Morgunblaðið - 20.09.1995, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 20.09.1995, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Fimmtíu ára vígsluafmæli Hellnakirkju í Snæfellsbæ Hefur verið 62 ár í sóknamefnd Laugarbrekku - Haldið var upp á 50 ára vígsluafmæli Hellnakirkju í Snæfellsbæ sunnudaginn 10. sept- ember sl. Guðsþjónusta fór fram í kirkjunni kl. 14. Biskupinn yfir ís- landi, herra Ólafur Skúlason, pred- ikaði, sr. Ólafur Jens Sigurðsson, sóknarprestur, þjónaði fyrir altari og með honum prófastur sr. Ingi- berg Hannesson og fleiri prestar úr prófastsdæminu. Altarisganga var og gengu til altaris milli 50-60 manns. Um 120 manns voru við kirkju. Kór Hellna- og Búðarsóknar söng og með hon- um fólk úr Ingjaldshóls- og Staðar- staðarsóknum. Undirleik annaðist Kay Lúðvíksson frá Hellissandi. Eftir messu var öllum viðstödd- um boðið að þiggja veitingar í fé- lagsheimilinu á Arnarstapa. Yfir borðum töluðu margir. Fyrstur tal- aði Finnbogi Lárusson, formaður sóknarnefndar Hellnasóknar. Rakti hann sögu kirkjunnar í stórum dráttum í 50 ár og aðeins betur, en Finnbogi hefur setið í sóknar- nefnd í 62 ár. Lét Ólafur Skúlason, biskup, m.a. þau orð falla, að seta Finnboga í sóknarnefnd og sem sóknarnefndarformaður væri langt fram yfir það sem gerst hefði og sagði hann það vera Islandsmet og jafnvel heimsmet. Þökkuðu biskup og fleiri ræðumenn Finnboga fyrir hans löngu og góðu þjónustu fyrir kirkju og kristindóm. Finnbogi þakkaði hlý orð í sinn garð og bað öllum góðrar heimferðar og guðs- blessunar. Kirkjunni bárust afmælisgjafir, Ingjaldshóls- og Ólafsvíkursókn gáfu saman Biblíu, afkomendur Guðlaugs Halldórssonar og Kristín- ar Jónsdóttur frá Arnarstapa gáfu altarisdúk sem afhentur verður síð- ar á árinu. Finnbogi þakkaði gjaf- irnar. Prófastur, sr. Ingiberg Hannes- son, hafði héraðsfund við þetta tækifæri í félagsheimilinu Snæfelli á Arnarstapa. Fundurinn hófst íl. 11 og í fundarhléi snæddu menn hádegisverð í Arnarbæ. Kl. 14 fóru fundarmenn til guðsþjónustu í Hellnakirkju og síðan á afmælis- fagnað kirkjunnar í félagsheimil- inu. Um kl. 18 hófst svo héraðs- fundurinn aftur og stóð hann til um kl. 23. Mörg kirkjuleg mál voru rædd og fór fundurinn mjög vel fram. Morgunblaðið/Hermína Námskeið í Sæbjörgu Dalvík - Sæbjörg, Slysavarna- skóli sjómanna, var á Dalvík ný- verið en nemendur VMA-útvegs- sviðs á Dalvík, verðandi stýri- menn og fiskvinnslufólk, auk starfandi sjómanna, sækja nám- skeið í Sæbjörgu. Þyrla landhelgisgæslunnar, TF Líf kom til Dalvíkur og tók þátt í æfingum með nemendum slysa- varnaskólans. Að æfingu lokinni var þyrlan höfð almenningi til sýnis og hún kynnt starfsfólki heilsugæslunnar. Stykkishólmi - Aftanskin, félag eldri borgara í Stykkishólmi, efndi til þriggja daga ferðar um Suðurland dagana 8.-11. september. Var þátt- taka góð eða með því mesta sem hér hefir verið í ferðum. Skemmtiferðin tókst vel í alla staði þótt veðrið hafi verið skýjað og súld af og til, og sólskinið í minna lagi, en það var sólskinsskap í rútunni sem bætti annað upp. Ekið var af stað frá Hólminum kl. 10 árdegis á laugardegi, og kom- ið við í Hvalfirði, en síðan með litlum hvíldum að Odda á Rangárvöllum, en þar þótti fólkinu gaman að koma og skoða sig um og fá sóknarprest- inn sr. Sigurð Jónsson til að sýna sér umhverfið og kirkjuna og muni þar frá gamalli tíð. Næst var haldið að Hvolsvelli og þar var