Morgunblaðið - 20.09.1995, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 20.09.1995, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ l FRÉTTIR Aðgerðir í Súðavík Niður- staðna að væntaí október HELGI Hallgrímsson, formað- ur Ofanflóðanefndar, segir að reynt verði að hraða saman- burði á tillögum um aðgerðir í Súðavík eftir megni. Hann seg- ist vonast til þess að niðurstöð- ur liggi fyrir snemma í októ- ber. Vinna við samanburð á til- lögum um byggingu vamar- mannvirkja og/eða kaup á hús- eignum í Súðavík er rétt nýhaf- in, að sögn Helga. Helgi sagði að gögn vegna tillagna um snjóflóðavamir og/eða kaup á húseignum í Súðavík hafi borist Almanna- vömum ríkisins fyrst í fyrra- dag. Ofanflóðanefnd muni, sem starfsnefnd Almannavama, láta sannreyna gildi þessara áætlana og bera þær síðan saman með tilliti til hag- kvæmni. Þegar tekin hefur verið af- staða til tillagnanna og morkuð stefna varðandi endurreisn Súðavíkur kemur að því að skipta verkinu í áfanga og út- vega fjármagn, að sögn Helga. Reykjavíkurborg Fjárreiðu- stjóri ráðinn BORGARRÁÐ hefur samþykkt að ráða Önnu Skúladóttur, við- skiptafræðing, í starf fjárreiðu- stjóra Reykjavíkurborgar. Fjórtán umsóknir Aðrir sem sóttu um voru, Eiríkur Grímsson, rekstrar- fræðingur BS frá Samvinnu- skólanum, Hulda Óiafsdóttir, hagfræðingur (útskrifast í okt. 1995), Ingvar Ásgeirsson, við- skiptafræðingur, Jón Gunnar Borgþórsson, viðskiptafræðing- ur, Jónas H. Jónsson, viðskipta- fræðingur, Kristin Kalmans- dóttir, viðskiptafræðingur, María Grétarsdóttir, viðskipta- fræðingur, María Guðrún Sig- urðardóttir, viðskiptafræðing- ur, Páll R. Pálsson, við- skipta/hagfræðingur, Ragn- hildur Erla Bjamadóttir, við- skipta/hagfræðingur (erl. há- skóli), Sigurbjörg Leifsdóttir, viðskiptafræðingur, Sigurður Kr. Friðriksson, viðskiptafræð- ingur, og Sigurður Kristjáns- son. BRUNAVARNIR og björgun, átta síðna blaðauki með kynningu á starfsemi Slökkviliðs Reykjavíkur, fylgpr Morgunblaðinu í dag. Morgunblaðið/Júlíus SIGRÚN Lilliendahl, til vinstri, og Bergþóra Aradóttir. Frekar skrýtið að sjá sig á hvíta tjaldinu LEIKKONURNAR Sigrún Lill- iendahl og Bergþóra Aradóttir eru ungar að árum, Sigrún 16 ára og Bergþóra 9 ára. Þær leika í myndinni Tár úr steini sem bygg- ist á atvikum úr ævi tónskáldsins Jóns Leifs. Sigrún og Bergþóra leika dætur Jóns og þykja standa sig með mikilli prýði. Þær eiga báðar töluverða leikreynslu að baki, Bergþóra hefur leikið í sjón- varpsmyndum og Sigrún m.a. í stuttmynd, auglýsingu og heimild- armynd. Hvemig var að sjá sig á hvíta tjaldinu? „Það var frekar skrýtið," segir Bergþóra og Sigrún er sam- mála, en þótti það samt allt í lagi. Aðspurðar sögðu þær að gaman hefði verið að leika í myndinni. „ Við fengum að fara til Þýska- lands og dvelja á fimm stjömu hóteli og andinn var mjög góður í hópnum. Allir hjálpuðust að við að gera þetta auðvelt fyrir okk- ur,“ segir Sigrún. Sigrún leikur Snót, eldri dóttur Jóns. Hvernig persóna er hún? „Snót er frekar lokuð manneskja. Hún heldur vemdarhendi yfir Líf [persónunni sem Bergþóra Ieikur] þegar foreldramir rífast. Hún er mömmustelpa og samband hennar við föðurinn er ekki mjög náið,“ segir Sigrún. „Líf er aftur á móti meiri pabbastelpa og kannski opn- ari en Snót,“ segir Bergþóra. „Það var mikil pressa á manni og maður þurfti oft að bíða lengi eftir að komast fyrir framan myndavélarnar," segir Sigrún. Bergþóra