. Ég ætla
mér ekki þá dul að skýra hana þar
sem mig skortir upplýsingar, en ljóst
er að meginástæður eru þrjár: 1)
Ný umferðarlög tóku gildi 1988 en
samkvæmt þeim öðluðust slasaðir
rikari bótarétt en áður jafnframt
því sem allir ökumenn og eigendur
ökutækja skyldu slysatryggðir. 2)
Veruleg fjölgun krafna um slysa-
bætur (umfram þær sem stafa af
1. lið), bæði vegna fjölgunar slysa
og aukinnar vitundar slasaðra um
rétt sinn til bóta. 3) Verklagsreglur
bifreiðatryggingafélaganna sem
hafa leitt til frestunar uppgjörs
margra slysatjóna.
Það er ekki ólíklegt að erlend
vátryggingafélög fáist til þess að
bjóða einhveijum hópum bifreiða-
eigenda hagstæðari kjör en nú eru
í boði. Hins vegar segir sig sjálft
að þessi félög koma ekki hingað til
annars en að hagnast þannig að
fljótt mundi sækja í sama farið nema
íslenzkir ökumenn taki sig á í um-
ferðinni. Það er það eina sem dugir
til þess að ná fram varanlegri lækk-
un iðgjalda.
Höfundur er tryggingastærðfræð-
ingur.
Fjarkennsla inn tölvur
VERKMENNTASKÓLINN á
Akureyri hóf tilraun með fjar-
kennslu um tölvur árið 1994 á vo-
rönn. Tilraunin fólst í því að kenna
tvo áfanga í ensku: ÉNS 102 og
ENS 212. Ástæðan fyrir því, að
þessir áfangar urðu fyrir valinu var
fyrst og fremst sú, að efni til þessar-
ar kennslu var tiltækt. Valið reynd-
ist hins vegar heppilegt, þar sem
tungumál er væntanlega með þvi
torveldara að kenna með tölvusam-
skiptum.
Reynslan af þessari tilrauna-
kennslu var góð; svo góð, að ástæða
þótti til þess að halda áfram á sömu
braut. Á annarri önn fjarkennslunn-
ar um tölvur var því boðið upp á
fleiri greinar og stefnan sett á það
að.byggja upp námsefni, sem leiddi
til lokaprófa á framhaldsskólastigi,
hvort heldur stúndentsprófs eða
annarra. Á þriðju önninni, vorönn
1995, var boðið upp á þijú erlend
tungumál auk íslensku, bókfærslu,
eðlisfræði, félagsfræði, sögu, sál-
fræði, stærðfræði og þjóðhagfræði.
U ppbyggingarstarfið hefur
gengið vel, þó að enn sé að vísu
flarri því, að því sé lokið. Á haust-
önn þeirri, sem senn fer í hönd,
verður boðið upp á fyrrgreindar
greinar og auk þess bætt við efna-
fræði, íþróttafræði, næringarfræði,
rekstrarhagfræði, verslunarfræði
og verslunarreikningi. Framboð
námsefnis er því orðið verulegt, svo
mikið, að segja má, að fjarkennsla
Verkmenntaskólans á Akureryi um
tölvur hafi slitið barnsskónum og
sé að festast í sessi.
Undirstöður starfsins
Starfið að fjarkennslu Verk-
menntaskólans á Akureyir byggist
framar öðru á miklum áhuga kenn-
ara skólans og fúsleika þeirra að
taka þátt í því. Enn
sem komið er hefur
ekki þurft að leita út
fyrir starfsmannaflokk
skólans sjálfs, þó að
ugglaust komi að því,
að þess gerist þörf.
Annað, sem skiptir
miklu máli, er ötult
starf stjórnenda skól-
ans, en þeir hafa verið
vakandi og sofandi yfir
framgangi þessa
námsframboðs. í þriðja
lagi er öflugur stuðn-
ingur menntamála-
ráðuneytisins við starf-
semina jafnt í tíð fyrr-
verandi menntamálaráðherra, Ólafs
G. Einarssonar, sem hins núver-
andi, Björns Bjarnasonar, ómetan-
legur.
Fjarkennslan er vitanlega starf-
semi, sem þarfnast fjármuna.
Greiða þarf kennurum og einnig eru
nokkrar greiðslur vegna annarra
rekstrarþátta, svo sem samskipt-
anna sjálfra. Fjármunir koma af
námsgjöldum nemenda, sem eru að
nokkru hliðstæð þeim, sem greidd
eru í öldungadeildum, og í formi
framlags frá menntamálaráðuneyt-
inu, sem hefur, eins og fyrr er nefnt,
sýnt þessari tilraun Verkmennta-
skólans á Akureyri mikinn skilning
og áhuga.
Framgangur nemenda
Nemendur fara í gegnum sama
námsefni og aðrir nemendur í fram-
haldsnámi í hlutaðeigandi greinum.
Þeir ljúka yfirferð sinni jafnstíga
nemendum, sem eru til dæmis í
öldungadeiídum á sömu önn, og
þreyta í lokin próf á svipuðum tíma
og þeir nemendur, sem mæta í skól-
ann til þess að sækja sér kennslu.
