Morgunblaðið - 20.09.1995, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 20.09.1995, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 1995 19 _________________LISTIR Myndir r m úr skúffu MYND nr. II á skrá (1965). MYNDLIST Stöðlakot VATNSLITAMYNDIR 1963-1965 Eiríkur Smith. Opið alla daga frá kl. 14-18 til 25. september. Aðgangur ókeypis. ÞAÐ eru fleiri sem heiðra vilja Eirík Smith í tilefni sjötugsaf- mælisins og þannig kynnir Hulda Jósefsdóttir nokkur úrvalsverk hans á sviði vatnslitatækninnar frá árum áður í listhúsi sínu, Stöðlakoti. Raunar segir listamaðurinn, að þetta séu nokkrar myndir sem leg- ið hafi í skúffu hjá sér líkt og í pækli, og satt að segja virðast þær og jafnframt íslensk myndlist hafa haft afar gott af því. Fyrir hið fyrsta er hér um að ræða mjög vænlegt sýnishorn athafna Eiríks á vettvanginum á þessum árum og svo er fengur að hafa þær til samanburðar eftir skoðun nýrri verka hans í Hafnarborg. Meginmáli skiptir þó, að hér er um þýðingarmikla framkvæmd að ræða í öðru samhengi, nefnilega að sýningin opinberar að sitthvað annað var að geijast á áratugnum en helst hefur verið haldið fram á undanförnum árum. Sjöundi ára- tugurinn var einfaldlega svo um- brotasamur að ekki er hægt að setja hann allann undir hatt þess sem gerðist undir lok hans, er hin svonefnda „ofdekraða kynslóð“ ruddist fram með miklum látum sem eingetin væri. í upphafi ára- tugarins voru menn að hafna strangflatarlistinni og takast á við úthverft innsæi á óhlutbundinn hátt og nefndist það „abstrakt expressjónismi" og einnig „tac- hismi“, en síðan komu fram áhrif frá fundnum hlutum „Objekt tro- uvé“ og fátæku efni í anda „moy- ens pauvres" og „fluxus“, loks „pop list“ og í lok áratugarins yfirtók hugmyndafræðileg sam- setning, hin svonefnda „konsept list“ sviðið og réð ríkjum þar til „nýja málverkið" ruddi sér rúms í upphafi níunda áratugarins. Allt mun þetta koma fram í fyllingu tímans, og er sýningin á vatnslitamyndum Eiríks Smith frá árunum 1964-66, ásamt einni frá 1955, alveg óvart innlegg í mynd- listarumræðu fortíðar, sem á mikið erindi til nútímans til að greiða úr listsögufræðilegum ruglingi. Sömuleiðis á sýningin erindi til nútímans í ljósi þess, að þessi léttu og lifandi vinnubrögð sem einkenna myndir Eiríks eru afrakstur margra ára strits í listaskólum, sem ofdekraða kynslóðin hefur kústað úr kennslustofunum eins og mörgu öðru sem menn voru aldir að þróa. Það er vel skiljanlegt, að Eiríkur hefur sett þessar myndir til hliðar á sínum tíma, vegna þess að þá voru menn sem óðast að stokka upp í hlutunum og fígúran aftur að komast inn í myndina sem full- gildur tjámiðill eftir langt hlé. En menn taki eftir því, hve ferskar og upplifaðar myndirnar eru og ekki er sjáanlegur minnsti vottur þess að listamaðurinn sé kominn að endamörkum og hafi tæmt möguleikana. Hefði verið meira en fróðlegt að vita framhaldið ef hann hefði haldið áfram á sömu braut, og sú spurning verður því áleitin hvort það sé nokkur skyn- semi í því, að varpa á þennan hátt fýrri viðhorfum fyrir róða eins og menn hafa lengi gert í norðrinu og þá einkum í ljósi þess, að áhrifa- valdarnir á meginlandinu fóru allt öðru vísi að. það þjónaði frekar þörf listhúsanna ytra fyrir veltu, að eitthvað nýtt og forvitnilegt kæmi á markaðinn, og í framhald- inu er enn spurn hvort margur hafi ekki fyrir misskilning frekar verið að eltast við markaðshyggju og fræðikenningar en jarðtengdar núlistir? Sjálfír áhrifavaldarnir tóku fæstir slíkar kollsteypur, svo sem menn urðu að gera í norðrinu til að vera inni í myndinni, og eru í raun sumir enn að í hárri elli. Hvað sem öllum vangaveltum líður er það ekki einungis áhri- farík og falleg sýning sem Hulda Jósefsdóttir hefur sett upp í húsa- kynnum sínum, heldur skýrir hún listasöguna um leið, og á erindi til allra sem fylgjast vilja með grómögnum íslenskrar myndlistar. Bragi Ásgeirsson BðKMENNTIR Ljóð SAMFELLA Sundurlokin samfella eftir Steinþór Jóhannsson. Fjölvi 1995 — 45 bls. Daði Guðbjörnsson gerði kápuskreytingu. ÞAÐ er dálítið erfitt að henda reiður á efni nýrrar bókar Stein- þórs Jóhannssonar, Samfella. Augljóst er þó að samskipti kynj- anna og ástir