Morgunblaðið - 19.08.1995, Side 35

Morgunblaðið - 19.08.1995, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 1995 35 PÁLL SIG URBJÖRNSSON + Páll Sigurbjörnsson fæddist í Brekkubæ á Hellnum á Snæfellsnesi 2. apríl 1917. Hann lést 1 Borgarspítalanum 16. júlí síðastliðinn og fór útför hans fram frá Fossvogskirkju 21. júlí. PÁLL Sigurbjörnsson var mikill atorkumaður, duglegur við hvað sem hann gerði og lagvirkur. Hans lífsstarf var margþætt og féll hon- um sjaldan verk úr hendi. Hann var lengi hjá móður sinni eftir að faðir hans dó og var hennar stoð og stytta. Hann hjálpaði henni við bú- skapinn og svo stundaði hann lengi sjóinn á árabátum og trillum frá Hellnum allt til ársins 1948 að mig minnir. Árin 1942 til 1944 var ég ásamt bróður mínum Ólafi að byggja íbúð- arhús á eiðibýli sem við keyptum og heitir Laugarbrekka við Hellna. Þá hjálpaði Páll okkur við bygging- una og Pétur bróðir hans. Þeir voru báðir góðir verkmenn og bráðlagn- ir. Það var gaman að vinna með þeim. Árið 1974 hóf ég byggingu á hýju íbúðarhúsi á jörðinni og þá hjálpaði Páll okkur að múra það að utan. Hann vann þetta múrverk vel eins og allt sem hann gerði. Páll var öðlingur í lund, ávallt glað- ur og gaman að tala við hann. Hann átti góða konu og voru þau mjög samhent, gestrisin og tóku með gleði móti gestum, þau tóku ávallt elskulega á móti mér. Það var indælt að heimsækja þau. Ég á góðar minningar um Pál sem ekki gleymast. Eg þakka honum indæla samleið á lífinu allt frá æskuárum. Guð gefi honum sælu í sólardýrð. Blessuð sé minning hans. Ég bið Guð að styrkja og blessa eftirlifandi konu hans Pálínu, börn þeirra og aðra aðstandendur. Finnbogi G. Lárusson, Laugarbrekku. Við brottför mannkostamanns er margt það sem á hugann leitar og erfitt er að færa í letur. Þó er gott að eiga þess kost að tjá hug sinn þegar innri þörf knýr á. Eg minnist Páls fyrst þegar hann kom á heimili foreldra minna eftir að þau Pálína höfðu lifað þá sáru raun að missa nýfætt sitt fyrsta barn. Ég minnist þess, að sem ung- um dreng bauð mér í grun það sem ég svo oft síðar tel mig hafa fengið staðfest, að þarna fór maður sem hafði til að bera skapfestu, æðru- leysi, en umfram allt eðlislægan góðleik, er vel mundi duga á þeirri göngu sem við köllum lífsleið, jafnt í gleði hennar sem sorgum. Þótt undirbúningurinn hafi verið strang- ur, hann missti ungur föður sinn, ólst upp í fátækt, við kröpp kjör og harða vinnu frá barnsaldri, mun á móti hafa komið kærleikur móð- ur, sem vel kunni að miðla menn- ingu læsrar og skrifandi þjóðar. Hvað gerir hinn ungi maður sem hlotið hefur slíkt uppeldi? Hann stundaði sjóinn bæði á vél- bátum og togurum og varð með þeim hætti fær um að eignast sína fyrstu íbúð þegar hann kvæntist heitkonu sinni. Það var um þetta leyti sem ég dvaldi fyrst, en ekki síðast, á heimili þeirra hjóna. Páll varð mér þá ungum ímynd hins íslenska alþýðumanns sem ég æ síðan virði. Við tók vinna í landi við löndun úr togurum hjá Togara- afgreiðslunni í Reykjavík. Þetta var á frumbyggjaárunum í Kópavogi og reiðhjólið það samgöngutæki sem notað var til og frá vinnu á hinum ýmsu tímum sólarhringsins. Páll var hörku maður til hvers kyns vinnu, en einnig handlaginn og listfengur. Listfengi hans kom vel í ljós þegar hann vann við leir- munagerð hjá Guðmundi frá Miðdal og hjá Funa í Kópavogi. Síðar byij- aði Páll að vinna við múrverk, tók sveinspróf í þeirri iðn sem hann og vann við þar til hann lét af störfum, sjötugur að aldri. Við þessi tímamót er sú hugsun áleitnust hversu mikið ég persónu- lega á Páli Sigurbjörnssyni að þakka. Þessi fáu kveðjuorð vitna um það. Heimili hans og Pálínu var annað heimili mitt og fjölskyldu minnar ótal sinnum. Ekki síst þegar erfið veikindi kröfðust dvalar í nálægð sjúkrahúss. Að beiðni minni kom hann eitt sinn vestur í Svefneyjar til að gera við íbúðarhúsið þar. Hann vann eins og hamhleypa frá morgni til kvölds, eins og hans var vandi. Að verklokum reyndist ógerningur að fá hann til að þiggja greiðslu fyrir verk sitt, sem þar eins og annars staðar ber fagmanninum vitni. Þegar leiðir nú skiljast er sú spurning einnig áleitin, hvort við almennt gerum okkur nógu vel grein fyrir að það eru menn á borð við Pál Sigurbjörnsson, sem með lyndiseinkunn sinni og líferni hafa verið einn hinn traustasti hlekkur í þeirri keðju athafna sem fært hafa íslenska þjóð frá fátækt til bjargálna. En ekki síður sú fyrir- mynd um heiðarleika, góðvild og æðruleysi sem vel mundi duga ís- lendingum framtíðarinnar. Kæra Palla. Ég og fjölskylda mín vonum að þú finnir styrk og jafn- vægi þrátt fyrir það ósetna rúm sem góður vinur skilur eftir sig. Við sendum þér og allri fjölskyldunni hugheilar samúðarkveðjur. Nikulás Jensson. BJÖRGVIN VIKTOR FÆRSETH + Björgvin V. Færseth var fæddur á Siglufirði 3. febr- úar 1916. Hann lést í Sjúkra- húsi Siglufjarðar aðfaranótt laugardagsins 22. júlí síðastlið- ins. Foreldrar Björgvins voru hjónin Ágústa Pálína Færseth, fædd Sæby, og Einar Andrés Færseth frá Noregi. Björgvin var elstur fjórtán systkina og eru níu á lífi. Hinn 18. júlí 1942 giftist Björgvin Petrínu Ragnhildi Guðmundsdóttur, f. 10. septem- ber 1910, d. 22. júlí, 1993, frá Gröf í Grundarfirði. Þau voru búsett í Samtúni 20 í Reykja- vík. Petrína átti einn son, Jó- hann R. Símonarson, skip- stjóra, sem kvæntur er Helgu Þ. Gunnarsdóttur. Þau eru bú- sett á ísafirði. Útför Björgvins fór fram frá Fossvogskirkju 28. júlí. BJÖRGVIN stjúpafi minn las mikið og hafði afskaplega gaman af að segja sögur og vitnaði þá löngum í kvæði. Fyrir mig sem barn var þetta afar framandi, en eins og heiti kvæðis Steins Steinarrs „Mannkynssaga fyrir byijendur", dró Björgvin ævinlega fram það sem hæfði hverju sinni, hvort sem var fyrir börn eða fullorðna. Björg- vin var mjög lífsglaður maður. Þeg- ar hann sagði mér sögur þurfti ég oft að stoppa hann þegar ég skildi ekki iengur hvað hann sagði, því hann hló svo mikið. Björgvin ólst upp á Siglufirði. Líkt og önnur ungmenni vann hann við síldina. Hugur hans leitaði þó annað og hann fór í nám við Sam- vinnuskólann. Hann var verslunarstjóri hjá KRON og Mjólkursamsölunni, rak eigin verslun, Hagabúðina, vestur