Morgunblaðið - 19.08.1995, Blaðsíða 36
36 LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 1995
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
SÓLVEIG
VILHJÁLMSDÓTTIR
+ Audrey Edna
Buckie fæddist
hinn 9. ágúst 1924
í Lundúnum. Árið
1947 giftist hún
Bjarna Gíslasyni.
Þau eignuðust tvo
syni, Edvarð
Bjarnason, fæddan
1960 og Gísla
Bjarnason, fæddan
1965. Audrey og
Bjarni skildu. Audr-
ey fluttist aftur til
Englands ásamt
sonum sínum.
Audrey andaðist
á heimili sínu í Witney 4. mars
síðastliðinn.
ÞEGAR vinir kveðja, taka minn-
ingamar völdin. Perlur minning-
anna renna fram hver af annarri,
en hveija á að velja? Audrey var
slíkur vinur, perlumar em svo
margar...
Ég var tæplega 13 ára er fjöl-
skylda mín fluttist í næsta hús við
Audrey og hennar íjölskyldu. Það
var framburður henn-
ar Edvarð, sem kom
okkur í kynni hvorri
við aðra, árið 1961.
Strax mynduðust
sterk bönd milli okk-
ar, var það ekki hvað
síst „litla bróður"
mínum að þakka. Árin
liðu og fyrr en varði
eignaðist ég annan
„lítinn bróður“, er
Gísli fæddist. Jafnvel
eftir að Audrey flutt-
ist aftur heim til Eng-
lands, þá héldu bönd-
in, þau styrktust enn
frekar, þó langt væri á milli.
„Sá er vinur sem í raun reynist"
segir málshátturinn og það var hún
sannarlega. Þegar sorgin knúði
dyra hjá mér og mínum, þá opnaði
hún hús sitt og hjarta fyrir okkur.
Það var því jafnopið hús mitt og
hjarta minnar fjölskyldu til handa
Audrey, Edvarði og Gísla, er fyrr-
verandi eiginmaður hennar andað-
ist skyndilega. Dætur mínar kynnt-
ust „stóru bræðrum" sínum enn
betur. Áfram styrktust vináttu-
böndin. Þau era styrkari í dag en
nokkra sinni fyrr.
Er ég kynntist Audrey fyrst, þá
hafði hún dvalið hér á landi í tæp-
an áratug. Hún talaði svo til lýta-
lausa íslensku. Hún var hávaxin,
grönn og tignarleg. Brá sjaldan
skapi. Hún leiddi mig í gegnum
leyndardóma stærðfræði sem var
aldrei mín sterkasta hlið. Hún beið
þolinmóð eftir að ég safnaði næg-
um kjarki til að svara henni á
ensku, eftir að hún vissi að ég
gæti það.
Þó Audrey sé farin frá okkur
þá lifír hún áfram í minningum
okkar, eins og aðrir burtfamir ást-
vinir. Við sem eftir eram, eigum
perlubönd minninganna, þau era
dýrmætust.
Að leiðarlokum langar mig og
fjölskyldu mína að þakka fyrir að
hafa orðið þess heiðurs aðnjótandi
að fá að þekkja góða konu, trygg-
an vin, „stóra systur". Hafðu hjart-
ans þakkir fyrir allt.
Fyrir hönd fjölskyldu minnar,
Sigríður Skúladóttir.
Sorg og gleði auður er
ðllum þeim sem vilja.
Ég á margt að þakka þér
þegar leiðir skilja.
(Hulda)
Áslaug, Herdís og Áslaug.
+ Sólveig Vilhjálmsdóttir
fæddist í Reykjavík 10.
mars 1947. Hún lést á heimili
sínu í Skálatúni í Mosfellsbæ
26. júlí síðastliðinn og fór útför-
in fram 10. ágúst.
MIG langar í örfáum orðum að
minnast hennar Sollu eins og hún
var alltaf kölluð. Ég kynntist Sollu
árið 1983 þegar ég kom sem
þroskaþjálfanemi á Skálatún, okkar
leiðir áttu eftir að liggja saman
næstu tíu árin.
Solla var blíðlynd, skapgóð og
gamansöm en henni gat nú samt
mislíkað og fór þá stundum bak við
hurð og skammaði okkur þaðan eða
hún horfði á mann, þóttist ekkert
skilja og sagði „talarðu ensku eða
hvað“.
