Morgunblaðið - 20.09.1995, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 20.09.1995, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 1995 35 _______FRÉTTIR_____ Fræðsludagskrá í Húsdýragarðinum STARFSEMIN í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum hefur gengið vel á þessu sumri og hafa komið nærri 160.000 gestir í garðinn það sem af er þessu ári. Vetrarstarfsemin er hafín í Húsdýragarðinum og er skipulögð fræðsludagskrá fyrir grunnskóla og aðrar líkar stofnanir að hefjast á næstu dögum. Fjöl- skyldugarðurinn verður opinn sem útivistarsvæði í vetur enda er vin- sælt að ganga þar um og njóta gróðurs og umhverfis en Fjöl- skyldugarðurinn er eingöngu starf- ræktur yfir sumarmánuðina. Kaffihúsið í garðinum verður opið í allan vetur á sama tíma og garðurinn og gefst þá gestum kost- ur á að setjast niður og fá sér hress- ingu. Breytingin sem orðið hefur á opnunartíma garðsins er að Hús- dýragarðurinn er opinn alla virka dga frá kl. 13-17, nema lokað á miðvikudögum og opið er um helg- ar frá kl. 10-18. Aðgangseyrir er 100 kr. fyrir börn 6-16 ára, 200 HAUST í Húsdýragarðinum. kr. fyrir fullorðna og ókeypis fyrir böm að 6 ára aldri og ellilífeyris- þega. Ráðstefna um sorg í kjölfar náttúru- hamfara og slysa NÝ Dögun, samtök um sorg og sorgarviðbrögð, heldur ráðstefnu í Gerðubergi næstkomandi laugar- dag, 23. september. Að lokinni skráningu, sem er milli klukkan 9 og 9.30, flytur Páll Eiríksson, geðlæknir, erindi um sorg í kjölfar náttúruhamfara og slysa. Sigríður Hrönn Elíasdóttir fýrrverandi sveitarstjóri í Súðavík, talar um snjóflóðið á Súðavík fýrr á þessu ári og syrgjandi talar um snjóflóðið á Neskaupstað 1974. Klukkan 13 fjallar Margrét Arn- ljótsdóttir sálfræðingur um áfalla- streitu. Gert er ráð fyrir spurning- um að erindum loknum. Elín Hirst og Jóna Dóra Karlsdóttir fjalla síð- an um hlut fjölmiðla og að því loknu verða umræður. Ráðstefnugjald er krónur 1300 og er súpa, brauð og kaffi innifalið. Skráning á ráðstefnuna er hjá Jónu Dóru Karlsdóttur, Önnu Maríu Jó- hannsdóttur, Elísabetu Ingvars- dóttur, Sonju B. Jónsdóttur, Elín- borgu Jónsdóttur eða Vilhelmínu Þorsteinsddóttur. Morgunblaðið/Olfar Ágústsson FRÁ Núpi í Dýrafirði Endurfundur nemenda Núpsskola NEMENDUR skólans á Núpi í Dýra- fírði á árunum 1949-1953 koma saman til endurfunda að Hótel Sögu laugardaginn 23. september nk. Endurfundirnir eru tvíþættir. Nemendur hittast fyrst kl. 15 síðdeg- is einir sér en kl. 19.30 hefst borð- hald í Súlnasal þar sem makar'og aðrir gestir bætast í hópinn. Heiðursgestir kvöldsins verða 1949-1953 Kristín Jónsdóttir, ekkja Eiríks J. Eiríkssonar, skólastjóra, Þyrí Jens- dóttir, ekkja_ Arngríms Jónssonar, skólastjóra, Ólafur Kristjánsson, fv. kennari og kona hans Sólveig Krist- jánsdóttir og Jens Zophaníasson, umsjónarmaður Núpsskóla. . Súlnasalur verður síðan opnaður almenningi kl. 24 og mun hljómsveit hússins leika fyrir dansi. Fyrirlestur um framtíðarfræði DR. TAE-Chang Kim, prófessor við Háskólann í Kyushu í Japan og forseti Institute for Intergrated Study of Future Generations í Osaka, flytur