Morgunblaðið - 27.09.1995, Page 16
16 E FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
+
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1995 E 17
•Hjarta tölvunnar er
stýrikerfið og í einkatölvu-
heiminum bítast nú þrjú stýrikerfi
um hituna; Windows 95, OS/2 og Kerfi 8 frá
Apple. Reyndar er þegar ljóst hvert stefnir,
þ.e. hvert þessara kerfa verður ofaná, en það
er ekki þar með sagt að það sé það besta í
öllum tilfellum. Mikið er látið með Windows
95, sem vonlegt er, en OS/2 er vænlegur val-
kostur og nýtt stýrikerfi fyrir Macinsoh frá
Apple, Kerfi 8, er væntanlegt.
Tækni &tölvur í
Laugardalshöll
Tækni & tölvur - inn í nýja öld heitir
sýning Samtaka tölvusala sem sett verð-
ur í Laugardalshöll í kvöld. Að sögn
Brynjars Ragnarssonar eru tölvusalar
að bregðast við upplýsingabyltingu síð-
ustu fimm ára.
í KVÖLD verður sett í Laugardals-
höll sýningin Tækni & tölvur - inn í
nýja öld, sem samtök tölvuseljenda
standa fyrir, en samtökin skipa ACO,
Apple-umboðið, EJS/Einar J. Skúla-
son, Heimilistæki, Nýheiji, Tæknival
og Örtölvutækni. Sýningin er stærsta
tölvusýning sem haldin hefur verið
hér hingað til
Ráðgjafí sýningarhaldara er Brynj-
ar Ragnarsson hjá Brynjar hönnun
ráðgjöf. Hann segir að langt sé um
liðið síðan haldin hafí verið yfirgrips-
mikil tölvusýning hér á landi, síðast
í Þjóðarbókhlöðunni fyrir ca. 5-7
árum. „Síðan þá er skollin á upplýs-
ingabylting um heim allan,“ segir
Brynjar, „með þvílíkum tilþrifum að
nú er svo komið að tölvan er farin
að gegna sífellt veigameira hlutverki
í öllum starfsgreinum, á heimilum og
á öllum stigum skólakerfisins.
Forráðamönnum STS þykir því
tímabært að bjóða fslensku þjóðinni
á yfirgripsmikla tækni- og tölvusýn-
ingu, nú þegar hlutir eins og alnetið,
margmiðlun, sýndarveruleiki og víð-
tæk upplýsingakerfi fyrir iðnað, versl-
anir, skrifstofur og sjávarútveg eru
að verða svo stór þáttur í daglegu
lífi almennings.
Það er ljóst að þörf fyrir sýningu
af þessu tagi hefur verið fyrir hendi
og sýningin mun bera sig vel. Strax
í upphafi var hugmynd stjórnar STS
að veija ágóða hennar í sérstakt
draumaverkefni félagsins sem er lög-
verndun hugbúnaðar á íslandi."
Hátækni inn í nýja öld
Brynjar segir að þema sýningarinn-
ar sé sú hátækni sem muni fylgja
okkur inn í nýja öld.
„Sýningin mun ganga út á allt það
nýjasta og áhugaverðasta í tölvuheim-
inum s.s. tölvur, hugbúnað, upplýs-
ingakerfi, alnet, tölvupóst, margmiðl-
un, sýndarveruleika, CD-ROM,
fræðsluefni, gagnvirka leiki, og fjöl-
margt fleira á öllum mögulegum svið-
um. Hún er hugsuð fyrir fyrirtæki,
ijölskyldur og námsfólk á frama-
braut. Sérstök áhersla verður lögð á
fyrirtækin á föstudeginum með sér-
stökum boðsmiðum frá sýnendum.
Hátækni er undirstaða fyrirtækja
framtíðarinnar," segir Brynjar.
„Laugardagurinn og sunnudagur-
inn verður hins vegar undirlagðir við-
burðum við allra hæfi og áhersla lögð
á fjölbreytta sýningu fyrir börn, ungl-
inga og fullorðna á öllum aldri. And-
dyri Laugardalshallarinnar verður
sérstaklega hugsað fyrir börn og
unglinga þar sem sýnendur munu
bjóða upp á sérstök svæði fyrir gagn-
virka leiki, fræðsluefni o.fl. tengt
margmiðlun, skemmtun hverskonar
og viðburði því tengdu.“
Sjö mánaða
undirbúningnr
Brynjar segir undirbúningur að
sýningunni hafi hafist í mars síðast-
liðnum og því staðið í sjö mánuði.
„Væntingar voru strax miklar og því
ákveðið að ganga hreint til verks,
panta Höllina og byija að fullu undir-
búning og kynningu fyrir væntanleg-
um sýnendum. Allt hefur gengið að
óskum; sýnendur eru 75 á 14.000
fermetrum, í í anddyri, aðalsal og í
nýju viðbyggingunni. Hátt í 50 manns
hafa stafað við að koma sýningunni
á legg og munu starfa við hana á
meðan hún er opin og líklega eru um
600 manns á vegum sýnenda við
undirbúning og uppsetningu. Starfs-
fólk sýnenda á sýningunni sjálfri
verða um 240 og á vegum sýningar-
stjórnar um 20.“
Hátíðaropnun í dag
Davíð Oddsson forsætisráðherra opn-
ar sýninguna formlega með ávarpi
kl 16 í dag og sérstakri tölvutengdri
athöfn. Sýningin verður síðan opin
almenningi föstudag, laugardag og
sunnudag, frá kl. 10.00 til kl. 18.00.
BARATTAN UM VÖLDIN
EINKATÖLVA væri ekki til mikils
nýt ef ekki kæmi til stýrikerfið;
hugbúnaður sem stýrir tölvunni,
tekur við boðum og beiðnum frá
öðrum forritum og kemur til skila,
skammtar minni og vinnslurými
og gætir þess að eitt forrit sé ekki
að kássast upp á annað. Slík kerfi
hafa verið legíó í sögu einkatölv-
unnar og þó eitt hafi náð yfirgnæf-
andi yfirburðum er fjarri lagi að
valdabaráttunni sé lokið; hún er
harðari nú en nokkru sinni og fer
harðnandi.
Allt byijaði með DOS
Þegar fyrsta einkatölvan kom á
markað frá IBM studdist hún við
stýrikerfi sem hét einfaldlega Disc
Operating System, en var skamm-
stafað DOS. DOS varð ekki endi-
lega fyrir valinu vegna þess að það
væri það besta sem til var á mark-
aðnum, á þeim tíma voru til ýmis
fullkomnari stýrikerfi fyrir smát-
ölvur, þar á meðal CP/M, en sagan
segir að þegar stjórar IBM vildu
ræða við hönnuð þess vegna einka-
tölvunnar nýju kaus hann frekar
að fara í veiðitúr. Þeir sneru sér
þá til Bill Gates og fyrirtækis hans
og Pauls Allens, Microsoft, og fýrir
vikið varð Bill Gates á endanum
ríkasti maður Bandaríkjanna.
Frá upphafi var DOS takmarkað
um margt, og eftir því sem tölvur
urðu öflugri og notendur gerðu
meiri kröfur urðu gallar stýrikerfis-
ins æ meiri fjötur um fót. Meðal
annars til að svara þeim galla setti
Microsoft á markað Windows, en
líka til að svara samkeppni frá
Apple, sem bauð upp á stýrikerfi á
Macintosh-tölvum sínum sem var
og er um margt fyrirmynd annarra
stýrikerfa í myndrænum og auð-
skildum notendaskilum.
Segja má að Microsoft hafi slegið
Apple endanlega út af laginu þegar
Windows 3.0 kom á markað. Þó það
hafi verið gallað í mörgu var það
gríðarlegt skref í átt að myndræn-
um notendaskilum og mörgum
fannst sem þeit' hefðu himinn hönd-
um tekið. Um þetta leyti voru IBM
og Microsoft í samstarfi um hönnun
á nýju stýrikerfi sem átti að færa
IBM aftur völdin á tölvumarkaðn-
um; fullkomið 32 bita fjölvinnslustý-
rikerfi sem gerði líka kleift að keyra
öll gömul forrit.
Ur því samstarfi slitnaði, meðal
annars vegna deildra meininga um
uppbyggingu kerfisins, hvort það
ætti að vera framhald á Windows
eða eitthvað nýtt. IBM fékk í hend-
urnar það sem þegar hafði verið
gert, en Microsoft hélt áfram þá
braut sem það hafði markað með
Windows 3.0. IBM setti síðan á
markað OS/2, sem heiti þess átti
meðal annars að vísa til PS/2 tölvul-
ínu fyrirtækisins, sem byggði á því
sem fyrirtækin höfðu unnið í sam-
einingu og hefur þróað það enn frek-
ar. Microsoft setti á markað
Windows NT, sem einnig sótti í
samstarf fyrirtækisins og IBM, og
síðar Windows 95, sem er framhald
Windows 3.x línunnar. Apple hefur
farið halloka í þessum slag, meðal
annars tapað markaðshlutdeild síð-
ustu ár, en hyggst svara fyrir sig
með því að selja stýrikerfið eitt sér,
þannig að í framtíðinni getur not-
andi keypt þá vél sem honum finnst
henta best og síðan valið sér hvaða
stýrikerfi sem er.
Leiða má sterk rök fyrir því að
OS/2 frá IBM og Kerfi 7 frá Apple
séu um margt betri og traustari
stýrikerfi en Windows 95, en mark-
aðurinn hefur þegar greitt atkvæði
sitt; markaðshlutdeild OS/2 og
Kerfis 7 er áþekk, 8—9% af einka-
tölvumarkaðnum, en Windows 3.x
er með um 60% markaðarins á sínu
bandi, og nánast allir þeir eiga eftir
að skipta yfir í Windows 95 ef að
líkum lætur.
Kynnt með húllumhæi
Windows 95 var kynnt með meiri
hamagangi en dæmi eru um með
hugbúnað fyrir skemmstu og sala á
stýrikerfinu hefur gengið að óskum;
fyrir stuttu var búið að selja yfir
milljón pakka af Windows 95, og
spáð að salan eigi eftir að fara vel
yfir þijár milljónir fyrir áramót.
Windows 95 er í grundvallarat-
riðum frábrugðið Windows 3.1 og
3.11 sem margir þekkja. Sá munur
sem mestu máli skiptir fyrir öiyggi
og áreiðanleika stýrikerfísins er að
það tekur völdin í tölvunni þegar
það er ræst, en fyrri útgáfur á
Windows voru ræstar eftir að búið
var að ræsa upp á tölvunni DOS.
DOS stýrikerfi er þó ekki langt
undan, því ýmislegt því tengt fylgir
til að tryggja að unnt sé að keyra
eldri forrit.
Helsta nöldur vegna Windows 95
hefur reyndar verið vegna þessa,
vegna þess að Windows 95 er ekki
hreint 32 bita stýrikerfi, heldur eru
hluta þess 16 bita. Þrátt fyrir það
á forritið að vera traustara en eldri
útgáfur Windows og hefur reyndar
komið fram í prófunum að svo sé.
Ymislegt annað gerir Windows 95
fysilegan kost, þó ekki sé það eins
fullkomið og margur vonaðist eftir.
Einn helsti höfuðverkur PC tölvu-
notenda hefur verið að bæta við
jaðartækjum, þ.e. að setja í tölvuna
hljóðkort, mótaid, leikjakort eða
geisladrif svo dæmi séu tekin. Með-
al helstu kosta Windows 95 er nýr
Sýnendur
í Laugardalshöll
29. september til 1. október 1995
Örygglsgangur
aö brunaslöngu
EXIT
Skrlfstofugangur
SKÝRR Landsbanki Rafiðnaðar- íslenska islensk
islands skólinn menntanetið forritaþróun
106 105 103 102 101
Strengur / Hemra Effemm 957
Morgunblaðiö
100 99 98
56 L.U.K.R. 158 Fjölform | eo NAT
llq r
:él u
Kerfis-
gerðln
___54
11
IX
Prentsmiðjan Póstur
Oddi og sími
62 61
Apple-umboðið
95
rlFutækni-
ig Islands
Tölvu-
miðstöð
Sparí-
sjóðanna
96
V 50
NAT
Símvirkinjn
-Simtæki
45
Hugvaki
44
Náms-
gagna-
stofnun
x
ui
42
VlS/
Tölvur
74 75
Nútíma
samskipti
64 73
Ráðhug- Mlðlui
búnaður Handt ækur
65 72
Hans Huglis Nauðs t yn ACO
Petersen Sigurt ieir
66 71
Vinnu-
eftirlit FACO
ríkisins
68 70
Hugvirki Qlan
92
T.B.