bætir við að stundum hafi verið erfitt og þreytandi að gera sífellt sama hlutinn aftur og aftur. „Við þurftum líka að tala þýsku'töluvert. Þá þurfti maður að hugsa um tvo hluti í einu, leik- inn og tungumálið," segir Sigrún. Hvernig var samstarfsfólkið? „Það var eins og ein stór fjöl- skylda," segir Sigrún. „Andinn var mjög góður og allir hjálpuðust að,“ bætir Bergþóra við. Ætla þær að halda áfram á þessari braut og leggja Ieiklistina fyrir sig? „Já,“ svarar Bergþóra án þess að hika. Sigrún er ekki eins ákveðin. „Ég veit það ekki. Ég ætla að klára Versló og sjá svo til.“ Hún er i 4. bekk þeirrar menntastofnunar en Bergþóra er í Víðistaðaskóla. Utboð á þyrlutryggingum Landhelgisgæslunnar Ríkiskaup verða ekki við til- mæluni fjármálaráðuneytis FORSTJÓRI Ríkiskaupa er ósammála þeirri nið- urstöðu fjármálaráðuneytisins að ekki hafi verið staðið með réttum hætti að framkvæmd útboðs á þyrlutryggingum fyrir Landhelgisgæsluna og ætla Ríkiskaup ekki að ganga til samninga við NHK Intemationar Ltd vátryggingamiðlara um bætur eins og ráðuneytið hefur mælst til. Að sögn Júlíusar S. Ólafssonar, forstjóra Ríkiskaupa, hefur ráðuneytinu verið gerð grein fyrir þessu og á hann von á að ráðuneytið muni sjálft taka málið að sér. Útboð eina færa leiðin Júlíus vísar því á bug að ekki hafi staðið rök til hraðútboðs við kaup á vátryggingum þyrlunn- ar TF-LÍF. Þegar málið hafi komið til kasta Ríkis- kaupa hafi 30 dagar verið til stefnu þar til TF- LÍF átti að koma til landsins. Ríkiskaup hafi tal- ið að aðrar leiðir, eins og að stofna til tryggingar til bráðabirgða við tryggingafélag, kæmu ekki til greina vegna þeirrar uppákomu sem hafi orðið hjá Landhelgisgæslunni þegar vátryggingar voru færðar milli vátryggingamiðlara. Slíkt hefði ein- göngu orðið til þess ýta undir gagnrýni á að ver- ið væri að að mismuna aðilum og þar af leiðandi hafi ekki verið önnur leið fær en útboð. Júlíus bendir í þessu sambandi einnig á að ríkis- kaup hafi staðið að um það bil 50 útboðum á EES-svæðinu. „Ég held að þetta sé eina skiptið sem við höfum farið í lokað hraðútboð, þannig að við verðum ekki sakaðir um að hafa misnotað þetta útboðsform með neinum hætti. Við lesum einfaldlega fræðin öðruvísi heldur en lögfræðileg- ur ráðunautur fjármálaráðuneytisins. Okkar af- staða er því alveg óbreytt," segir hann. Engar athugasemdir eða ósk um frestun útboðs Júlíus segir það rétt að skort hafi upplýsingar í útboðslýsingu. Óskað hafi verið munnlega eftir upplýsingum þótt reglur Ríkiskaupa kveði á um að það sé gert skrifiega. Spurt hafi verið um tvö atriði og annað verið upplýst strax en hvað hitt atriðið snerti hafi fyrirspurnin borist rétt fyrir helgi. „Við fengum strax svar frá Landhelgisgæsl- unni en í stað þess að senda það á mánudegi fór það ekki út fyrr en á þriðjudegi fyrir handvömm. En að menn hafi ætlað að gera einhveijum erfið- ara fyrir í tilboðsgerð finnst okkur afskaplega annarlegur hugsunarháttur vegna þess að þetta hlýtur að hafa komið jafnt niður á öllum og það gerði enginn sérstakar athugasemdir við þetta á þeirri stundu né fór fram á frestun útboðs,“ sagði Júlíus. Fj ármálaráðuneytið hefur mælst til þess að Ríkiskaup gangi til samninga við NHK um hæfi- legar bætur. Um það segir Júlíus: „Þar sem við teljum að við höfum staðið rétt að þessu teljum við okkur ekki rétta aðila til þess að fjalla um þetta mál. Ég á von á að ráðuneytið taki