Solla var frekar seintekin en
eignaðist góðar vinkonur þær
Möggu, Gullu og Gunnu sem lengi
var herbergisfélagi Sollu. í þann
vinahóp er nú höggvið stórt skarð.
Solla var svo lánsöm að eiga góða
fjölskyldu sem hún talaði mikið um
og var auðfundið að sterk tengsl
vora þar á milli.
Það era margar skemmtilegar
minningar sem koma upp í hugann
þegar ég hugsa til Sollu, t.d. þegar
hópur úr Blöndu- og Litluhlíð fór
til Danmerkur, Sollu fannst mjög
gaman að ferðást en hún vildi alltaf
fá að vita hvenær komið yrði heim
aftur því hún vildi ekki vera lengi
í burtu frá Skálatúni.
Solla var búin að vera nokkuð
lengi rúmföst og var ljóst að hún
ætti ekki eftir að birtast í dyragætt-
inni og segja „kemur ég“ eins og
hún gerði svo oft. Mig langar fyrir
hönd heimilis- og starfsfólks
Blönduhlíðar að senda foreldrum
og systkinum Sollu okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur og enda á
kvæði sem hún söng oft þegar hún
var í gönguferð.
Blátt lítið blóm eitt er
ber nafnið: gleymdu ei mér
væri ég fleygur fugl,
flygi ég til þín.
Svo mína sálu nú
sigraða hefur þú
engu ég unna má
ððru en þér.
■ (Þýsk þjóðvísa, S. Kucken.)
Steinunn Guðmundsdóttir.
AUDREYE.
GÍSLASON
AUGLYSINGAR
Lögmenn
I boði er innheimta o.fl. almenn lögfræði-
og ábyrgðarstörf. Einstakt tækifæri fyrir
traustan og duglegan lögmann sem þarfnast
aukinna verkefna. Húsnæði fylgir.
Tilboð sendist afgreiðslu Mbl. fyrir kl. 17.00
23. ágúst, merkt: „Trúnaðarmál - 15505“.
Tannlæknastofa
Aðstoð óskast á tannlæknastofu í 50°/o starf
frá kl. 12.30-16.30.
Áhugasamir sendi umsóknir til afgreiðslu
Mbl. fyrir 24. ágúst merktar: „T - 2308“.
„Au pair“
Fjölskylda í Pennsylvaníu óskar eftir
„au pair“ í 1 ár, sem getur byrjað sem fyrst.
Joyce Kruiger, 894 Slati Hill Road, Yardley,
Pennsylvania 19067, USA,
sími 00 1 215 3211967.
íþróttakennarar
Staða íþróttakennara við Grunnskóla
Fáskrúðsfjarðar er laus til umsóknar. Ódýrt
húsnæði og flutningsstyrkur.
Upplýsingar gefur Guðmundur Þorsteinsson,
skólastjóri, í símum 475 1159 og 475 1224.
Grindavíkurskóli
Við leitum að áhugasömum kennara til starfa
við almenna bekkjarkennslu næsta skólaár.
Mikil vinna og tækifæri til þess að taka þátt
í starfsleikninámi sem unnið verður að í vetur.
Frekari upplýsingar veita skólastjóri í heima-
síma 426-8504 og vinnusíma 426-8555.
Frá Flensborgarskólanum
Haustönn 1995
Öldungadeild
Innritun í öldungadeild Flensborgarskólans
fyrir haustönn 1995 fer fram dagana
23.-25. ágústfrá kl. 14.00 til 18.00. Kennsla
hefst skv. stundarskrá mánudaginn 4. sept.
Kennt verður 4 daga-vikunnar, frá mánudegi
til fimmtudags kl. 17.20 - 21.40.
Námsgjöld eru kr. 11.500 fyrir 1-2 náms-
áfanga og 16.500 fyrir 3 áfanga eða fleiri.
Nemendafélagsgjald er kr. 200.
