Morgunblaðið - 27.09.1995, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1995 E 15
NÝLEGA kom á markaðinn ný
útgáfa örgjörva í tölvur frá tölvu-
fyrirtækinu IBM í Bandaríkjunum.
Er þetta PowerPC AS (Advanced
Series) örgjörvinn, sem m.a. er nú
settur í AS/400 tölvur. Örgjörvi
þessi er í ýmsu frábrugðinn öðrum
örgjörvum og býður upp á ýmsa
möguleika fýrir notendur í tölvu-
vinnslu að því er fram kemur í
frétt frá Nýheija.
PowerPC AS-örgjörvar eru fýrir
það fyrsta þróaðir 64-bita RISC-
örgjörvar, sem hannaðir eru fyrir
AS/400 Advanced Series tölvulín-
una frá IBM. Hönnun örgjörvans
er byggð á PowerPC með sérað-
lögun fyrir viðskiptaumhverfi IBM
AS/400. Þijár lykilástæður eru
sagðir fyrir því hvers vegna IBM
þróaði PowerPC AS örgjörva fyrir
AS/400-tölvur sínar. í fyrsta lagi,
að skila af sér bestu mögulegu
vinnslu til viðskiptavina. I öðru
lagi, að nýta að fullu 64-bita
vinnslugetú AS/400- tölvunnar. í
þriðja lagi, að vera fyrr á ferð
með tækni í fremstu röð með lægri
tilkostnaði.
Vinnslugeta fyrir
viðskiptalífið
PowerPC AS-örgjörvar eru
hannaðir fýrir hið almenna vinnu-
umhverfi viðskiptalífsins, sem
þjónað er af AS/400-tölvum. Það
eru grunneinkenni PowerPC-
örgjörvans, sem gera hann kost
til notkunar í viðskiptakerfum.
Hönnun örgjörvans leyfir margar
skipanir í hveijum vinnsluhring
auk fjölvinnslugetu. Þessir eigin-
leikar auk annarra eru mikilvægir
vegna þess að dæmigerð viðskipta-
forrit, eins og til að mynda forrit
fyrir pantana- og lagereftirlit, ein-
kennast af stóru og tilviljana-
kenndu innslegnu og útteknu
magni gagna, segir í fréttinni.
Fullnýting 64-bita vinnslugetu
í fréttinni kemur einnig fram
að kröfur í vinnuumhverfi við-
skiptalífsins kalli á 64 bita vinnslu,
og þess vegna þarfnist viðkomandi
PowerPC AS-64 bita örgjörvans
til að styðja hin samþættu við-
skiptaforrit, sem þegar eru algeng
í vinnslu AS/400-tölva. 32-bita
örgjörvar muni einfaldlega ekki
geta fullnægt kröfum um aukna
vinnslugetu vegna margmiðlunar,
biðlara/miðlara lausna og dreifðr-
ar vinnslu, sem færst hefur í auk-
ana hjá AS/400-notendum. Pow-
erPC AS-örgjörvar ásamt upp-
byggingu AS/400-tölvunnar muni
því brúa bilið yfir í 64-bita vinnu-
umhverfið að fullu með 64-bita
örgjörva, 64-bita stýrikerfi og 64-
HUGBÚNAÐUR
FYRIR WINDOWS
VIÐSKIPTAKERFI
Frá kr. 22.410.
KERFISÞRÓUN HF.
Fákafeni 11 -Sími 568 8055
- kjarni málsins!
PowerPC AS-
örgjörvinn frá IBM
kominn á markaðinn
bita forritum. Staðhæft er að nú-
verandi forrit fyrir AS/400 muni
geta keyrt á PowerPC AS örgjörv-
um, og jafnvel 15 ára gömul for-
rit óbreytt á AS/400 þannig að
64-bita vinnsla nýtist að fullu.
AS/400 þýði þannig sjálfvirkt
hugbúnað sem þegar er í notkun,
án þess að endurskrifa eða endur-
keyra kóða forritsins. Hið þýdda
forrit færi sér þegar í nyt 64-bita
PowerPC-tæknina.
Fram kemur að næstum allir
aðalhlutar kerfisins, allt frá diska-
drifum til rafmagnstengla, hafa
verið endumýjaðir með nýrri tækni
yfir sjö ára líftíma AS/400-„fjöl-
skyldunnar". Samtök IBM, Apple
og Motorola tölvufyrirtækjanna
um að þróa og hanna PowerPC-
örgjörvana hafi gert IBM það
mögulegt að lækka kostnað til við-
skiptavinarins og hin nýja tækni
komi mun fyrr á markaðinn, ásamt
því að IBM getur boðið AS/400-
tölvukerfi á hagstæðari kjörum og
komið fyrr með tækni í fremstu
röð.
í frétt Nýheija kemur fram að
þegar hafi fjölmörg íslensk fyrir-
tæki pantað AS/400 PowerPC
tölvubúnað, og verði hann afhent-
ur í haust. Allur innlendur AS/400
t hugbúnaður muni þannig strax
' keyra í 64 bita umhverfi. Einnig
segir að jafnframt því sem Pow-
erPC AS örgjörvinn var kynntur
hafi IBM tilkynnt mikla verðlækk-
un á IBM AS/400 íhlutum, eins
og diskum, minniseiningum og
fj arvinnslubúnaði.
V
Jörðin væri enn flöt eins og pönnukaka,
ef enginn hefði séð út fyrir sjóndeildarhringinn
Líttu viö í bás okkar á tölvusýningunni í Laugardalshöll og kynntu þér
hvernig viö notum nýjustu tækni í þína þágu.
ÞJÓNUSTUSÍMALEIKUR
Dancall GSM farsími frá Radiomiðun og margt fleira í verðlaun.
EI
NK FÁIbANKI
—^
ÞJÓMUSTU
— — — - sírnirin
* einka\/ Internetib
varoa bókhaldiö Einkaþjónn H E I M A S í D A
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna