Morgunblaðið - 27.09.1995, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 27.09.1995, Blaðsíða 32
32 E FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ íslandshandbókin í margmiðlunarútgáfu Gíjúfcrá í Borgeriifói Gljúfurá t Hönoí/alnssý$iurn Gijúfurárjökull Gtjúfurleit Gfyrrtur Glæsib*r Snúpverjaalrétluf Goðaborg Goöslass 1 Goðaland Goðdalir Goöcleiiir Gotorp Gra'ariónd eyjtn GiaioriönrJ vastri Grafarös Grainingur Grasgiljatindur Grashsgt .Gr&brókerttrouti Grágtssadalur Kví'Jakirtrt Kinfiaríi'ti Ww Bámaíosi l SkfáJJaraÍ8fí}ét3 Sijálfamlafljót táámáJUMkm i 0.9 - 21.09.95 Morgrinblaðið/Þorkell HEIMIR Pálsson og Tryggvi Jakobsson með íslandshandbókina á milli sín. Væntanleg er á markað margmiðlunarút- gáfa á íslandshandbókinni á geisladisk, sem Námsgagnastofnun gefur út. Ritstjórar útgáfunnar, Tryggvi Jakobsson og Heimir Pálsson, segja það sjálfsagt metnaðarmál að sýna að við getum spjarað okkur á þessu tæknisviði. UM ÞESSAR mundir er liðið á fjórða ár síðan samræður hófust um það milli bókaútgáfunnar Amar og Örlygs, verkfræðistofunnar Raf- hönnunar hf. og Námsgagnastofn- unar að standa saman að gerð geisladisks með efni úr íslandshand- bókinni. Af ýmsum ástæðum varð ekkert framhald á því máli þá og lágu samræður niðri að mestu þang- að til síðla árs 1994 þegar samning- ar tókust um að Námsgagnastofnun keypti allan rétt til útgáfu verksins á tölvutæku formi af Emi og Ör- lygi. Þá tókust og um leið samning- ar milli Rafhönnunar og Náms- gagnastofnunar um framkvæmdina og við Landmælingar íslands var samið um notkun korta í útgáfunni. Að sögn aðstandenda útgáfunn- ar, er hugmyndin með margmiðlun- arútgáfu verks af þessu tagi marg- þætt, en vitanlega skipti mestu máli að komin er fram tækni sem gerir alla notkun á handbókarfróð- leik aðgengilega á alveg nýjan hátt. Hraðvirkar tölvur fletta miklu rösk- legar upp en mannshöndin, og afrit- unarmöguleikar við ritgerðasmíð og alla verkefnavinnu gerbreyta verk- lagi skólafólks og spara því tíma sem virðist öllu öðru dýrmætari. Sumir skólar hafa þegar eignast margmiðlunartölvur en kennarar og nemendur hafa naumast aðgang að nokkru efni nema á erlendum mál- um. Námsgagnastofnun, sem lögum samkvæmt ber að sinna námsefnis- þörfum grunnskólanna, hlaut því að sinna þessum miðli rétt eins og hefðbundinni bókaútgáfu. íslandshandbókin, náttúra, saga og sérkenni I-II kom út árið 1989 og var byggð á ritverkinu Landið þitt Island eftir Þorstein Jósepsson og Steindór Steindórsson. Ritstjórar texta íslandshandbókarinnar voru Tómas Einarsson og Helgi Magnús- son en Örlygur Hálfdanarson myndaritstjóri. Ritstjórar hinnar nýju magmiðlunarútgáfu eru tveir starfsmenn Námsgagnastofnunar, Tryggvi Jakobsson og Heimir Páls- son. Forritun og hönnun notenda- skila fyrir verkfræðistofuna Raf- hönnun hf hafa þau annast Marina Candi og Indro Indriði Candi. Frá bók á slgá Eins og gefur að skilja verður margt ólíkt með því tveggja binda ritverki sem hét íslandshandbókin I-II, náttúra, saga og sérkenni og því margmiðlunarverki sem vænt- anlegt er á markaðinn fyrir árslok. Titillinn verður að vísu nokkurn veginn óbreyttur: íslandshandbókin, ísland í kortum, máli og myndum. Textinn verður hinn sami og fyrr en hefur þó verið uppfærður. Mann- ijöldaupplýsingar miðast við mann- tal 1994 og helstu stórtíðinda eftir 1989 er getið, án þess að um al- menna endurritun sé að raáða. Mestu munar að sjálfsögðu á þeim miðlum sem verið er að nota. Alfræðaefni sem sett er á geisla- diska verður aðgengilegt með alveg nýjum hætti, allar flettingar verða miklu fljótlegri því hraðvirk tölva blaðar