Morgunblaðið - 20.09.1995, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 20.09.1995, Blaðsíða 17
MORGTJNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 1995 17 ERLENT V. Anand Reuter Fimmta j afnteflið GARRI Kasparov heimsmeistari og Viswanathan Anand, áskor- andi hans, gerðu fimmta jafn- teflið í einvíginu um heimsmeist- aratitilinn í skák, sem haldið er í New York, eftir 27 leiki. Hvor þeirra hefur nú tvo og hálfan vinning. Anand stýrði hvítu mönnunum og þótti sýna mikla varkárni. Hann setti kóngspeðið fram í fyrsta leik og Kasparov beitti Sikileyjarvörn þriðja sinni í ein- víginu. Upphaf skákarinnar var það sama og í þriðju skákinni þar til Kasparov breytti út af í 14.1eik. í 19. leik átti Anand þess kost að hefja sókn upp kóngsvænginn með því að ota fram peði, en hann kaus þess i stað að leika hlutlausan drottningarleik eftir 36 mínútna umhugsun. Kasparov hinn rússneski og Anand hinn indverski eru ann- álaðir fyrir djarflega tafl- mennsku, en þeir hafa ekki kos- ið að blása til sóknar í þessu ein- vígi. Áhorfendum hefur þótt taflmennska þeirra litlaus og hafa þeir haft á orði að aðgangs- eyrinum væri betur varið í ann- að. Tefldar verða 20 skákir og sá vinnur, sem fyrr hlýtur tíu og hálfan vinning. Standi leikar jafnir að loknum tuttugu skák- um mun Kasparov halda titlin- um. Hér tefla Anand og Ka- sparov fimmtu skákina í hljóð- einangruðum glerklefa. Heims- meistarinn á leikinn. Sahlin gefur kost á sér sem arftaki Carlssons Kaupmannahöfn. Morgunblaðid. EF SÆNSKI Jafnaðarmanna- flokkurinn fylgir flokksforystunni eftir stefnir í að arftaki Ingvars Carlssons, flokksformanns og for- sætisráðherra, verði Mona Sahlin, 38 ára gamall flokksritari og vara- forsætisráðherra. Hún tilkynnti í gær að hún myndi taka slíkri áskor- un, eftir að Jan Nygren, sem hefur verið orðaður við framboð, hafði tilkynnt að hann gæfi ekki kost á sér. Sahlin nýtur vinsælda ungs fólks og kvenna, en í gær voru uppi radd- ir úti um að í ljósi úrslita Evrópu- þingkosninganna væri ESB-and- stæðingurinn Margaretha Winberg landbúnaðarráðherra betri fulltrúi. Hörð í horn að taka Þegar Jan Nygren tilkynnti í gær að hann gæfi ekki kost á sér, sagði hann það vera af persónulegum ástæðum, en líka vegna þess að hann styddi Sahlin. Hún væri ung, kona og hefði auk þess metnað til að vinna vel. Mona Sahlin var kosin á þing aðeins 25 ára gömul. Hún þykir hörð í horn að taka, fylgin sér og óhrædd að fara ótroðnar slóðir og alþýðleg í framkomu og málflutn- ingi. Aðrir segja hana yfirborðs- kennda og flöktandi. í viðtali við Morgunblaðið í jan- úar varð Sahlin tiðrætt um að ell- efta stund Svía væri upprunnin og brygðust þeir ekki rétt við núna, væri vel- ferð þeirra í hættu og efna- hagslegt sjálf- stæði. Líkt og ýmsir yngri flokksmenn er hún ófeimin við að krydda gamlar flokkskenningar markaðshagfræði. Eins og er bend- ir margt til þess að hún fái nú tækifæri til að veita flokknum for- ystu og breyta orðum í gerðir. Mona Sahlin Flugþj ómi rænir flugvél ísraelar neita að senda flugræningjann til írans Ovda. Reuter. FLUGÞJÓNN rændi flugvél í innan- landsflugi í íran og gaf sig á vald hermönnum þegar hún lenti á her- flugvelli í ísrael í gær. 178 manns voru í flugvélinni og engan þeirra sakaði. ísraelar höfnuðu kröfu Irana um að senda flugþjóninn aftur til írans. Flugþjónninn tók upp byssu og krafðist þess að flugvélinni yrði flog- ið til Evrópu en til þess hafði hún of lítið eldsneyti. Hermt er að maður- inn hafi viljað komast til Bandaríkj- * Reuter ÍRÖNSK flugvél á hervelli í ísrael eftir að flugþjónn, sem rændi henni, gafst upp. anna. Vildi afstýra flugslysi Flugvélinni, sem var af gerðinni Boeing 707, var neitað um lending- arleyfi i Saudi-Arabíu og Jórdaníu. ísraelar, sem íranir líta á sem erki- óvini sína, heimiluðu henni að lenda á herflugvelli á eyðimörk í suður- hluta landsins. „Mér var sagt að hún væri með lítið eldsneyti og ég vildi ekki bera ábyrgð á því að vél full af farþegum hrapaði," sagði Yitzhak Rabin, forsætisráðherra ísraels. Flugstjórinn vildi fá að ienda í Tel Aviv, en ísraelsk yfirvöld óttuðust að vélin kynni ef til vill að vera í árásarferð og beindu henni því á herflugvöllinn. Farþegarnir gengu rólega út úr flugvéiinni rúmum fimm klukku- stundum eftir að hún lagði af stað frá Teheran til Kish við