Morgunblaðið - 20.09.1995, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 1995 11
HAGALL
Frábær kostur fyrir
sjálfstætt starfandi fólk!
LÖGGILT VÁTRYGGINGAMIÐLUN
HAGALL, Árni Reynisson Ivtm, Túngata 5, Sími 55 11 110
FRÉTTIR
• Alþjóðlega bílasýningin í Frankfurt
------------v-----
Peugeot 406
tekur við af 405
PEUGEOT frumkynnti fólksbíl í efri millistærð-
arflokki, 406, arftaka 405, á alþjóðlegu bíiasýn-
ingunni í Frankfurt í síðustu viku. Það tók
aðeins 48 mánuði að fullhanna bílinn og smíða
hann og þykir það einstaklega skammur þróun-
artími hjá Peugeot og jafnvel innan bílaiðnaðar-
ins. Kostnaður við nýja bílinn nemur 1,2 millj-
örðum bandaríkjadollara, tæpum 80 milljörðum
ISK. Þar af fóru nálægt 35 milljarðar í rann-
sóknir en spamaður náðist með því nota vélar
úr Xantia frá systuríyrirtækinu Citroén.
Peugeot 406 verður í fyrstu aðeins fáanlegur
sem femra dyra stallbakur en seinna er væntan-
legur langbakur og tveggja dyra bíll. Hann er
með 1,8 lítra, 115 hestafla og 2,0 lítra, 135
hestafla bensínvélum og 1,9 lítra, 92 hestafla
og 2,0 lítra, 110 hestafla dísilvélum með for-
þjöppum. Bíllinn var frumkynntur um leið og
Peugeot 406 og Fiat
Brava/Bravo voru kynntir í
Frankfurt. Guðjón Guð-
mundsson var á sýningunni.
nýr Opel Vectra og ljóst er að þessir tveir bílar
munu beijast af hörku um hylli bílkaupenda.
Aðrir sem blanda sér í slaginn eru Ford Mondeo,
Renault Laguna og Citroén Xantia.
Meiri búnaður
406 mun mæta samkeppninni með meiri
búnaði en gengur og gerist og t.a.m. verður
staðalbúnaður rafdrifnar rúður, vökvastýri
sem þyngist við aukinn hraða í 2,0 lítra og
dísiltúrbó útfærslunum.
Mikil áhersla var lögð á öryggissjónarmið í
hönnun nýja bílsins. Högggleypar em í hliðum
bílsins og líknarbelgur í stýri er staðalbúnaður.
En það sem skiptir kannski mestu máli em
útlitsbreytingamar því mörgum þótti sem fylli-
lega væri orðið tímabært að gefa bílnum dá-
litla andlitslyftingu. Reyndar em breytingarnar
ekki eins róttækar og búast mátti við en bíllinn
gæti þó höfðað til kaupenda sem em síður
íhaldssamir en fyrri kaupendahópur Peugeot
405. Nýtt lag er komið á afturenda bílsins og
sporöskjulaga aftur- og framiugtir hressa upp
á svipinn. Bíllinn er 15 sm lengri en 405 og
er einn sá lengsti í þessum stærðarflokki.
PEUGEOT 406 var frumkynntur í Frankfurt.
Morgunblaðið/GuGu
FIAT Brava vakti óskipta athygli þegar hann var kynntur í Frankfurt.
Fiat Brava
og Bravo
FIAT Brava og Bravo eru bílarnir
sem leysa Fiat Tipo af hólmi nú
í haust og voru þeir kynntir með
pomp og prakt á bílasýningunni í
Frankfurt. Þetta er í fyrsta sinn
sem Fiat frumkynnir á sama tíma
tvo bíla sem eru ólíkir að stærð,
í hönnun og á ólíku notkunarsviði
en deila þó sama grunnþema.
Mjúkar, ávalar línur eru allsráð-
andi í hönnun bílanna, sem eru
fimm dyra stallbakur, Brava, og
þrennra dyra hlaðbakur, Bravo.
Bílarnir eru dæmi um ítalska
hönnun upp á sitt besta. Minni
bíllinn sportlegur og eigulegur
bíll en Brava er meira ætlaður
fjölskyldufólki, enda nokkru
stærri. Sérstaka athygli vakti
hönnunin á afturendanum á
Brava, sem er stuttur og hár með
þremur, sporöskjulaga ljóskerum.
Bílarnir eru nokkru stærri og
breiðari en fyrirrennarinn en
þrennra dyra og fimm dyra bílarn-
ir eru með jafnlangt hjólhaf.
Fjögurra og fimm
strokka vélar
Ekki ljóst á þessari stundu hve-
nær Fiat Brava og Bravo eru
væntanlegir til Islands en þó gæti
það hugsanlega orðið fyrir ára-
mót. Altént stefnir Fiat að því að
bílarnir verði fáanlegir víðast í
Evrópu um miðjan október.
Bílarnir eru með nýjum vélum,
hönnuðum og smíðuðum af Fiat.
Þar er um að ræða fjórar gerðir
fjölventlavéla, fjögurra og fimm
strokka, með slagrými frá 1.400-
2.000 rúmsentimetrum sem skila
á bilinu 80-147 hestöflum. Einnig
verða bílarnir fáanlegir með 1,9
lítra dísilvél og næsta vor verða
þeir boðnir með nýlega hannaðri
dísilvél með forþjöppu, millikæli
og rafstýrðri innspýtingu.
AFTURENDINN er stuttur en
farangursrými er allgott.
vinnnhestur
CAOUlh
FC/FP
2, 21/2 og 3t. lyftigeta.
CR0WN -Gæði fyrir gott verð.
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN
Líftryggingar
á heimsmælikvarða
Friends Provident em í fremstu röð
enskra líftryggingarfélaga.
Bretland er ein helsta miðstöð
veraldar í tryggingum og
íj ármálaþ j ónustu.
• Starfsstöðvar í 16 löndum
um víða veröld.
• Frá stofnun 1832 hefur
félagið eflst með ári hverju.
• I sjóðunt þess eru nú um
£14.000.000.000 og tryggingatakar
yfir 2.500.000.
Friends bjóða íslendingum nú að reyna:
• Úmal persónutrygginga sem samcina vernd og sparnað.
• Sveigjanlega samninga og úrvals þjónustu sem er
verðlaunuð í Bretlandi og Svíþjóð.
• Ávöxtun með því besta sem þekkist í 14 sjóðurn á heimsmarkaði.
Þitt er valið.
Við bjóðum þér að eflast með árunum í félagsskap með okkur.
Upplýsingar hjá löggiltri vátryggingamiölun á Islandi.
FRIENDS0PROVIDENT
INTERNATIONAL
United Kingdom House, Castle Strect, Salisbury, Wiltshire SPl 3SH England UK. Tcl: 0044 1722 413366. Fax: 0044 1722 332005.
Principal and Hcad Office: Pixham End, Dorking, Surrey RH4 ÍQA England.
Incorporatcd by Act of Parliament in the United Kingdom tóth limited liability and rcgistercd in England No. ZC115.
Member ot’thc Association ofTnternational Lif'e Offices.
FRIENDS PROVIDENTINTERNATIONALIS THE TRADING NAME EOR BUSINESS CONDUCTED OUTSIDF. THE UNITED KJNGDOM OF FRIENDS PROVIDENT LIFE OFFICES.
SMIÐJUVEGUR 70, KÓP
SÍMI 564 4711 • FAX 564 4725
Ævitrygging
Alþjóðleg! Sveigjanleg!
Líf- tekjutjóns- ojj lífeyristrygging