miklu hraðar en fingur sem fikra sig áfram. í prentaðri útgáfu Islandshandbókarinnar var öllum ömefnum raðað eftir sýslum, í margmiðlunarútgáfunni er allt í einni stafrófsröð og hægt að stikla milli staða með því einu að smella með músinni á orð í textanum eða á staði á ljósmyndunum. Ljósmyndir verða um 1.000 víðs- vegar að og nokkrir bútar úr mynd- böndum gera efnið enn meira lif- andi en ljósmyndimar einar. Allra mest munar þó um kortin sem nú fylgja íslandshandbókinni. Þar má velja milli vegakorta og jarðfræði- korta eða skoða gróðurmynd. Hveiju korti er svo skipt í níu hluta sem hægt er að skoða nánar. Út frá vegakortinu er hægt að komast allt niður í ferðakort í mælikvarðanum 1:500.000 sem skiptist í tæplega tvöhundruð hluta og en út frá kort- unum er hægt að velja sér staði til að lesa um með því einu að smella á nöfnin. Texta verður hægt að prenta út eða afrita yfir á klemmu- spjald, en ekki kort og myndir. Metnaður smáþjóðar „Meðal grannþjóða okkar er mikið um það rætt að þær telji sig ekki hafa 'bolmagn til þess að keppa við hinn engilsaxneska risa þegar Holly- wood og Silicon Valley sameinist í útgáfu á fræðslu- og afþreyingarefni („fróð-þreying“, edutainment, er lyk- ilorðið),“ segja ritstjórar útgáfunnar, Tryggvi Jakobsson og Heimir Páls- son. „Vitanlega er útgáfa af þessu tagi kostnaðarsöm, en sé litið til ís- lenskrar málstefnu og menningar er það sjálfsagt metnaðarmál að sýna að við getum líka spjarað okkur á þessu tæknisviði eins og öðrum. Fyrir smáþjóð sem lagt hefur allt kapp á að veija sérstöðu sína sem menningarþjóðar og tungu sinnar sem menningartungu eru rökin líka auðséð. Við hljótum að leggja ofur- kapp á að sýna og sanna að við getum veitt ungum sem öldnum aðgang að ferskum og nútímalegum upplýsingum á eigin tungu. Verði íslenskri margmiðlunarútgáfu ekki sinnt munu böm og unglingar fljótt læra að sjálfsagt sé að heyja sér fróðleik á ensku ef hann á að vera nútímalegur, íslensku sé hægt að nota til að fræðast um fornöldina." Kröfur til vél- og hugbúnaðar Forritið gerir eftirfarandi kröfur til vél- og hugbúnaðar: PC-samhæfð tölva með 486 ör- gjörva og lágmark 4 MB af minni. ^GA eða SuperVGA skjár (eða meiri upplausn) og skjákort sem getur birt 256 liti. CD-ROM drif og hljóðkort (æskilegt en ekki skil- yrði). Windows 3.x eða Windows 95 • stýrikerfi. CD-ROM diskur rúmar 650 MB af upplýsingum og mun íslands- handbókin nánast fylla einn disk. Texti íslandshandbókarinnar og for- ritið sjálft taka einungis um 5 MB af plássinu en myndir, kort, hljóð og hreyfimyndir fylla afganginn. Forritið er skrifað í C++ fyrir Windows-umhverfið og keyrir bæði undir Windows 3.1 og 3.11, svo og Windows 95. Það notast við svokall- aða „indexaða" textaleit sem þýðir að textaleitin er mjög hraðvirk og notar forritið svokallað „hypertext", eða efnistengsl, sérstaklega mikið. Alls staðar þar sem kemur fyrir staðarheiti í textanum og til era upplýsingar um viðkomandi stað er hægt að smella á staðarheitið til að fá upp þær upplýsingar. Það er einn- ig hægt að smella á staðarheiti í kortum til að fá upplýsingar um staði. Forritið býður víða upp á eins- konar efnistengsl í myndum. T.d. erum við með mynd frá Akranesi þar sem Akrafjallið sést í bakgrunn- inum. Notandinn getur smellt á fjall- ið og fengið þannig upplýsingar um Akra^all. „Notendaskilin eru afar einföld og aðgengileg í notkun. Notandinn sér alltaf alla möguleika á skjánum. Forritinu fylgir ítarlegt hjálparforrit með myndum en stefna okkar er að hjálpin reynist óþörf vegna þess hve notendaskilin eru einföld," segir Marina Candi