Morgunblaðið - 27.09.1995, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1995 E 13
Jón Ragnar leggur áherslu á
að þar sem uppbygging kerfisins
sé biðlari/miðlari sé sveigjanleki
þess mun meiri og einfaldara að
bæta við möguleikum: það birtast
þá einfaldlega fleiri möguleikar á
viðmótinu sem notandinn sækir
til sparisjóðsins.
Einkabanki
Landsbankans
Landsbankinn hefur boðið upp
á svonefndan Einkabanka, en í
honum má millifæra af viðskipta-
reikningi yfir á hvaða reikning sem
er og greiða þannig gíróseðla og
greiðsluseðla víxla og skuldabréfa.
Einnig er hægt að fá heildaryfirlit
yfir öll viðskipti við bankann, hve-
nær sem er er hægt að sjá stöðu
bankareikninga, þar á meðal
gjaldeyrisreikninga, og prenta út
yfírlit. Einnig má fá í Einkabank-
anum upplýsingar um gjalddaga
og greiðslustöðu víxla og skulda-
bréfa, bæði eigin skulda og skulda-
bréfa sem viðkomandi á í inn-
heimtu. í Einkabankanum má
einnig reikna út greiðslubyrði lána
og fá frekari uppplýsingar um íjár-
málaleg atriði, vexti inn- og útl-
ána, gengi gjaldmiðla, gengisþró-
un síðustu tólf mánaða og eldra
gengi allra banka og sparisjóða á
Islandi. Einnig fylgir aðgangur að
þjóðskrá.
Að sögn Brynjólf Helgasonar
hyggst Landsbankinn sýna nýjan
hugbúnað, svokallað Einkabók-
hald, á tölvusýningunni í Laugar-
dalshöll, en það kerfi, sem skrifað
er í gluggga umhverfi, er væntan-
legt á næstu vikum. I kerfinu má
gera greiðsluáætlanir, gera
greiðsluáætlun heimilisins, reikna
út greiðslubyrði lána og haldið
utan um ýmis útgjöld heimilisins.
íðar er svo fyrirhugað að notendur
geti tengst Einkabankanum.
Heimilisbanki
Búnaðarbankans
Búnaðarbankinn hefur boðið
viðskiptavinum bankans hugbún-
að til að halda utan um íjármálin,
svonefndan Hómer, en í honum
má meðal annars halda fullkomið
heimilisbókhald, gera fjárhags-
áætlanir, reikna út greiðslubyrði
mismunandi lána, færa úreikninga
lána yfir á íj'árhagsáætlunina og
reikna út ávöxtun mismunandi
sparireikninga.
Hómer má setja upp á tölvu sem
er með 386 örgjörva eða öflugri,
4 Mb minni er lágmark, 1,7 Mb
þarf af rými á harða disknum og
Windows 3.1 eða hærra. Forritið
er ekki hægt að afrita af disknum,
en uppsetning er einföld og að
mestu sjálfvirk.
Um Hómer inn í
Heimilisbankann
Hómer er skrifaður í gluggaum-
hverfi og keyrir undir Windows,
en úr honum má síðan tengjast inn
á heimilisbanka Búnaðarbankans,
sem verið er að kynna um þessar
mundir. í Heimilisbankanum er
hægt að framkvæma allar helstu
bankaaðgerðir, til að mynda milli-
færa inn á reikninga í hvaða banka
sem er, skoða hreyfingar reikn-
inga, greiða gíróseðla og greiðslu-
seðla, fá yfirlit yfir greiðslur, fá
yfirlit yfir innistæðulausa tékka,
fá viðskiptayfirlit yfir heildarvið-
skipti við bankann, fá upplýsingar
úr nafnaskrá, sem er byggð á þjóð-
skrá, fá upplýsingar um skráð
gengi gjaldmiðla í Búnaðarbank-
anum og senda starfsmönnum
bankans skilaboð. Sitthvað meira
er mögulegt eins og að sjá stöðu
reikninga annarra fjölskyldumeð-
lima, ef þeir gefa leyfi sitt fyrir
því, hægt er að sjá stöðu á
greiðslukortareikningi og yfirlit
yfír reikninginn. Allar skjámyndir
er hægt að prenta út.
Búnaðarbankinn notar beinlínu-
tengingu með upphringisambandi,
þ.e. að notandinn tengist bankan-
um og framkvæmir aðgerðir í skjá-
hermi, líkt og er með tengingu
íslandsbanka og Landsbanka.
TOLVUFRAMLEIÐENDUR
hafa gert ýmsar tilraunir með
tækni og tölvur í gegnum tíðina
og eðlilega hafa ekki allar tek-
ist sem skyldi.
•Fyrsta Apple tölvan fyrir fyr-
irtæki kom á markað 1980 og
kallaðist Apple III. Hún þótti
mikill gallagripur og lífdagar
hennar ekki margir. Á meðal
þess sem Apple ráðlagði eigend-
um tölvunnar var að láta hana
reglulega detta niður á borð úr
nokkurra sentimetra hæð til að
skorða lausa tölvukubba. Deild-
in sem bar ábyrgð á hönnuninni
var leyst upp 1984.
•Önnur Apple tölva, Lisa, lifði
ekki lengi heldur. Þegar hún
kom á markað 1983 þótti hún
byltingarkennd, enda var hún
með 1 Mb í innra minni, 2 Mb
af ROM og 5 Mb harðan disk
og notendaskilin voru grafísk.
Verðið var aftur á móti geypi-
hátt, 10.000 dalir. Þegar fyrsta
Macintosh-tölvan kom á markað
kostaði hún um 2.500 dali og
gekk af Lisu dauðri. Síðustu
2.700 Lisu-tölvurnar voru
grafnar í uppfyllingu
1989.
•Digital var eitt þeirra
fyrirtækja sem hugðist
hagnast á einkatölvu-
byltingunni með því að
selja tölvu sem keyrt
gæti MS-DOS forrit en
væri ekki PC samhæfð.
Rainbow tölva Dec var
slíkrar gerðar, en hún
varð meðal annars fræg
fyrir það að ekki var
hægt að forsníða diska
tölvunnar í diskadrifinu; not-
endur neyddust til að kaupa
diskana af Digital á upp-
sprengdu verði. Saga Rainbow
var öll 1985.
•IBM setti PCjr tölvur á mark-
að og ætlaði að skáka Apple
Macintosh með þægilegri og
handhægri heimilistölvu. Verð-
ið varð þó til að fæla kaupendur
frá, sem keyptu sér frekar
öflugri tölvu með almennilegt
lyklaborð. 1985 var framleiðslu
hennar hætt.
•Sagan af Osborne tölvufyrir-
tækinu hefur orðið mörgum
framleiðendum lærdómsrik. í
upphafi níunda áratugarins
setti Adam Osborne á markað
fyrstu ferðatölvuna sem náði
almennri hylli, Osborne 1.1984
lýsti Osborne nýrri tölvu sem
hann væri að setja á markað,
Osborne II, og fyrir vikið datt
niður sala á Osborne I, sem fyr-
irtækið átti fullt vöruhús af.
Þegar Osborne II seinkaði svo
um nokkra mánuði varð sjóð-
þurrð þjá fyrirtækinu og það
fór á hausinn.
Timasparnaður a kassa:
• Engar handskrifaðar sölunótur/ávísanir.
• Ekki þörf á að hringja eftir úttektarheimildum
• Styttri afgreiðslutími.
• •
Segulræmulestur tryggir stóraukið öryggi:
Þekkir kortnúmerið
1 Skráir færsluna.
■ Þekkir heimildarmörk og gildistíma.
Mikill vinnusparnaður:
• Sjálfvirkt dagsuppgjör og innsending færslna.
• Ekki þörf að flokka sölunótur (VISA/EUROCARD)
• Skipting sölunótna og framsal ávísana úr
sögunni.
• Aldrei aftur samlagning sölunótna / ávísana
• Bunkun sölunótna og ávísana úr sögunni.
• Samdráttarblöð heyra sögunni til.
• Aldrei aftur týndar eða gallaðar sölunótur.
• Gallaðar/ númerslausar sölunótur úr sögunni.
• Ekki fleiri ferðir í bankann/sparisjóðinn með
sölunótur eða ávísanir.
• Allur póstur vegna kvittana og leiðréttinga
á mótteknum sölunótum eða ávísunum heyrir
sögunni til.
RÁS-ÞJÓNUSTAN
Álfabakka 16, 109 Reykjavík, Sími: 567-4966, Fax 567-4944
VISA