undir suðrænni sól gegna þar veigamiklu hlutverki í skugga ástríðufullrar karl- mennskuímyndar og kaldhæðni. Líklegast er þó einfaldast að lýsa efninu sem samtíningi; spaklegum vangaveltum, orðaleikjum, ástar- kvæðum, tvíræðum kvæðum, ferðalýsingum, minningum og ádrepum. Samfellan í bókinni á sem sé engan veginn við um efn- ið. í heildina tekið er hún frekar sundurlaus og kvæðin dálítið mis- jöfn að gæðum. Steinþór er hugmyndaríkt skáld og oft tekst honum þokka- lega að klæða hugmyndir sínar í búning ljóðsins. Stundum lánast honum að byggja upp sannfærandi nýgervingu eins og í kvæðinu Hún og sumar ádrepurnar eru hnittnar og þrungnar kaldhæðni. í kvæðinu Óraunsæi segir svo: Að treysta á óraunsæi sér til framfæris hefur sjaldnast gefist vel nema í útgerð sem á ekki að bera sig. En greidd af þriðja aðila samviskulaust. Steinþór leikur sér títt með myndir og orð og á bersýnilega auðvelt með að tengja saman ólík- legustu myndsvið. En þó ber við að mælska hans kæfi ljóðneistann, t.a.m. í titilljóðinu sem er of yfir- fullt af yfirlýsingum um gildi ást- arinnar til þess að geta talist vel heppnað ljóð. Þess utan er Steinþór stundum missifengur í mynd- smíðinni. í einstaka Ijóði gengur mynd- sköpunin hreinlega ekki upp. Dæmi um þetta er ljóðið Kast- alavörnin þar sem fram kemur áhersla skáldsins á ástarsigra og holdlega karl- mennskuímynd: Með kampavíni og kavíar koðnaði kastalavömin. Sundurlokin samfella hengibrúin fallin. Vandi fylgir vegsemd hverri Þörf er á hörðum beinum í góðu ári Láta ei spillast af Steinþór Jóhannsson sigurvimu. Axla ábyrgð ávinnings. Úr megi vaxa hamingjujurt með velfamaðar angan. Upphafslíkingarnar um fallna hengibrú og sundurlokna samfellu eru ísmeygilegar túlk- anir karlmennsku- sigra. Orðatiltækin sem á eftir fylgja gætu gengið sem kaldhæðni en lokalík- ingin fellur einhvern veginn ekki að _upp- hafslíkingunni. Ég á a.m.k. erfitt með að ímynda mér að ham- ingjujurt með velfarnaðar angan vaxi upp úr sundurlokinni samloku eða fallinni hengibrú. Kvæðið verður fyrir bragðið nykrað og Nýjar bækur • NOTK UN námsefnis í 10-12 ára deildum grunnskóla og við- horf kennara ognemenda til þess er eftir Ingvar Sigurgeirs- son. Ritið byggir að hluta til á dokt- orsritgerð höfundar sem hann varði við Sussex háskóla 1992. Fjölmörgum aðferðum var beitt við gagnaöflun, m.a. vettvangsat- hugunum í 20 bekkjardeildum í tólf skólum þar sem fylgst var með kennslu í hálfan mánuð samfellt í hverri deild. Mun þetta vera ein umfangsmesta rann- sókn af þessu tagi sem gerð hefur verið hér á landi en alls var fylgst með kennslu hjá 120 kennurum. Gerð er grein fyrir heildarniður- stöðum, m.a. notkun námsefnis eft- ir skólum og námsgreinum og fjall- að um notkun mismunandi kennslu- gagna, kennslutækja og kennslu- leiðbeininga, auk þess sem viðhorf- um kennara og nemenda er lýst. Höfundur hefur haldið_áfram rannsóknum á notkun námsefnis og gerði 1994 könnun á viðhorfum skólastjóra og kennara til nýs námsefnis. Helstu niðurstöðum könnunarinnar, sem náði til 200 grunnskóla, er lýst í skýrslunni Notkun námsefnis og viðhorf til Námsgagnastofnunar í 200 grunn- skólum sem Rannsóknarstofnun Kennaraháskólans hefur eirinig gef- ið út. Ritin eru bæði fáanleg í Bók- sölu kennaranema og hjá Rann- sóknarstofnun Kennaraháskóla ís- lands. Ingvar Sigurgeirsson ósannfærandi, jafnvel sem skopá- deila. Mun betur tekst skáldinu upp þegar það kveður í senn karl- mennskuímyndina og mælskuna í kvæðinu Parísargata númer 9. Kvæðið er ólíkt öðrum kvæðum bókarinnar og lengi vel flaug mér í hug að skáldið væri hér að skop- ast að ljóðrænum kveðskapi sam- tímans en vona að svo sé ekki: í gegnum þyt tijánna fannst raér ég heyra fótatak þitt. Yndi minna augna. Arum seinna í öðru landi. Samfella er í heildina tekið dá- lítið sundurlaus bók og kvæðin misjöfn að gæðum. Skáldið er að sönnu hugmyndaríkt og sum kvæðin eru hnittin og vel gerð en í öðrum kvæðum er eins og mælsk- an taki völdin af höfundinum auk þess sem sums staðar örlar á flausturslegum vinnubrögðum. Skafti Þ. Halldórsson. Alla miðvikudaga fyrir kl. 16:00. Til mikils að vinna!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.