í bæ, og vann síðast hjá ÁTVR í Borgartúni. Árið 1962 keyptu þau hjón Björg- vin og amma, jörðina Gilslaug norð- ur í Fljótum ásamt Andreasi Fær- seth, bróður Björgvins, og konu hans Sigrúnu Eiríksdóttur. Gilslaug var sælureitur þeirra hjóna og biðu þau hvers sumars með mikilli eftir- væntingu að komast í Fljótin. Þar var nú margt sér til gamans gert. Björgvin skrapp niður að á og sótti bleikju, jafnvel lax í matinn, meðan amma fór og tíndi aðalbláber í fötu. Veiðin var elduð um kvöldið og aðalbláber með ijóma í eftirmat. Síðan var sest niður og spilaður ólsen, ólsen eða kani. Björgvin keyrði oft inn á Siglufjörð eða niður í Haganesvík með okkur börnin að hitta ættingja, vini og kunningja. Hann laumaðist til að fá sér vindil eða pípu á leiðinni og ævinlega skammaði amma hann, þegar við komum heim fyrir að vera að reykja fyrir framan okkur börnin. Já, hann plataði hana ömmu sko ekki. Eitt síðasta verk hans á Gilslaug var að mála bústaðinn hátt og lágt að utan. Það skyldi sko líta vel út á Gili. Björgvin og amma voru góðir vinir og ákaflega samrýnd. Hún skammaðist í honum eins og geng- ur og gerist, stundum svolítið mik- ið að okkar barnanna mati, og hann tuðaði hvaða læti þetta væru. Þegar við vorum síðan kömin úr talfæri við ömmu, sagði hann, með sínum gamansama tón við okkur börnin, jááh, það gustar stundum á Gili. Björgvin og amma spiluðu mikið brids, tóku þátt í mörgum mótum og eignuðust stóran vinahóp. Þau héldu upp á gullbrúðkaup sitt 18. júlí 1992. Rúmu ári síðar, 22. júlí 1993, lést amma. Björgvin saknaði hennar mjög sárt og sama mánað- ardag tveimur árum seinna lést hann. Björgvin hafði ævinlega mikinn áhuga á því hvernig fólkinu í kring- um hann gengi í leik og starfi. Það var ekki ósjaldan að hann hringdi út í sjó í pabba til að fá fréttir af aflabrögðum og hringdi síðan til að segja mér fréttir. Elsku Björgvin, mig langar til að kveðja þig með broti úr kvæði Einars Benediktssonar, sem var eitt af þínum eftirlætis skáldum. Af eilífðar ljósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri’ en auga sér mót ðllum oss faðminn breiðir. (Einar Ben.) Ég og fjölskylda mín vottum öll- um aðstandendum innilega samúð. Blessuð sé minning góðs vinar. Guðmundur Fr. Jóhannsson. t Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við and- lát og útför konu minnar, BERGLJÓTAR EINARSDÓTTUR. Fyrir hönd aðstandenda, Bjarni Pálsson. JENNÝ SIG URÐARDÓTTIR + Kristbjörg Jenný Sigurðar- dóttir, kennari, fæddist að Húsey í Hróarstungu 25. apríl 1941. Hún lést í Landspítalan- um 5. ágúst síðastliðinn og fór útförin fram frá Bústaðakirkju 14. ágúst. GÓÐ VINKONA okkar, Jenný Sig- urðardóttir, er flogin inn í aðra vídd. Góð kona, sem átti oft við mikla erfiðleika að stríða en tókst samt að gefa meir af sér en hún tók. Góð manneskja, sem með breytni sinni gefur okkur hinum sem lífið hefur ef til vill farið mildari höndum um tækifæri til þess að staldra við og hugsa hvers vegna við, í allri okkar kröfuhörðu síngirni, reynum ekki að fara að fordæmi Jennýar: Að vera þakklát fyrir það sem við höfum