það að sér,“ sagði hann. „Okkur finnst eins og dómarinn hafi dæmt víti í kappleik, rekið markmanninn útaf og sagt við þann sem tekur vítaspyrnuna: Það er alveg sama hvort þú hittir markið eða ekki, ég mun dæma þér mark. Við erum þeirrar skoðunar að svona mál eigi að afgreiða fyrir dómstólum. Við erum afar íhalds- samir á að samþykkja slíkar bætur," sagði hann. * Eg er sennilega ekki feigur Grindavík, Morgunblaðið. SÆVAR Ásgeirsson, tvítugur pilt- ur úr Grindavík, þakkar sínum sæla eftir að hafa lent í hrakning- um við Krísuvíkurberg í fyrra- kvöld. Hann lenti í sjálfheldu í fjörunni og fór í sjóinn en komst við illan leik á syllu þar sem hann beið hjálpar. „Við fórum þarna til að leita að baujum og belgjum sem reka oft upp í fjöruna við Bergið. Við komum keyrandi að berginu og ég fór niður eftir kaðli eða spotta sem við vorum með,“ sagði Sævar í samtali við Morgunblaðið. Með honum var félagi hans, Sveinbjörn Sigurðsson, sem varð eftir uppi meðan Sáevar fór niður. „Ég komst niður en brenndi mig illa á höndunum á kaðlinum og gat ekki stöðvað mig. Við héld- um að þetta væri brekka en svo var þetta þverhnípi og mikil lausa- möl sem erfitt var að fóta sig í. Ég sá strax að ég gæti aldrei kom- ist upp sömu leið því ég rann nið- ur. Ég ákvað að ganga aðeins austar og Sveinbjöm var uppi og hifði belgina upp. Síðan ætlaði ég að reyna að komast fyrir hora á berginu en þar var svo mikið brim. Þá vissi Sveinbjörn ekki af mér. Þá var ég á milli þar sem ég kom niður og þar sem hornið á berginu var, á steini í fjörunni. Skyndilega fór að bijóta á steininum og ég fór á bólakaf í sjó. Um leið og aldan kom yfir náði ég að gripa í stein sem var ofar í fjörunni áður en útsogið náði mér annars hefði ekki þurft að spyija að leiks- lokum.“ Var orðinn hræddur Meðan á þessu stóð var Svein- björa uppi á berginu og vissi ekki hvað gekk á fyrr en Sævar komst upp í fjöruna. Þá var hann renn- andi blautur og úlpa sem hann var í orðin þung. Þeir gerðu tilraun til að draga hann upp í spotta en hann var orðinn það kraftlaus að það gekk ekki. Sveinbjörn klæddi sig úr fötunum og henti þeim til _ Morgunblaðið/Frímann Ólafsson FÉLAGARNIR Sveinbjörn Sigurðsson t.v. og Sævar Ásgeirsson. Sævars sem klæddist þeim en var samt í blautum nærklæðum og veður fór kólnandi. Þeir ákváðu að Sveinbjöm færi eftir hjálp en Sævar biði á meðan. Björgunar- sveitin Þorbjöra, sem var að að- stoða við kvikmyndatöku við Ægissand, brá skjótt við og fór eftir Sævari. „Mér fannst Svein- björa vera ansi lengi á leiðinni og fór því að klöngrast ofar í bergið og komst aðeins ofar en var þá gjörsamlega búinn og settist niður og beið eftir björginni. Ég verð að viðurkenna að ég var orðinn skíthræddur og hélt að eitthvað hefði komið fyrir Sveinbjörn á leiðinni. Ég varð því feginn þegar ég sá ljósin frá björgunarsveitinni og þeir komu niður til mín og hjálpuðu mér upp,“ sagði Sævar. Sævar sem lenti í bílslysi á síð- asta ári sagðist vera mjög eftir sig og allur í harðsperrum. Auk þess hefði hann meitt sig á öxlinni og í bakinu en hann fór samt beint heim til sín að lokinni svaðilför- inni og í heitt bað. „Ég hugsaði þegar ég kom upp hvað í ósköpun- um ég hefði verið að hugsa að fara þarna niður og ætla örugg- lega að hugsa mig tvisvar um áður en ég læt mig vaða í svona,“ sagði Sævar. i i I I \ I I ) I I > i i i > i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.