Morgunblaðið - 20.09.1995, Síða 1
72 SÍÐUR B/C/D/E
213. TBL. 83. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Jafntefii enn
Ahorf-
endur
púuðu
SJÖTTU skákinni í heimsmeist-
araeinvígi þeirra Garrís Kasp-
arovs og Viswanathans Anands
lauk með jafntefli í gær eftir
28 leiki.
Skákin þótti æsispennandi og
voru áhorfendur svo óánægðir
með, að hún skyldi ekki tefld
áfram, að þeir púuðu á þá.
Það var Kasparov, sem bauð
jafnteflið, í mjög tvísýnni stöðu
og þáði Anand það að bragði.
Þá hafði hann fórnað skiptamun
fyrir peð og var með tvö sam-
stæð frípeð. Kasparov hafði
hrók fyrir riddara.
Reuter
Einka-
væðingu
mótmælt
ÁR ER liðið síðan Bandaríkja-
menn steyptu herstjórninni á
Haiti og komu aftur til valda
kjörnum forseta landsins, Jean-
Bertrand Aristide. Voru al-
mennar þingkosningar á Haiti
á sunudag en þótt úrslitin verði
ekki kunngerð fyrr en eftir
viku er því spáð, að flokkur
forsetans muni fá 80% at-
kvæða. Ekki er þó allt með
kyrrum kjörum í landinu því
að mikil óánægja er með einka-
væðingaráætlanir sljórnarinn-
ar og var þeim mótmælt í höf-
uðborginni, Port-au-Prince, í
gær.
Reuter
Litskrúðugar SAS-vélar
SAS-flugfélagið kynnti í fyrra-
dag nýjan lit eða skreytingu á
flugvélum sínum í innanlands-
flugi í Svíþjóð. Eru vélarnar
rauðar eins og sjá má með hvít-
um skellum í flugvélarmynd og
þótti sumum, sem mættu á kynn-
inguna á Landvetter-flugvellin-
um í Gautaborg, sem litagleðin
væri jafnvel einum um of.
Utgerðar- og sjómannafélög í Færeyjum
Kvótakerfið
burt - eða
flotanum lagt
Þ6rshSfn. Morgrunblaðið.
að kvótalögunum verði breytt
þannig, að auðveldara verði en nú
er að framselja kvóta en á það
vilja færeyskir sjómenn og útgerð-
armenn ekki fallast, síður en svo.
Klárast kvótinn á þremur
mánuðum?
Þá kemur það líka til, að mikiu
meira hefur veiðst af þorski við
Færeyjar á síðustu vikum en á
sama tíma í fyrra. Nýtt kvótaár
hófst 1. september sl. og haldi
veiðin áfram óttast margir, að
þorskkvótinn verði uppurinn í nóv-
emberbyijun þegar enn lifa allt
að níu mánuðir af kvótaárinu.
Ivan Johannesen, sem fer með
sjávarútvegsmál í landstjóminni,
vildi ekkert segja um kröfur sjó-
manna í gær og kvaðst ekki hafa
séð þær enn.
FÉLÖG sjómanna og útgerðar-
manna í Færeyjum settu iand-
stjóminni þá úrslitakosti í gær, að
verði kvótakerfið ekki afnumið inn-
an sex vikna, muni öllum flotanum
verða lagt. Þetta er í fyrsta sinn,
sem öll 11 hagsmunafélögin í fær-
eyskum sjávarútvegi sameinast um
kröfugerð á hendur stjórnvöldum.
Félögin benda á, að þau hafi
aldrei samþykkt núgildandi
kvótalög, sem séu að þeirra mati
ómöguleg í alla staði. Aðalástæð-
an fyrir tímasetningu kröfugerð-
arinnar nú er hins vegar sú, að
27. þ.m. munu fulltrúar land-
stjórnarinnar og dönsku stjórnar-
innar koma saman til að ræða
framtíðarfyrirkomulag á sam-
bandi landanna.
Eftir dönskum heimildum er
haft, að Danir muni krefjast þess,
Hart lagt að forsetum Króatíu og Bosníu á fundi í Zagreb
Heita að stöðva
sókn gegn Serbum
Sarajevo. Reuter.
