Morgunblaðið - 20.09.1995, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 20.09.1995, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 1995 31 MINNINGAR + Þorsteinn fædd- ist í Reykjavík 27. september 1918. Hann lést á Land- spítalanum 9. sept- ember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Brynjólfur Þorsteinsson, bankaritari, d. 27. júní 1945, og Þuríð- ur Guðmundsdótt-' ir, húsfrú, d. 22. október 1948. For- eldrar Brynjólfs voru Þorsteinn Erl- ingsson, skáld, d. 28. september 1914, og Guðrún Jónsdóttir, d. 1. maí 1960. For- eldrar Þuríðar voru Guðmund- ur Guðmundsson, verslunar- maður, d. 23. nóvember 1945, og Dagbjört Grímsdóttir, d. 21. maí 1950. Eiginkona Þorsteins Brynj- ólfssonar var Lára Lárusdóttir, f. 12. júlí 1927, d. 17. janúar 1989. Foreldrar Láru voru Lár- us Guðbjartur Guðmundsson í Krossnesi í Grundarfirði, d. 25. NÚ ER látinn bróðursonur minn, Þorsteinn Brynjólfsson, nærri 77 ára að aldri. Brynjólf föður hans eignaðist móðir mín árið 1898, um tveimur árum áður en foreldrar mínir Guðrún Jónsdóttir og Þor- steinn Erlingsson, skáld, hófu bú- skap í Reykjavík. Hann varð kjör- sonur pabba míns og skráður Þor- steinsson. Brynjólfur ólst upp með okkur Svanhildi systur minni og að loknu prófi í Verslunarskólanum starfaði hann fyrst við verslun en varð síðar bankaritari. Um tvítugs- aldur kvæntist hann ágætri konu, Þuríði Guðmundsdóttur. Hinn 27. september 1918, á afmæli föður míns, eignuðust þau son, sem skírð- ur var Þorsteinn í höfuðið á honum. Þegar Þorsteinn Brynjólfsson fæddist var ég sjö ára. Hef ég fylgst með honum og haft náið samband við hann síðan. Hann kom mjög oft á æskuheimili mitt og hafði ég mjög gaman af snáðanum. Þegar hann hafði aldur til fór hann í Versl- unarskólann eins og faðirinn og lauk þar fullnaðarprófi. Hann hefur lengst af starfað hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur, fyrst sem skrifstofu- maður og síðar sem fulltrúi. Hann kvæntist ágætri dugnaðar- konu, Láru Lárusdóttur, árið 1951 og eignuðust þau tíu börn. Hún lést úr illvígum sjúkdómi í ársbyrjun 1989, svo nú hefur hann verið ekk- ill í rösk sjö ár og að mestu leyti séð um sig og heimilið sjálfur, enda eru börnin flest flutt að heiman fyrir alllöngu og hafa stofnað eigin heimili. Fyrir nokkrum árum var Þor- steinn skorinn upp vegna blæðandi magasárs og var hluti magans tek- inn. Síðan hefur hann átt við þrálát- ar meltingartruflanir að stríða, meira að segja garnastíflur sem nokkrum sinnum hefur þurft að lagfæra með uppskurði. Talið er að þessar stíflur hafi stafað af sam- vöxtum milli þarmanna sem mynd- ast hafi eftir magasársuppskurðinn. Hinn 31. ágúst síðastliðinn var Þorsteinn lagður inn á Landspítal- ann með þarmastíflu sem fljótlega var lagfærð með uppskurði. En eft- ir aðgerðina varð honum mjög þungt fyrir bijósti og átti erfitt með að anda. Það hafði safnast mikill vökvi fyrir í lungunum og þurfti oft að dæla miklu upp. Ekki var það nóg, því súrefni mældist of lítið í blóði. Þá var gripið til þess ráðs að setja hann í öndunarvél og var hann með lyfjum látinn sofa þar. Gefinn var vökvi og næring í æð. Á meðan hann var í vélinni, nær apríl 1946, og Sig- urlaug Skarphéð- insdóttir, d. 11. jan- úar 1942. Börn Þor- steins og Láru eru tíu, barnabörn 20 og eitt barnabarna- barn. Börnin eru: Þuríður, f. 9. apríl 1951, Lára Sigur- laug, f. 9. septem- ber 1952, Guðrún, f. 15. apríl 1954, Bryndís, f. 3. októ- ber 1955, Brynjólf- ur Már, f. 2. júlí 1957, Dagbjört, f. 13. janúar 1960, Guðmundur Helgi, f. 10. desember 1962, Geir, f. 9. september 1964, Rúna Björg, f. 8. apríl 1966, og Sigrún, f. 30. september 1967. Þau búa öll í Reykjavík, nema Dagbjört í Mosfellsbæ og Sig- rún á Djúpavogi. Þorsteinn starfaði sína starf- sævi hjá Rafmagnsveitu Reylga- víkur. Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni í dag og hefst athöfnin klukkan 15.00. inn að búast við því að hann mundi komast yfir þetta þegar mér barst fregnin um andlát hans að kveldi þess 9. september. Læknir sem hafði stundað hann tjáði mér að dauðaorsökin hefði greinilega verið hjartabilun. Komið hefðu í ljós stíflur í kransæðum og drep í hjartavöðvanum. Þrátt fyrir veikindi og andstreymi var Þorsteinn yfirleitt hress og kát- ur, laus við að kvarta og barma sér. Hann sagði oft við mig að ástæðulaust væri að vola eða kveina á meðan maður væri verkjalaus og gæti farið ferða sinna. Hann var glaðlyndur, rólegur maður fastur fyrir og ákveðinn í skoðunum og mikið snyrtimenni. Við og aðrir þeir sem þekktu Þor- stein munum sakna hans mjög. Við Þórdís og börn okkar sendum börnum hans, barnabörnum og fjöl- skyldum þeirra innilegar samúðar- kveðjur. Við biðjum Þorsteini guðsbless- unar á þeim leiðum sem hann nú hefur lagt út á. Blessuð veri minn- ing hans. Erlingur Þorsteinsson. Og nú fór sól að nálgast æginn, og nú var gott að hvfla sig, og vakna upp ungur einhvern daginn með eilífð kringum þig. Nú opnar fangið fóstran góða og faðmar þreytta bamið sitt; hún býr þar hlýtt um bijóstið móða og blessar lokað augað þitt. Hún veit, hve bjartur bjarminn var þótt brosin gloðu sofi þar. (Þorsteinn Erlingsson) Ég kynntist Þorsteini Brynjólfs- syni fyrir um 25 árum síðan. Þá var hann á besta aldri. Við urðum fljótlega góðir vinir þrátt fyrir nokk- urn aldursmun. Þegar ég lít til baka yfir farinn veg minnist ég margra ánægjustunda er við áttum saman bæði á heimili þeirra hjóna Þor- steins bg Láru Lárusdóttur, en hún lést 17. janúar 1989, langt um ald- ur fram, og á heimili okkar Þuríðar dóttur þeirra. Hinn 6. október 1951 kvæntist hann Láru Lárusdóttur frá Krossnesi í Grundarfirði. Þau hófu búskap í Reykjavík og bjuggu lengst af á Holtsgötu 21 og síðar á Hagamel 48. Þorsteinn starfaði allan sinn starfsaldur hjá Rafmagn- sveitu Reykjavíkur, lengst sem full- trúi, eða í rúm 40 ár. Börn þeirra hjóna urðu tíu. ÖIl börn Þorsteins hafa stofnað eigið heimili. Þorsteini var annt um velferð barna sinna og fylgdist vel með þeim eftir að Lára kona hans dó. Og barnabörnin sem komu oft í heimsókn til afa nutu ástúðar hans. Hafa þau mikið misst. Það gefur að skilja að oft hefur róðurinn verið þungur að sjá svo stórum hópi farborða. Lá Lára heitin ekki á liði sínu en hún vann mikið utan heimilis þegar bömin voru yngri. Á heimili þeirra hjóna var gott að koma. Þar var gestrisni mikil. Heimilið stóð ávallt öllum ættingjum og vinum opið, þeir sem í ijarlægð bjuggu gátu komið hve- nær sem var og hvemig sem á stóð í mat og til gistingar. Þorsteinn var ekki allra, eins og sagt er, en sann- ur vinur vina sinna. Hann var mjög vel greindur og minnugur, ættfróð- ur og fylgdist vel með málum líð- andi stundar. Hann var ákaflega skemmtilegur í viðræðum og hnittin tilsvör hans komu oft á óvart. Hann var ákveðinn í skoðunum á þjóðmál- um, eitilharður sjálfstæðismaður, sá mesti sem ég hef hitt á lífsleið- inni og svo fylginn sér í skoðunum sínum og rökfastur að menn sem voru á vinstri væng stjómmálanna flúðu undan honum. Þorsteinn hafði mikinn áhuga á knattspyrnu enda mikill Valsmaður og fylgdist grannt með sínum mönnum á knattspyrnu- vellinum. Hann átti heitt og stórt hjarta. Ef til vill fann hann stundum of mjög til í stormum sinnar tíðar. Þegar ég með þessum fátæklegu orðum kveð tengdaföður minn vil ég bera fram þakklæti fyrir allt sem hann gerði fyrir mig. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Guðmundur Kr. Þórðarson. t Móðir mín, ÞÓRA, er dáin. Ég þakka ást og hamingju mín fyrstu ár. Marie. Ergoterapeut, ÞÓRA GESTSDÓTTIR, fædd 26.02.1948 í Reykjavík, Wilkensvej 16C, 2000 Frederiksberg, Danmörku, lést 08.09. 1995. Útför hennar var gerð frá Hyltebjerg-kirkju, Vanlose, og jarðsett í garðinum við Roskildevej 59 þann 1 5. september. Þökkum samúð og hlýhug. Marie Vigdís Madsen, Finn Madsen, Kristín Jónsdóttir, Vita Madsen, Ófeigur og Sverrir Gestssynir, Kirsten Barslund, Helle Langberg, Lone Frimodt, Jytte Baarstrom, Iris Boa, Helle Findt, Karin Pannicelli, Kirsten Grube, Anna Eriksen, Inge Zimmermann og fjölskylda, Svíþjóð, Susanne órslykke, Alf Hoj Madsen, Ivar Christensen, Henrik Olsen, Tine Rosenbeck, Gitte Hojgaard, Jorgen Moller Madsen, Kirsten Skot Hansen, Hanne, Áse, aðrir vinir og vandamenn. ÞORSTEINN BRYNJÓLFSSON fimm sólarhringa, voru gerðar margar rannsóknir á blóði, lungum, hjarta, æðum og fleiru. Ég hafði samband tvisvar eða oftar daglega við lækna eða hjúkrunarfræðinga sem önnuðust Þorstein og var far- ►<- MflHHHEHG ^lll ERFISDRYKK[AN Veislusalur Lágmúla 4, sími 588-6040 *' Ástkærir synir okkar og bræður, FINNUR BJÖRNSSON, KRISTJÁN RAFN ERLENDSSON og SVANUR ÞÓR JÓNASSON, fórust í flugslysi þann 14. sepember sl. Minningarathöfn fer fram í Hallgrímskirkju fimmtudaginn 21. sept- ember kl. 15.00. Jarðarförin fer fram á Patreksfirði laugardaginn 23. september kl. 14.00. Þeim, sem vildu minnast þeirra, er bent á björgunar- og hjálpar- sveitir. Björn Gislason, Sigríður Sigfúsdóttir, Þorsteinn Björnsson, Sóley Karlsdóttir, Anna Lilja Björnsdóttir, Erlendur Kristjánsson, Sigríður Karlsdóttir, Sigríður Filippía og Kari Ottar Erlendsbörn, Jónas Sigurðsson, Elsa Nfna Sigurðardóttir, Sunna María Jónasdóttir. GUÐBJÖRG SKAFTADÓTTIR, Sólheimum 23, lést 18. september. Útförin verður gerð frá Fossvogskirkju mánudaginn 25. september kl. 15.00. Þeir, er vildu minnast hennar, láti Orgel- sjóð Langholtskirkju njóta þess. Kristín Gunnlaugsdóttir, Sig. Haukur Guðjónsson, barnabörn og barnabarnabörn. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÚN RAGNHEIÐUR JÓNSDÓTTIR, sem lést í Sjúkrahúsinu á Hvamms- tanga 17. september sl., verður jarð- sungin frá Hvammstangakirkju nk. laug- ardag, 23. september, kl. 14.00. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Sjúkrahúsið á Hvammstanga. Ragnar Björnsson, Sigrún Björnsdóttir, Jónfna Þórey Björnsdóttir, Halldór Sigurgeirsson, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður og ömmu, ■ SIGURBJARGAR PÉTURSDÓTTUR frá Laugum, Sugandafirði. Ósk Axelsdóttir, Guðmundur Skarphéðinsson, Þórir Axelsson, Guðrún Ásgeirsdóttir, Sigríður E. Aðalbjörnsdóttir, Ólöf Aðalbjörnsdóttir, Guðmundur Svavarsson, Kristjana S. Aðalbjörnsdóttir, Sigurgeir Arngrfmsson, Jóhannes S. Aðalbjörnsson, Eydís Aðalbjörnsdóttir, Þorkell Logi Steinsson og barnabörn. + Elskuleg móðir mín og tengdamóðir, HREFNA GEIRSDÓTTIR, Hraunteigi 19, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 22. séptember kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hennar, er vinsamlega bent á líknarfélög. GeirTorfason, Ingveldur Ingólfsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.