Morgunblaðið - 20.09.1995, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 20.09.1995, Blaðsíða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 1995 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ BJARNIÞ. HALLDÓRSSON + Bjarni Þórður Halldórsson var fæddur í Reykjavík 3. október 1906. Hann lést í Borg- arspítalanum 11. september síðast- liðinn. Foreldrar Bjarna voru Hall- dór, f. 10. júní 1882 í Hrauntúni, Bisk- upstungum, d. 21. mars 1959, Þórðar- son, verkamaður í Reykjavík og Sig- ríður Petrína, f. 28. september 1886 í Reykjavík, d. 1. febrúar 1965, Bjarnadóttir, húsmóðir í Reykjavík. Þau Halldór og Sig- ríður slitu samvistir. Alsystkini Bjarna voru Guðrún Magda- lena, f. 14. júlí 1908, Snorri Daníel, f. 30. maí 1910, og Hall- dóra, f. 25. ágúst 1912. Lifir Snorri nú einn þeirra systkina. Auk þess átti Bjarni samfeðra hálfbræður, Guðbjörn Sigfús, f. 26. desember 1916, Svavar, f. 27. október 1918, og Egil, f. 26. janúar 1928, en nú er Svav- ar einn þeirra á lifi. Bjarni var alinn upp í Reykjavík hjá móð- urömmu sinni, Guðrúnu Ragn- heiði Snorradóttur, og seinni manni hennar, Benedikt Daní- elssyni. Hinn 20. nóvember 1937 gekk Bjarni að eiga eftirlifandi eiginkonu sína, Rúnu Vigdísi Halldórsdóttur, frá Vindheimi í Norðfirði. Þau eignuðust fjög- ur börn: 1) Elstur var drengur, sem dó nýfæddur. 2) Ragna Guðríður, sölumaður á Sél- tjarnarnesi, gift Guðmari E. Magnússyni, en þeirra börn eru Bjarni Rúnar, sagnfræðingur í Reykjavík, Sigríð- ur, sóknarprestur á Ólafsfirði, Magnús Örn, matreiðslu- maður í Seljahlíð, Sveinn Halldór, há- skólanemi og Rúna Vigdís, mennta- skólanemi. 3) Sigur- þór, verslunarmað- ur á Seltjarnarnesi. 4) Halldór Gísli, þroskaþjálfi og kennari í Reykja- vík, kvæntur Ingi- björgu Kristleifs- dóttur, en þeirra synir eru Birkir, Bjarni og Kristleifur, grunnskólanemar, og Tómas Daði. Barnabarna- börnin eru fjögur, ein stúlka og þrír drengir. Frá unga aldri stundaði Bjarni almenna vinnu í Reykja- vík og síðar verslunarstörf. Hann varð sölumaður hjá Jó- hanni Karlssyni & Co. og Verk- smiðjunni Magna og við stofnun hóf hann störf hjá Heildverslun Davíðs S. Jónssonar í Reykjavík pg starfaði þar til ársins 1954. í janúar það ár stofnsetti hann eigin heildverslun, sem starfar enn og ber nafn hans. Bjarni lét af störfum fyrir aldurs sak- ir árið 1985 en við rekstri heild- verslunarinnar tóku dóttir hans og tengdasonur. Bjarni tók þátt í margvíslegum félagsstörfum og má þar nefna sölumanna- deild VR, Karlakórinn Káta félaga, Félag íslenskra stór- kaupmanna, en þar var hann heiðursfélagi, og Góðtemplara- regluna. Útför Bjarna fer fram frá Foss- vogskirkju í dag og hefst at- höfnin kl. 15.00. í DAG verður borinn til grafar Bjarni Þ. Halldórsson, fyrrv. stór- kaupmaður í Reykjavík. Hann var fæddur í Reykjavík og ólst þar upp, átti þar mest allan sinn starfs- dag, en fluttist á Seltjarnarnes fyrir 20 árum og bjó þar síðan. *> 'CbI £ — O £ FOSSVOGI _ Pegar ancih ber cu5 nöndurn Utfarargtofa Kirlzjugarðanna Fossvogi Sími 551 1266 Erfidrykkjur