FRANJO Tudjman, forseti Króatíu,
fyrirskipaði í gær sveitum króatíska
hersins að hætta hernaðaraðgerð-
um í norðvesturhluta Bosníu eftir
viðræður við Richard Holbrooke,
sendimann Bandaríkjanna. Alija
Izetbegovic, forseti Bosníu, hét
einnig að gera það sama.
Vestrænir stjórnarerindrekar og
embættismenn Sameinuðu þjóð-
anna óttuðust að bardagarnir í
norðvesturhluta Bosníu gætu grafið
undan friðarumleitunum en á fundi
í Zagreb, sem Holbrooke átti með
forsetum Króatíu og Bosníu, féllust
þeir á að hætta sókninni.
Áður hafði Strobe Talbot, aðstoð-
arutanríkisráðherra Bandaríkj anna,
hvatt Króata til að binda enda á
bardagana og Malcolm Rifkind, ut-
anríkisráðherra Bretlands, tók í
Flutningur þunga-
vopna frá Sara-
jevo gengur vel
sama streng og sagði við fulltrúa
Bosníustjórnar, að árás á Banja
Luka gæti valdið „gífurlegum
hörmungum" og knúið Serbíustjórn
til að skerast í leikinn.
Þungavopn flutt brott
Átökin í Norðvestur-Bosníu virt-
ust ekki hafa áhrif á serbneska
umsátursliðið við Sarajevo og voru
embættismenn Atlantshafsbanda-
lagsins vongóðir um að Bosníu-
Serbar lykju brottflutningi þunga-
vopna áður en frestur til að aflétta
umsátrinu rennur út í kvöld.,
Harðir bardagar geisuðu enn í
gærmorgun sunnan og. vestan við
Banja Luka og biðu tveir danskir
friðargæsluliðar bana og sjö særð-
ust, þar af einn alvarlega, í
sprengjuárás á bæinn Dvor.
Tillögu Ghalis
hafnað
William Perry, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, hafnaði í gær
tillögu Boutros Boutros-Ghali,
framkvæmdastjóra Sameinuðu
þjóðanna, þess efnis að herlið á
vegum NATO tæki við hlutverki
friðargæsluliðsins í Bosníu hvort
sem samið yrði um frið á næstunni
eða ekki. Perry sagði að Banda-
ríkjamenn myndu ekki senda her-
menn til Bosníu fyrr en samkomu-
lag næðist um varanlegan frið.
ILO segir kreppu ríkja í félagslega kerfinu í Evrópu
Endurskilgreina þarf
hlutverk ríkisvaldsins
FJÁRMÖGNUN félagslega kerfís-
ins í Evrópu verður æ erfiðari á
sama tíma og þörfín fyrir það hefur
aukist. Kemur þetta fram í skýrslu
frá Alþjóðavinnumálastofnuninni,
ILO, en skýrslan verður rædd á
ráðstefnu, sem hefst í Varsjá í Pól-
landi í dag. Skýrði BBC, breska
ríkisútvarpið frá þessu í gær, en í
skýrslunni segir ennfremur, að
óhjákvæmilegt sé að endurskil-
greina hlutverk ríkisins gagnvart
félagslega kerfinu.
1 ILO-skýrslunni segir, að vel-
ferðarríkið hafí orðið til í Evrópu
en glími nú við sívaxandi vanda-
mál. Fólk lifi lengur en áður og líf-
eyrisútgjöldin vaxi ár frá ári. Þeim
sé hins vegar ekki hægt að velta
yfir á þær kynslóðir, sem yngri eru.
Eftir því sem meðalaldur þjóðanna
hækki aukist líka útgjöld til heil-
brigðismála og atvinnuleysið hefur
aukið þörfina fyrir aðstoð.
Eftirlit og stjórnun
í skýrslu Alþjóðavinnumálastofn-
unarinnar er sagt, að félagslega
kerfið í Evrópu sé í kreppu en Col-
in Gillion, sem sinnir félagslega
tryggingakerfinu hjá ILO, segir, að
þótt óhjákvæmilegt sé að endurskil-
greina hlutverk ríkisins þurfi breyt-
ingin ekki að vera mjög róttæk:
„Ríkið verður eftir sem áður að
láta sig miklu skipta fyrirkomulag
lífeyris- og heilbrigðismála en það
verður að gera það fremur með því
að stjórna og hafa eftirlit með
markaðs- og samkeppnisöflunum
en að annast þjónustuna sjálft,“
sagði Gillion.