Morgunblaðið - 27.09.1995, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 27.09.1995, Blaðsíða 10
10 E FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ RLNETIÐ Eins og áskrifendur Morgun- blaðsins á alnetinu þekkja, þá hef- ur útlit heimasíðu Morgunblaðsins verið breytt og málaflokkum og sérblöðum raðað á nýjan veg. Efn- isniðurröðun hefur því breyst nokkuð. Lesendum til glöggvunar birtist hér yfirlit um hvemig efn- inu er raðað niður í dag. Sérblöðin Þegar áskrifandi hefur tengst heimasíðu blaðsins má sjá sérblöð- in sem gefin eru út á netinu ásamt blaði dagsins. Efni sérblaðanna er geymt í eina viku og hverfur ekki fyrr en næsta blað er gefið út. Dæmi: Viðskiptablaðið er gefið út á fimmtudögum. Efni þess blaðs yfirskrifast því ekki fyrr en viku þaðan í frá. Útgáfudagar blaðanna er eftir- farandi: ■ íþróttablaðið kemur út þriðju- daga til laugardaga. ■ Úr verinu kemur út á miðviku- dögum. ■ Viðskipti/Atvinnulíf kemur út á fímmtudögum. ■ Daglegt líf/Ferðalög kemur út á föstudögum. ■ Heimili/Fasteignir kemur út á föstudögum. ■ Menning/Lástir kemur út á Iaugardögum. ■ Lesbókin kemur út á laugar- dögum. ■ Sunnudagsblaðið kemur inn á netið á sunnudagsmorgnum. ■ Bílablað kemur út á sunnudög- um. Einungis þarf að smella á mynd þess sérblaðs sem óskað er eftir að lesa. Þá birtist ýtarlegur listi yfír allar greinar blaðsins. Til þess að lesa hveija grein fyrir sig er nægilegt að smella á fyrirsögnina. Öll greinin verður þá lesin upp á skjáinn. Morgunblað dagsins Þegar óskað er eftir að lesa blað dagsins er smellt á borðann sem merktur er Morgunblaðið í dag. Þá birtist valmynd þar sem úr má velja það efni sem óskað er eftir að lesa. Niðurröðun efnis í efnis- flokka er eftirfarandi: Forsíða * Fréttir af forsíðu blaðsins Baksíða * Fréttir af baksíðu blaðsins Erlent * Erlendar fréttir annars staðar en á forsíðu Innlent * Innlendar fréttir annars staðar en á baksíðu Frá ritsljóm * Leiðari * Staksteinar * Reykjavíkurbréf á sunnudögum Morgunblaðið á alnetinu Morgunblaðið er gefið út á alnetinu á hverjum morgni um svipað leyti og blaðburðarbörn fá blaðið í hendur. Frá þeim tíma geta áskrifendur á netinu hvar sem er í heiminum lesið blað dagsins, aukinheldur sem þeim býðst að leita í Gagnagrunni Morgunblaðsins, sem inniheldur 350.000 fréttir og greinar Miðopna * Efni á miðopnu blaðsins Menning * Daglegt menningarefni Aðsent efni * Aðsendar greinar * Afmælis- og minningargreinar * Velvakandi/Bréf/Víkveiji Sjávarútvegur * Daglegar sjávarútvegsfréttir Viðskipti * Daglegar viðskiptafréttir Neytendur * Daglegar upplýsingar fyrir neytendur Fastir þættir * Ýmsir þættir sem birtast dag- lega eða sjaldnar s.s. Fólk -í fréttum, Islenskt mál o.s. frv. Dagbók * Þar má fínna þjónustudálkinn þar sem m.a. kemur fram opn- unartími apóteka, veður, skipa- fréttir o. s. frv. fþróttir * Daglegar íþróttafréttir Fyrir neðan þessa valmynd eru sex hnappar sem nota má til eftir- farandi aðgerða: ■ Gagnasafn Innifalið í áskrift að Morgunblaðinu á alnetinu er aðgangur að Gagnasafni Morgun- blaðsins þar sem fínna má fréttir og greinar frá 1987 til dagsins í dag. Hver leit kostar kr. 50. ■ Eldri blöð Hver áskrifandi hefur aðgang að blöðum eina viku aftur í tímann. ■ Póstur Hér má fínna upplýs- ingar um hvemig senda á tölvu- póst til blaðsins, bæði myndir og texta. ■ Askrift Hér er eyðublað fyrir þá sem óska að gerast áskrifend- ur. Heppilegast er að prenta blað- ið út og senda til Verk- og kerfís- fræðistofunnar Strengs. Ekki er talið öruggt enn sem komið er að gefa upp greiðslukortanúmer á netinu. ■ Upplýsingar Hér má fínna al- mennar upplýsingar um blaðið. ■ Aftur heim Ef smellt er á þennan hnapp birtist heimasíða blaðsins á ný. Þess má geta að aðgangur að Morgunblaðinu á alnetinu er ókeypis í tilefni tölvusýningarinn- ar í Laugardalshöll frá því í dag og fram til 5. október. Hálft megabæti á dag Morgunblaðið hóf að geyma valdar fréttir og greinar í gagnagrunni á árinu 1987, en frá árinu 1994 hefur allt efni sem birtist í Morg- unblaðinu verið sett í gagnagrunn- inn sem í eru á fjórða hundrað þúsund greinar og bætist í safnið á hveijum útgáfudegi. Einnig eru öll eintök blaðsins geymd á ör- fílmu. Skattar. M HEIMILISLÍNAN Ódýra heimilishjálpin! Hómer er einfaldur og þægilegur „Windows" hugbúnaöur, sérgtaklega ætlaöur fyrir heimilis- bókhaldiö. Þú þarft ekki bókhaldsþekkingu til að nota hann, þú færir aöéins inn upphæöirnar og Hómer sér um framhaldið. Hómer færðu í Búnaðarbankanum á 900 kr. hann aðeins 450 kr. ■ og ef þú ert í Heimilislínunni kostar Meö Hómer veistu hvaö þú átt - og hvaö þú mátt! Kynntu þér möguleika Hómers fjármálahugbúnaðarins í bás Búnaðarbankans á sýningunni Tækni og tölvur sem stendur yfir í Laugardalshöllinni dagana 28/9 -1/10. BUNAÐARBANKINN - traustur heimilisbanki

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.