Glæsiíeg KaÖi- hlaðbonV falíegir salir <>g mt<>g got) þionusta Upplysingar í síma 5050 925 og 562 7575 FLUGLEIÐIR IIÉTEL LOFTLEIBIR Bjarni var sonur Halldórs Þórðarsonar, verkamanns í Reykja- vík, og Sigríðar Bjamadóttur hús- móður, en þeirra leiir skildu þegar Bjarni var á barnsaldri. Halldór var kominn af bændaættum úr Bisk- upstungum, fæddur í Hrauntúni, en fluttist þaðan eftir landskjálft- ana 1896 ásamt foreldrum sínum, Þórði Halldórssyni og Ólafíu Þórar- insdóttur, sem bjuggu í Hrauntúni. Halldór, faðir Þórðar, var bóndi í Vatnsleysu, Einarsson, bónda þar, Halldórssonar bónda í Efstadal í Laugardal, Einarssonar bónda þar, Narfasonar. Þórarinn, faðir Ólafíu, var bóndi á Kjaransstöðum í Bisk- upstungum, Jónsson, bónda í Auðs- holti, Jónssonar. Bjarni, faðir Sigríðar, var fædd- ur í Tungufelli í Lundarreykjadal Sigurðsson, bónda þar Jónssonar af Vogatunguætt í Borgarfirði. Bjarni Sigurðsson var dugandi sjó- maður, búsettur í Nýlendu á Sel- tjarnamesi er hann lenti í sjóhrakn- ingum á Faxaflóa, komst heim við illan leik og fékk upp úr því lungna- bólgu, sem leiddi hann til dauða aðeins 31 árs að aldri. Móðir Sigríð- ar Bjarnadóttur var Guðrún Ragn- heiður Snorradóttir, húsfr. i Reykjavík, en hún giftist síðar Benedikt Daníelssyni. Guðrún Ragnheiður var dóttir Snorra Snor- rasonar og konu hans, Halldóru Randversdóttur, f. á Ytra-Hóli í Kaupangssveit, en hún var af Randversætt í Eyjafirði. Halldóra Randversdóttir varð háöldruð kona og var um tíma elsti íbúi Reykjavík- ur. Eftir að leiðir foreldra Bjarna skildu fór hann í fóstur til Guðrún- ar Ragnheiðar, ömmu sinnar, og Benedikts, manns hennar, og þar ólst hann upp. Eftir takmarkaða skólagöngu hóf Bjarni að stunda verkamannavinnu í Reykjavík og síðar verslunarstörf. Ungur maður áttaði hann sig á því að hann átti hæfileika, sem ekki var öllum gef- inn, hann var býsna góður sölumað- ur. Sölumennska fór fram með allt öðmm hætti fyrr á öldinni en nú er. Þá ferðuðust sölumenn heild- verslana í Reykjavík með strand- ferðaskipum og viðskiptavinir, kaupmenn og kaupfélagsfólk, kom um borð í skipin til að gera inn- kaup sín. Eins vom vörur seldar gegnum síma og reyndi þá mjög mikið á að traust ríkti milli aðila. Þannig sölumennsku stundaði Bjarni -á ámnum frá því fyrir heimsstyijöldina og allt fram til þess að hann stofnaði eigin heild- sölu í janúar 1954. Einnig er rétt að hafa í huga að fyrr á öldinni var landsbyggðarverslun mun stærri hlutur heildarvörusölu í landinu en nú er. Strax frá fyrstu tíð einsetti Bjami sér að hafa áreiðanleika, skilvísi og heiðarleika í viðskiptum að markmiði í rekstrinum, fremur en skjótfenginn gróða. Ég undirrit- aður varð þeirrar gæfu aðnjótandi að starfa með Bj.ama um 25 ára skeið. Þannig hef ég gegnum tíðina heyrt margar sögur um þennan liðna tíma frá samferðamönnum hans og félögum, um það víðtæka traust, sem hann naut, þar sem orð eða handtak var jafngilt undirrituð- um og vottfestum samningi. A 75 ára afmæli Bjarna var hann heiðr- aður af Félagi íslenskra stórkaup- manna og