Morgunblaðið - 20.09.1995, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 20.09.1995, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 1995 37 BRÉF TIL BLAÐSIIMS Fargjöld SVR Frá Helgu Garðarsdóttur: FYRR í þessari viku samþykkti meirihluti stjórnar Strætisvagna Reykjavíkur að leggja til við borgarráð að hækka gjald sumra strætisvagnafarþega, hafa gjald annarra óbreytt og fjölga í þeim hópi sem ferðast ókeypis með vögnunum. Það hefur varla farið fram hjá nokkrum manni að borg- arráð samþykkti tillögur stjórnar- innar. Síðan þá hefur allsérkenni- leg umfjöllun um málið farið fram í fjölmiðlum. Hrópað er að borgar- fulltrúar Reykjavíkurlistans hækki fargjöld þeirra sem minnst mega sín og fullyrt er án rökst- uðnings að breytingarnar komi sérstaklega illa við barnafjöl- skyldur! Hvers vegna þessa sleggjudóma? Eftir að breyting- arnar taka gildi þann 1. október nk., kostar ekkert fyrir börn yngri en 6 ára, fargjald 6 til 12 ára gamalla barna verður 25 kr., unglingar á 13. aldursári og fram á 16. ár greiða 100 kr., þeir sem eru á aldrinum 16 til 67 ára og eru ekki öryrkjar greiða 120 kr., Það er margt skrýtið... Frá Helgu R. Ingibjargardóttur: JÁ, ÞAÐ ER vissulega margt skrýtið og „skrautlegt“ sem birtist hér í blaði okkar, blaði allra lands- manna. í dag, 9. september, birtist á bls. 37 greinin: „Búddhisminn og andstaða íslensku þjóðkirkjunn- ar“. Henni lýkur með þessum orð- um: „Sem betur fer eru til trúar- hreyfingar og samtök er vinna að því að sameina kristna trú og buddhisma“??? Kannast höfundur- inn ekki við orð Biblíunnar „svo langt sem austrið er frá vestrinu o.s.frv.“? Þótt óvinurinn sem um- talaður er í 1. Pét. 5:8 sé laginn við að menga og útvatna hin heil- næmu orð Ritningarinnar, þá mun honum væntanlega seint takast að hræra saman kristinni trú og buddhisma þannig að úr verði trú- verðug „kenning". Vindhögg Greinarsmiðurinn veitist að tveim úr hópi hinna lærðustu og virtustu manna hinnar kristnu kirkju á íslandi, þeim dr. Einari Sigurbjörnssyni og föður hans Sig- urbirni biskupi. Högg hans eru vindhögg. Hann ætti að slíðra sitt bitlausa sverð og taka til við að Iesa gaumgæfilega Nýja testa- mentið. Það er gott að byija á Markúsi og gefa gætur á því - með opnum huga - hvað hann hefur að segja. Þá mun skurðgoð- ið Buddha fljótt blikna og fölna og hljóta sömu örlög og goð (fals- guð) Þorgeirs Ljósvetningagoða, sem hann varpaði í fossinn (Goða- foss) árið 1000, er hann hafði gjört köllun sína og útvalningu vissa og valið hinn hvíta Krist sem lífsföru- naut. Kvennakirkja Kvennakirkjan kynnir vetrar- starf sitt í sama blaði á bls. 35, en þar segir m.a. „verður sept- embermessan haldin í Neskirkju sd. 10. september kl. 20.30. Um- ræðuefni messunnar verður haust- ið, eftirvæntingin sem því fylgir, ný fyrirheit, blíða þess og töfr- ar. . . “ Er þessi „kirkja“ kristin og telur hún sig tilheyra hinni Evangelísk-lúthersku þjóðkirkju á íslandi? Kannski er hér komin hin „kristna trú“ sem Búddhistar geta og vilja sameinast? HELGA R. INGIBJARGARDÓTTIR, Reykjav:k. öryrkjar greiða 25 kr. og ellilíf- eyrisþegar greiða 50 kr. Það er erfitt að sjá hvemig sú breyting að hækka aldur þeirra barna sem ferðast ókeypis með strætó úr 4 ára í 6 ára kemur illa við foreldra barnanna. Þá er ekki síður erfitt að átta sig á því hvern- ig það kemur illa við barnafjöl- skyldur að fargjald 6 til 12 ára skuli verða óbreytt. Hamrað hefur verið á því að fargjöld unglinga og aldraðra hækki um 100%, en lítið hefur verið talað um að fargjald aldr- aðra er aðeins 25 kr. og unglinga 50 kr. Finnst fólki virkilega að verið sé að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur með því að ákveða að fargjald unglinga verði 100 kr. og aldraðra 50 kr.? Afar hljótt hefur verið um þá ákvörðun meirihluta stjórnar SVR að gera greinarmun á öryrkjum og öldruðum. Það gladdi mig að sjá að stjórnarmenn gera sér grein fyrir því að öryrkjar og aldraðir eiga hreint ekki heima á sama bás, eins og margir virðast halda. Fargjald öryrkja verður óbreytt, þ.e. 25 kr. Með þeirri ákvörðun tóku fulltrúar Reykjavíkurlistans tillit til þeirra sem óumdeilanlega eru í hópi þeirra sem minnst mega sín; þeirra sem búa við heilsuleysi og þurfa að framfleyta sér af öror- kulífeyri. Fulltrúar Reykjavíkurlistans hafa sagt að óhjákvæmilegt sé að hækka fargjöldin, því borgarsjóður sé ekki aflögufær. í ljósi útgjalda- gleði sjálfstæðismanna á valda- tíma þeirra í Reykjavík sé ég ekki ástæðu til að rengja það og enn síður í ljósi þess að aðeins þriðj- ungur framteljenda greiðir tekju- skatt, en það þýðir vitanlega að aðeins hluti Reykvíkinga greiðir útsvar, sem stendur jú, undir þjón- ustunni í borginni. Formaður stjórnar Strætis- vagna Reykjavíkur hefur sagt að á næsta ári verði breytingar á ferðum og tíðni vagnanna, m.a. til að standa undir þeim kostnaði hafi fargjaldaskrá SVR verið hækkuð að hluta. í tilefni af því rifja ég upp það afrek sjálfstæðis- manna í Reykjavík að útrýma strætisvögnum úr einu hverfí borgarinnar; Þingholtunum og götunum þar í kring. í mörg ár hefur enginn strætisvagn ekið um þennan borgarhluta og kenna menn því um að göturnar þar séu of þröngar fyrir vagna SVR. Það er rétt, göturnar þar eru þröngar en það er ekki vegna þess að þær hafi skroppið saman af ókunnum ástæðum heldur vegna þess að borgaryfirvöld létu þrengja þær eina af annarri. Ég vona að núver- andi valdhafar í borginni geri bragarbót á og komi á strætis- vagnasamgöngum í Þingholtunum og nágrenni. Ibúum þar er ekki bjóðandi að horfa upp á það leng- ur að þjónusta við íbúa annarra hverfa sé aukin meðan þeim er haldið utan þjónustusvæðis SVR. Það er ekki veijandi að auka þjón- ustu í einum borgarhluta á sama tíma og engin þjónusta er rekin í öðrum. HELGA GARÐARSDÓTTIR, Kt. 221059-4929. II II II II__________II II II II II II II II II II II II II II II II II II II II ll

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.