Tæknibúnaður
91 90 89 87 86
Marg- miðlun Tölvuskóli Reykjavikur Rauði dregillinn T.O.K. Lindin
Búnaðarbankinn Örtölvutækni B.T.Tölvur 88 3 E CO </> fslandsbanki Heimilistæki
76 77 78 a. §> 79 80
85
Miðlun/
Gula-línan
Hugbúnaður
Nýherji
34
40 38 36
Reuter Tölvu- myndir Skíma EXIT
A*
a
■o
-»
&
\
33 32 30 29 28
Radíóstofan Hugur Bóksala stúdenta Opin kerfi / Skyggnir / Strengur VISA Island
Leikjabás
í boöi
sýnenda
Leikjabás
íboði
sýnenda
Upplýsingar
Framtiðar sýn
Þekking r
S ecuricode 3 Securitas
island
Anddyri
-t-
staðall. Plug and Play, eða PnP, sem
á eflaust eftir að verða ráðandi í
tölvuheiminum í ljósi yfirburða
markaðsstöðu Microsoft. Plug and
Play þýðir að Windows 95 grand-
skoðar tölvuna og þegar síðan
tengja á nýtt jaðartæki sér stýri-
kerfið um það að • mestu hjálp-
arlaust. Þessu hefur verið hagan-
lega komið fyrir í Apple, sem gat
haldið skikki á slíku í ljósi þess að
það var eina fyrirtækið sem fram-
leiddi Macintosh-tölvur og hefur
verið öfundarefni margra PC manna
í gegnum tíðina.
Annað sem telst til bóta, þó ekki
sé það komið nema hálfa leið í raun,
en að nú má kalla skjöl eins löngum
nöfnum og hvern og einn lystir, en
forðum varð að hafa þann hátt á
að velja átta stafa heiti með þriggja
stafa viðskeyti og mátti ekki nota
íslensk tákn. Þannig má skrifa
„Grein um stýrikerfi fyrir tölvublað"
en ekki grnsttbl.doc, eins og forðum.
Þetta er þó ekki komið nema hálfa
leið, eins og getið er, því vegna
kröfunnar um að hægt sé að nota
eldri forrit þá heitir skjalið lengra
nafninu í Windows 95, en önnur
stýrikerfi og eldri gerðir forrita
sjá DOS-heiti. Þetta telja
sumir sem um hafa
fjallað mikinn galla,
en aðrir léttvægt
smámál.
Fjölmargt ann-
að er til þæginda-
auka sem fengið er
meðal annars frá Kerfi
7, til að mynda má nú sjá
skjöl á skjáborðinu og um
leið hvaða forrit vistaði þau
hægt er að hafa diskadrifin sem
táknmyndir á skjáborðinu, rusla-
fata er kominn á skjáinn sem hægt
er að draga skjöl í og svo mætti
lengi telja.
Allar líkur verður að telja á því
að flestir skipti úr Windows 3.x yfír
í Windows 95, sérstaklega þegar
32 bita forrit fara að streyma á
markaðinn, því þá fyrst fer Windows
95 að stinga eldri gerðir af. 32 bita
forrit eru hraðvirkari, og stöðugri í
vinnslu og hægðarleikur að keyra
mörg slík í einu, því hvert fær sitt
sérstaka rými í minninu. Vandinn
með 16 bita forritin er aftur á móti
að þau eru keyrð í sama rými, sem
gerir að verkum að þau geta rekist
á og jafnvel dregið alla tölvuna
með sér svo það verður að endur-
ræsa hana.
Fullkomið 32 bita
stýrikerfi
OS/2 var eins og áður segir upp-
haflega samvinnuverkefni Micro-
soft og IBM, en á endanum tók IBM
það að sér og þróaði áfram. Ekki
hefur gengið of vel að vinna því
sess þó það sé að mörgu leyti það
stýrikerfí sem menn eru enn
að bíða eftir að Microsoft
sendi frá sér. Ólíkt
Windows 95 er OS/2
fullkomið 32 bita
stýrikerfi, sem þýðir
að það er stöðugra í
- flestu tilfellum en
Windows 95, og ræð-
ur við fullkomna fjöl-
vinnslu, þ.e. að keyra
mörg forrit í einu án
þess að þau séu að taka
vinnslutíma hvort frá öðru.
Þar sem OS/2 byggir á sömu
grunnhugmynd og Windows að
mörgu leyti er það fullfært um að
keyra Windows og DOS hugbúnað.