jafnframt kjörinn heið- ursfélagi þess. Bjarni var alla tíð mikið snyrti- menni, bæði við sjálfan sig og umhverfi sitt. Hann unni þjóðlegum fróðleik, kunni að gleðjast með glöðum og hryggjast með hrygg- um. Hanri var ætíð aufúsugestur hjá vinum sínum og vandamönnum enda áttu þau hjónin stóran og traustan vinahóp. Hann var glað- sinna og orðheppinn, góður söng- og dansmaður alla sina ævi, allt til hins síðasta. Hann unni mjög fjölskyldu sinni, eiginkonu, börn- um, bamabörnum og barnabarna- börnum og leyfði þeim að njóta elsku sinnar. Einnig nutum við tengdabörnin kærleika hans. Nú þegar komið er að leiðarlok- um þakka ég Bjarna Þ. Halldórs- syni fyrir samfylgdina. Ég bið góð- an Guð að varðveita hann og veita honum gott skjól í eilífðinni. Guðmar Magnússon. Það er sunnudagurinn 10. sept- ember og tvö af barnabörnunum eru við sjúkrabeð afa síns. Þau hlúa að honum af veikum mætti. „Er þetta betra, afi minn?“ er spurt. Fársjúkur maðurinn lyftir hendinni á gamalkunnan hátt og svarar: „Alveg elegant!" Fáir hefðu getað tekið sér þetta orð í munn á eðiilegri hátt. Afí ólst upp í Reykjavík í byijun aldarinn- ar. Hann mundi þessa tíma glöggt og tungutakið hans dró dám af aldamótaárunum. „Ottó-man“, „fortóv", „altan“, „gallosíur“, „reól“; allt voru þetta lifandi orð í munni hans, en ekki okkar, sem höfðum slitið barnsskónum á allt öðrum tíma. Samt gat hann leik- andi talað við okkur á okkar máli. Og ævinlega sem jafningja. Við fundum öll fyrir því, að afi var stoltur af afkomendum sínum. Öllum okkar ráðagerðum tók hann opnum huga, hann dró aldrei úr okkur kjark. Enginn sigur okkar var of ómerkilegur að ekki væri ástæða til að fagna. Uppeldispró- grammið var í föstum skorðum. Hann vaggaði okkur í fangi sér, hossaði á hné, og hafði yfir okkur öllum sömu þulurnar. Við erum þakklát fyrir þá umhyggju, nær- gætni og áhuga sem hann sýndi okkur í hvívetna. Afi var séntilmaður fram í fingurgóma, í fínpússuðum skóm, stífpressuðum jakkafötum og oftar en ekki með hatt. Hann var ákaf- lyndur og hafði afdráttarlausar skoðanir. En lundin var létt, hann hafði ríka kímnigáfu og átti jafnvel til nokkurn stráksskap til hins síð- asta. Það var því ósjaldan skelli- hlegið hjá afa og ömmu. Það var mál manna að afi bæri aldurinn vel. Við sjúkrabeð hans fór ekki hjá því að maður hugsaði til þess; hann var brúnn á hörund, líkamlega vel á sig kominn miðað við aldur og hugurinn var skýr til loka. Söknuðurinn er sár við skjótan missi. En við erum rík að hafa notið nærveru hans svo lengi. Orð afa við sjúkrabeðinn daginn áður en hann dó lýsa honum vel. Og þannig minnumst við hans ætíð: — „elegant". Blessuð sé minning elsku afa okkar. Bjarni Rúnar, Sigríður, Magnús Örn, Sveinn Halldór og Rúna Vigdís. í dag kveðjum við föðurbróður minn, Bjama Þórð Halldórsson, sem er látinn eftir stutta sjúkra- legu. Þó aldur Bjarna hafi verið orðinn hár, en hann hefði orðið níræður á næsta ári, er alltaf sárt að sjá á bak ástvinum sínum. Mér er ljúft að minnast frænda míns og festa á blað nokkur kveðjuorð til hans. Ég