opinberan fyrirlestiir á vegum heimspekideildar Há- skóia íslands fimmtudaginn 21, september. Fyrirlestu'r dr. Kim nefnist Hagur komandi kynslóða og verður fluttur á ensku. í fyrirlestri sínum mun dr. Kim fjalla um þann hugsunarhátt sem menn þurfa að tileinka sér til að leysa lífsverkefni sín á farsælan hátt. Hann mun m.a. ræða um siðferðilega afstæðishyggju sam- tímans og gagnrýna hana. Fyrirlestur inn verður fluttur í stofu 101 í Odda, hann verður um klukkustunda langur og hefst kl. 17.15. Öllum er heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir. AFMÆLI SIGURÐUR KR. ÁRNASON SIGURÐUR Kr. Arna- son er 70 ára í dag. Hann brá sér til Rómar með konu sinni á þess- um tímamótum til þess að litast um í þeirri miklu listaverkaborg. Lengi hefur hugur hans verið bundinn við listina, einkum mynd- list, en viða hefur hann komið við á lífsleiðinni. Það vekur undrun vina hans hversu góðum tökum hann hefur náð á hinum margvíslegu hugðarefnum sínum. Þessi hægláti, hlýi maður , húsa- smíðameistari, kirkjusmiður, list- málari og sjálfmenntaður jarðfræð- ingur, áhugamaður um stjörnufræði og skógrækt, bókagrúskari og könnuður stendur fyrir hugskots sjónum okkar vina hans yfirvegaður og athugull, allt að því hlédrægur, en eldur brennur undir. Sigurður er fæddur í Vestmanna- eyjum 20. september 1925. Foreldr- ar hans voru Ámi Magnússon , sjó- maður og bóndi, fæddur á Steinum undir Eyjafjöllum, og Helga Sveins- dóttir, fædd í Hólmabæ í Flóa. Árni var sonur Jóns Valdasonar frá Steinum en hann kom mjög við sögu í deilum um rekaspýtur undir Eyja- fjöllum á sínum tíma, sem um er getið í bókinni Fár undir Fjöllum. Móðurfólk Árna var frá Skógum undir Eyjafjöllum, af ætt Jóns Stein- grímssonar eldprests. Sigurður er elstur af sjö systkinum. Árið 1956 kvæntist Sigurður konu sinni, Vil- borgu Vigfúsdóttur frá Húsatóftum á Skeiðum. Foreldrar Vilborgar voru Vigfús Þorsteinsson, bóndi á Húsat- óftum, og kona hans, Þórunn Jóns- dóttir, sem enn er á lífi, fædd á Hlemmiskeiði á Skeiðum. Börn Sig- urðar og Vilborgar eru: 1) Þór, húsasmiður, kvæntur Birnu Elísabet Óskarsdóttur. Þeirra bam er Ámý Helga. 2) Ámi, jarðeðl- isfræðingur, kona hans er Kristín Björg Guðmundsdóttir. Þeirra böm em Sigurður Kári og Guðmundur Garðar. 3) Sigríður, leikskólakenn- ari, maki Daniel Allan Pollock hljóm- listarmaður. Þeirra böm em Tanya Lind og Justin Þór. 4) Geir, húsa- smiður og kafari, maki Aðalheiður Sveinbjömsdóttir. Þeirra böm era Sveinbjörn, Snævar Geir og Inga Stefanía. 5), Öm töivunarfræðingur, 6) Helga, dó ung. 7) Helgi, kerfís- fræðingur, maki Evelyn Bryner. Fyrir hjónaband eignaðist Sigurð- ur Guðnýju Sólveigu. Móðir hennar er Ragnheiður Björnsdóttir. Maki Guðnýjar er Gunnlaugur F. Lúthers- son. Börn Guðnýjar eru Ragnar Heiðar Sigtryggsson og Lúther Þór, Guðni Björn, Sigurður Gísli og Helgi Páll Gunnlaugsböm. Sigurður Kr. Ámason ólst upp í Vestmannaeyjum og enginn vafi er á að það umhverfi hefur mótað hann mjög strax á æskuárum. Sjálfur hefur hann sagt mér frá því hve mikið aðdráttarafl sjórinn og björgin höfðu með öllum sínum