Morgunblaðið - 20.09.1995, Side 48
MORGUNBLADID, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍM 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.1S / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Kýlaveikibróðir
greinst í 8 ám
Laxar
drepast
NYLEGA fundust tveir dauðir fisk-
ar í Víðidalsá í Steingrímsfirði. Við
rannsókn fisksjúkdómadeildar Til-
raunastöðvarinnar á Keldum kom í
ljós að þeir höfðu drepist úr kýla-
veikibróður. Gísli Jónsson fisksjúk-
dómalæknir sagði að þessi veiki
hefði fundist í átta ám hér á landi
í sumar. Hún tengdist á engan hátt
kýlaveikinni sem kom upp í Elliða-
ánum í sumar.
Kýlaveikibróðir er eitt afbrigði
kýlaveiki, en hann er vægur sjúk-
dómur samanborið við sjálfa kýla-
veikina. Kýlaveikibróðir hefur vald-
ið talsverðu tjóni í eldisstöðvum, en
er haldið í skeíjum með bólusetn-
ingu. Gísli sagði að um væri að
ræða veiki sem væri að fínna í villt-
um físki. Öðru hveiju gengi sýktur
fiskur upp í árnar, en aðstæður þar
ýttu undir sjúkdóminn og þess
vegna dræpist hann. í fæstum til-
fellum næði hann að smita aðra
fiska í ánum.
Ástæðan fyrir því að talsvert
hefur fundist af fiski sem drepist
hefur úr kýlaveikibróður í sumar
er sú að vegna umræðunar um
kýlaveikina í Elliðaánum eru veiði-
menn mjög meðvitaðir um sjúk-
dómahættu og senda allan grun-
samlegan lax til greiningar. Gísli
sagði enga ástæðu til að ætla að
meira eða minna væri um kýlaveiki-
bróður í laxveiðiám nú en undanfar-
in ár.
Yfír 100 laxar hafa greinst með
kýlaveiki í Elliðaánum í sumar. Síð-
ast í gær fundust tveir sýktir laxar
í ánum.
Skemmdi
átta bíla
UNGLINGUR skemmdi í fyrra-
kvöld átta bíla, sem stóðu við
Stakkahlíð. Lögreglan náði
sökudólgnum, sem ekki er sak-
hæfur, þar sem hann er aðeins
14 ára.
Busamir tolleraðir
NEMENDUR Menntaskólans í
Reykjavík taka með viðhöfn á
móti nýnemum, sem þeir kalla
„busa“. Frá fornu fari hefur það
tíðkast að tollera busana og eru
þeir þar með innvígðir í heim
framhaldsskólans, þessarar
virðulegu skólastofnunar í
gamla virðulega húsinu við
Lækjargötu. „Gömlu“ nemend-
urnir, þ.e.a.s. þeir, sem komizt
hafa í gegnum eldskírn 3. bekkj-
ar, hafa á síðustu árum klæðzt
hvítum skikkjum við þessa
gömlu athöfn, sem fram fór eft-
ir hádegið í gær, busunum til
hrellingar, en vonandi til eftir-
minnilegrar ánægju.
Sjö fyrirtæki flytja inn 26 tonn af imniim búvörum á lágmarkstollum
Hæst borgað fyrir
kalkún og kjúkling
LANDBÚNAÐARRÁÐUNEYTIÐ
hefur lokið úthlutun tollkvóta á unn-
um kjötvörum samkvæmt tillögum
ráðgjafarnefndar um inn- og útflutn-
ing landbúnaðarvara. Úthlutað var
26 tonnum til sjö fyrirtækja.
Fyrirtækin ætla að borga samtals
rúmar 2,2 milljónir króna fyrir að
fá að flytja kjötið inn á lágmarkstoll-
um. Hæstu tilboðin komu frá fyrir-
tækjum sem ætla að flytja inn vörur
unnar úr kalkún og kjúklingum.
Samkvæmt GATT ber aðildarþjóð-
um samningsins að heimila innflutn-
ing á tilteknu magni af búvörum á
lágmarkstollum. Þetta mark er núna
3%. Miðað við framleiðslu á kjöti hér
á landi þýðir þetta að heimilt er að
flytja inn um 26 tonn af unnum kjöt-
vörum á þessum lágmarkstollum.
Upphaflega sóttu 12 aðilar um að
flytja inn um 150 tonn af unnum
kjötvörum á lágmarkstollum. Þar
sem sótt var um margfalt meira
magn en heimilt var að flytja inn
ákváðu stjórnvöld að nýta sér heim-
ild í lögum til að óska eftir tilboðum
í innflutninginn. Sjö fyrirtæki sóttu
um innflutning á samtals rúmlega
61 tonni.
