Morgunblaðið - 20.09.1995, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 20.09.1995, Blaðsíða 10
MORGUNBLAÐIÐ 10 MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 1995 FRÉTTIR Launþegar mót- mæla hækkunum og skattfrelsi MORGUNBLAÐINU hefur borist fjöldi fréttatilkynninga, þar sem kauphækkun þingmanna og æðstu embættismanna ríkisins er mótmælt og sérstaklega 40 þúsund króna skattfijálsri kostnaðargreiðslu til þingmanna á mánuði. I frétt frá stjórn Félags bókagerð- armanna segir, að jafnlaunastefnan hafí verið brotin á bak aftur og grundvöllur síðustu kjarasamninga sé brostinn. í sama streng tekur Iðja, félag verksmiðjufólks, sem segir að nú verði að iáta af þjóðar- sáttadraumum. Stjóm Verka- mannafélagsins Hlifar í Hafnarfirði segir að hækkun Kjaradóms stað- festi þá stefnu stjómvalda að auka misréttið í þjóðfélaginu. Stéttarfélög víða um land fund- uðu sérstaklega fimmtudaginn 14. september. í ályktun sameiginlegs fundar stéttarfélaganna á Akranesi þann dag segir, að fordæmd sé sú ákvörðun Alþingis að setja sérlög um skattalega meðferð greiðslna til alþingimanna, á sama tíma og skattayfirvöld séu að eltast við skattlagningu á nánast hvem ein- asta kaffíbolla sem almennur launa- maður þiggi hjá vinnuveitanda sín- um. Fundur stéttarfélaga í Vest- mannaeyjum skorar á samtök launafólks að krefjast sömu skatta- ívilnana og alþingimenn skömmtuðu sér og sömu launahækkana og fel- ast í úrskurði kjaradóms. Útifundur verkalýðsfélagsins Vöku á Siglufirði skorar á aðila vinnumarkaðarins að dusta rykið af 17. grein kjarasamn- ingsins frá 21. febrúar, þar sem fjallað er um eftirlit með þróun efna- hags-, atvinnu- og verðlagsmála, ásamt uppsagnarákvæðum samn- ingsins. Geti forysta verkalýðs- hreyfingarinnar ekki spymt við fór- um þarfnist hún endumýjunar hið fyrsta. Verkalýðsfélag Austur-Húnvetn- inga mótmælir skattfijálsum greiðslum sem nemi 480 þúsund krónum á ári til hvers þingmanns, en það jafngildi 85% af árslaunum á lægsta taxta hjá Alþýðusambandi Norðurlands. Verkalýðs- og sjó- mannafélag Vopnafjarðar lýsir furðu sinni á þeirri ósvífni og hroka, sem birtist í ákvörðun Kjaradóms og forsætisnefndar Alþingis. Öfugstefna Öryrkjabandalag íslands segir öfugstefnu felast í því að handhafar löggjafarvaldsins skenki sér dijúgar fjárhæðir utan skatttöku, um leið og gengið sé fastar eftir skattskilum tryggingaþega af bensínpeningum og húsaleigubótum. Starfsfólk íshússfélags ísfirðinga sendi kveðju á útifund verkalýðsfé- laganna á Ingólfstorgi á fimmtudag og loks hefur Morgunblaðinu borist undirskriftalisti starfsmanna Guð- mundar Runólfssonar hf., sem mót- mæla „siðlausri ákvörðun Alþingis um skattlaus laun til handa alþingis- mönnum". Smáiðnaður Til sölu er sérstök kertaframleiðsla sem getur verið hvar sem er á landinu; sveitaheimili, þorpi, kaupstað eða borg. Framleiðslugeta er fyrir 33 millj. á ári. 2-4 störf. Öll tæki, hráefni, umbúðir og kennsla fylgja með. Þarf ca 150 fm hús- næði. Tilb. til afhendingar og framleiðslu strax til að lýsa upp skammdegið. ryrrrTTTF7^T?7Tv^rrnrrnn SUÐURVE R I SÍMAR581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON. CCO IICÍICM 1 Q7fl LÁRUS Þ. VALDIMARSSON, iramKVÆMDASUóri UUl IIUUUUl lU/U KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, löggiltur fasieignasali Til sýnis og sölu meðal annarra eigna: Einbýlishús - frábært útsýni Við Digranesveg endurn. einb. Mjög stór 3ja herb. íb. á hæð. Nýtt eldhús. Ný sólstofa. Nýtt parket. Kjallari: 2 herb., bað, þvottah. og geymsla. Stór ræktuð lóð. Eignaskipti mögul. Tilboð óskast. Fyrir smið eða laghentan Lítil sérib. á efri hæð í steinh./tvíbýlish. við Vesturgötu. Útsýni. Tilboð óskast. Skammt frá Háskólanum Stór sólrík 3ja herb. íb. tæpir 90 fm á 4. hæð. Nýtt gler. Sér þvotta- aðst. Ágæt sameign. Langtímalán kr. 4,5 millj. Stórt endaraðh. - tilboð óskast Á vinsælum stað við Brekkusel. Húsið er jarðhæð og tvær hæðir alls 6 svefnherb., 2-stofur m.m. Bílskúr. Góð lán fylgja. Eignaskipti möguleg. í meira en hálfa öld hefur Almenna fasteignasalan útvegað traustum viðskiptamönnum sín- um íbúöir og aðrar fasteignir af flestum stærðum og gerðum. Sérstaklega óskast að þessu sinni: Raðhús á einni hæð, má vera í Fellahverfi. Einbýlishús í Smáíbúðahverfi. 5 herb. hæð í Hliðunum með bílskúr. íbúðir og sérbýli, þ.e. eignir, sem þarfnast endurbóta. Traustir kaupendur - iðnaðarmenn. Vinsamlegast leitið nánari upplýsinga. Viðskiptum hjá okkur fylgir ráðgjöf og traustar upplýsingar. Opið á laugardögum. L#U6&VE6M^^5M15fl-552 137D ALMENNA FASTEIGNASALAN ÁLSEYINGAR á kafi I hamflettingu í síðustu viku, enda ekki seinna vænna þar sem óðum styttist í lundaballið og eins gott að öllum sumarverkum verði lokið þá. Sögulegum lundaveiði- tíma í Eyjum lokið Vestmannaeyjum. Morgunblaðið. ÞÓTT rúmur mánuður sé liðinn frá því lundatíma lauk eru lunda- veiðimenn i Eyjum enn að ganga frá eftir útháldið, verka fuglinn og gera klárt fyrir veturinn og innan skamms munu þeir form- lega slútta úthaldinu með árlegu lundaballi, eins og árshátíð Bjarg- veiðimannafélagsins í Eyjum er kölluð. Lundaúthaldið i ár gleymist lundakörlum i Eyjum iiklega seint vegna veiðikortanna ag alls þess sem þeim fylgdi. Sumarið var því um margt frábrugðið fyrri sum- rum, framan af, því fjölmargir höfðu ekki fengið sér veiðikort og notuðu því tímann í upphafi lundavertíðarinnar til annars en lundaveiði. Eftir að lögreglan í Eyjum sýndi fram á að því yrði fylgt eftir af hörku að lundaveiði- menn hefðu veiðikort náðu flestir veiðimenn sér í kort og gátu því sinnt lundaveiði seinnipart sum- ars ótruflaðir. Mikill lundi var í Eyjum i sum- ar og er veiði sumarsins mjög góð. Erfitt er að fá nákvæmar tölur um sumarveiðina en ljóst er að hún skiptir tugum þúsunda fugla og munu veiðimenn í Ysta- kletti hafa veitt mest allra í Eyjum þetta sumarið eins og reyndar mörg undanfarin sumur. En úteyjalífið gengur ekki bara út á lundaveiði, þar eru menn til að slappa af og eiga góðar stund- ir í góðum félagsskap og þegar veður leyfir fá úteyingar oft góð- ar heimsóknir og slegið er upp veislum ef tilefni gefst til. Á myndum Sigurgeirs, sem hann tók af lundaúthaldinu í sum- ar, má sjá að lífið í úteyjunum gengur ekki bara út á lundaveiði lundakarlanna heldur er margt fleira sem úteyjalífið býður uppá og börnin fá einnig að pjóta sín í úteyjalífinu. Alvarlegar rangfærslur Sjóvár-Almennra hf. Athugasemd frá N.H.K. International Ltd. MORGUNBLAÐINU hefur borist athugasemd frá Gísla Maack, lög- gilts vátryggingamiðlara, en hún er send fyrir hönd N.H.K. International Ltd. í London: ÞAR sem alvarlegár rangfærslur koma fram í grein sem forstjóri Sjóvá-Almennra hf. skrifar í Morg- unblaðið í gær, þá sé ég mig