Windows-hugbúnað keyrir OS/2
álíka eða hægar en Windows sjálft,
en DOS keyrir OS/2 aftur á móti
hraðar og markvissar en DOS
sjálft, og auglýsingavígorð IBM,
betra DOS en DOS, á fullkomlega
við í þessu tilfelli. IBM er enn að
þróa OS/2 og þannig kom á mark-
að fyrir nokkru OS/2 Warp, sem
er mjög endurbætt útgáfa, og síðan
Warp Connect, sem gefur mögu-
leika á öllum hugsanlegum net-
tengingum. Ekki skiptir minna
máli að OS/2 gerir minni kröfur
til minnis og afls en Windows 95.
Þannig gerir Warp ekki kröfu til
meira minnis en 4 Mb, en þó Mic-
rosoft haldi því fram að Windows
95 megi hæglega keyra með 4 Mb
af minni þá er raunhæfara að tala
um 8 Mb lágmark.
Eins og getið er í upphafi hefur
Microsoft þegar sigrað í stýrkerfa-
slagnum; nánast allar tölvur sem
seldar hafa verið hér á landi undan-
farin ár hafa verið með DOS og
síðustu árin Windows líka. Eftir
nokkra mánuði verða nánast allar
tölvu sem seljast með Windows 95.
Það er gríðarlegt skref fram á við
fyrir þá sem setið hafa uppi með
DOS og Windows 3.x fram til
þessa, en eflaust eiga margir eftir
að reyna fyrir sér með OS/2 og sjá
líkast til ekki eftir því.
Nýtt Kerfi fyrir Macintosh
Einn helsti kosturinn við
Windows 95 er að það tekur mikið
frá Macintosh stýrikeríinu, sem
yfirleitt er
kallað Sy-
stem, eða
Kerfi,
numen.
aftan við sem
segir til um út-
gáfuna. Kerfi 7.5,
sem er einna algengast í Macint-
osh-tölvum í dag, er fullkomið 32
bita stýrikerfí, eins og OS/2 og
þó Apple hafí farið halloka í slagn-
um við Microsoft og PC samhæfð-
ar tölvur, er það enn í fullu fjöri,
hefur lækkað verulega verð á tölv-
um, leyfir nú öðrum að framleiða
Macintosh samhæfðar tölvur, og
undirbýr nýja útgáfu á stýrikerf-
inu fyrir Macintosh, Kerfi 8, sem
felur í sér ýmsar eftirtektarverðar
nýjungar.
Kerfi 8 er væntanlegt um mitt
ár 1996 og eru breytingarnar á
því allmiklar, meðal annars verða
grundvallarbreytingar gerðar á
arkitektúr stýrikerfisins til að gera
það öruggara og bæta vinnslu tölv-
unnar töluvert. Að sögn
Apple-manna munu af-
köst tölva sem nota Pow-
erPC-örgjörvann batna til
muna þar sem 95%
af hinu nýja stýri-
kerfi munu full-
nýta PowerPC-
örgjörvann.
Gjörbreytt útlit
Sú breyting sem
notendur munu
taka fyrst eftir
er að útlit kerf-
isins er gjör-
breýtt. Reyndar
verður ekki hægt að
tala um eitthvað eitt
„Makkaumhverfi“ því notandinn
getur valið milli margra. Sérhver
notandi á þannig að geta valið sér
v' -íiuumhverfi. Ef margir nota
sömu tölvuna er auðvelt að skipta
á milli t.d. þess umhverfis sem
hentar frekar bömum og þess sem
hentar fullorðnum.
Kerfið mun spyija sérhvern not-
anda ýmissa spurninga í fyrsta
skipti sem hann notar kerfið og
komast þannig að því hve langt á
tölvubrautinni hann er kominn og
stilla kerfisumhverfið eftir því. I
hvert sinn sem tölvan er ræst spyr
tölvan notandann að því hver hann
sé og setur síðan upp stillingar
notandans og skilar honum inn í
kerfið þar sem hann hætti að vinna
síðast, þó ekki alla leið inn í forritið
sem seinast var unnið í.
Kerfi fyrir aðrar tölvur líka
Kerfi 8 er einnig hannað með það
í huga að það sé keyrt á tölvum frá
fieiri framleiðendum en Appie, en
slíkar tölvur eru þegar farnar að
berast á markað.