Námsstarfið stunda
hins vegar fjarnemend-
ur við tölvuna heima
hjá sér, en próf eru
lögð fyrir í samvinnu
við skóla hið næsta
nemandanum.
Nokkrar kvaðir
fylgja náminu og er þar
helst skilaskylda á
verkefnum, sem á að
tryggja, að nemandi
dragist ekki aftur úr í
yfirferð sinni. Kvaðir
leggjast einnig á kenn-
arana, en þeir eiga að
skila af sér verkefni
nemandans svo fljótt
sem unnt er, eða helst innan sólar-
hrings eftir að nemandinn hefur
sent það frá sér í tölvupósti.
Þessi atriði og önnur eru hugsuð
sem hvati til starfs og virðast hafa
verkað þannig. Framgangur nem-
enda almennt hefur verið góður og
árangur þeirra á prófum verulega
yfir meðallagi. Ef til vill er það
ekki undrunarefni, þar sem hér er
í raun um einstaklingskennslu að
ræða. Nemandinn sendir sína úr-
lausn og fær sínar eigin villur leið-
réttar og ræddar. Nýti nemandinn
sér það, sem í þessu felst, hlýtur
árangur að verða góður. Af því, sem
verður séð af reynslu af hliðstæðri
kennslu erlendis frá er það líka
svo, að í heild tekið er framgangur
nemenda í fjarkennslu um tölvur
almennt að minnsta kosti fyllilega
sambærilegur og gjarnan betri en
með öðrum kennsluháttum.
Tæki og búnaður
Til þess að stunda nám um tölvu-
samskipti þarf vitanlega tölvu og
gott getur verið að eiga með henni
prentara. Þessi tæki eiga nú orðið
Haukur Ágústsson
Nemendur fara í
gegnum sama náms-
efni, segir Haukur Ag-
ústsson, og aðrir nem-
endur í framhaldsnámi.
margir hér á landi. Auk þeirra þarf
að vera til mótald til þess að unnt
sé að tengja tövluna símakerfí
landsins. Mótaldið þarf helst að
vera ekki minna en 14.400 baud
(baud er eining, sem notuð er um
sendingarhraða).
Auk þess, sem hér er talið, þarf
nemandinn að hafa í tölvu sinni fjar-
skiptaforrit, sem gerir honum fært
að tengjast íslenska menntanetinu,
eða internetinu. Forrit þessi eru
jafnan afhent ókeypis og er þá
kostnaður vegna þeirra ekki’ annar
en verð disklinganna, sem þau eru
á.
Til hvers fjarkennsla?
Nútíminn krefst sívaxandi þekk-
ingar og hæfni á öllum sviðum.
Þessara atriða verða flestir að afla
sér með skólagöngu af einhveiju
tagi. Fjöldi fólks, sem hefur hug á
því að afla sér þeirra, hefur ekki
tök á því að fara að heiman eða
hætta í vinnu til þess að setjast á
skólabekk með hefðbundum hætti.
Þessu fólki er fjarkennslan um tölv-
ur ætluð. Það er að finna um allt
landið jafnt í þéttbýli sem þreifbýli,
til sjós og lands. Fjarkennslan gerir
þessu fólki fært að stunda nám án
þess að fara að heiman eða verða
fyrir truflunum í lífsbjargarstarfi
sínu.
Það er iðulega rætt um jöfnun
aðstöðu til náms. Það er trú þeirra,
sem standa að fjarkennslu Verk-
menntaskólans á Akureyri með
tölvusamskiptum, að með henni sé
stigið eitt stærsta skrefið að þessu
marki, sem stigið hefur verið hin
síðari árin. Sá virðist líka vera skiln-
ingur yfirvalda menntamála í land-
inu. Því má telja nokkuð víst, að
sú litla byrjun, sem fólst í tilraun
Verkmenntaskólans á Akureyri á
vorönn, 1994, sé á leiðinni að verða
að öflugri starfsemi til hagsbóta
menntunarfúsu fólki hvarvetna á
landinu.
Höfundur er umsjónarmnður fjar-
kennslu.
136.000 gestir í Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinn
RUMLEGA 136.000 gestir hafa
lagt leið sína í Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinn í sumar.
Laugardaginn 19. ágúst, milli
kl. 14 og 16, koma matreiðslu-
meistararnir Oskar Finnsson og
Ingvar Sigurðsson í heimsókn til
að kynna áhugasömum grillurum
hvernig á að grilla íslenskt lamba-
kjöt. Naglabandið mun spila nokk-
ur lög kl. 15 og kl. 16 koma tannp-
ínumeistararnir Karíus og Baktus
og vekja athygli á iðju sinni.
Sunnudaginn 20. ágúst verður
þjóðlegur dagur. Mókollur og fé-
lagar koma í heimsókn kl. 14,
glímukappar mæta á Víkingsvelli
og sýna glímu og leyfa áhugasöm-
um að spreyta sig á íþróttinni.
Þjóðdansafélagið sýnir og kennir
þjóðdansa kl. 16 og einnig munu
látbragstrúðar heilsa upp á gesti
garðsins kl. 16.
Opið er alla daga í Fjölskyldu-
og húsdýragarðinum fram að 4.
september milli kl. 10 og 19.