Fyrirtækin ætla aö borga samtals
rúmar 2,2 milljónir króna fyrir að fá
aö flylja kjötið inn á lágmarkstollum
Ráðgjafarnefnd um inn- og út-
flutning á landbúnaðarvörum fjallaði
um tilboðin í gær og komst að eftir-
farandi niðurstöðu:
Tilboð á bilinu
1-302 kr.ákg
Sláturfélag Suðurlands fær að
flytja inn 1.200 kg af kæfu og borg-
ar fyrir það 49.200 krónur, sem er
41 kr. á kg. SS flytur einnig inn
1.300 kg af vörum unnum úr svína-
lærum fyrir 64.300 kr. eða 40 kr. á
kg. Þá flytur SS inn 8 tonn af svína-
skinku fyrir 448.000 kr. eða 56 kr.
á kg.
Islenskt-franskt hf. flytur inn 230
kg af pylsum fyrir 1.840 kr. sem er
8 kr. á kg. Fyrirtækið flytur einnig
inn 590 kg af kæfu fyrir 5.160 kr.,
sem er tæplega 9 kr. á kg.
Karl K. Karlsson ehf. fær að flytja
inn 480 kg af kæfu á 2.400 kr., sem
er 5 kr. á kg.
Kjötumboðið hf. fær leyfi til að
flytja inn 2.500 kg af unnum kalk-
únavörum og borgar fyrir það
700.000 kr. eða 302 kr. á kg. Fyrir-
tækið ætlar einnig að flytja inn 300
kg af svínaskinku fyrir 45.000 kr.,
sem er 150 kr. hvert kg.
Stjarnan hf., sem er umboðsaðili
fyrir Subway á Islandi, ætlar að
flytja inn 2.000 kg af unnum kalk-
únavörum fyrir 604.000 kr., sem er
302 kr. á kg. Fyrirtækið ætlar einn-
ig að flytja inn 900 kg af unnum
kjúkling fyrir 180.900 kr. eða fyrir
201 kr. á kg. Fyrirtækið mun flytja
inn 400 kg af unnu svínakjöti fyrir
40.400 kr., sem er 49 kr. á kg. Þá
mun Stjaman flytja inn 1.450 kg af
vörum unnum úr nautakjöti og borga
fyrir það 1.450 kr., sem er ein kr. á
kg-
Gunnar Kvaran hf. fær leyfi til
að flytja inn 180 kg af unnum kjúkl-
ing fyrir 5.400 kr., sem er 30 kr. á
kg. Fyrirtækið mun einnig flytja inn
350 kg af vörum unnum úr nauta-
kjöti fyrir 10.500 kr. eða um 30 kr.
á kg.
Þá fékk Lyst hf., sem er umboðs-
aðili fyrir McDonald’s á íslandi, leyfi
til að flytja inn 6.120 kg af vörum
unnum úr kjúkling fyrir 61.200 kr.,
sem er 10 kr. á kg.
Tilboðsgjafar
borga 2,2 miiyónir
Það verð sem að ofan greinir er
það verð sem fyrirtækin eru tilbúin
til að borga ríkinu fyrir að fá að flytja
vörurnar inn. Þetta eru samtals
2.219.750 kr. og renna þær í ríkis-
sjóð. Við verðið bætist síðan inn-
kaupsverð vörunnar, lágmarkstollur
og álagning. Svo dæmi sé tekið af
unnum kalkún, sem Stjarnan hf. flyt-
ur inn, er áætlað innkaupsverð hans
um 300 kr. Við það bætist 204 kr.
tollur og 302 kr. tilboðsgjald.
Fyrirtækin Hagkaup, Nóatún,
Bein dreifing, Rolf Johansen og
Dreifíng óskuðu eftir því að fá að
flytja inn unnar kjötvörur, en þau
skiluðu ekki inn tilboðum þegar aug-
lýst var eftir þeim.
Morgunblaðið/Þorkell
Riðuveiki
í Vatnsdal
Yfir 1500
fjár skor-
ið í A-Hún
RIÐUVEIKI hefur fundist í
kind frá bænum Ási í Vatns-
dal í Austur-Húnavatnssýslu.
Á bænum eru 623 kindur og
fylgja þeim á 11. hundrað
lamba. Búið að Ási er annað
stærsta fjárbú í Austur-
Húnavatnssýslu.
Riðuveika kindin frá Ási
kom fram í Víðidalstungurétt
í Vestur-Húnavatnssýslu síð-
astliðinn sunnudag. Kindinni
var umsvifalaust lógað og
send í rannsókn að Keldum.
Staðfestar niðurstöður um
riðuveikina lágu fyrir í gær.
Tvær kindur
riðuveikar
Nýlega fannst einnig riðu-
veiki í kind frá stærsta fjár-
búinu í héraðinu, Stóru-Giljá,
þar voru yfír 900 fjár. Á þess-
um tveimur bæjum voru síð-
astliðinn vetur samtals um
1550 fjár- Vegna tveggja
riðuveikra kinda, sem nú hafa
fundist, þarf að skera meira
en 5% af fjárstofni Austur-
Húnvetninga.
Skorið í annað sinn
Þetta er í annað sinn sem
riðuveiki kemur upp að Ási.
Allt fé var skorið þar 1987
og lömb tekin að nýju haustið
1990. Fénu verður nú öllu
slátrað og fullorðna féð urð-
að.