knúinn til að koma eftirfarandi staðreyndum málsins á framfæri við lesendur blaðsins, þó að markmið mitt sé ekki að troða illsakir við forstjórann: 1. Það er rangt að N.H.K. Inter- national Ltd. hafi ekki gert athuga- semdir við framkvæmd útboðsins fyrr en eftir að tilboð voru opnuð. Hið rétta er að N.H.K. International Ltd. skilaði inn skriflegum og rök- studdum mótmælum vegna fram- kvæmd útboðsins áður en tilboð voru opnuð. Þessi mótmæli eru bókuð í gerðabók Ríkiskaupa og fulltrúi Sjóvá-Almennra hf. var viðstaddur þegar þau voru lesin upp. 2. Það er rangt að Sjóvá-Almenn- ar hf. hafi tekið þátt í útboði Ríkis- kaupa á vátryggingum TF-LÍF á jafnréttisgrundvelli. Hið rétta er að 45 dögum fyrir útboð þá tilkynnti Landhelgisgæslan inn á markaðinn í London, að stofnunin hefði útnefnt Sjóvá-Almennar hf. og Willis Corro- on Aerospace til að annast allar núverandi og framtíðar vátrygging- ar fyrir stofnunina, sbr. meðf. afrit af bréfi forstjóra Landhelgisgæsl- unnar sem óskað er eftir að Morg- unblaðið birti með athugasemdum þessum. Fyrir allan almenning eru forréttindi ekki sama og jafnrétti og því virðist hér um alvarlegan hug- takarugling að ræða. 3.Eins og áður hefur komið fram í Morgunblaðinu ( þ. 18.júlí sl. ) þá kom N.H.K. International Ltd. að lokuðum markaði eftir að forráða- menn Landhelgisgæslunnar höfðu gefið skrifleg fyrirmæli um að Sjóvá- Almennar hf. myndu annast allar þeirra “núverandi og framtíðar" vá- tryggingar. Af þessu leiddi að frest- ur til að skila tilboðum var alltof stuttur fyrir þann aðila sem ekki hafði áður fengið forgang að þessum tryggingum, þó að það sé vel skiljan- legt að fresturinn hafi verið meira en nægur fyrir Sjóvá-Almennar hf. Þegar hér var komið sögu átti N.H.K. International Ltd. um tvennt að velja, þ.e. að leggja niður skottið og gefast upp fyrir ólöglegum athöfn- um forráðamanna Landhelgisgæsl- unnar, eða skila inn tilboði sem vitað var að væri of hátt, og öðlast þannig andmælisrétti í málinu. Síðari kostur- inn var valinn og hefur nú leitt til þess að almenningur í landinu hefur orðið vitni að þeim vinnubrögðum sem viðhöfð voru í þessu máli. Að lokum fylgir hér með úrdráttur úr bókun N.H.K. International Ltd. sem lögð var fram hjá Ríkiskaupum fyrir opnun tilboða : “Fyrir nokkrum mánuðum síðan og að því að best er vitað á mrðju vátryggingatíma- bili, og án augljóss tilefnis þá færðu forráðamenn Landhelgisgæslu ís- lands, vátryggingar á Dauphine þyrlunni TF-SIF frá vátryggingam- iðlaranum Nicholson Leslie Aviation til Willis Corroon Aerospace ( áður Willis Faber ), án þess að fram færi útboð eða öðrum væri gefinn kostur á að annast þessi viðskipti. Þar sem Willis Corroon Aerospace annast endurtryggingu flugvéla- trygginga Sjóvá-Almennra hf., þá hefur þessi aðgerð forráðamanna Landhelgisgæslu íslands valdið því að aðilar sitja nú ekki allir við sama borð við útboð á vátryggingum fyrir TF-LÍF. Þegar við bætist mjög ófull- komin uppiýsingagjöf í útboði og sú staðreynd að aðeins er veittur lág- marks frestur til að skila tilboðum þrátt fyrir að afhendingartími vélar- innar hafí verið kunnur í a.m.k. eitt ár, þá verður öll framkvæmd þessa máls að teljast furðuleg og gefur fullkomið tilefni til tortryggni." f.h. N.H.K. International Ltd. Gísli Maack, lögg. vátryggingamiðlari.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.