Morgunblaðið - 20.09.1995, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 20.09.1995, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 1995 MORGUNRLAÐIÐ FRÉTTIR Farið þið bara greyin mín. Ég skrökva mig einhvern veginn út úr þessu eins og vanalega . . . ÁRNI Baldursson með stórlax úr Laxá á Ásum sem hefur borið höfuð og herðar yfir aðrar laxveiðiár landsins í sumar. Reynt að rækta stórlax VEIÐIFÉLAG Miðfirðinga hyggst gera tilraun á komandi vetri í sam- vinnu við Tuma Tómasson, físki- fræðing hjá Norðurlandsdeild Veiði- málastofnunnar. Er hugmyndin að taka nokkra smáa laxa, nýlega gengna og „geyma“ þá yfír vetur- inm Sleppa þeim síðan merktum næsta vor og freista þess að fylgj- ast með því hvernig þeim reiðir af. Veiðiréttareigendur við Miðfjarð- ará og þverár hennar hafa haft af því áhyggjur síðustu árin hve stór- laxi hefur fækkað og vilja láta á reyna hvort skýringin geti legið í því að hrygningarlax farist í stórum stíl í vetrarflóðum. „Þetta er nú bara fikt, en kannski verður útkoman með þeim hætti að fiktið hlaði utan á sig. Að þetta sé leið til þess að rækta stórlax! Okkur hefur þótt laxinn hafa smækkað hin seinni ár og hefur tíðarfarið eflaust einhver áhrif. Það er margt í náttúr- unni sem við ráðum lítið eða ekkert við, en ef einhverjar leiðir finnast til þess að hjálpa laxinum að reiða af í ánni, þá er sjálfsagt að reyna. Hugmyndin er að taka nokkra laxa nú í haust, einbeita okkur að nýlega gengnum smálöxum, fiskum sem ekki eru líklegir til að taka virkan þátt í hrygningunni vegna þess hve seint þeir hafa gengið í ána. Geyma þá í hliðarlækjum eða öðrum vel völdum skjólgóðum stöðum þar sem þeir eru ekki líklegir til að fara sér að voða í vetrarflóðum og slíku. Eftir hrygningu er laxinn viðkvæm- ur og ljóst að hann þolir þá illa að lenda í hremmingum," sagði Böðvar Sigvaldason, formaður Veiðifélags Miðfjarðarár, í samtali við Morgun- blaðið. Alls veiddust um 1.020 laxar í Miðfjarðará í sumar sem er mun betri veiði heldur en í fyrra, en þó mun minni veiði heldur en menn reikna með úr Miðfjarðará að öllu jöfnu. „Þetta var mjög viðunandi og gott til þess að vita að talsvert var eftir af laxi í ánni í vertíðarlok. Kýlaveikin í brennidepli „Kýlaveikiógnunin og villtur lax í brennidepli" er yfirskrift ráðstefnu sem Norður-Atlantshafslaxasjóður- inn, NASF, stendur fyrir í Háskóla- bíói á þriðjudaginn í næstu viku. Orri Vigfússon er stofnandi og for- maður NASF og sagði hann í sam- tali við Morgunblaðið að nauðsyn- legt væri í lok vertíðar að setjast niður og líta á stöðu mála því hér væri slíkt alvörumál á ferðinni. Orri mun setja ráð- stefnuna og síðan flyt- ur Guðmundur Bjama- son umhverfisráðherra ávarp. Því næst ræða Árni Isaksson veiði- málastjóri og Gísli Jónsson dýralæknir um viðbrögð við kýla- veiki. Umræður verða að erindi þeirra loknu og síðan er kaffihlé. Því næst koma erindin, „Laxveiði og sjávar- skilyrði 1995 eftir Guðna Guðbergsson fiskifræðing og Svend Aage Malmberg haf- fræðing, „Hafbeit á tímamótum" eftir Júl- íus B. Kristinsson líf- eðlisfræðing, „Sand- burður í Laxá í Þing- eyjarsýslu" eftir Jón Helga Björnsson lif- fræðing og Helga Bjamason verkfræð- ing og loks „Starfsemi Veiðimálastofnunar" eftir Vífíl Oddsson, verkfræðing og stjórnarformann _ stofnunarinnar. í lok erindahrinunnar verða almennar umræður. „Allir áhugamenn um þessi málefni eiga erindi á ráðstefnuna og hún er öllum opin,“ sagði Orri að lokum. Ýmsar tölur og fréttir Veiði er lokið í Laxá á Ásum og Laxá í Leirársveit. í fyrrnefndu ánni veiddust 1562 laxar á tvær stangir sem er langbesta meðaltalið á landinu og þótt víðar væri leitað. Síðamefnda áin gaf 1.446 laxa sem er besta veiðin í ánni síðan stórveiði- sumarið 1988 þegar 1.887 laxar veiddust. Þúsundasti laxinn var að koma á land úr Ytri-Rangá og hefur Rang- ársvæðið allt þá gefið rétt tæplega 1.500 laxa. Veitt er út september. Mjög góð skot hafa verið í sjóbirt- ingsveiðinni á svæðinu, ekki síst á Bleikjubreiðu í Ytri-Rangá allra síð- ustu daga. r Félag talkennara og talmeinafræðinga Sveitarfélögin hugi að talkennslu og tal- meinafræðiþjónustu Og FÉLAG taikennara talmeinafræðinga efndi til málþings í tengslum við aðalfund félags- ins í byijun september. Með málþinginu viidi félagið vekja athygli á stöðu talkennslu og talmeinafræðiþjónustu við flutning grunnskóla frá ríki til sveitarfélaga