Morgunblaðið - 27.09.1995, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1995 E 25
af því að læra að setja á markað
þekkingu okkar og ef vel tekst til
í framhaldinu getum við selt áfram
inn á þennan markað og fengið að
minnsta kosti kostnaðinn til baka,
sem er gott mál sem skapar gjald-
eyri og okkur verkefni. Við erum
búnir að vera þarna í tvö ár og við
erum að ná aukinni tiltrú kaupend-
anna.
Við höfum nennt að setja vinnu
í mál sem aðrir hafa ekki viljað
sinna, eins og að leysa rússnesku-
vandamál, sem svipar til íslensku-
vandamála og erfitt hefur verið
fyrir þá að fá erlend fyrirtæki til
að sinna. Við getum boðið þeim upp
á sömu lausnir og búið að finna út
fyrir íslenskuna. Það er líka þessum
aðilum mjög mikilvægt að hafa
samstarfsaðila utan Rússlands. Eg
er búinn að vera í fimm mánuði í
Rússlandi á undanförum tveimur
árum, sem er lífsreynsla út af fyrir
sig.“
Netverk í dag
Tölvupóstur er efst á baugi í
tölvusamskiptum, en Holberg segir
að póstkerfin séu eins mörg og ólik
og mennirnir.
„Það eru til ótal kerfi og vanda-
málið er að láta þau kerfi tala sam-
an. 20.000 manns hafa aðgang að
tölvupósti en vitanlega ekki allir
sem nota hann. Enn eru þó þessir
aðilar ekki samtengdir. Kerfin sem
þeir tengjast eru mjög ólík og geta
þeirra ólík, til að mynda er utaná-
skrift bréfanna, ef svo má kalla,
afskaplega ólík og getur skapað
vandræði þegar senda á póst í kerfi
sem skilur ekki utanáskriftina. Það
er til einn alþjóðlegur og reyndar
íslenskur staðall fyrir póstkerfi,
sem kallaður er X.400. Hann er
hugsaður til að leysa þarfir allra
og þarf mikla vinnu til að slípa til
og stilla. Póstur og sími, Skíma
og SKÝRR eru með X.400 sem
grunnkerfi, Microsoft og Lotus
segja að þeirra forrit muni vinna
með X.400 staðli.
Mörg póstkerfi hafa verið á
markaðinum með mjög mismun-
andi staðla en nú vinna flest kerfi
yfir alnetið, þannig að það má
segja að J>etta sé meira að renna
saman. Eg hef heyrt því slegið
fram að skynsamlegra sé að nota
SMTP en X.400 vegna þess að það
fyrrnefnda fylgir með Unix stýri-
kerfinu, en það er ekkert ókeypis,
það kostar vinnu að koma öllum
póstkerfum í rekstur, og svo eru
kerfin ólík, eins og sumir kaupa
sér Trabant en aðrir Volvo. Menn
hafa mismunandi þarfir og það
verður að horfa á þær.
í dag eru flestir að kaupa sér
tölvupóst með því sem þeir eru að
taka, þeir sem kaupa sér Win95
fá með MS-Mail, þeir sem kaupa
Lotus Notes fá cc:Mail, þeir sem
fá sér Unix fá sér SMTP og þar
fram eftir götunum. Þetta er mjög
eðlileg þróun og við bjóðum hug-
búnað og þjónustu sem tengir sam-
an þessi ólíku kerfi, sem er það sem
menn leita næst eftir. Menn horfa
á þessi kerfí og vilja geta notað þau
meira. Okkar fókus hefur verið
X.400 kerfi og lausnir sem tengjast
þeim, gáttir yfir í önnur tölvukerfi
og hugbúnaður sem tengist þeim.
Við lítum svo á að við séum fyrst
og frémst að vinna við póstkerfí
og tölvunet, að leysa þarfir fyrir-
tækja fyrir tölvupóst, EDI og tölvu-
net almennt."
Slóð heimasíðu Netverks er:
http://www.netverk.is/
HUGBÚNAÐUR
FYRIR WINDOWS
LAUNAKERFI
Frá kr. 14.940.
CT KERFISÞRÓUN HF.
“JFákafeni11-Sími568 8055
PLÁSSLEYSI er nokkuð sem allir
tölvunotendur kannast við, ekki síst
á síðustu árum, þegar hver upp-
færsla af forriti virðist þurfa tvö-
falt meira pláss en sú á undan.
Þannig þarf Windows 95, sem Iík-
lega verður komið á þorra einka-
tölva á íslandi innan skamms, allt
að 65 Mb af diskrými eftir uppsetn-
ingu. Með lagni má hreinsa til á
disknum en þó er ekki hlaupið að
þvi, því DOS var og er þeim ann-
mörkum háð að skráaheiti eru tor-
skiljanleg og því erfítt að sjá hveiju
má eyða og hveiju ekki og þvi verð-
ur að hafa eftirfarandi í huga:
• Taktu afrit af öllu. Ekki er
þörf á að taka afrit af forritum
sem til eru á diskum, en gagna-
skrár geta verið ómetanlegar. Ef
fara á að hreinsa til borgar sig
að afrita sem mest.