viðfangsefn- um. Fuglinn í björgum og fjöru, smáfiskar í lónum og við bryggjurn- ar þar sem strákarnir veiddu. Þegar líða tók á daginn komu bátarnir inn með aflann og athafnasemin var hvarvetna. Sigurður var í sveit sem strákur.bæði á Stóra-Borg undir Eyjafjöllum og síðar á Baugsstöðum austan Stokkseyrar. Á Stóra-Borg kynntist hann lífinu í torfbæjunum eins og því hafði verið lifað í land- inu í aldaraðir, eina tækið á bænum var skilvindan. Árið 1937 fluttu foreldrar Sigurð- ar til Reykjavíkur frá Vestmanna- eyjum og bjuggu fyrst við Berg- staðastíg en síðar í Laugarnesi. Á þeim áram var Sigurður sendill hjá Einari Eyjólfssyni kaupmanni sem rak verslun á homi Kleppsvegar og Sundlaugavegar og hlóð mjólkur- flöskum á hjól sitt og dreifði i húsin við Kleppsveg. Foreldrar Sigurðar hófu sfðar búskap á Kröggólfsstöðum í Ölfusi en á þeim áram flútti Sigurður að heiman og hóf nám í húsasmíði og myndlist. Húsasmíða- námi lauk hann árið 1949. Til Eyja fór hann aftur og fékk skipsrúm hjá móðurbróður sín- um, Elíasi Sveinssyni á. Sjöstjörnunni, og var á vertíðum og síld fyrir norðan og austan land. Smíðar hóf Sigurður síðan hjá Sambandi ís- lenskra samvinnufé- laga og byijaði fljót- lega að starfa á teikni- stofu þar. Hann réðst til Guðbjöms Guðmundssonar byggingarmeistara og var hjá honum yfirsmiður við byggingu Bændahallarinnar. Síðan gerðist Sigurður verktaki, fýrst í samvinnu við Hauk Guðjónsson byggingarmeistara en svo sjálfstæð- ur byggingarverktaki. Mörg mann- virki reisti hann fyrir Seltjarnar- nesbæ, Hitaveitu Reykjavíkur og Landsvirkjun, svo nokkuð sé nefnt. Sigurður byggði Seltjamameskirkju og Áskirkju. Árið 1982 hóf hann störf fyrir Landsbanka íslands, fyrst við bygg- ingareftirlit en nú síðustu árin hefur hann haft umsjón og eftirlit með myndverkum bankans. Sigurður hefur víða komið að fé- lagsmálum. Hann sat um tíma í bæjarstjórn Seltjamarnesbæjar sem varamaður, um árabil í byggingar- nefnd bæjarins, í stjóm náttúru- fræðisafnsins þar og í stjóm lista- og menningarsjóðs bæjarins. Hann stofnaði ásamt Þorsteini Sæmunds- syni stjörnufræðingi Stjömuskoðun- arfélag Seltjarnarness, sat í fyrstu stjóm þess, og gaf félaginu 14 tommu Celecstron spegilsjónauka, sem, ef ég hef réttar upplýsingar, er enn þann dag í dag stærsti sjón- aukinn í landinu. Sjónaukinn er á þaki Valhúsaskóla með yfirbyggðu hreyfanlegu hvolfþaki. Nú er Stjörnuskoðunarfélagið orðið nokk- uð fjölmennt félag. Ég held að uppistaðan í Náttúra- fræðasafni Seltjamarness sé gripir sem Sigurður hefur gefið safninu. Þeim gripum hefur Sigurður safnað saman á ferðum sínum eða aflað á annan hátt með útsjónarsemi sinni. Sjálfur á Sigurður ágætt steinasafn, þó hann hafi látið náttúrugripasafn- ið fá bestu gripina. En auk umfangsmikillar starfsemi að húsasmíðum og verktöku og ijöl- mörgum félagsmálum hefur Sigurð- ur fundið tíma til þess að mála. Hann stundaði nám í Myndlistaskó- lanum í Reykjavík og Handíða- og myndlistaskólanum. Um tíma kenndi hann myndlist á námskeiðum á Sel- tjamamesi. Mér telst til að Sigurður hafi haldið átta einkasýningar. Ég nefni: í Málaranum, Bankastræti, FIMET RAFMOTORAR Eigum til á iager alhliba rafmótora í stærbunum 1,1 - 45 KW. Útfærslur:.