næsta haust. Anna Jórunn Stefánsdóttir, fráfarandi formaður, og Ingi- björg Símonardóttir, nýskip- aður formaður, segja ástæðu til að hvetja sveitarfélögin til að fara að huga að því hvem- ig staðið verði að þjónustu við einstaklinga með tal- og málerfiðleika. Hjá þeim kem- ur fram að menntamálaráðu- neytið hafi þegar vísað greiðslum vegna talkennslu bama á forskólastigi til sveit- arféjaganna. „í nýju grunnskólalögun- um er sagt að allir nemendur eigi að fá kennslu við hæfí en hvergi tekið fram hvemig eigi að fara að því að ná því marki enda er hvorki minnst á sérkennslu né talkennslu í lögunum. Pakkinn til sveit- arfélaganna er því lítið skil- greindur að þessu leyti,“ seg- ir Ingibjörg og Anna Jórunn minnir á að við flutninginn verði fræðsluskrifstofur lagðar niður og sveitarfélög- in táki við hlutverki þeirra, t.d. ráðgjafar- og sálfræði- þjónustu. „Sveitarfélögunum er í sjálfsvald sett hvemig þau fara að, t.d. hvort þau sameinast um rekstur þjónustunn- ar, en eitt er víst að mörg litlu sveitarfélaganna hafa, ein sér, ekki bolmagn til að sjá sínum skól- um fyrir þessari þjónustu." — Hvernig er talkennslu barna í grunnskólum háttað? „Talkennsla hefur verið innifal- in í sérkennslukvóta til skólanna og er sá kvóti áætlaður eftir nem- endafjölda," segir Anna Jómnn. „Kvótinn er ákaflega rýr og lítið svigrúm því ef meira fæst til tal- kennslu minnkar ijármagn til ann- arrar sérkennslu sem því nemur og er ekki mikið fyrir. Einn tal- meinafræðingur hefur verið með aila leikskóia í Reykjavík og heyrst hefur að eigi að segja honum upp. Eins og gefur að skilja er þörfinni hins vegar ails ekki mætt með ein- um talmeinafræðingi og því hafa foreldrar ieikskólabarna þurft að ieita með þau til sjálfstætt starf- andi talmeinafræðinga. Mennta- málaráðuneyti og Tryggingastofn- un hafa, eftir ákveðnum reglum, skipt með sér að greiða þjónustuna en ráðuneytið hefur frá 1. júlí hafnað beiðnum vegna talkennslu ófatlaðra barna og vísað greiðslum til sveitarfélaganna. Foreldrarnir verða því að bera allan kostnað af tímabundinni talkennslu eða bíða eftir því að börnin fari í grunnskóla, þ.e. þar til sveitarfé- lögin taka við grunnskólanum, Ég veit ekki hvaða skýring býr hér að baki. Ein gæti verið að ráðuneytið sé að undirbúa sig undir að verðleggja grunnskól- ana á næsta ári. Sveit- arfélögin verða hins vegar að fá heiðarlegar tölur þegar þau taka við grunn- skólunum en ekki að einhver þjón- usta sé horfin úr pakkanum.“ — Hvaða þýðingu hefur það að böm fái talkennslu ung? „Fyrirbyggjandi aðgerðir borga sig margfalt,“ segir Ingibjörg. „Eins og allir vita standa börn ákaf- lega misjafnlega að vígi þegar þau Anna Jórunn Stefáns- dóttir og Ingibjörg Símonardóttir. ►Anna Jórunn fæddist 21. des- ember árið 1942 í Reykholti í Biskupstungum. Anna Jórunn lauk námi í Kvennaskólanum í Reykjavík árið 1959, tómennta- kennaraprófi frá Tónlistarskól- anum í Reykjavík árið 1973 og sérkennslunámi frá KHI árið 1984. Talkennslunámi lauk hún í Osló árið 1988. Anna Jórunn er talkennari við grunnskólana á Suðurlandi og fráfarandi for- maður Félags talkennara og talmeinafræðinga. Eiginmaður hennar er Þórhallur Hróðmars- son, yfirkennari Garðyrkju- skóla rikisins, og eiga þau tvö börn. ► ingibjörg Símonardóttir fæddist 16. desember árið 1944 á Siglufirði. Ingibjörg varð stúdent frá MA árið 1963, kenn- ari frá KÍ árið 1964 og lauk BA-prófi í mannkynssögu frá HÍ árið 1967. Hún stundaði framhaldsnám í tal- og sér- kennslu í Bandaríkjunum og Svíþjóð og lauk BA-prófi í aL mennum málvísindum frá HI árið 1986. Nú er Ingíbjörg æf- ingakennari við KHI og formað- ur FTT. Eiginmaður hennar er Atli Dagbjartsson, barnalæknir, og eiga þau þrjú börn. Fyrirbyggj- andi aðgerAir borga sig margfalt hefla nám í sex ára bekk. Fái þau viðeigandi talkennslu og þjálfun í leikskólum standa þau frekar jafn- fætis jafnöldrum sínum og munu því í flestum tilfellum þurfa á minni sérkennslu að halda í grunnskólanum. Ekki má heldur gleyma þvi “““™“ að erlendar rannsóknir hafa leitt í ljós að börn með fram- burðarerfiðleika og seinan mál- þroska lenda frekar í erfiðlekum við að læra að lesa en önnur böm. Af því má sjá að fyrirbyggjandi aðgerðir geta sparað töluverða fjár- muni svo ekki sé minnst á að hægt er að komast hjá slæmum áhrifum á sjálfsmynd barnanna.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.