Eftirtaldir námsáfangar verða kenndir ef næg
þátttaka fæst:
Bókfærsla 203
Danska 311
Efnafræði 123
Enska 102
Enska 302
Enska 522
Félagsfræði 203
Franska 103
íslenska 103
íslenska 413
Næringarfræði 103
Saga 252
Sálfræði 213
Sálfræði 303
Stærðfræði 102
Stærðfræði 122
Stærðfræði 363
Tölvufræði 103
Tölvufræði 203
Vélritun 101
Þjóðhagfræði 103
Þýska 103
Þýska 302
Þýska 502
Nánari upplýsingar á skrifstofu skólans í
síma 565-0400. Skólameistari
Stakfell
Fssteignasala Suðurlandsbraut 6
568-7633 íf=
Logtræömgur
Þorhildur Sandholt
Solumenn
Gish Sigurb/ornsson
Sigurb/orn Þorbergsson
Einbýlishústil leigu
Gamalt, fallegt einbýlishús, kjallari, hæð og
ris, til leigu í hjarta borgarinnar.
Leigutími 2 ár. Laust í byrjun september.
Leigist með húsgögnum.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni.
Flekkudalsá
Vegna forfalla eru þrír lausir dagar (allar þrjár
stangirnar) í Flekkudalsá (Kjarlaksstaðaá,
Tungná og Flekkudalsá) 25.-28. ágúst 1995.
Hægt er að skipta tímabilinu.
Upplýsingar í síma 554-0394.
Jón Ingi Ragnarsson.
_
Sma auglýsingar
Fljótasiglingar
Á gúmmíbátum á Hvítá í Árnes-
sýslu og Austari-Jökulsá.
Kanóferðir og kajaknámsk.
Tjaldsvæði og svefnpokagisting
á Drumboddsstöðum.
Bátafólkið, Biskups-
tungum, Árnessýslu,
s. 588-2900.
Þingvellir þjóðgarður
Dagskrá þjóðgarðsins um
helgina.
Laugardagur 19. ágúst.
15.00 Ævintýraferð um Suð-
urgjár. Náttúruskoðun
með Ijóðrænu ivafi. Tekur
2 klst. Hafið með ykkur
skjólföt og nesti. Hefst við
Valhöll.
Sunnudagur 20. ágúst.
11.00 Helgistund í Hvannagjá.
Leikir, söngur og náttúru-
skoðun fyrir börn. Tekur 1
klst.
14.00 Guðsþjónusta í Þingvalla-
kirkju.
15.30 Þinghelgarganga. Gengið
um Almannagjá og hugað
að þinghaldi til forna.
Hefst við Þingvallakirkju
og tekur 1 klst.
Þátttaka í dagskrá þjóðgarðsíns
er ókeypis og öllum opin.
Nánari upplýsingar á skrifstofu
landvarða í þjónustumiðstöð og
í síma 482 2660.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Bænastund í kvöld kl. 20.30.
Dagskrá vikunnar framundan:
Sunnudagur:
Brauðsbrotning kl. 11.00. Al-
menn samkoma kl. 20.00.
Miðvikudagur:
Biblíulestur kl. 20.30.
Föstudagur:
Unglingasamkoma kl. 20.30.
Laugardagur:
Bænasamkoma kl. 20.30.
FERDAFÉIAG
® ÍSLANDS
MORKINNI6 - SlMI 568-2533
Sunnudagsferðir 20. ágúst
1. Kl. 08.00 Kjölur-Hveravellir.
Ekið um Kjalveg til Hveravalla.
Stansað þar í 2-3 klst., hvera-
svæðið skoðað o.fl. Nýr upplýs-
ingabæklingur um Hveravelli er
komin út. Verð 2.700 kr.
2. Kl. 08.00 Þórsmörk-Langi-
dalur. Stansað 3-4 klst. í Mörk-
inni. Verð 2.700 kr.
3. Kl. 10.00 Hvala- og fugla-
skoðunarferð (nýtt). Verð 4.500
kr. (með rútu). Nokkur pláss
laus. Siglt frá Grindavík með
Fpnncaol
4. Kl. 13.00 Lækjarbotnar-
Tröllabörn. Auðveld og
skemmtileg fjölskylduganga í
nágr. Reykjavíkur. Verð 800 kr.,
frítt f. börn m. fullorðnum. Brott-
för frá BSl, austanmegin.
Ferðafélag Islands.