tölvuverkfræðingur, sem sá um að skrifa forritið og skipuleggja efni disksins, en útlit notendaskila hannaði Indro Candi, arkitekt. í TÖLVUVIÐSKIPTUM eins og öðru getur kostað meira að borga minna; þ.e. það er ekki alltaf hagvæmast að kaupa ódýrustu tölvuna. Baráttan um viðskipta- vininn hefur sjaldan verið eins hörð hér á landi og tölvuverð lík- lega sjaldan verið lægra. Eins og allir þekkja af bílaviðskiptum er ódýrasti bíllinn ekki endilega sá besti og stundum getur borgað sig að bíða eilítið með kaupin og kaupa þá aðeins dýrari vél þegar fjárhagurinn verður rýmri. Margt þarf að hafa í huga þegar tölva er metin til kosta, og þá ekki bara tiftíðni, innra minni eða stærð harða disksins. Sé gripið til samlíkingar við bUakaup, segir litið að hafa öfluga sex strokka vél, ef annað kram, til að mynda gírkassi, bremsur og blöndungur, eru úr slátturvél. • Biðminni, cache, á örgjörvan- um getur skipt miklu hvað varð- ar vinnsluhraða hans. Sumir aug- lýsa 16 K biðminni á Pentium örgjörvanum, en það er það minni sem er innbyggt í Pentium örgjörva og fylgir því hvort eð er. Eðlileg viðbót ætti að vera 256 K eða meiri. • Gagnabrautir í PC tölvum, og Macintosh reyndar líka, stefna í átt að PCI staðlinum. Ekki er þó nóg að auglýstar séu PCI brautir í tölvuni ef skjákortið og harð- diskstjórinn eru á VLB eða jafn- vel ISA korti. • Skjárinn skiptir gfríðarlega miklu máli og það borgar sig yfirleitt að borga aðeins meira til að fá betri skjá og með meira skjáminni, en Windows gerir miklar kröfur til slíks, með minni geislun. Einna mestu skiptir þó skýrleiki hans og flökt. Ekki borgar sig að kaupa skjá sem er með svokallað dot pitch .39. Leit- ið að skjá með dot pitch .28 eða minna. • Birtustig skjásins skiptir lika miklu máli, ekki síst í ljósi þess að hann á eftir að dofna með tímanum. Einnig er vert að at- huga skerpuna, hvort skjámynd- in er skörp í miðjunni og út við jaðar skjásins. Svokallað refresh rate, eða hve ört skjárinn end- urnýjar skjámyndina, skiptir máli hvað varðar flöktið, en það ætti helst að vera 75 MHz. Örari endurteiknun kostar töluvert meira og ekki er víst að notandi taki eftir muninum, nema hann sé sífellt að vinna við grafík. • Algengasta skjástærð í dag er 14 tommu skjár, en að sögn tölvusala sækir 15 tommu skjár stöðugt á. Til lengri tíma litið er 15 tommu skjár skynsamlegri kaup en 14 tommu, og skiptir þar ekki minnstu máli að þeir eru yfirleitt betri í þokkabót. • Forrit taka æ meira rými og þannig krefst Windows 95, sem verður algengasta stýrikerfi á PC tölvum á næstu mánuðum, 60 Mb bara fyrir sig. Þvi er óráð- legt að kaupa tölvu sem er með minni harðan disk en 540 Mb. • Eftir því sem forritin verða öflugri skiptir innra minni líka meira máli og þó Windows 95 megi keyra í tölvu sem er með 4 Mb innra minni, verður að telja 8 Mb lágmark. Meira minni skilar oft meiri áraugri en öflugri ör- gjörvi. • Miklu skiptir líka hvernig minni er í tölvunni, þ.e. hvort það er EDO eða DRAM minni. EDO innra minni er nokkuð dýrara, en líka töluvert hraðvirkara og ekki líður á löngu að allar tölvur eru búnar slíku. • Sumir tölvusalar láta ýmsan hugbúnað fylgja vélunum, og leggja mikla áherslu á verðgildi hans. Áður en freistast er af því borgar sig að kanna hvaða forrit það eru og hvort þau nýtist yfir- leitt. Þetta á einnig við um diska sem fylgja geisladrifi; það borg- ar sig að kanna hvort það séu nýir diskar eða nýlegir og hvort nokkuð sé varið í þá yfirleitt. Sjálfsagt er að óska eftir því að fá að velja aðra diska í stað þeirra sem hugnast ekki.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.