og nýta hvert tækifæri sem okkur býðst til þess að gera tilveru annarra bærilegri og skemmtilegri en krefjast einskis í staðinn. Við kynntumst Jenný fyrst í byij- un áttunda áratugarins. Hún gekk þá til liðs við félagsskapinn Sam- hygð (sem var það nafn sem Húm- anistahreyfingin bar um þær mund- ir). Hún tók virkan þátt í öllu starfi Samhygðar og hélt oft fundi heima hjá sér í Kóngsbakkanum þar sem hlýlegt og heimilislegt andrúmsloft varð til þess að tengja betur saman þá sem sóttu hana heim og varð til þess að gera fundina hjá henni sérlega ánægjulega. Jenny bar þá von í bijósti að hægt væri að búa til réttlátara og manneskjulegra þjóðfélag og trúði því að með virkri þátttöku margra yrði slík von að raunveruleika. Þess vegna lagði hún sig alla fram bæði í skipulögðu starfi svo og einnig og sér í lagi með eigin fordæmi. Sú persónulega greiðvikni sem hún sýndi mörgum fór langt fram úr því sem vanalegt er, hvað þá sem hægt væri að ætlast til. En Jenný fannst allt sem hún gerði fyrir aðra smámunir einir og það tæki því varla að minnast á þá, og alls ekki að standa í þakkarskuld við hana. Okkur er mjög ljúf sú minning af Jenný heima hjá systur sinni Aðalbjörgu á Egilsstöðum þar sem þær systur tóku höfðinglega á móti stórum hópi félaga í Húmanista- hreyfingunni sem var á hringferð um landið fyrir mörgum árum. Allt gekk svo auðveldlega fyrir sig og gleði og kátína Jennýar virkaði smitandi á lúna ferðalanga. Það er alltaf erfitt að kveðja fyr- ir fullt og allt. Þótt við getum ekki lengur heyrt djúpan og innilegan hlátur Jennýar bergmála og hrífa okkur með er hún samt áfram hluti af okkar tilveru. Við erum þakklát- ir fyrir að hafa kynnst þessari góðu manneskju sem gerði engum mein en hjálpaði mörgum þótt oft hafi það verið hún sem var hjálpar þurfi. Við erum vissir um að hún er kom- in á dásamlegan stað sem ef ein- hver á skilið að vera á þá er það hún Jenný okkar. Pétur Guðjónsson og Þor- steinn Sigmundsson, félagar í Húmanistahreyfingunni. Séifræðingar í bloniaskreytingiini vid öll tækifæri Skólavörðustíg 12, ó horni Bergstaðastrætis, sími 19090 t Elskulegir foreldrar okkar, IIMGIRÍÐUR NIKULÁSDÓTTIR MARKÚS BÖÐVARSSON eru látin. Jarðarför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinna látnu. Lilja Markúsdóttir, Katrin Markúsdóttir og fjölskyldur. t Faðir okkar, sonur minn og bróðir okkar, GUÐMANN KRISTBERGSSON, Tunguseli7, Reykjavík, lést á heimili sínu þann 12. ágúst. Útför hans fer fram frá Haukadalskirkju miðvikudaginn 23. ágúst kl. 16.00. Þeir, sem vilja minnast hans, eru beðn- ir um að láta líknarfélögin njóta þess. Hrefna Guðmannsdóttir, Einar Guðmannsson, Guðdís Sigurðardóttir, Hrefna Kristbergsdóttir, Jón Kristbergsson. t Innilegar þakkir til þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, JÓHÖNNU KRISTÍNAR GUNNLAUGSDÓTTUR, Víðilundi 15, Akureyri. Steinunn Guðmundsdóttir, Björn Baldursson, Gunnlaugur Guðmundsson, Guðlaug Stefánsdóttir, Margrét Guömundsdóttir, Kristinn Hólm, Guðrún Guðmundsdóttir, Hannes Haraldsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.