«lP55 •meb fót og flans Sig. Sveinbjörnsson hf. Skeibarási 14 Sími: 565-8850 Fax: 565-2860 1961, Bogasal Þjóðminjasafnsins, 1963, Bogasal Þjóðminjasafnsins, 1966, GaleriM, Kaupmannahöfn, 1967, Iþróttahúsinu á Seltjamar- nesi, 1974, Bamaskólanum á Bol- ungarvík, 1976, Kjarvalsstöðum, 1982, Gallerí Borg, 1988. Auk þessa hefur hann tekið þátt í mörgum samsýningum meðal ann- ars í Lubeck og Berlín svo nokkuð sé nefnt og sérstaka viðurkenningu hefur hann hiotið á Ítalíu. Ég hef heyrt þar til bæra menn segja að erfítt sé að ná lengra í málaralist en Sigurður hefur náð til hliðar við umfangsmikla atvinnustarfsemi, til þess þurfí að helga sig listinni óskiptur. Mér virðist sem landslags- myndir hans í kúbiskum stíl hafi vakið verulega athygli og þar á Sig- urður enn eftir að vinna úr myndefn- inu og útvíkka það. í sumum mynd- um sínum hefur honum tekist að ná fram einhverri undarlegri dulúð sem erfitt er að lýsa en hefur mögn- uð áhrif. Hver veit nema honum gefíst tími til að glíma frekar við þessar hugmyndir á komandi áram. Áhugi Sigurðar á jarðfræði er mikill. Ófáar náttúraskoðunarferðir hefur hann farið um ævina. Það er gaman að fara með honum í slíkar ferðir. Athugull og fróður vekur hann athygli á íjölmörgum atriðum í landslagi sem fram hjá flestum fara. í slíkum ferðum fer hann snemma á fætur og nýtur morgun- stundanna. Oft er hann búinn að mála fallega landslagsmynd eða leggja drög að henni þegar sam- ferðamenn hans rísa úr rekkju. Sigurður hefur alla ævi unnið langan vinnudag. Samt hefur hon- um einhvern veginn tekist að fínna stundir til þess að sinna fjölmörgum viðfangsefnum, jafnvel að leika bad- minton og tefla skák. Þar dugar ekki áhuginn einn, fyrir hendi þarf að vera mikið starfsþrek og vilja- styrkur. Hann hefur lengst af haft fyrir þungu heimili að sjá. Sigurður er gæfumaður í einkalífí. Villa hefur búið honum gott heimili og á stóran þátt í því að lífsstarf hans er orðið svo mikið að vöxtum. Heimilið og fjölskyldan hafa alla tlð verið aðal- atriði í lífi Sigurðar. Samheldni þeirra hjóna er góð. Það er ánægju- legt að heimsækja þau. Þar ríkir einhver léttur andi innan dyra. Villa er greind kona og tekur mikinn þátt í starfí og áhugamálum manns síns. Þau hafa á efri árum mikla ánægju af barnabörnunum og það er eins og Sigurði takist að gera allar ferðir og atburði með börnum og barnabörnum að spennandi æv- intýram. Það era ekki margar helg- ar sem þau hjónin bregða sér ekki út úr bæjarþysnum út í náttúruna. Ágætan sumarbústað eiga þau í Skorradal og á leigulandi sínu í Fellsmörk í Mýrdalnum hafa þau ræktað skóg á síðustu árum. Ég sendi þeim hjónum innilegustu hamingjuóskir á þessum tímamótum og vona að framundan séu margar gæfubjartar stundir. Guðm. G. Þórarinsson. / : STANDIX Álinnréttingar [önnum og smíðum eftir þínum hugmyndum d. skápa, afgreiðsluborð, >kilti, auglysingastanda sýningarklefa o.mfl. > M ari l ^.t • Faxafeni 12. Sími 553 8000

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.