Morgunblaðið - 27.09.1995, Blaðsíða 28
28 E FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Upplýsingaheimar
TÖLVUBYLTING undanfarinna
ára hefur verið kölluð upplýsinga-
byltingin og því haldið fram að hún
hafi þegar haft sambærileg áhrif á
heiminn og iðbyltingin á sínum
tíma. Tölvan gefur kost á að halda
utan um upplýsingar á skipulagðari
hátt en áður hefur þekkst og miðla
þeim.upplýsingum til þeirra sem á
þurfa að halda, hvort sem það er í
gegnum alnetið eða þá með teng-
ingu við sérstakan gagnabanka með
upphringisambandi.
Hinn nýi upplýsingabanki, sem
hlotið hefur nafiiið „Upplýsinga-
heimar", er afrakstur samvinnu
tveggja fyrirtækja Skýrr og ís-
lenskrar forritaþróunar hf. Skýrr
(Skýrsluvélar ríkisins og Reykjavík-
urborgar) hefur lengi safnað saman
og miðlað upplýsingum og íslensk
forritaþróun hf. fæst við hugbúnað-
argerð fyrir íslenskt viðskiptalíf.
60 upplýsingasvið
Áætlað er að opna 60 upplýsinga-
svið í Upplýsingaheimum og þar
megi þá finna ýmislegar upplýs-
ingar. Má nefna þjóðskrá, fyrir-
tækjaskrá, ökutækjaskrá, skipaskrá
(skip og áhafnir), þinglýsingar/veð-
bókarvottorð, tollalína/tollskrá,
verslunarskýrslur, þjóðhagsstærðir,
Qámámsbeiðnir, aðfarargerðir,
lagasafn, EES-þýðingar, EES-útboð
(yfiriit), opinber útboð, bankavexti
og -gengi gagnasafn DV, færð á
vegum og veðurspá.
Menn fá aðgang að Upplýsinga-
heimum með því að gerast áskrif-
endur. Ifyrir áskrift að Upplýsinga-
heimum er greitt fast mánaiðargjald,
óháð notkun. Til að tengjast Upplýs-
ingaheimum þarf einmenningstölvu
með 486 örgjörva og 8MB minni eða
stærri, Windows 3.x., síma og mót-
ald. Með áskrift að Upplýsingaheim-
um fylgir Windows-hugbúnaður til
að tengjast upplýsingabankanum og
fletta upp upplýsingum á þægilegan
hátt. Hugbúnaðurinn er íslenskur
og er boðinn bæði fyrir Windows
3.1 og í sérstakri 32ja bita útgáfu
fyrir Windows 95. Áskrifendur með
alnetstengingu geta notað hana til
að tengjast Upplýsingaheimum.
Nota má venjuleg rápforrit eins og
t.a.m. Netscape eða Mosaic, en einn-
ig má nota hugbúnað Upplýsinga-
heima til að ferðast um veraldarvef-
inn. Til þess er notað fyrsta íslenska
alnetsrápforritið sem er hluti af
pakkanum.
SKJÁMYND úr Upplýsingaheimum, en þar má meðal annars fletta
upp i Lagasafni, ökutækjaskrá, skipaskrá, þjóðskrá og fara inn
á alnetið svo fátt eitt sé nefnt, en innbyggt í Upplýsingarheima
er alíslenskt rápforrit fyrir alnetið.
Myndrænt fyrir-
spurnarverkfæri
WINDOWS hugbúnaður fyrir
gagnafyrirspurnir á myndræn-
an hátt setur nýja staðla hvað
varðar hraðvirka notendaverk-
færi tíl að nálgast gögn. TU að
nýta sér þá möguleika sem gef-
ast fyrir vikið þarf verkfæri, og
Esperant er fyrsta verkfærið
sem nota má án nokkurrar
þekkingar á SQL fyrirspumar-
máiinu.
Software AG hefur sett á
markað Esperant útgáfu 3.0 sem
er myndrænt fyrirspumar- og
skýrslugerðarverkfæri fyrir
Windows umhverfi. Esperant er
sérstaklega hannað fyrir fólk
sem hefur enga sérþekkingu á
upplýsingatækni í biðlara/miðl-
ara umhverfum og opnar þannig
dyr að upplýsingum úr gagna-
söfnum fyrirtækja og stofnana.
Esperant notar öflugt þekking-
arkerfi tíl að hindra fram-
kvæmd rangra og misleiðandi
fyrirspumar.
Gerir enga kröfu um
þekkingu á SQL fræðum
Esperant er fyrsta myndræna
fyrirspumarverkfærið sem ger-
ir enga kröfu um þekkingu á
SQL fræðum eða skipulagi
geymdra gagna sem nálgast má.
Sérstök fyrirspumaraðstoð (Qu-
ery Assistant) leyfir notendum
á einfaldan hátt að benda með
mús og velja þau gögn sem ósk-
að er eftir með smelli. Á sama
hátt má velja röðun og önnur
skilyrði sem úttaksgögnin eiga
að lúta. Esperant SQL Expert
veitir þjálp með því að hindra
val á atriðum sem leiða til rangr-
ar niðurstöðu.
í Esperant má nota þrjár
megin aðferðir við að búa til
fyrirspumir. Notendur geta val-
ið hvaða aðferð þeir vUja eftir
því hve mikla þekkingu þeir
hafa á upplýsingatækni. Svo-
kaUaðar Esperant fyrirspurnir
má setja upp á auðveldan hátt
með einföldum setningum og
em mUlistig milli engrar og
mikiUar þekkingar á upplýs-
ingatækni. Fólk með enga sér-
þekkingu á upplýsingatækni
getur á skjótan hátt búið til fyr-
irspumir með því að benda og
smella og notendur með meiri
þekkingu geta sett upp Esper-
ant fyrirspumir eða notað SQL
fyrirspumarmálið.
Innbyggð skýrslugerð gefur
kost á mjög frambærilegum há-
gæða skýrslum en einnig má
flytja gögnin beint í annan
Windows hugbúnað eins og
Microsoft Excel, Quattro Pro og
Lotus 1-2-3 til frekari greining-
ar og vinnslu. Við flutning
gagna í ofangreind Windows
forrit flytjast nöfn dálka og aðr-
ar mikUvægar upplýsingar með.
Gögnin má svo skoða, prenta og
geyma á því formi sem notand-
inn óskar.
Esperant má setja upp á PC-
vinnustöð eða á netmiðlara og
gefur kost á tengingum við
margar mismunandi gerðir
gagnasafna á mörgum mismun-
andi tölvugerðum. Esperant að-
hyUist staðal um opnar gagna-
safnstengingar (ODBC) og nálg-
ast því gögn úr hverju því
gagnasaf ni sem aðhyUist ODBC
staðalinn.
Esperant styður mörg for-
ritunarskU fyrir netbúnað eins
og Entire Access Net-Work frá
Software AG, ODBC frá Micros-
oft, SequeLink fráTechGnosis,
SQL Net frá Oracle, DBLIB frá
Sybase og QELIB frá Q & E.
Gagnasöfn sem Esperant styður
eru t.d. ADABAS frá Software
AG, DB2, Oracle, Sybase
SQLserver, Informix, Ingres,
Rdb, DB2/2, dBase, FoxPro, og
Paradox.
http://www. strengur. is/hafsjor/
,,Fer Fióla Baldurs til Benidorm
á afmælisdeginum sínum?
í i
AÐGANGUR AÐ ÞJOÐSKRA OG NYJUSTU
UPPL YSINGAR UM FLUGUMFERÐ Á INTERNETINU
HAF
UPPLÝSNGAVEITA I
SJÓR