Morgunblaðið - 27.09.1995, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1995 E 27
TIL AÐ nýta megi tölvur við
kennslu svo eitthVert vit sé í verða
að vera til íslensk kennsluforrit.
Einn af þeim sem glímir við það
óeigingjarna starf að semja
kennsluforrit fyrir íslensk ung-
menni er Sigurður Davíðsson.
Sigurður Davíðsson hefur starf-
að við kennsluforrit undanfarin ár
og þar á meðal hannað forritin
Jarðfræði íslands og Orðflokka-
greiningu. Hann segist nú vinna
að endurútgáfu á Jarðfræði íslands
á tölvugeisladisk, meðal annars
með fjölda hreyfimynda. Sigurður
hefur einnig unnið við Orðflokka-
greiningu og senn kemur nýtt
málfræðiforrit, íslensk málfræði,
sem leysir það af hólmi.
Sigurður Davíðsson segist sjálf-
menntaður í tölvuforritun, byijaði
íslensk kennsluforrit
árið 1988, en sé í
fullu starfi sem kenn-
ari.
Jarðfræði
íslands
Jarðfræði íslands
er upphaflega samið
fyrir Macintosh tölv-
ur. Gerð forritsins
naut styrkja frá Þró-
unarsjóði grunn-
skóla, Námsgagna-
stofnun og Apple-
umboðinu.
Sigurður
Daviðsson
Jarðfræði íslands er
samið með hliðsjón af
því að það nýtist á ungl-
ingastigi grunnskóla og
í framhaldsskólum.
Mörg efnisatriði ættu
einnig að nýtast yngri
nemendum. Forritið
byggist upp á skýr-
ingarmyndum ásamt
stuttum skýringar-
texta. Mikið er af hrey-
fimyndum, teiknimynd-
um, en með því er hægt
að sýna á skýran hátt
t.d. hvemig eldfjöll byggjast upp,
hvernig hverir gjósa o.s.frv. Þá er
í forritinu könnun þar sem nem-
endur geta athugað hversu vel
þeim hefur tekist að tileinka sér
efnið. Með því að fara vel yfir alla
efnisþætti ætti notandinn að fá
nokkuð glögga mynd af helstu
sviðum jarðfræði íslands.
Islensk
málfræði
Forritið íslensk málfræði er
þjálfunarforrit í ýmsum grunnþátt-
um formlegrar málfræði. Forritið
er þyngdargreint þannig að það
getur hentað nemendum allt frá
miðstigi grunnskóla upp í fyrstu
áfanga framhaldsskóla.
íslensk málfræði hentartil þjálf-
unar í öllum málfræðiatriðum -
nemendur fá samstundis mat á
greiningu sína af hlutlausum aðila,
geta leitað sér aðstoðar í inn-
byggðri hjálp og sjá ljóslega á yfir-
litsspjaldi sínu hvort um framfarir
er að ræða því forritið geymir fyrri
árangur.
Forritið er opið kennurum gegn
aðgangsorði og geta þeir bætt inn
setningum, eytt þeim eða breytt.
Kennari getur skoðað árangur
allra nemenda sinna, forritið gefur
einkunn og umsögn, og prentað
út eða flutt í töflureikni til frekari
meðhöndlunar.
Alltá
einum stað
SÍMBRÉFASENDAR eru í eðli
sínu líka Ijósritunarvél og þaðan
er skammt í mynskanna og
leysiprentara. Með aukinni
tækni og því að símbréfsvélar
taka við bréfum á venjulegan
pappír hafa öll þessi tæki sam-
einast í einu. Dæmi um slíkt er
Ricoh MV310 se,m Aco selur.
Mikil sendigeta
MV310 er þannig hannað að
auðvelt er að ljósrita og sím-
senda texta úr bókum eða bækl-
ingum og einnig af stórum blöð-
um. Myndvídd er allt að 10,1
tommum sem er meira en í sím-
bréfasendum yfirleitt. Auk þess
er sendigetan óvenju mikil eða
allt að 30 blaðsíðum. Þá er
sendihraði aukinn, minnisgetan
allt að 45 blaðsíðum og tryggt
að hún er ein klukkustund.
Hægt er að vinna að tveim verk-
efnum í MV310 í einu, til að
mynda ljósrita á sama tíma og
tækið tekur á móti símbréfi eða
leitar í minninu.
Tengimöguleikar við tölvu
eru mjög miklir og getur tækið
nýtt slyöl og upplýsingar frá
henni og einnig sent í símanúm-
er sem geymd er í minni tölv-
unnar. Einnig má skanna megi
skjal úr minni tölvunnar. Sé
tækið notað sem leysiprentari,
prentar það allt að 10 eintök á
mínútu.
HUGBÚNAÐUR
FYRIR WINDOWS
SAMHÆFÐUR
HUGBÚNAÐUR
gl KERFISÞRÓUN HF.
“ Fákafeni 11 - Sími 568 8055
wm
Canon og Nýherji taka höndum saman
svo þú getir notiö þess besta
/ | • c i f /1 __
r*
Canon
Við hjá Nýherja erum stolt af því að Canon hefur valið okkur
sem sölu- og umboðsaðila á íslandi. Canon hefur þvi bæst í
hóp þeirra fjölmörgu gæðavara sem Nýherji býður
viðskiptavinum sínum. Við bjóðum alla velkomna í Nýherja til að skoða úrvalið af Ijósritunarvélum,
prenturum, faxtækjum og reiknivélum frá Canon.
Nýherji mun einnig sýna og kynna Canon skrifstofuvélarnar á tölvusýningunni í Laugardalshöll
sem hefst 28. september næstkomandi.
Nú hafa íslensk fyrirtæki og aðrir greiðan aðgang að því besta sem í boði er í skrifstofuvélum
í heiminum í dag.
Þú þekkir Canon - þú þekkir Nýherja
NÝHERJI SKAFTAHLÍÐ 24 * SÍMI 569 7700