Persaflóa. Flugvélin tók eldsneyti á flugvellin- um og átti síðan að fara aftur til írans. íranska fréttastofan IRNA sagði að íranir hefðu hlýtt á samtöl ísrael- skra embættismanna og flugræn- ingjans og þau bentu til þess að flug- ránið hefði verið skipulagt í samráði við ísraela. íranir hefðu krafist þess að allir sem voru í vélinni og þar með flugræninginn yrðu sendir aftur til írans. Moshe Shahal, ráðherra lögreglu- mála í ísrael, sagði ekki koma til greina að senda flugræningjann aft- ur til írans. Játa aðild að árás á Shevardnadze Herör gegn spillingu Tblisi. Reuter, YFIRVÖLD í Georgíu tilkynntu á mánudag að menn, sem handtekn- ir hefðu verið í ágúst, hefðu játað aðild að sprengjuárás á Eduard Shevardnadze, forseta landsins, auk fjölda annarra ofbeldisverknaða, þar á meðal þriggja pólití- skra morða. í gær sagði Shevardnadze að skera ætti upp he- rör gegn spillingu í landinu. „Hryðjuverkamenn- irnir . . . hafa játað að hafa framið glæp- ina,“ sagði Shota Kvaraya, innannkis- ráðherra Georgíu, í yfirlýsingu í sjónvarpi. Hann sagði ekki með hvaða hætti mennirnir’ voru viðriðnir tilræðin. Temur Khachas- hvili, fyrrum aðstoða- röryggisráðherra, og Gia Gelashvili, einum forystu- manna samtakanna Mkhredioni (Reiðmannanna), var gefið að sök að hafa lagt á ráðin um tilræðið. Khachashvili var einnig sagður viðriðinn samtökin. „Vafasöm fyrirbæri“ „í ljós kom að öryggisstofnanir voru ekki aðeins gegnsýrð vafa- sömum fyrirbærum, heldur einnig glæpamönnum,“ sagði She- vardnadze þegar hann boðaði her- förina gegn spillingu. Undirmaður hans lét að því liggja að reynt hefði verið að ráða hann að dögum til að spillingin fengi þrifist. Lögregla handtók 100 félaga Mkhedri- oni, sem eru samtök þjóðvarðliða og sam- nefnari skipulagðrar glæpastarfsemi í hug- um Georgíumanna, eftir að sprengja sprakk við bílalest Shevardnadze 29. ág- úst. Vill samtökin óvirk Shevardnadze, sem var síðasti utanríkis- ráðherra Sovétríkj- anna, er mikið í mun að gera þessi samtök óvirk, ekki síst vegna þess að helsti and- stæðingur hans í for- seta- og þingkosningunum í nóv- ember, Jaba Ioseliani, er leiðtogi þeirra. Hópurinn, sem játaði tilræðið við Shevardnadze, viðurkenndi einnig að hafa myrt stjórnarand- stöðuleiðtogann Georgy Chantur- ia, sem var skotinn í höfuðið í desember, morðið á aðstoðarinn- anrikisráðherra í apríl 1994 og að hafa banað stjórnmálamanninum Sulinko Khabeishvili í júní í ár. Eduard Shevardnadze Réttarhöldin yfir Giulio Andreotti Margir fyrir- menn á vitna- lista verjenda Giulio Francesco Javier Perez Andreotti Cossiga de Cuellar Róm. Reuter. LÖGFRÆÐINGAR Giulios Andreottis, fyrrverandi forsætis- ráðherra Ítalíu, sem verður sóttur til saka fyrir meinta aðild að sikileysku mafíunni, sögðu á mánudag að margir þekktir stjórnmálaskörungar og stjómarerindrek- ar hefðu fallist á að bera vitni í hans þágu. Veijendur og sækjendur í máli Andreottis lögðu fram lista yfír vitni í réttarhöldunum sem hefjast í Palermo á Sikiley á þriðjudag í næstu viku. Verjend- urnir sögðu að á meðal þeirra, sem hefðu samþykkt að bera vitni um mannorð Andreottis, væru Javier Perez de Cuellar, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, og Hans- Dietrich Genscher, fyrrverandi utanríkisráðherra Þýskalands. Meðal stjórnarerindrekanna eru Vernon Walters, fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, og tveir fyn-verandi sendiherrar Banda- ríkjanna á Ítalíu, Peter Secchia og Maxwell Raab. Margir ítalskir stjórnmála- menn, þeirra á meðal Francesco Cossiga, fyrrverandi forseti ítal- íu, eru einnig á vitnalista veij- endanna. Sakaður um mafíutengsl Vitni veijendanna verða alls 116 en sækjendanna um 400 og búist er við að réttarhöldin taki marga mánuði. Fyrir réttinn koma 24 fyrrver- andi félagar í mafíunni, sem hafa veitt lögreglunni upplýs- ingar um starfsemi sikileysku glæpasamtakanna. Þeir halda því fram að Andreotti hafi beitt áhrifum sínum til að vernda mafíuna til að tryggja Kristileg- um demókrötum atkvæði á Sikil- ey- Andreotti, sem er 76 ára og gengdi forsætisráðherraembætt- inu sjö sinnum, hefur vísað þess- um ásökunum á bug. Hann seg- ir að sikileyska mafían standi á bak við ásakanirnar þar sem hún vilji hefna aðgerða gegn henni sem hann hafi fyrirskipað á valdatíma sínum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.