átti því láni að fagna að eiga Bjama að þegar ég hóf verslunarrekstur ungur að árum, en hann bjó yfir mikilli kunnáttu og reynslu á sviði viðskipta. Þegar ég hugsa til baka, man ég fyrst eftir Bjarna starfandi í verslun við Þórsgötu, síðar gerðist hann sölumaður eða þar til hann stofnaði eigið fyrirtæki, sem ber nafn hans enn þann dag í dag. Bjarni naut mikils trausts meðal kollega sinna og ekki síður meðal þeirra, sem versluðu við hann. Vissi ég dæmi þess að kaupmenn á landsbyggðinni, sem ekki áttu heimangengt, traystu Bjarna fyrir því að velja vörur til þeirra eftir bestu vitund. Allir treystu Bjarna og þótti vænt um hann, enda hvers manns hugljúfi. Það fór heldur ekki fram hjá neinum hve mikið snyrtimenni Bjarni var, svo mjög að eftir var tekið. Ég minnist frænda míns einnig á góðum stundum, þar var hann ávallt ómissandi, alltaf kátur og hress og hrókur alls fagnaðar. Allt sem Bjami tók sér fyrir hendur gerði hann með reisn og hann yfir- gaf þennan heim einnig með reisn. Engum hefði orðið það þungbærara en honum sjálfum, ef hann hefði orðið að búa við vanheilsu, jafnvel árum saman, sem því miður marg- ir verða að sætta sig við. Ég vil að lokum þakka Bjarna frænda mínum fyrir að hafa átt þess kost að eiga hann að sönnum vini. Einnig þakka ég honum alla þá vináttu, sem hann sýndi minni fjölskyldu gegnum árin. Ég sendi eftirlifandi eiginkonu hans, Rúnu, börnum þeirra og öðrum ástvinum, samúðarkveðjur. Far í friði, kæri frændi, Gunnar Snorrason. Nú þegar Bjarni Þórður Hall- dórsson er lagður til hinstu hvílu er þakklæti efst í huga mínum þrátt fyrir tómleika og söknuð. Þakklæti fyrir það að hafa fengið að kynn- ast þessum góða og glæsilega manni og fyrir allar minningarnar sem við eigum eftir að ylja okkur við. Minninguna um Bjarna, stoltan og keikan með sposka svipinn að dansa í brúðkaupi fyrir nokkrum vikum. Sparibúinn á leið á Borgina að hitta strákana. Sportlegur í Húsafellsferðunum. Heimakær og vær í sófanum heima á Skóla- braut. Afi með lítinn strák á öxl- inni að dansa og syngja „hvað er nú þetta þetta, hvað er nú þetta, já“ og tala svolitla tæpitungu við „dákana“ sína, „bikkupana". Þakk- læti fyrir það að honum skyldi gef- in góð heilsa fram að síðustu dög- unum og að hann skyldi geta litið stoltur yfír farinn veg. Bjarni Þ. Halldórsson var gæfu- maður bæði í einkalífí og starfi. Hann stofnaði og rak eigin heild- verslun. Þar átti hann góða starfs- ævi sem hann deildi með Guðmari, tengdasyni sínum, Sigurþóri, syni sínum, og undir lok starfsferilsins einnig með Rögnu, dóttur sinni. Heiðarleiki er það orð sem best lýsir starfsferli Bjarna og tók hann mjög nærri sér ef hann varð var við óheilindi. Enn eitt gæfumerkið á lífi Bjarna er það að hann skyldi fá að njóta ævikvöldsins vitandi af lífsstarfinu í góðum höndum. Stærsta gæfan hans var þó án efa hún Rúna, lífsförunautur hans í 60 ár. Þau voru eitt en ekki eins. Hún var styrkurinn hans og akkeri enda var hann stoltur af sinni. Bjarni var tilfinningaríkur maður. Hann bar mikla umhyggju fyrir sínu fólki og