AST Bravo
Tiltekt á
harða disknum
• Fjölmörgum nýjum forritum
fylgja sérforrit sem hreinsa til
eftir forritið. Kannið hvort sá
möguleiki er til staðar áður en
lengra er haldið. Windows Setup
býðst til þess að eyða af harða
diskum ýmsum ónauðsynlegum
skrám og oft er nóg að nota þann
möguleika.
• Algengt er að teikni- og jafnvel
ritvinnsluforrit moki inn á harða
diskinn ýmsum grafískum skrám
í uppsetningunni. Fæstir nota aft-
ur á móti þær myndir, og þar má
losa drjúgt pláss. Einnig er óþarfi
að vera með Write, Paintbrush og
fleiri forrit sem fylgja með
Windows ef annað ritvinnsluforrit
er notað yfirleitt og jafnvel aldrei
gripið til teikniforritsins. Athugið
þó að ekki er nóg að eyða skjá-
myndinni; fara verður í File Mana-
ger til að hreinsa almennilega til.
• File Manager nýtist til að leita
að óþörfum skráasöfnum, sem
jafnvel eru tóm eða með einhveiju
gömlu dóti í, en einnig má láta
hann leita að .bmp, .fon, .ttf og
•tmp skrám, sem flestar mega
fjúka, en þar sem Windows býr
til .tmp skrá er best að eyða þeim
í DOS, þ.e. hætta i Windows áður.
Þeir sem gaman hafa af að breyta
útliti Windows skyldu þó hugsa
sinn gang, því .bmp skrár eru svo-
kallað veggfóður. Þeir sem hafa
Windows 3.11 á tölvunni geta not-
að möguleikann Properties í File
valmyndinni, því oft má sjá hvaða
forrit átti skrána eða bjó hana til.
• Þrautalendingin er svo að eyða
Windows út af harða disknum og
öllu sem því fylgir og setja inn á
nýtt með Custom uppsetningu, því
þá má tiltaka hvað á að fara inn
á diskinn. Besta ráðið er samt að
kaupa sér einfaldlega stærri harð-
an disk.
ALLT SEM ÞÚ ÞARFT
TIL AÐ NA ARANGRI ER GOTT VERKFÆRI
AST Bravo tölvan er áreiðanleg,
fyrirferðalítil, fjölhæf og afar vel
hönnuð. Hún býr yfir eiginleikum
sem nýtast við ótal hluti, jafnvel
hluti sem þú hélst að þú myndir
aldrei framkvæma eða geta
framkvæmt.
í nútíma umhverfi er AST Bravo
fullkomið hjálpartæki við krefjandi
verkefni vinnudagsins. Verðgildi
AST Bravo tölvunnar er einstakt og
ótal kostir sem fást viðkaupin. Það
vita þær þúsundir íslendinga sem
eiga og nota AST Bravo tölvur.
Hinn öflugi Intel Pentium örgjörvi
ræður nú ríkjum innan Bravo
tölvunnar. Aðrir hlutar hennar eru
sniðnir sérstaklega í kringum
Pentium örgjörvann svo hámarks
afköst náist. Hraðvirk PCI
myndvinnsla glæðir jafnvel
þyngstu Windows forrit lífi og
sýnir yfir 16 milljón liti. Tenging
■ Intel Pentium örgjörvar
75,100 og 133 Mhz
■ ATI Mach 64 bita, PCI
myndvinnsla
■ Hljóðkort SB Vibra 16,
hljóðnemi og heymartól
■ Örgjörvi, skyndiminni,
myndvinnsla og
vinnsluminni
uppfæranleg
■ Plug'n'Play og DMI
staðlar
■ AST Command Center
vírusvörn
■ Windows 95 eða Windows
for Workgroups
■ Þriggja ára ábyrgð og EJS
gæðaþjónusta
og stilling jaðartækja og íhluta
er auðveld og þægileg með
Plug'n’Play tækninni. Búnaðurinn
er tengdur tölvunni og stillingin
kemur sjáfkrafa.
AST Bravo er uppfæranleg og
sérlega sveigjanleg gagnvart
stækkunum. Öryggiskerfi og
orkusparnaður eru á meðal þess
sem fylgir með við kaup á AST
Bravo tölvu að ógleymdri þriggja
ára varahlutaábyrgð og gæða-
þjónustu EJS.
AST er einn
stærsti tölvu-
framleiðandi í
heimi. Fjöldi
íslenskra stór- P®n^Möl
fyrirtækja og stofnana hafa vaíið
AST tölvur til að sinna mikil-
vægustu verkunum. Með AST
Bravo gefst einstaklingum einnig
tækifæri til að vinna sín
mikilvægustu verk með góðu og
afkastamiklu verkfæri, fyrir verð
se'm stillt er í hóf.
AST
COMPUTER
RAÐGREIÐSLUR
EINAR J. SKULASON HF
Crensásvegi 10, Sími 563 3000