Flestum finnst það eflaust til
bóta að í nýja kerfinu er mun auð-
veldara að meðhöndla tölvuna ef
hún frýs. Ekki þarf lengur að ræsa
upp allar viðbætur þótt vélin frjósi,
heldur eingöngu þann hluta sem
fraus. Rekstur viðbóta er reyndar
ein helsta orsök fyrir því að Macint-
osh-tölva frýs, því hinar ýmsu við-
bætur eru skrifaðar af mörgum
mismunandi hugbúnaðarframleið-
endum. í dag þurfa hugbúnaðar-
framleiðendur ekki að láta viðbæt-
urnar uppfylla neina staðla, geta
teygt og togað kerfið að vild. Marg-
ar viðbætur geta af þessum orsök-
um leitt til togstreitu milli viðbóta.
Frá og með kerfi 8 er þetta úr sög-
unni, því hugbúnaðarframleiðendur
verða þá að nota hugbúnað að náfni
„PatchManager“ til að skrifa við-
bætur og á notkun hans að koma
í veg fyrir viðbótaárekstra.
í Kerfí 8 þarf notandinn ekki að
bíða eins lengi eftir tölvunni og í
dag því S senn verður hægt að
afrita margar skrár, tæma rusl-
ið og ræsa hugbúnað. Not-
andinn mun einnig finna
mun á hversu miklu
sneggri tölvan verður að
svara öllum innslætti frá
hnappaborðinu og músinni þó
svo að einhver vinnsla sé í bak-
grunni.
Kerfið 7.x getur ekki unnið með
meira en 4GB diskrými í einu. Það
er mikið fyrir ritvinnslu, en lítið
fyrir kvikmynda- og hljóðvinnslu.
Nýja kerfíð getur aftur á móti unn-
ið með meira en 256 þúsund GB.
Endurbætt sýndarminni
Kerfi 8 býður upp á verulega
endurbætt og hraðvirkt sýndar-
minni sem alltaf er virkt og fyrir
vikið er unnt að keyra fulla útgáfu
af Kerfí 8 með öllum viðbótum og
ræsa eins mörg forrit og þörf krefur
þó ekki sé nema 8 Mb minni í tölv-
unni, þó vinnsla tölvunnar verði vit-
anlega hægari eftir því sem forritin
verða fleiri.
QuickDraw Gx og QuickDraw 3D
eru hlutar af Kerfí 8 sem þýðir að
allir prentreklar verða að vera GX-
prentreklar og letur sem ekki er af
GX Type 1 gerð er ekki hægt að
nota undir Kerfi 8. Apple ætlar að
mæta þessu með því að láta GX
prentrekil fylgja kerfinu, en hann
notar PDD-skrár og LaserWriter
8.x prentreklana, þannig að notend-
ur eiga ekki að þurfa að óttast að
lenda í vandamálum með prentara
sína.
Miklar líkur eru á að kerfí 8 verði
eingöngu gert fyrir Power Macint-
osh tölvur, reyndar hefur Apple
ekki enn tekið ákvörðun um hvort
kerfi 8 komi út fyrir 68040-örgjör-
vann. það ætti að vera mögulegt
að færa þær útlitsbreytingar sem
verða með Kerfi 8 yfir á fyrri kerfi,
en aftur á móti er ljóst að það yrði
mjög dýrt fyrir Apple að láta um
skrifa Kerfi 8 svo að það gangi á
68040-örgjörva og því harla ólíklegt
að svo verði.
Windows 95 hefur
vinninginn
Windows 95 hefur vinninginn þó
ekki sé það vegna tæknilegra yfir-
burða. Stríðinu er þó fráleitt lokið.
því útgáfa af OS/2 fyrir RISC ör-
gjörva á eftir að keppa við væntan-
lega útgáfu á Kerfí 8 og þar verður
Windows 95 fjarri góðu gamni, því
það er hannað fyrir x86 örgjörva og
getur því ekki unnið á RISC.
Ekki má svo gleyma samstarfí
IBM, Apple og fleiri að nýju stýri-
kerfí sem fyrirtækin ætla að kynna
á næstu árum og heitir Pink, en
þeir sem til þekkja segja það bylting-
arkennt að öllu leyti. Það verður þó
að telja óliklegt að Microsoft hafí
sagt sitt síðasta orð.