leið ekki sá dagur að hann gáði ekki að krökkunum sín- um og honum var ekki rótt nema þegar hann vissi af öllum öruggum. Bjarni og Rúna eignuðust fjögur börn, níu bamabörn og fjögur barnabarnaböm. Fyrsta barnið, dreng, misstu þau í fæðingu. Tíminn læknar ekki öll sár þó að maður læri að lifa með þeim. Það lærði maður við það að skynja missi þeirra og sorg þó að rúm hálf öld væri liðin. En eftirlifandi afkom- endur þeirra hafa notað lífið sem þeim var gefíð til þess að rækta mannkosti sína og hæfileika, Bjarna til stolts og gleði. Sérstak- lega var náið samband hans við Sigurþór sem alla ævi hefur starfað og búið í nálægð við foreldra sína. Gagnkvæm umhyggja og virðing einkenndi þeirra samband alla tíð. Enn og aftur þakka ég fyrir sam- fylgdina sl. 14 ár, alla umhyggjuna fyrir mér og mínum og allar góðu stundirnar sem okkur voru gefnar með höfðingjanum Bjarna Þórði Halldórssyni. Blessuð sé minning hans. Ingibjörg Kristleifsdóttir. Góðvinur okkar hjónanna, Bjarni Þ. Halldórsson fyrrverandi stór- kaupmaður, er látinn. Þrátt fyrir háan aldur kom and- lát hans okkur á óvart, þar sem hann hafði alla tíð verið mjög heil- brigður og heilsuhraustur. Kynni okkar Bjarna spanna nær 50 ár og margs er að minnast og margt að þakka. Eftir 45 ára samleið, sem við Bjarni áttum saman í bindindis- hreyfingunni, og 36 ára samleið i reglu musterisriddara, sem fljót- lega myndaði sanna vináttu okkar í milli, og heimila okkar, sem aldr- ei bar skugga á. Eigum við sem eftir lifum margar góðar og skemmtilegar minningar um sam- fundi á heimilum hvers annars við ótal tækifæri, að ógleymdum mörg- um ferðum um landið með báðum reglunum sem við störfuðum í. Einnig áttum við góða daga saman í Svíþjóðarferð og Spánarferð. Þótt Bjarni væri harðduglegur maður og ræki heildsölufyrirtæki sitt af miklum myndarskap á með- an heilsa og kraftar leyfðu leitar á huga minn það sem mér fannst mest virði í fari Bjarna. Hann var einn af þeim mönnum, sem gerðu sér snemma ljóst, hver væru hin varanlegu lífsgildi og allur hans lífsferill og persónuleiki átti eftir að mótast af því manngildismati sem hann tók ungur trúnað við. Bjarni Þ. Halldórsson var það, sem menn gleyma stundum að er trú- lega hið verðmætasta í lífinu: Hann var góður maður. Þótt Bjarni væri ljúfur, léttur og léki oft á als oddi í daglegri um- gengni þá duldist engum, að þar fór maður með heilsteypta skap- gerð og eðlislægan virðuleik og manni leið vel í návist hans og frá honum stafaði hlýju og göfgi. Bjarni var kvæntur yndislegri konu, Rúnu Vigdísi Halldórsdóttur. Með þeim voru ekki einungis ástir góðar, heldur voru þau vinir og félgar í blíðu og stríðu og áttu miklu barnaláni að fagna. Við Dúddý og börn okkar send- um Rúnu og börnum hennar og öðrum ættingjum og venslafólki dýpstu samúðarkveðjur á þessari stundu. Með Bjarna Þ. Halldórssyni er kvaddur sannur, góður og vammlaus maður. Hann var hug- rakkur og æðrulaus til hinstu stundar. Slíkir menn gleymast ekki. Kristján P. Sigfússon.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.