áð og eldri borgarar héldu síðan fólkinu samsæti í félagsheimil- inu. Þar var mikill og góður beini um kvöldið og fagnaður sem bæði gestir og heimarnenn sáu um og stjórnað hófinu Ólafur Ólafsson fv. kaupfélagsstjóri hátíðinni. Eftir mat- inn og skemmtiatriðin var dansað fram um miðnætti og lék Guðmar þar fyrir dansinum og söng gamla söngva með. A sunnudag var svo farið af stað og undir leiðsögn Ólafs, sýndi hann fólkinu Fljótshlíðina, sagði frá merk- isstöðum og farið efri leið leið að Skógum, þar sem Þórður Tómasson safnvörður sýndi fólkinu safnið, sem opnað var daginn áður eftir miklar endurbætur. Tveir tímar rúmir dugðu ekki fólkinu til að skoða þetta stór- merkilega safn, sem hefir svo mikið af eldri sögulegum munum í safninu að ekki mun annað vera stærra, fyr- ir utan höfuðborgina, ef það þá er. Eftir að hafa farið yfír safnið í stór- um dráttum, spilaði Þórður á gamla orgelið og hópurinn söng. Þetta var stór stund í lífi fólksins og varanleg minning. Farið var í Vík en síðan aftur á Hvolsvöll og verið þar um nóttina. Um kvöldið sá Benedikt Lárusson um tónlistina. Seinasti dagurinn var svo heim- ferðin, um Selfoss, Eyrarbakka, Þor- lákshöfn og Þrengslaveginn og heim. Ingvar Breiðíjörð formaður félagsins og Árný Guðmundsdóttir gjaldkeri þess voru fararstjórar í ferðinni og sáu um undirbúning allan, Árný sem var þama komin á æskuslóðir gat sagt vel frá bæjum og byggðinni í Rangárvallasýslu. Voru þau hyllt í ferðalok, ásamt hinum bílstjóranum, Gunnari Hinrikssyni frá Helgafelli. Allt fyrir íþróttirnar Grundarfirði - Varla var stætt í suðaustan slagviðrinu um helg- ina þegar sjálfboðaliðar lögðu túnþökur á nýja íþróttavöllinn í Grundarfirði. Vindhraðinn var a.m.k. tíu vindstig og varla þurr þráður á nokkrum manni. I sumar hefur verið unnið að gerð íþróttavallar í Grundar- firði. Nýbúið var að bera sand og möl i völlinn og um helgina átti að þökuleggja hann, Reynd- ar höfðu veðurguðirnir eitthvað við þessa áætlun að athuga því þegar allt var tilbúið á föstu- dagskvöldið gerði suðaustan ofsaveður og talsvert af sandi og möl fauk úr vellinum á nær- liggjandi hús og olli nokkrum skemmdum á rúðum og klæðn- ingjum. A laugardaginn hélt hvas- sviðrið áfram en nú var komin ausandi rigning. Þrátt fyrir að varla væri stætt á vellinum ákváðu formenn íþróttahreyf- ingarinnar að leggja þökurnar. Var liði fólks smalað saman og svo fóru leikar þegar kvöld var komið að íþróttavöllurinn til- vonandi var að mestu þakin grasi. FERÐAFÓLKIÐ að lokinni ánægjulegri ferð. Morgunblaðið/Árni Helgason Morgunblaðið/HallgrímurMagnússon Glæsilegar sokkabuxur sem endast Módelsamkeppni 22. seplember á Staðnum i Keflavik Verðlaun i boði frá World Class, Plexiglas, Guerlain snyrtistofu, Skóbúð Keflavíkur Kóda tískuvöruverslun og Instructors Choice sokkabuxum 1 Vin-og Veið aöems MJJ* ^EskusvninB - ******* Jnstructof’s cnoice t, SHINY LYCRA® TIGHTS •0»0»0#0 m 09090909 Utsölustaðir: Plexiglas, Borgarkringlunni - Mondó, Laugavegi - Rœktin, Frostaskjóli Kóda, Keflavik - Nlna, Akranesl - Sirrý, Gríndavlk - Flamingo, Vestmannaeyjum - Toppmenn og sport, Akureyri - Esar, Húsavik Skóbúðin Borg, Borgarnesl- Hressó, Vestmannaeyjum - Fataleiga Garðabæjar Umboð Fleiri útsölustaðir nskast ffEFIHQflSTUDiO simi 421 4828. 2ktar0itiiiiUibib - kjarni málsins! Fjölmennt í ferð Aftan- skíns um Suðurland

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.